Morgunblaðið - 05.01.1982, Side 3

Morgunblaðið - 05.01.1982, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1982 3 Rýrnun Línuritið hér að ofan sýnir þróun kaupmáttar frá því á þriðja ársfjórðungi 1978 fram til þriðja ársfjórðungs 1981 og er það byggt á upplýsingum, sem fram komu í áliti sjálfstæðismanna í fjárveitinganefnd Alþingis við aðra um- ræðu um fjárlög fyrir 1982. Miðað við 3ja ársfjórðung 1978 hef: ur kaupmáttur launþega innan ASÍ rýrnað um 7% á sama ársfjórðungi 1981, kaupmáttur opinberra starfs- manna hefur á sama tíma rýrnað um 10,4%. Elli- og örorkulífeyrisþegar með tekjutryggingu bjuggu á 3ja ársfjórðungi 1981 við eilítið lakari kaupmátt en á 3ja ársfjórðungi 1978, hins vegar var kaupmáttur almenns ellilífeyris 9,5% minni á 3ja ársfjórð- ungi 1981 en á 3ja ársfjórðungi 1978. Það var einmitt á 3ja ársfjórðungi 1978, sem Alþýðubandalagið fékk ráðherra í ríkisstjórn Ólafs Jóhann- essonar og hafa þeir verið við völd síðan, ef undan eru skildir 4 mánuðir frá október 1979 til febrúar 1980. Komst Alþýðubandalagið til valda undir kjörorðunum „Kosningar eru kjarabarátta“ og „Samningana í gildi". kaupmátta síðan 1978 Kaupmáttur Svavar Gestsson: Knappur og óviss meiri- hluti á þingi SVAVAR GesLsson, formaður Al- þýdubandalagsins, segir í ára- mótagrein í Þjóóviljanum á gamlársdag, aó ríkisstjórnin búi vió knappan og óvissan meiri- hluta á Alþingi. „Hitt er ljóst, að meirihluti stjórnarinnar á alþingi er ekki eins sterkur og vera þyrfti," segir Svavar Gestsson enn- fremur. Alburt boðar komu sína BANDARÍSKI stórmeistarinn Lev Al- burt hefur tilkynnt þátttöku á Keykja- víkurskákmótið, sem hefst í febrúar á Kjarvalsstöóum. I>á hefur ungverski stórmeistarinn Adorjan staófest, aó hann mun mæta til leiks, þannig að Ijóst er aó 20 stórmeistarar að minnsta kosti munu taka þátt í mótinu. Ungverski alþjóðlegi meistarinn Horvath hefur og tilkynnt þáttöku. Enn er á huldu, hvort Viktor Korchnoi, hinn landflótta sovéski stórmeistari mun mæta til leiks, og hvort eða hverjir muni mæta frá Sovétríkjunum. „Hvað er að gerast um helgina“ ÞEIR, SEM vilja koma að fréttum í þáttinn „Hvað er að gerast um helgina", eru beðnir um að skila þeim inn á ritstjórn Morgunblaðs- ins fyrir miðvikudagskvöld. Komi fréttirnar síðar er ekki hægt að Iryggja birtingu þeirra í þættin- um. Þátturinn verður framvegis í blaðinu á föstudögum. Vegna óvenju hagstæðrar skráningar franska frankans þá getum við nú boðiö nokkrar Peugeot fólksbifreiðar á hreint ótrúlegu verði. Verð skv. gengisskrá 1/1/82 104 ............. kr. 94.300 305 GLS ......... kr. 122.900 305 station ..... kr. 146.200 504 GR .......... kr. 132.800 504 station ..... kr. 157.100 505 frá ......... kr. 154.100 Peugeot bílar eru þekktir fyrir gæði, aksturseiginleikar eru einstakir og fjöðrunin slaglöng og mjúk. Peugeot 305 og 505 eru fáanlegir með sóllúgu, lituðu gleri í rúðum, rafdrifnum rúðum, rafmagnshurðalæs ingum, vökvastýri (505) og vönduðu tweedáklæði á sætum. V/ t» HAFRAFELL VAGNHÖFÐA7 ® 85211 - 85505 VÍKINGURSF. AKUREYRI w w TRYGGIÐ YKKUR BIL STRAX, ÞVI AÐEINS ORFAUM BILUM ER ORAÐSTAFAÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.