Morgunblaðið - 05.01.1982, Qupperneq 22
I
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 5. JANÚAR 1982
f Vestmannaeyjum liggur um 60 skipa floti Eyjamanna bundinn við Nausthamarsbryggju, Bæjarbryggju, Básaskersbryggju og í Friðarhöfn, en oft hefur verið líflegra í þessari stærstu
verstöð landsins í upphafi vetrarvertíðar, en Eyjahöfn er eins konar móðurskip fyrir flota landsmanna við allt Suðurlandið. Ljósmynd Mbl. Sígurgeir.
Stykkishólmur:
ÖH fiskvinnsla
liggur niðri
- Skelfiskveidar í hættu
STIIRLA Böðvarsson sveitarstjóri,
Stykkishólmi, sagði í gær, að þar
lægi nú öll fiskvinnsla niðri, reiknað
hefði verið með að hefja skelfisk-
veiðar strax eftir áramót, en nú
horfði mjög alvarlega vegna vinnu-
stöðvunarinnar.
Sturla sagði að í Stykkishólmi
hefðu milli tíu og tuttugu manns
verið á atvinnuleysisskrá síðan í
nóvember, vegna verkefnaskorts í
skelfiskvinnslu, en alls störfuðu
eitthvað yfir hundrað manns við
fiskvinnslu í bænum.
„Fólk hefur verulegar áhyggjur
af ástandinu, en við trúum þvi að
þetta leysist á næstu dögum. Við
héldum líka að sjómenn hér
myndu standa utan þessara að-
gerða, þar eð lítið hefur verið deilt
um skelfiskverðið.“
N’erkalýds- og sjómanna-
félag Suðurnesja:
Hér er fólk
ósköp dapurt“
- búist við 170 manns
á atvinnuleysisskrá
„HÉR er fólk ósköp dapurt,“ sagði
Sigurbjörn Björnsson, starfsmaður
hjá Verkalýðs- og sjómannafélagi
Suðurnesja, í samtali við Mbl. Hann
sagði að búist væri við að um 160 til
170 manns færu á atvinnuleysisskrá
hjá þeim og væri þá aðeins um að
ræða landverkafólk.
Sagði Sigurbjörn útlitið ekki
beint gæfulegt og að þeir væru
búnir að hafa fjöldann allan af
verkafólki á atvinnuleysisskrá síð-
an í ágúst sl. og verst hafi það
verið í nóv.—des. Þá höfðu þeir 60
til 70 manns á atvinnuleysisskrá.
Mest konur. „Maður vonar bara að
þetta verði ekki langdregið," sagði
Sigurbjörn.
Bifreiðastöð
Vestmannaeyja:
ii
„Hér er allt
dautt og ömurlegt
Sjómannaverkfallið hefur mjög
mikil áhrif á okkar starf, ekkert síð-
ur en annarra hér, því þessi bær lifir
á fiskinum, sagði Magnús Jónasson
stöðvarstjóri Bifreiðastöðvarinnar í
Vestmannaeyjum í samtali við Mbl.
Hann sagði það hafa verið dautt og
ömurlegt þessa dagana þar sem allt
hefði verið á fullu ef sótt væri á
sjóinn.
Það eru 28 menn sem á vörubíl-
unum vinna og eru þeir sárir yfir
verkefnaleysinu sérstaklega þar
sem þeir voru sviknir á síldinni en
mun minna var landað af henni
hér í Vestmannaeyjum en áður og
svo þetta. Ástandið er alls ekki
bjart, sagði Magnús.
Verkakvennafél. Fram-
tíðin í Hafnarfirði:
,Alveg hissa á
ríkisstjórninni
að drífa sig ekkiu
Ég er alveg hissa á ríkisstjórninni
að hún skuli ekki vera fljótari að
leysa þessi mál, sérstaklega þar sem
þeir vissu það allan tímann að
hverju stefndi, sagði Guðríður Elías-
dóttir, formaður Verkakvennafélags-
ins Kramtíðin í Hafnarfirði, í samtali
við Mbl. Ég er alveg hissa á að þeir
skuli ekki drífa sig í að leysa þessi
mál, sagði hún.
Á annað hundrað reiknaði Guð-
ríður með að yrði sagt upp í henn-
ar félagi en mestur hluti hennar
félagsmanna vinnur í BÚH eða
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar. Ég
hef vissulega samúð með sjómönn-
um í þeirra baráttu, og það er
bara eðlilegt að þeirra barátta
hafi svona áhrif á okkar fólk, því
allt er þetta samtengt, en þessar
uppsagnir eru agalegar.
Þorlákshöfn:
Níu af hverjum
tíu lifa á
fiskvinnslunni
Stefán Garðarsson, sveitarstjóri í
Þorlákshöfn, sagði við Mbl. í gær,
að sennilega hefðu 350—400 manns
beinar tekjur af fiskvinnslunni í
bænum, en níu af hverjum tíu bæj-
arbúum sæktu þangað lífsviðurværi
sitt beint eða óbeint. Kvað Stefán
enn vera nokkuð að gera í sumum
fyrirtækjum, en sú hætta væri yfir-
vofandi að allt atvinnulíf í Þoriáks-
höfn myndi lamast.
„Hér hefur aldrei verið atvinnu-
leysi og það talar sínu máli um
ástandið nú, að í dag, fyrsta virk-
an dag eftir áramót, hafa tíu
manns látið skrá sig atvinnulausa.
Þetta ástand kemur mjög illa við
okkur hér.“
Verkalýdsfélagið Eining:
A sjötta hundrað
missir atvinnuna
JÓN HELGASON, formaður Verka-
lýðsfélagsins Einingar á Akureyri,
sagði í gær, að á Akureyri yrði vænt-
anlega unnið fram eftir viku hjá Út-
gerðarfélaginu við saltfisk- og
skreiðarverkun, en í Ólafsfirði og á
Dalvík hefði fiskvinnslan stöðvast
algcrlega, nú þegar. Sagði Jón, að
búast mætti við að eitthvað yfir 500
manns yrðu atvinnulaus næstu daga,
ef ekki rættist úr.
„Það er uggur í fólki hér, vegna
þessa. Við höfum verið að reikna
með að þetta myndi leysast fljót-
lega, annars er hér á ferðinni al-
varlegt mál, því atvinnuleysisbæt-
urnar segja lítið, þegar á reynir.“
Þessa mynd tók Kristján Einarsson Ijósmyndari Morgunblaðsins úr lofti
yfir Reykjavíkurhöfn sem aldrei fyrr hefur hýst svo mörg skip í einu,
bæði stór og smá, allt frá trillum og upp í skuttogara eins og sjá má.
„í festarnar toga hin friðlausu skip,“ segir í einu af kvæðum Tómasar og
á það vel við um þann hluta flota Hafnfirðinga sem sést á myndinni er
var tekin um helgina, eftir að flotinn stöðvaðist.
Þessi mynd var tekin í Höfn í Hornafirði í gær og þar voru allir átján
bátar Hornfirðinga bundnir við bryggju eins og staðan er nú í öllum
sjávarplássum landsins. i.jóHmynd Mbi. Kin»r.
Blaðburðarfólk óskast
Hringiö
í síma
VESTURBÆR
Tjarnargata I og II,
Nýlendugata,
Vesturgata 2—45,
Skerjafjörður, sunnan flug-
vallar,
Selbraut.
Garðastræti
AUSTURBÆR
Laugavegur 1—33,
Úthlíö,
Miðbær I og II,
Hverfisgata 4—62,
Baldursgata,
Háahlíö.
UTHVERFI
Gnoðavogur 14—42,
Njörfasund,
35408
i
£ J U1 ý
. J tiUillsi/J i *
1 ilt/tt >c
.no