Morgunblaðið - 05.01.1982, Page 11

Morgunblaðið - 05.01.1982, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1982 11 Á ári fatlaðra: Bandalag kvenna gaf taugagreini fyrir meira en milljón nýkróna Það var á áliðnu sumri 1980 að Bandalag kvenna í Reykjavík fór að huga að verkefni fyrir „Ar fatl- aðra 1981“. Það var efst í huga á hvern hátt væri best að verja kröft- um, sameinast og reyna að létta byrði þeirra er nafn þessa árs höfðar til. Einu aðildarfélaginu hafði borist ábending um að Endurhæfingard- eild Borgarspítalans vanhagaði um nauðsynlegt rannsóknartæki. En þar sem þetta er fámennt félag, sáu félagskonur fram á, að þetta verkefni var þeim ofraun vegna fjáröflunar nýliðins barnaárs. Var því farið með þetta mál- efni og afhent stjórn Bandalags kvenna. Var kallaður saman formannafundur og málið lagt fram. Var samþykkt að for- mennirnir legðu þetta fyrir sín félög. Var þetta samþykkt í öll- um aðildarfélögunum. Endur- hæfingardeildinni skyldi fært þetta tæki, er síðan fékk nafnið „taugagreinir". Stjórnin skipaði framkvæmdanefnd fyrir verk- efnið. Nefndina skipuðu eftir- taldar konur: Björg Einarsdótt- ir, Guðlaug Wium, Ingibjörg Magnúsdóttir, Sólveig Alda Pét- ursdóttir og Ragna Bergmann. Síðan skipuðu öll aðildarfélög- in 1 fulltrúa hvert og unnu þeir með framkvæmdanefndinni að verkefninu. Framkvæmdanefnd- in lét útbúa táknrænt merki „10 hendur" 9 heilbrigða'. 1 veik- burða, seldist það mjög vel og tóku öll aðildarfélögin að sér sölu á þeim. Síðast í apríl höfðu safnast um 50 milljónir gkr., en það átti tækið að kosta. Var því haldið áfram og ákveðið að gefa annað tæki „hliðartæki" við tauga- greininn. Bæði tækin eru greidd. Alls kom inn í söfnunina gkr. 110.408.963,- eða nýkr. Unnur Ágústsdóttir, formaður Bandalags kvenna, afhendir taugagreininn á Endurhæfingadeild Borgarspítalans. Adda Bára Sigfúsdóttir, stjórnarformaður, veitir honum viðtöku. 1.104.086,93, þar eru innifaldar gkr. 10 milljónir, sem Vinahjálp afhenti Borgarspítalanum að gjöf til tækjakaupanna. Margir spyrja: „Hvaðan komu allir þessir peningar?" „Hvernig var þetta hægt?“ Því er fljót- svarað. — Peningarnir streymdu inn, frá kvenfélögum, samtökum og fyrirtækjum er gáfu stórar upphæðir, og einstaklingar voru mjög örlátir við þetta óskabarn okkar. Vilja nú Bandalagskonur senda öllum þessum velunnurum sínum út um allt land, alúðar- þakkir fyrir rausn þeirra og stórkostlegan vinarhug til árs fatlaðra. Stjórn Bandalagsins þakkar framkvæmdanefndinni og full- trúum, þeim aðildarfélögum sem lögðu geysilega vinnu í þetta verkefni og öllum bandalagskon- um fyrir mikil störf. Tækin voru afhent Endurhæf- ingardeild Borgarspítalans þ. 4. desember sl. af Unni S. Ágústs- dóttur formanni. Ásgeir Ellerts- son yfirlæknir bauð Bandalags- konur og gesti velkomna til fagnaðarins. Adda Bára Sigfús- dóttir stjórnarformaður Borg- arspítalans tók við gjöfinni og færði þakkir fyrir stórkostlega gjöf. Einar Valdimarsson læknir og Ernir Snorrason sálfræðing- ur lýstu notkun tækisins. Er heim var haldið voru konur glaðar í sinni að afloknu stóru átaki. (Krétt frá Bandalagi kvt-nna í Reykjavík.) Akureyri: Slökkvilið slökkti í ára- mótabrennu Akureyri, 2. janúar. ÁRAMÓTIN fóru friðsamlega fram hér á Akureyri, og að sögn lögreglunnar var annríki þar ekki meira á gamlárskvöld en oft er á venjulegu föstudagskvöldi. Það bar þó til tíðinda, að slökkvilið Akureyrar varð að slökkva í einni af þremur ára- mótabrennum er hér var kveikt í á gamlárskvöld, og hinni stærstu, er var við Aðalstræti. Skömmu eftir að eldur hafði verið borinn að bálkestinum gerði hér þveran austan storm, og var þá ekki að sökum að spyrja, að eldtungur í brenn- unni gerðust full nærgöngular við nálæg hús handan götunnar. Var því ekki um annað að ræða en að slökkva eldinn, en ekki hef ég heyrt hvort eða hvenær bálið verður kveikt á ný. — Sv.P. Akranes: Raketta kveikti sinueld RAKETTA kveikti í sinu á svonefndri Breið neðst á Skipa- skaga á gamlárskvöld, og varð að kalla út allt slökkvilið Akraness til að slökkva eldinn. Um tíma logaði á um eins hektara svæði. Var talin hætta á að eldurinn kæmist í bensíngeyma og fisk- verkunarhús á þessum slóðum, en slökkviliðinu tókst að koma í veg fyrir að svo færi. Eldurinn kviknaði, sem áður segir, út frá flugeldi að því að talið er, og telur lögreglan að hann hafi komið logandi til jarðar og þannig kveikt í þurri sinunni. Attþu þér draum ? Ljúft er að láta sig dreyma og enn Ijúfara að láta þá rætast Þeir sem spila með í HHÍ 82 þurfa ekki að láta koma sér á óvart þó jafnvel lygilegustu draumar þeirra geti ræst. Hvernig líst þér á að vera með þegarvið drögum út 136 milljónir króna? Vinningaskrá: r ■•••■■•■ ] •••■ • ••• •■■• •■•■■ • •••■ • ••• ■ ■■• •••■•■■• •■■■•••• ■■■■ •■■■ ■■■■■ • •••• ■■■• L. •••■ ■■•■■ ■■■■• J 9 @ 9 — 9 — 198 — 1.053 — 27.198 — 106.074 — 134.550 450 — 135.000 200.000.- 50.000,- 30.000,- 20.000,- 7.500, - 1.500, - 750,- 3.000,- 1 800.000,- 450.000,- 270.000- 3.960.000- 7.897.500- 40.797.000- 79.555.500- 134.730.000,- 1.350.000,- 136.080.000- HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS hefur vinninginn argus

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.