Morgunblaðið - 05.01.1982, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1982
Sjötugur:
Magnús Maríasson
olíustöðvarstjóri
Sjötugur er í dag góðvinur minn
„frá Djúpi og Ströndum", Magnús
Mariasson, stöðvarstjóri Olíu-
stöðvarinnar í Hvalfirði hf. Hann
er mætur og merkur maður, Vest-
firðingur í húð og hár — sérstæð-
ur um margt, á fáa sína líka.
Magnús er fæddur 5. janúar
1912, að Kollsá í Grunnavíkur-
hreppi, Jökulfjörðum, Norður-
ísafjarðarsýslu. Foreldrar hans
voru þau hjónin Guðrún Jónsdótt-
ir frá Hóltúni á Snæfjallaströnd,
og Marías sjómaður Jakobsson
Hagalínssonar frá Gullhúsám á
sömu strönd. Faðir Magnúsar átti
10 börn, en föðurafi 20, og lét sig
þó ekki muna um að taka það 21.
til fósturs.
Átta ára gamall var Magnús
sendur til Æðeyjar, og fór þá, þótt
svo ungur væri, að bjástra við að
hafa ofanaf fyrir sér sem vikapilt-
ur, og ekki kom drengurinn sér
verr en það, að hann ílentist þar í
eynni framtil tvítugsaldurs. Segir
það sína sögu.
Veturinn 1927—1928 stundaði
Magnús nám við Héraðsskóla séra
Sigtryggs Guðlaugssonar að Núpi
í Dýrafirði — yngstur nemenda, ef
ég man rétt, aðeins 15 ára að aldri.
Og það var einmitt þar, sem fund-
um okkar bar saman fyrst. Eftir
nokkurra ára millispil, meðan
hann á verstu atvinnuleysis- og
krepputímum gegndi margháttuð-
um störfum til sjós og lands, sem
til féllu — innritaðist Magnús í
Samvinnuskólann og lauk þaðan
verzlunarprófi eftir 2ja vetra nám
árið 1936. Á stríðsárunum var
hann t.d. skipverji á hinu fræga
skipi „Fróða“ Þorsteins Eyfirð-
ings, í flutningum milli Reykja-
víkur og Hvalfjarðar og brá þá
fyrir sig hvers konar störfum um
borð, allt neðanúr „fírplássi" og
upp á „dekk“, því snemma var pilt-
urinn afburða verkmaður.
Hinn 14. desember 1943 hófst
svo hin raunverulega og samfellda
Hvalfjarðarvist Magnúsar, sem
því hefur varað í full 37 ár. Réðist
hann fyrst til þjónustu fyrir varn-
arliðið, bæði hið brezka og amer-
íska, og samskiptaoiíufélög þeirra,
fyrst Shell og síðar Hið ísl. stein-
olíuhlutafélag, sem hafði umboð
fyrir Standard Oil, eða Esso, en að
lokum — í maí 1947 — til Olíufé-
lagsins hf., sem þá hafði tekið við
eignum og rekstri HÍS fyrir for-
göngu Vilhjálms Þór og aðild SIS.
Á sínum tíma áður hafði hinn am-
eríski yfirmaður olíustöðvarinnar
bent á, ef ekki beinlínis krafizt, að
Magnús tæki við stjórn hennar.
Slíkt álit erlendra manna hafði
Magnús þá þegar áunnið sér, og
segir það meiri sögu honum til
verðugs hróss en mörg orð.
Það mætti skrifa mikla bók um
það viðskipta- og mannlíf, sem
síðan hefur átt sér stað í Hvalfirði
undir yfirstjórn Magnúsar Marí-
assonar. Um 40 manns vann þar
að jafnaði, þegar flest var. Sam-
skipti voru mikil, þar á meðal við
bæði innienda og erlenda höfð-
ingsmenn, einkum að sjálfsögðu í
sambandi við hina miklu og mik-
ilvægu olíuflutninga. Alla kann
Magnús að umgangast með reisn
og skörungsskap, og öilu hefur
hann gert góð og farsæl skil, og
hlotið fyrir vinsældir og viður-
kenningu allra, jafnt í friði sem
stríði, jafnt erlendra manna sem
innlendra.
Ljóst má vera, hverri lykilað-
stöðu í olíubyrgðastöðinni í Hval-
firði Magnús hefur gegnt á slíkum
tímum, sem við höfum lifað og lif-
um, þegar grunsemdir og tor-
tryggni stríðandi stórvelda liggja í
lofti. Mér hefur oft dottið í hug, að
vart myndu njósnarar andstæð-
inga geta krækt sér í feitari bita
en Magnús, aðstöðu hans vegna.
En þar er nú maður, sem „ekki
liggur á lausu“, og því öllu óhætt
14 sæmdir Fálkaorðu
Forseti íslands sæmdi á nýársdag
eftirtalda íslenska ríkisborgara
hinni íslensku fálkaorðu:
Ásgeir Erlendsson, vitavörð á
Hvallátrum, riddarakrossi fyrir
vitavarðarstörf, Egil Skúla Ingi-
bergsson, borgarstjóra, riddara-
krossi fyrir störf að sveitarstjórn-
armálum, Friðrik Sigurjónsson,
hreppstjóra í Vopnafirði, riddara-
krossi fyrir félagsmálastörf, Guð-
mund Björnsson, fv. kennara á
Akranesi, riddarakrossi fyrir
störf að félags- og fræðslumálum,
Kristínu Teitsdóttur, húsfreyju,
Hnúki, Klofningshreppi, Dala-
sýslu, riddarakrossi fyrir ljósmóð-
urstörf, Lýð Guðmundsson, hrepp-
stjóra, Litlu-Sandvík, Flóa, ridd-
arakrossi fyrir félagsmálastörf,
Ólaf Bjarnaso'h, prófessor,
riddarakrossi fyrir kennslu- og
vísindastörf, Ólaf Skúlason,
dómprófast, riddarakrossi fyrir
störf að kirkjumálum, Sigurjón
Ólafsson, myndhöggvara, stór-
riddarakrossi fyrir höggmynda-
list, Snorra Ólafsson, fv. yfirlækni
að Kristnesi, riddarakrossi fyrir
störf að heilbrigðismálum, Stefán
íslandi, óperusöngvara, stjörnu
stórriddara fyrir tónlistarstörf,
Tryggva Ólafsson, forstjóra, ridd-
arakrossi fyrir störf að viðskipta-
og sjávarútvegsmálum, Völu Ás-
geirsdóttur Thoroddsen, forsætis-
ráðherrafrú, riddarakrossi fyrir
störf í opinbera þágu og Valborgu
Bentsdóttur, fv. skrifstofustjóra,
riddarakrossi fyrir félagsmála-
störf.
HVERNIG GETUR (iTt©EU.O
ADSTOÐAD lINetlNCAl
Sú «• Ottfciw
iitgum felst m.«. I »ö finna l«usn « peirra
mcA viðneðum og upplýsíngum H4f rná t. d.
nefM ýmís persónulcg v«ndkv*ði unpngí. *t-
vinnulevsi. notkun og erfiðkik* f
$kól*. C'tMmtd *«*rf«r einnljf «*«ö wgjttagahópum
MeAiimtmir ékvarða a6 miklu levtl sjálfir vió-
f«fig$efni hópelarfeins. |*í»fr»HU er boóió upp á
fneóniu. L d. um vimugjafa fwrtð I J»« imvSknir á
s'ofnamr, i leikhús, fe^dnióg o. *, fnC
HVAR ER OTtPEILD?
CtíMU „><lkai Mw ,
s«ftt«t( MttM á i borgfmtl. Utideild hefur hfl« tii
umréóa sem fiOUÖtr eru Ul þess «ð «k« é milli
þeuara siaóa FfHv«f&uetr. um het*«r er
OtMeildto otttmt M wutim mMmmmm.
ÚTTDEILD
Kynningar-
bæklingur
um útideild
GEFINN hefur verið út bæklingur um
starfsemi Útideildar, sem er sérstök
deild Félagsmálastofnunar Reykjavík-
ur, er starfar með unglingum. Kemur
þar m.a. fram að starfsmenn eru 8 sem
vinna með unglingahópum og aðstoða
unglinga og er eitt hlutverk þeirra að
koma í veg fyrir að unglingar lendi í
erfiðleikum og aðstoða þá ef slíkt kerm
ur fyrir. Aðallega fer starfsemin fram
um helgar og fer fram í miðborg
Reykjavíkur, en einnig er boðið upp á
fræðslu ýmiss konar, farið er í heim-
sóknir á stofnanir, í leikhús, ferðalög
o.fl.
%
vegna allra þeirra upplýsinga og
jafnvel mikilvægra leyndarmála,
sem honum hefir verið trúað fyrir
svo lengi. En mér er spurn, hvort
margir íslenzkir menn hafi haft
öllu meiri og vandmeðfarnari
leyndardóma að gæta en Magnús.
Kunnugleiki hans og lyklavöld
hafa trúlega verið miklu meiri en
almenningur hefir gert sér ljóst.
Magnús hefur líka verið nógu viti
borinn til þess að berast ekki á eða
vekja athygli umfram nauðsyn,
heldur þvert á móti að láta sem
minnst á sér bera. Liggur garður
hans þó sannarlega og bókstaflega
„um þjóðbraut þvera", en stjórn
benzín- og veitingasölunnar „á
Sandinum" hefur hann ekki látið
sig muna um að bæta á sitt breiða
bak, auk alls annars þunga, sem á
honum hvílir. Magnús hefur því
ekki setið á neinum friðarstóli
þarna innfrá á sögufrægum
merkisslóðum „í faðmi fjalla
blárra".
Ég vék áðan að því, hversu
Magnús Maríasson er frábitinn
því að berast á eða láta mikið fyrir
sér fara. í því sambandi dettur
mér í hug, að mörgum manninum
í hans sporum myndi hafa fundizt
sér nauðsyn, með tilliti til síns
víðtæka og margþætta viðfangs-
efnis, og alls í kringum það, að
hafa flotta skrifstofu og spígspora
þar „á teppi“ með makt og miklu
veldi, hafandi hvítflibbabúinn
fulltrúa og fínan einkaritara! En
einskis af þessu hefur Magnús
nokkru sinni látið sér detta í hug
að krefjast, og myndi trúlega alls
ekki hafa þegið, þótt boðið hefði
verið. En vakinn og sofinn hefur
hann verið á sínum verði — í sín-
um störfum, á nóttu jafnt sem
degi, og látið þau sitja fyrir einka-
þörfum og hagsmunum sjálfs sín
og fjölskyldu sinnar, ef því var að
skipta. Hljóðlátur, staðfastur og
stjórnsamur hefur hann „gengið
um garða“ hinnar mikilvægu
þjónustustöðvar, með „auga á
hverjum fingri“ þannig að ekkert
hefur farið framhjá honum.
Hér hefur verið vikið nokkuð að
ævistarfi Magnúsar Maríassonar.
Vissulega segir það margt um
manninn, en þó ekki allt. Hann er
einhver sá geðþekkasti og
skemmtilegasti maður, sem ég
hefi kynnzt um dagana, enda allt-
af verið mér tilhlökkunarefni að
hitta hann, og ótalda hláturrok-
una höfum við grátið saman! Mér
er Magnús í minni allt frá
Núpsskólaárum okkar, þegar hann
t.d. tók upp á því um háttatímann
á kvöldin að koma, taka í mig og
brjóta sokkana mína á hæl, að sið
notalegra og umhyggjusamra
þjónusta, gjarna tautandi fyrir
munni sér: „Ég er þrællinn þinn —
þú ert herra minn!“ Þannig var
honum eiginlegt að leiða blæ
hlýrrar gamansemi og góðvildar
yfir daglegt samneyti og gera
grín, helzt á sjálfs sín kostnað.
Bókamaður allmikill er Magnús,
fróður og vel heima í bókmennt-
um, einkum bundnu máli, og
prýðilega viðræðuhæfur við jafn-
vel prófessora í þeim efnum.
Kryddar hann gjarna mál sitt
fleygum setningum — sbr. þegar
hann eitt sinn á forstjóraárum
Sigurðar heitins Jónassonar svar-
aði til, aðspurður um dvöl sína í
olíustöðinni á helgum degi: „Viss-
uð þér ekki, að mér ber að vera í
því, sem míns föður er!“
Eins og að líkum lætur, er
31
Magnús Maríasson vinsæll maður,
enda velviljaður og hjálpfús með
afbrigðum. Bera nágrannar hans,
bændurnir í sveitinni, honum góða
sögu, og svo er um starfsfólk allt
og viðskiptavini Olíufélagsins. Og
traust yfirboðara sinna hefur
hann ávallt haft. Hann er öllum
hnútum kunnugur í sínu veldi,
jafnt varðandi mannlíf sem
þrælflóknar olíuleiðslur og olíu-
gímöld, sem guð má vita, hvort
nokkur maður annar á jarðríki
ber skynbragð á! Vonandi, að Olíu-
félaginu auðnist í tæka tíð að
bjarga vizku Magnúsar og leynd-
ardómum upp á „þurrt land“ áður
en hann, þessi einstæði og marg-
fróði höfðingi, missir ráð og rænu,
eða það, sem sviplegra er.
Magnús hefur lifað í góðri sátt
við sitt fólk. Til ekki færri en 10
hjónabanda hefur verið stofnað
undir hans handarjaðri, bæði ís-
lenzkra og erlendra, þar sem fyrir
hefur komið, að hann sjálfur hefur
gerzt annað hvort vígslu- eða
skírnarvottur, nema hvort tveggja
hafi verið. „Hans“ fólk er því orðið
margt „gegnum tíðina" og víða
gróðursett um heimsbyggðina.
Kvæntur er Magnús mikilhæfri
og glæsilegri konu, Huldu Svein-
björgu Þórisdóttur frá Blikalóni í
Presthólahreppi, Norður-Þingeyj-
arsýslu. Þau eiga fjóra syni, sem
allir eru uppkomnir myndarmenn:
Viðar, Ásgeir Halldór, heitinn eft-
ir þeim á sinni tíð kunnu Æðeyj-
arbræðrum, Skúli og Þorsteinn.
Stjúpbörn á Magnús tvö: Þóri og
Bóthildi, hinar beztu manneskjur.
Ég þakka svo Magnúsi vini mín-
um óteljandi ánægjustundir, sem
við höfum notið saman. Það hefur
alltaf verið hressandi bæði fyrir
líkama og sál að ganga innfyrir
hans þröskuld, og njóta frásagn-
arlistar hans, glaðværðar, rausnar
og greiðasemi. Slíkt hefir ekki ver-
ið ónýtt fyrir áratuga landshorna-
flakkara eins og mig. Guð hefur
gætt hann miklu þreki og góðri
heilsu. Aðeins einu sinni á lífsleið-
inni hefir hann þurft að dvelja á
sjúkrahúsi um stund, og þá vegna
meiðsla. Megi hann og hans ást-
kæra Hulda njóta samvista sem
lengst, í ást og eindrægni — heil
og sæl í sínum ranni, „hvort lánað
líf oss ber langt eða skammt“.
Baldvin Þ. Kristjánsson
0.
Afr
Það er mjög gagnlegt að færa minnisbók. Sama í hvaða starfi þú
ert. Með því sleppur þú við áhyggjur og ótta, auk margvíslegra
leiðinda og jafnvel hórra aukaútgjalda.
Auk þess eru minnisbækur gagnlegar til uppsláttar síðar meir. í
Pennanum er eitt mesta úrval dagbóka við hæfi állra.
Nýttu vel tímann þinn, notaðu minnisbók.
em>
Hallarmúla 2, Laugavegi 84,
Hafnarstræti 18