Morgunblaðið - 05.01.1982, Side 10

Morgunblaðið - 05.01.1982, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1982 Þór Jakobsson veðurfræðingur: Hentug skilyrði fyrir hafís í vetur Stór leiðangur á að rannsaka hafísinn í A-Grænlandsstraumi árið 1983 Hafís norðvestur af landinu hefur yfirleitt verið meiri í haust en í fyrra- haust, en hafískönnun Landhelgis- gæslu íslands, mánudaginn 28. 12. sl. leiddi hins vegar í Ijós, að fjar lægð ísbrúnarinnar frá Vestfjörðum nú um áramótin er meiri en á sama tíma í fyrra. En það hefur verið kuldalegt í sjónum undanfarið norð- ur af landinu og eru það að því leyti hentug skilyrði til komu hafíss að ströndum íslands síðar í vetur. Rfkj- andi vindáttir ráða þó mestu um, hvernig fer að lokum, sagði Þór Jakobsson, deildarstjóri hafísrann- sóknadeildar Veðurstofu íslands, þegar Morgunblaðið ræddi við hann um hafísinn á síðasta ári og horfur á þessu. Þótt til allrar hamingju megi segja, að hafísinn hafi ekki valdið vandræðum við Island árið 1981, skall hurð nærri hælum tvisvar, þrisvar sinnum — að því er virtist. Hafísjaðarinn var þá allnærri landi og frekari tilfærsla að land- inu stóð og féll með rikjandi vind- áttum, m.ö.o. gangi lægða og hæða. I upphafi ársins var ís næst landi aðeins um 13 sjómílur norð- vestur af Straumnesi þ. 12. janúar og um miðbik mánaðarins var einnig ís úti fyrir Norðurlandi, að vísu alldjúpt. Næstu vikurnar þar á eftir var útbreiðslan allbreytileg og mest í kringum 10. febrúar. Mátti þá telja ástandið nokkuð í- skyggilegt, en þá hófst mikil suð- austan hreingerning á hafinu, sem færði ísjaðarinn í meðallagið. Lægðin krappa, sem feykti til bíl- um hér í Reykjavík þ. 16. febrúar, rak smiðshöggið á verkið og stillti jaðrinum í eðlilega suðvestur- norðaustur stefnu samsíða strönd- um Grænlands. Á sumrin fylgist háfísrann- sóknadeild með hafísnum, eftir sem áður, en þá voru syðri tak- mörk hans norður við Scoresby- sund á Grænlandi. Notast er við veðurtunglamyndir og annað sem til fellur, t.d. hafa Danir flogið yf- ir og kannað ísinn við A-Græn- land undanfarna tvo ágústmánuði. Strax í haust virtist ís þar norð- ur frá vera stórgerðari en árið áð- uði. Þetta er samkvæmt könnun, sem Eiríkur Sigurðsson veður- fræðingur hefur gert á lofthita- mælingum frá þessum slóðum síð- ustu mánuðina. Minni kuldi þarna norður frá gæti verið fyrir tilverknað Golfstraumskvíslar, sem liggur frá Skandinavíu nyrst, til Sval- barða, — sveigir svo til suðurs á ný og myndar hringrás, rangsælis, með syðri mörkum í grennd við Jan Mayen. Nokkuð er þá kvíslin þróttlítil, en breytingar á straumstyrk frá einum tíma til annars gætu samt verið talsverðar og valdið mismunandi lofthita. Annars er margt ókannað í sambandi við hafís meðfram A- Grænlandi, en hafís við Island er í rauninni lítið annað en reytingur ur. Yfirleitt hefur hafísinn milli Grænlands og íslands verið öllu ágengari á miðunum, það sem af er vetrar — ágengari en næstliðna tvo vetur. Samkvæmt mælingum Hafrannsóknastofnunar hefur sjór fyrir norðan land verið kaldur og er full ástæða að vera við ýmsu búinn. Skilyrði til ísmyndunar eru því nokkuð góð — því miður, en svo fer það mjög eftir vindáttum, hvort ís berst að landinu og mynd- ast jafnvel nær því en oftast ger- ist. Þess má geta, að loftið yfir At- lantshafi nyrst, á hafsvæðinu fyrir norðan 70° N og norður að Svalbarða, hefur verið tiltölulega milt miðað við lofthita sunnar, t.d. hér yfir íslandi undanfarna mán- úr þeim ís. ísland er skammt frá meginjaðrinum og við fáum að kenna á ísnum, ef hann er óeðli- lega mikill við Grænland. Hafa verður einnig í huga, í sambandi við hafískönnun, að haf- ísinn er oft á miðum íslendinga. Vitneskja um hafís allfjarri sjálf- um ströndunum er því mjög mik- ilvæg líka. Könnun á öllu haf- svæðinu við ísland er því verkefni, sem Landhelgisgæsla íslands og Veðurstofan telja mjög brýnt. Nú er að hefjast viðamikil, al- þjóðleg samvinna um rannsóknir á hafísjaðrinum í norðurhöfum, þvert yfir N-Atlantshafið og Ber- ingshafið, nyrst í Kyrrahafi,. en þar leggst ís yfir á veturna. í þess- um áætlunum er gert ráð fyrir, að sumarið 1983 verði gerður út mik- Þessi mynd var tekin úr veðurtungli þann 23. apríl á síðasta ári og á henni sést hafísröndin milli íslands og Grænlands greinilega. Eins og sjá má, þá er bjart yfír öllu íslandi. KMB Þór Jakobsson ill leiðangur með skipum, flugvél- um, jafnvel kafbáti og fjölda manns að kanna hafísinn í A- Grænlandsstraumi allra nyrst, við Svalbarða og þar suður af. Aðrar rannsóknur munu fara fram smám saman þar sem gögn frá veðurtunglum verða nýtt, ým- iss konar reiknilíkön verða gerð, o.s.frv. Bandaríkjamenn verða driffjöðurinn í þessum rannsókn- um, en auk þeirra verða um 10 aðrar þjóðir með í ieiknum — þar á meðal við íslendingar. Samvinna þessi ætti að stuðla að framförum í hafísrannsóknum og auka þekk- ingu manna á hafís allt hingað suður að íslandsströndum. — Einnig er vonast til að gagnleg vitneskja fáist um þátt hafíss í veðurfarssveiflum á norðurhveli jarðar. I rauninni má segja, að ekkert land sé betur staðsett en Island, með tilliti til hafísrannsókna á norðurslóðum, og gæti hér því orð- ið miðstöð alþjóðasamstarfs um þetta mikilvæga rannsóknarefni. Til viðbótar við samstarf það, sem áðan var nefnt, — við Bandaríkin og önnur lönd —, mun Veðurstof- an og Hafrannsóknastofnunin að öllum líkindum eiga samstarf við sovéska vísindamenn síðar í vetur. Munum við Svend-Aage Malm- berg haffræðingur þá fara í mán- aðarleiðangur á ísbrjótnum „Otto Schmidt" norður með A-Græn- landi og kanna sjó og ís þar norð- ur frá, en aðstæður á þeim slóðum ráða miklu um, hvernig síðar verður umhorfs á íslandshafi og við strendur Islands, sagði Þór að lokum. Bjarni Magnússon. Sigurður Óli Sigurdsson. Landsbankinn: Nýr útibússtjóri í Múlaútibúinu FRÁ OG með 1. janúar 1982 tók Sigurður Oli Sigurðsson við störfum útibússtjóra í Múlaúti- búi Landsbankans, Lágmúla, Reykjavík. Sigurður Óli hefur starfað í Landsbankanum frá ár inu 1959 og nú um allmörg ár verið deildarstjóri í Erlendum viðskiptum í aðalbanka. Bjarni Magnússon, sem nú lætur af störfum útibússtjóra í Múlaútibúi eftir tíu ára starf, mun veita forstöðu úti- búi Landsbankans í nýja miðbænum í Breiðholti, Breiðholtsútibúi, sem vænt- anlega tekur til starfa um mitt ár 1982. (Frétt frá Landsbankanum.) Siglufjörður: Kauptryggingu 110 kvenna í frystihúsunum sagt upp Siglufirði, 29. desember. SKUTTOGARINN Siglfirðingur kom inn fyrir jól og er nú bundinn við bryggju vegna verkfalls sjó- manna. Skuttogararnir Stálvík og Sigluvík eru hins vegar báðir að veiðum fyrir erlendan markað og selja þeir báðir í Englandi fyrstu daga nýs árs. Samgöngur í iofti hafa gengið frekar crfiðlega síð- ustu daga hjá Arnarflugi og Flug- félagi Norðurlands og hafa jóla- gestir tafist af þeim sökum, en tekist hefur þó að koma fólki á milli og að þessu sinni er ekki ástæða til annars en að hrósa starfsmönnum flugfélaganna fyrir dugnað. Starfsfólki í frystihúsunum hér hefur verið sagt upp kaup- tryggingarsamningi með viku fyrirvara lögum samkvæmt. Bréf til starfsfólks bárust í ábyrgðarpósti, dagsett 28. desember, frá Þormóði ramma, og 29. desember frá ísafold. 75 konum er sagt upp hjá Þormóði ramma, en 45 konum hjá ísa- fold. Menn hér á Siglufirði og sjálfsagt víðar á Norðurlandi, eru heldur óhressir með veiði- bannið, sem ákveðið hefur verið til 15. janúar. Þessi tími hefur oft reynzt sjómönnum drjúgur við Norðurland þegar gæftir hafa verið sæmilegar. Eftir sunnanáttina síðustu daga bregður manni heldur í FJÓRAR milljónir króna hafa nú safnasl til aðstoðar Pólverjum og til þróunaraðstoðar í Súdan og Kenýa, að því er Guðmundur Einarsson framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar tjáði Mbl. í gær. Söfnun- ina sagði hann enn í fullum gangi og stæði hún út janúar. Guðmundur Einarsson sagði flutningaleiðir opnar og kvað hann því ekkert til fyrirstöðu að fulltrúar héðan fengju að fylgja sendingum á leiðarenda, en þegar hefur verið ákveðið til hvaða brún í dag, en hér er nú skafbyl- ur og sér varla á milli húsa í mestu hryðjunum. Um jólin, sem voru friðsæl og fóru vel fram, blánaði mjög svo sums staðar, sá jafnvel í auðar götu. - mj svæða íslensk hjálp á að fara. t ráði er að kaupa sem mest hér- lendis og verður unnið í samráði við Hjálparstofnun norsku kirkj- unnar við að koma hjálpargögnum til Póllands. Líklegt er að fyrsta sendingin fari áleiðis til Póllands um eða eftir miðjan janúar. Full- trúar söfnunaraðila hérlendis fara á morgun til Oslóar til viðræðna við fulltrúa Hjálparstofnunar norsku kirkjunnar um hvernig standa á að framkvæmd aðstoðar- innar. Söfnunin til Póllands, Súdan og Kenýa: Fjórar milljónir kr. hafa safnast

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.