Morgunblaðið - 05.01.1982, Side 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1982
Agúst setti met í
Gamlárshlaupi ÍR
ÁGÚST Þorsteinsson UMSB sigraði
með miklum yfirburðum í Gamlárs-
hlaupi ÍR og stórbætti met Jóns
Driðrikssonar á hringnum, sem nú
hefur verið hlaupinn sex ár í röð.
Hljóp Ágúst á 30:39 mínútum en met
Jóns var 31:13 frá 1977. Ágúst hefur
dvalizt við æfingar og keppni í Aust-
in Texas, ásamt fleiri íslenzkum
frjálsíþróttamönnum, og er greini-
lega á góðri leið með æfingarnar.
Ágúst Þorsteinsson tók forystu
strax er hlaupið hófst og eftir um
tvo kílómetra hafði hann hrist
alla keppinauta sína af sér. Alls
tóku 27 hlauparar þátt í hlaupinu,
sem er 10 kílómetrar, þar af fimm
konur, þeirra fyrst varð Ragnheið-
ur Ólafsdóttir FH, sem sýndi að
hún hefur æft vel í vetur, en hún,
kom í mark í tólfta sæti.
Gamlárshlaupið fór fyrst fram
1976 og var því háð í sjötta skipti
nú. Hlaupið hefur jafnan dregið
að sér beztu hlaupara landsins, en
að sjálfsögðu hafa aðstæður til
keppni verið misjafnar, aðeins
a «1
• Agúst Þorsteinsson setti met í
hlaupinu.
einu sinni betri en nú, í fyrra varð
að fresta því um nokkra daga
vegna veðurlags. Metþátttaka var
í hlaupinu að þessu sinni. Meðal
keppenda var Janus Guðlaugsson
atvinnumaður í þýzku knattspyrn-
unni og er árangur hans athyglis-
verður þar sem langhlaup og
knattspyrna eru ólíkar íþrótta-
greinar. Urslitin urðu annars sem
hér segir:
Karlar:
Ágúst Þorsteinsson UMSB 30:39
Gunnar Páll Jóakimsson ÍR 32:00
Ágúst Ásgeirsson ÍR 32:36
Gunnar Snorrason UBK 32:45
Einar Sigurðsson UBK 32:49
Steinar Birgisson lR 33:14
Jóhann Sveinsson UBK 33:16
Sigfús Jónsson ÍR 33:52
Gunnar Birgisson ÍR 34:35
Leiknir Jónsson Á 34:52
Sigurður Haraldsson FH 35:20
Jóhann Heiðar Jóhannsson ÍR 35:56
Janus Guðlaugsson FH 36:33
Ingvar Garðarsson HSK 36:45
Ingólfur Jónsson KR 37:42
Högni Óskarsson KR 37:59
Guðmundur Ólafsson ÍR 38:03
Sigurjón Andrésson ÍR 38:38
Ársæíl Sigurðsson ÍR 39:37
Þórólfur Þórlindsson UÍA 40:08
Jóhann Björnsson ÍBK 40:19
Tómás Ponze ÍR 51:42
Konur:
Ragnheiður Ólafsdóttir FH 35:22
Linda Loftsdóttir FH 47:08
Rakel Gylfadóttir FH _ 47:08
Linda B. Ólafsdóttir FH ' 48:04
Ingunn Benediktsdóttir KR 51:39
Orður nældar
í Ovett og Coe
• Janus Guðlaugsson keppti í
Gamlárshlaupi ÍR og stóð sig með
miklum ágætum og sýndi að hann er
í góðri þjálfun.
r—
1. DEILD
I Manch. ('ity 20 H > 4 6 29 22 34
Stulhamplon 19 10 3 6 35 28 33
Swan.sca ('ity 2« 10 3 7 31 31 33
Manchcstcr l'td. 18 9 5 4 28 15 32
Ipswich 16 10 2 4 28 19 32
Tottcnham 17 9 2 6 26 19 29
NotlinKham F. 18 8 5 5 23 23 29
Fv«*rton 19 8 4 7 27 25 28
Krighton 19 6 9 4 24 19 27
Arscnal 16 8 3 5 15 12 27
Wrsl llam 16 6 8 2 33 22 26
Uvcrpool 17 6 6 5 24 19 24
H>st Hromwich 18 6 6 6 23 19 24
Aston Villa 19 5 7 7 23 23 22
( ovcntry 20 6 4 10 29 32 22
Stokc 18 6 2 10 23 28 20
lx*cds 18 5 5 8 18 32 20
Wolvcrhampton 18 5 4 9 12 25 19
Hirmingham 16 4 6 6 23 23 18
Notts County 17 4 5 8 24 31 17
Sundcrland 19 3 511 16 33 14
Middlcsbrough 18 2 6 10 16 30 12
2. DEILD
Luton Town 19 14 2 3 44 20 44
(Xdharn 21 10 7 4 32 23 37
Watford 18 10 1 4 28 20 34
Q. 1». K. 20 10 3 7 27 19 33
( hcl.s«*a 20 9 5 6 28 27 32
Hlackhurn 21 8 7 6 25 20 31
Harnslcy 19 937 30 21 30
Shr fncld Wed. 18 9 3 6 22 22 30
I^ctccstcr 19 6 8 5 25 20 26
( harlton 21 7 5 9 28 33 26
Norwich 20 7 4 9 22 30 25
Ncwcastk* 18 738 23 19 24
< 'ardiff 19 7 3 9 22 29 24
('rystal Halacc 17 7 2 8 14 14 23
Shrcwsbury 18 6 5 7 19 24 23
licrby 18 6 4 8 23 30 22
Kothcrham 17 6 3 8 25 25 21
('ambridgc 18 7 0 II 25 29 21
Holton 20 6 2 12 17 29 20
W rcxham 19 5 3 10 20 26 18
< Irient 19 5 3 11 14 23 18
(irimsby 16 4 5 7 17 27 17
MARGRÉT Thatcher forsætisráð-
herra Stóra Bretlands ákvað um ára-
mótin að viðurkenna sérstaklega
hlaupagarpana Steve Ovett og Seb-
astian Coe fyrir þau frábæru afrek
sem þeir hafa unnið á hlaupabraut-
inni, með því að sæma þá orðunni
MBE.
Orðurnar eru að vísu veittar í
nafni drottningar, en það er jafn-
an forsætisráðherrann sem velur
viðkomandi. Þóttu Ovett og Coe
koma sterklega til greina um síð-
ustu áramót eftir að hafa unnið
sín gullverðlaunin hvor á Ólymp-
íuleikunum í Moskvu, en af hálfu
Thatcher koma aldrei til greina að
Mikið líf var í tuskunum er Akur-
eyrarmótið í innanhússknattspyrnu
fór fram milli jóla og nýárs. Margir
áhorfendur mættu í íþróttaskemm-
una og hvöttu sína menn dyggilega í
baráttunni við erkióvininn. Þór var
sterkari aðilinn á þessu móti en þeir
sigruðu í átta leikjum en KA í fjór-
um. Þór fór með sigur af hólmi í
fimmta fl. A (5:4), fimmta fl. B (3:0),
heiðra íþróttamenn þá þar sem
hún lagðist gegn þátttöku brezkra
íþróttamanna í leikunum. Nú virð-
ist hún vera búin að taka Ovett og
Coe í sátt, en afrek þeirra á árinu
1981 voru út af fyrir sig af því tagi
að næg ástæða var fyrir hvaða
forsætisráðherra sem er að viður-
kenna þá sérstaklega.
Það hefur jafnan verið siður
brezkra forsætisráðherra að við-
urkenna einn til tvo beztu íþrótta-
menn þjóðarinnar, enda gera
brezkir stjórnmálamenn sér betur
grein fyrir því en pólitíkusar
flestra þjóða annarra hvaða gildi
íþróttirnar hafa fyrir þjóðlífið.
fjórða fl. A (6:2), þriðja fl. A (7:5),
þriðja fl. B (4:3), kvennaflokki (3:1),
fyrsta fl. (5:4) og í meistaraflokki
sigraði Þór með 8 mörkum gegn 5.
KA sigraði í sjötta flokki (4:2),
fjórða fl. B (4:2), öðrum fl. (6.5) og í
Old hoys-flokki sigruðu KA-„strák-
arnir“ með 5 mörkum gegn 3. Sigur
vegurum voru veittir veglegir gull-
peningar að launum. — sh.
• Skemmtileg tilþrif I leik KA og Þórs ( 6. flokki í Akureyrarmótinu í
innanhússknattspyrnu.
Þór sterkari í Akureyrarmótinu
Spánverjinn Severiano Ballesteros vmrð að sætta sig við annað sætið í
keppninni og 160 þúsund dollara í verðlaun. Hann tapaði í bráðabana fyrir
Miller. Hér má sjá hvar Ballesteros fagnar einu löngu pútti sínu sem fór ofan
t, í stórri golfkeppni fyrir skömmu. Sfmam. AP.
Miller vann 500 þúsund dali
BANDARÍKJAMAÐURINN Johnny
Miller varð frekar óvæntur sigurveg-
ari á fimm manna móti meistara í
golfi sem haldið var í Sun City í
SuðurAfríku um helgina. Verðlaun
á mótinu voru þau langhæstu sem
um getur á golfmóti og má geta þess,
að Miller fékk um 500.000 banda-
ríkjadali fyrir sigurinn. Sá sem
hreppti fimmta sætið fékk 100.000
dali.
Aðstæður voru ekki upp á það
besta í Sun City, völlurinn að vísu
frábær, en slíkur hiti, að keppend-
ur voru ýmist með hatta á höfðum
sínum, eða hreinlega með regn-
hlífar. Þá mátti heyra í bavíönum
geltandi hér og þar og gleraugna-
slöngur þræddu sér leiðir inn á
brautirnar. Auk þessa reyndust
áhorfendur heldur ágengir og má í
því sambandi geta þess, að stúlka
nokkur spillti stórum einni flöt-
inni með háhæluðum skóm sínum.
En keppendur létu þetta ekkert á
sig fá, til dæmis sagði Lee Trevino
meðal annars: „Mér er hreint
sama hvað bavíanar og áhorfend-
ur taka sér fyrir hendur, þá fyrst
fer ég að kvarta ef einhver grípur
í kylfuna hjá mér í baksveiflunni."
En keppnin var geysispennandi
og áður en lauk þurftu þeir Miller
og Spánverjinn Sevriano Ballest-
eros að leika bráðabana og hafði
Miller þar betur. Þegar venjulegri
keppni var lokið, höfðu þeir Miller
og Ballesteros báðir leikið á 277
höggum. Hafði Miller þó rekið
lestina eftir fyrsta dag keppninn-
ar. Gamla kempan Jack Nicklaus
varð naumlega í þriðja sæti og gat
engum nema sjálfum sér um
kennt. Á síðustu holunni átti hann
möguleika á því að jafna, ná Mill-
er og Ballesteros, en auðvelt
„pútt“ geigaði illilega og lék hann
því samanlagt á 278 höggum. Lee
Trevino og Garry Player urðu í
fjórðu og fimmtu sætunum, en
urðu undir í baráttunni við hit-
ann, voru langt á eftir fyrstu
þremur keppendunum.
0^ í | COLF
! Einkur magjðfln
KA:
Sigurður Sigurðsson 7
Magnús Gauti Gautason 5
Jóhann Einarsson 5
Friðjón Jónsson 5
Erlingur Kristjánsson 6
Þorleifur Ananíasson 4
Magnús Birgisson 4
Aðalsteinn Jóhannsson 4
Jakob Jónsson 4
KR:
Alfreð Gíslason 7
Gunnar Gíslason 7
Brynjar Kvaran 6
Gísli Felix Bjarnason 5
Ragnar Hermannsson 4
Jóhannes Stefánsson 6
Haukur Geirmundsson 6
Ólafur Lárusson 4
Haukur Ottesen 6
Friðrik Þorbjörnsson 5
Konráð Jónsson 4
Guðrún kvaddi
árið með meti
GUDRÚN Ingólfsdóttir KR kvaddi
árið, sem nú er liðið, með því að
stórbæta íslandsmet sitt í kúluvarpi
innanhúss. Á næstsíðasta degi árs-
ins varpaði Guðrún 14,56 metra á
innanfélagsmóti í KR-húsinu. Guð-
rún átti sjálf eldra metið, en það var
14,07 metrar, sett í apríl. Vart þarf
að taka fram, að Guðrún á einnig
utanhússmetið, það er þó lakara en
innanhússmetið, eða 14,21 metrar,
en ætla má að hún eigi eftir að bæta
það í sumar.
ffB