Morgunblaðið - 05.01.1982, Page 35

Morgunblaðið - 05.01.1982, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1982 43 John Chang McCurdy sýnir í New York UOSMYNDARINN John Chang Mcí'urdy, sem Reykvíkingum er að góðu kunnur af sýningu hans á Kjarvalsstöðum fyrir tæpum tveim árum, sem og frábærum myndum í bók um ísland, sem Almenna bóka- félagið gaf út skömmu áður með texta eftir Magnús Magnússon, heldur um þessar mundir sýningu á nokkrum verka sinna í Linden Gall- eries við 57. götu í New York. Myndir þessar eru prentaðar með flókinni og vandasamri lit- færslu (dye transfer) aðferð sem kölluð er Reprodye og þykir betri en allar aðrar við kópíeringu lit- mynda, þar sem hún gerir mynda- smiðum, að mér skilst, kleift að leiðrétta liti sem ekki koma trútt fram á filmunni. Ef til vill eru kostir þessarar tækni augljósastir á þessari sýningu í mynd sem kall- ast „Rauður hlynur". Þetta er impressíónískt verk með sterkum andstæðum lita, sem vart hefði verið hugsanlegt að framkalla með venjulegri filmu einni saman. Mynd þessi var ein af þremur sem mest áhrif höfðu á mig. Hinar tvær voru „Snjóþistlar", sem minnir á japanskt málverk, og „Ikarus", dramatísk mynd tekin af móskuhring kringum sólina með stökum fugli á flugi. Ein mynd frá Islandi hangir á sýningunni (fleiri eru í möppu sem liggur frammi) og gæti þó verið hvaðan sem væri. Sú nefnist „Aqua Vitae", en er aldeilis ótengd brennivíni; hún sýnir gróður við klettavegg sem vættur er glitrandi regndropum — lífsins vatni í eig- inlegri merkingu. Þetta er ekki mikil sýning að vöxtum, en frábær að gæðum. Ef einhver sá er þetta les á erindi til New York fyrir áramót, ætti hann að líta inn í Linden Galleries. Hann mun ekki verða fyrir von- brigðum. New York, 5. desember 1981, Hallberg Hallmundsson. Nýja strandferðaskipið kostar um 53 milljónir króna: Notað skip kostar um 20 milljónir króna - segir m.a. í fréttabréfi Eimskips INNKAUPASTOFNUN ríkisins bauð í vor út á alþjóðlegum markaði smíði á 1—3 strandferðaskipum, og hefur Ríkisskip nýlega samið við brezka aðila um smíði á 499 BRT-skipi til strandsiglinga. Um- samið verð skipsins er um 53 millj- ónir króna, segir m.a. í fréttabréfi Eimskips, sem út kom í desember sl. - Ljóst er, að kaupverð skipsins er aðeins hluti af kostnaðinum, þar sem fjárfesta verður í aukinni aðstöðu og tækjabúnaði í landi í Reykjavík og víðar. Athyglisvert er, að á meðan söluverð eldri skipa fer lækkandi, skuli ríkisfyrirtæki semja um nýsmíði á þessu verði. Kaupverð sambærilegra 5—7 ára gamalla skipa væri um 20 milljónir króna. Slík skip myndu uppfylla flestar kröfur, sem gera verður til strand- ferðaskipa hér á landi, segir ennfremur í fréttabréfinu. Loks segir: Nauðsynlegt er að endurskoða strandferðaþjónust- una og innanlandsflutningana al- mennt, auk þess sem þörf er á endurnýjun skipastólsins. Ríkis- rekstrarformið hentar ekki lengur í núverandi mynd, enda hefur rekstur og þjónusta Ríkisskips breyzt verulega á undanförnum árum. Samkeppni við einkaaðila hefur aukizt á þær hafnir, þar sem þeir veita góða þjónustu, en dregið hefur úr þjónustu við önnur af- skekktari byggðarlög eða bíla- flutningar auknir. Þrettándagleði Sínawik veröur í Súlnasal Hótel Sögu í dag miðviku- daginn 6. janúar kl. 16.00. Mætiö vel og takiö með ykkur gesti. Gleöilegt ár. Stjórnin. BlE]E]B]gE]EIE]E]E]ElE]B|B]ElBigB]B]B|l3| I Sigtiut I H Bingó í kvöld kl. 20.30. H |{ Aðalvinningur kr. 5 þús. E]E]E1ElElElElElE|E]E]E]E)E]j5]E]ElElElEM^ Heba heldur vid heilsunni Nýtt námskeið að heíjast Dag- og kvöldtímar tvisvar eða íjórum sinnum í viku. Megrunarkúrar - Nuddkúrar Leikíimi - Sauna - Ljós - Megrun Sól-bekkir- Nudd - Hvíld - Kalfi - o.fl. Innritun í síma 42360 - 40935 Heilsurœktin Heba Auðbrekku 53, Kópavogi. Ingibjörg Árnadóttir, hjúkrunar frædingur. Hjúkrunar- fræðingur fær norræn- an styrk NÝVERIÐ fékk Ingibjörg Árnadótt- ir hjúkrunarfræðingur úthlutað styrk Norðurlandasamvinnu hjúkr unarfræðinga að upphæð 7.000 nkr. Styrkinn notaði Ingibjörg til náms og rannsókna á því hvernig bæta má fréttamiðlun til hjúkrunarfræðinga í gegnum fagblöð þeirra og hvaða leiðir er hægt að fara til að ná þessu marki. Ingibjörg dvaldi um tveggja mánaða skeið í Danmörku í námsheimsókn hjá Danska Hjúkr- unarfélaginu, en það félag gefur vikulega út fagtímaritið „Syge- plejersken". Ingibjörg Árnadóttir hefur ver- ið starfandi ritstjóri tímarits Hjúkrunarfélags Islands, Hjúkr- un, í 12 ár, en ritið hefur verið gefið út fjórum sinnum á ári síðan árið 1925. þú fílar tónlistina mimm Já þaö er i kvöld sem kynning veröur á tveim hljómsveitum, sem náö hafa miklum vinsæld- um á íslandi, án þess þó aö vera með danstón- list. Þessar hljómsveitir eru Genisis, brezka rokkhljómsveitin stórgóöa og bandaríska suþ- ergrúppan Breakfast in America. Nú koma aliir sem á annað borö unna góöri tónlist og hlusta í ró og næöi á þessar hljóm- sveitir í super hljómflutningstækjunum okkar. Og fyrir þá, sem vilja fá sér snúning á eftir þá verður hann Jón Axel í diskótekinu og rúllar yfir syrpur af vinsæl- um danslögum. Hittumst í H0LUW00D Encjinn kemst hja æfingu ef hann vill tala erlend tungumál. Æfinguna færðu í MIMI Sími 10004 og 11109 6 (kl. 1—5 e.h.) M*\Ó Ö\\ \ak\V»Y\ Opið frá kl. 18-01. Pað þarf aldrei neitt sér- stakt tilefni, tilþess að skreppa í Oðal og Óðal er alltaf í leiðinni. íkvöid rifjum við m.a. upp vinsælustu ís- ienzku lögin frá liónu ári Wöt\ukua\\\e\ksá\\u$a\o\k \\Me\jum \s\enzka VanúsWó- \ó \ WötluWoWa \\\ sxguts, ?ot\úpum \ Wot%- aruos\Vi\.2W\Vi>iö\ú. * ?e\m, som oVkWiomosV \ Bot garnos or Wen\ á aú m\ú s^num \e\k\nn ó sjón- Morpsskermum \ ÚúaW svú- ar \Wmö\ú. Spakmæli dagsins er að þessu sinni frá Þórði Vigfússyní: Sjaldan fellur eplið langt frá eplatrénu. (Þórður benti okkur réttilega á, að epli vaxa auðvitað á eplatrjám, en ekki eikum, eins og segir í fyrra máltæki. Allir í ÓOAL á nýju ári

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.