Morgunblaðið - 05.01.1982, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1982
17
Kvenfélag Grindavíkur afhenti fyrir jólin kirkjunni í Grindavík peningagjöf
ad upphæð 40.000 krónur, sem renna i til kirkjubyggingarinnar. Nú hefur
kirkja þeirra Grindvíkinga verið í smíðum í um þrjú ár en reiknað er með að
hún verði tekin í notkun einhverntíma á árinu 1982. Við sama tækifæri
afhenti Félag þroskaheftra á Suðurnesjum kirkjunni peningagjöf að upphæð
krónur 5000. A myndinni er Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Kvenfélags
Grindavikur, að afhenda peningagjöfina Svavari Árnasyni, formanni sóknar
nefndar Grindavíkur. — Ljósm.: Guðfinnur.
Kvennaframboð á Akureyri:
Vill aukið atvinnulýð-
ræði - er á móti stóriðju
Flugleiðir sitja ekki við
sama borð og aðrir aðilar
segir Skúli Þorvaldsson, hótelstjóri Hótels
Holts, m.a. um samning Flugleiða og ISI um
flutninga og gistingu fþróttafólks
ÁHUGAHÓPUR um kvennafram-
boð á Akureyri hefur gefið út fyrsta
tölublað af blaðinu „Kjósum kon-
ur“, en fyrirhugað er að blaðið komi
reglulega út fram að sveitarstjórn-
arkosningum næsta sumar. í útgáfu-
nefnd eru Vala Valgarðsdóttir, Rósa
Júlíusdóttir og Guðmundur Sæ-
mundsson. Verði ekki af sameigin-
legu prófkjöri flokka og lista fyrir
kosningarnar á Akureyri er stefnt að
því að kvennalistinn verði skipaður
um mánaðamótin janúar/febrúar og
þá meðal annars með hliðsjón af
skoðanakönnun innan áhugahópsins
um kvennaframboðið.
í blaðinu er að finna stefnuskrá
kvennaframboðsins. í kafla um at-
vinnu- og kjaramál segir m.a. að í
kjaramálum beinist stefna
kvennaframboðsins annars vegar
að því að aflétta því misrétti kynj-
anna, sem ríkir á vinnumarkaðn-
um og hins vegar þeirri vinnu-
þrælkun sem viðgengst og skaðar
fjölskyldulíf margra. „Það er ein-
dregin skoðun okkar," segir í
stefnuskránni, „að stóriðja í at-
vinnumálum sé ekki sú leið í at-
vinnumálum, sem hentar bænum [
okkar. Þess í stað teljum við að j
leggja beri áherzlu á að byggja j
upp og efla almennan iðnað, sem
byggir á því sem fyrir er og notar
heimafengin aðföng."
í kafla um jafnréttismál segir
meðal annars. „Við leggjum til að
bæjarstjórn setji sér þá reglu, að
konur eigi að jafnaði helming
sæta í öllum fastanefndum, ráðum
og stjórnum. Sama regla ætti að
gilda um kosningu fulltrúa bæjar-
ins í nefndir, stjórnir og ráð, sem
bærinn á aðild að.“ Síðar segir:
„Við teljum rétt og nauðsynlegt,
að starfsfólk stofnana og fyrir-
Framtíð Sjallans
á Akureyri:
Ákvörðun tek-
in í janúar
Akureyri 30. denember.
ÁKVÖRÐUN um hvað gert verdur vid
Sjálfstæðishúsið á Akureyri, er stór
skemmdist í bruna fyrir skömmu, verð-
ur ekki tekin fyrr en síðari hluta janú-
armánaðar næstkomandi, að því er
Gunnar Ragnars, formaður stjórnar
Akurs hf., tjáði tíðindamanni Morgun-
blaðsins.
Sjálfstæðishúsið var stærsti
skemmtistaður á Akureyri, tók um
600 gesti, og þar hefur verið rekið
veitingahús allt frá því húsið var
byggt. Eigandi Sjálfstæðishússins er
Akur hf. — og á Sjálfstæðisflokkur-
inn meirihluta hlutabréfa fyrirtæk-
isins.
tækja í eigu bæjarins (eða sem
bærinn á hlutdeild í) kjósi úr sín-
um hópi einn eða fleiri fulltrúa í
viðkomandi ráð, nefnd eða stjórn,
og séu þeir ekki úr hópi æðstu
stjórnenda viðkomandi stofnunar
eða fyrirtækis.
„VIÐ HÖFUM ekkert á móti heiðar-
legri samkeppni. Það er hverjum og
einum frjálst að selja sína vöru á því
verði sem hann vill. Hins vegar er
Ijóst, að Flugleiðir sitja ekki við
sama borð og aðrir. Á sama tíma og
þær bjóða öllum íþróttaiðkendum í
landinu, sem eru í kringum 40 þús-
und, 50% afslátt af öllum fargjöld-
um, þá leita þær eftir styrkjum og
lánurn frá ríkinu," sagði Skúli Þor
valdsson, hótelstjóri á Hótel Holti, í
samtali við Mbl., er hann var inntur
álits á nýgerðum samningi milli
Flugleiða og ÍSÍ um flutninga og
gistingu fyrir íþróttafólk, en í samn-
ingum er kveðið á um, að ÍSÍ skuli
beina íþróttafólki á Hótel Esju og
Hótel Loftleiðir.
„Ef þær geta gefið þennan
mikla afslátt getur hagurinn varla
verið mjög bágur. Þær hafa hins
vegar möguleika á að breyta bók-
færðri útkomu að vild. Þær geta
sagt, að tap sé á innanlandsflugi
og Atlantshafsflugi vegna þess, að
það séu grundvallarsamgöngur og
bókfært síðan hagnað á hótel og
bílaleigu, eins og þær gera. Á einu
ári hafa þær t.d. breytt tapi hótel-
anna í hagnað.
Félagið hefur á einni hendi allt
bókunarkerfið til landsins og í
mörgum tilfellum býður það að-
eins upp á tvö hótel, Hótel Esju og
-Hótel Loftleiðir, og ef spurt er um
Hótel Sögu eða Hótel Holt, þá hef-
ur það komið fyrir, að sagt sé að
þessi hótel séu upptekin, sem þau
hafa ekki verið. Það hefur því alls
ekki stundað heiðarlega sam-
keppni að þessu leyti. Það notar
sína einokunaraðstöðu því alveg,"
sagði Skúli ennfremur.
Skúli Þorvaldsson sagði, að í
samningi Flugleiða og ISI stæði,
að ÍSÍ muni beita áhrifum sínum
til að innlent og erlent íþróttafólk,
sem þarf á gistingu að halda, beini
sínum viðskiptum til Hótels Esju
og Hótels Loftleiða. „Þarna er ÍSÍ
að skuldbinda sig til að beina sín-
um viðskiptum til ákveðins aðila
og hefur enga valkosti," sagði
Skúli ennfremur.
„Ég vil ítreka, að ef allir sitja
við sama borð, þá hef ég ekkert á
móti því, að ákveðnir aðilar, hvað
svo sem þeir heita, geti boðið lágt
verð. Ég get hins vegar ekki farið
til ríkisins og óskað eftir styrk
vegna þess, að tap sé á Hótel
Holti, á þeirri forsendu, að ég reki
þjónustu við erlenda ferðamenn
þrjá mánuði ársins. Flugleiðir
geta hins vegar hagrætt sínu
bókhaldi, hvar þær eru með tap og
hvar þær eru með hagnað. I skjóli
þessa geta þær rekið deildir eins
og hótal og bílaleigu með undir-
boðum og tapi og keppt við menn,
sem ekki hafa sömu aðstöðu. Það
er þetta, sem mér finnst fyrst og
fremst gífurlega óréttlátt," sagði
Skúli Þorvaldsson, hótelstjóri á
Hótel Holti, að síðustu.
Húsavík:
Árið heilsaði
með hríð
og kveð-
ur á sama hátt
llúsavík, 30. desember.
ÁRIÐ 1981 gekk í garð með norðan-
átt og snjókomu, og það ætlar að
kveðja á sama hátt, því að í dag er
hér norðaustan stórhríð, og ekki
spáð batnandi veðri. Flug og aðrar
samgöngur við kaupstaðinn eru
tepptar.
I fáum orðum sagt má lýsa
veðrinu á tæplega liðnu ári með
þessum orðum: Veðurfar mjög
óhagstætt, vetur fyrri hluta árs
kaldur, vorið kom ekki, sumarið
stutt og vetur settist aftur að í
september síðla.
Þrátt fyrir þessa óáran hefur
afkoma manna verið góð, má al-
mennt teljast, hér á Húsavík.
— Fréttaritari
*-“• Sv.P.