Morgunblaðið - 05.01.1982, Síða 37

Morgunblaðið - 05.01.1982, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1982 45 Þessir hringdu . . . Látum ekkert tækifæri ónotað Ragnar hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: - Nú er liðið ár fatl- aðra og margt virðist hafa áunnist í málefnum þeirra sem ekki hefði náðst fram, ef ekki hefði verið til þess stofnað. Hafi allir þeir þökk fyrir er að unnu, en þeir hafa vafalaust verið margir. Nú er komið að okkur gamla fólkinu, ár okkar, ár gamla fólksins, 1982, er runnið upp. Það sem ég óttast mest í því sambandi er að frá hendi okkar gamla fólksins kunni að skorta þann þrýsting, sem fatl- aðir höfðu afl til að veita, ekki síst í krafti sinna samtaka og styrkt- armanna. Ég heiti á aldrað fólk að láta ekkert tækifæri ónotað til að ræða kjör sín. Því aðeins er von til þess að einhver árangur verði af ári því er okkur hefur verið til- einkað. Og vissulega er margt sem betur má fara í málefnum okkar. Skorinorð ræða útvarpsstjóra J.H.M., Akureyri, hringdi og hafði eftirfarandi að segja: - Mér þætti vænt um, ef þið Morgunblaðs- menn, fengjuð áramótahlugleið- ingu Andrésar Björnssonar út- Andrés Björnsson varpsstjóra til birtingar, því að bæði var hún skorinorð og að mín- um dómi besta áramótaræðan að þessu sinni, þótt e.t.v. sé ekki rétt að vera með samanburð í því efni. Ég þakka honum kærlega fyrir. Vel heppnað áramótaskaup Sig. J. hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: - Það kæmi mér ekki á óvart þó að lítið yrði fjallað um áramótaskaup sjónvarpsins að þessu sinni. Það tókst svo vel. Með örfáum undantekningum má segja að atriðin væru hnyttin og heppn- uðust með ágætum. Þeir eru bráð- Kolkrabbaveiðin Sjósóknari fyrir norðan, er gaman hefir af að segja frá veiði- ferðum sínum, segir m.a. frá á þessa leið: — Jeg fór eitt sinn á kænunni minni hjerna fram á fjörðinn til að veiða kolkrabba. Hitti jeg þar menn á stórum pramma, sem voru í sömu erindum. Fekk jeg að binda kænuna í prammann, meðan jeg rendi þarna. Ekki hafði jeg fyr rennt, en kolkrabbi beit á hjá mjer, en ann- ar kolkrabbi hafði bitið sig fastan í hann, og þannig koll af kolli. En þegar jeg sá kolkrabba strolluna, eins langa og sjeð varð í sjóinn, slepti jeg veiðarfærunum en hand- langaði trossuna innbyrðis. Svo ótt innbyrti jeg kolkrabbann með þessum hætti, að jeg hefði áður en varði, sökt kænunni, ef það hefði ekki viljað mjer til happs, að strollan slitnaði á borðstokknum. — Meðan þessu fór fram, urðu þeir ekki varir, sem á pramman- um voru. - • - Fyrirlestur Guðmundar Frið- jónssonar á sunnudagskvöldið var á óhentugum tíma og þó nær hús- fyllir. Talaði skáldið um inni- skemmtilegir húmoristar, strák- arnir sem sömdu efnið, og ekki má gleymast hlutur hljómsveitarinn- ar Galdrakarla, því að leikur hennar lífgaði mjög upp á þáttinn. fyrir 50 árum byrgðar þrár, sýndi hve mikið djúp ríkrar tilfinningar byggi löngum bak við fá orð eða þögn í sögum vorum og ljóðum, og hvern- ig þrárnar hefðu gert menn skyggna, svo að þeir sáu gegn um holt og hæðir, svo sem þjóðtrúin vottar, eða sköpuðu sjer hugmynd- ir, sem voru fyrirboði hluta, er síð- ar voru fundnir upp og komust í framkvæmd. Kom hann víða við og brá oft á skeið. í Velvakanda fyrir 30 árum Margir gefa smáfuglunum NÚ harðnar á dalnum hjá smá- fuglunum, enda láta menn ekki sitt eftir liggja að gefa þeim. Areiðanlega fellur margt það til á flestum heimilum, sem sólskríkj- unni frá í sumar kemur vel að fá, þótt annars sé það lítt eða ekki nýtt. En það er ekki nóg að fleygja molunum út á hjarnið, fuglarnir verða að fá næði til að tína þá. Þess vegna ættu foreldrarnir að brýna fyrir krökkunum að varast að styggja litlu angana, þegar þeir setjast að krásunum. — Areiðan- lega taka krakkarnir vel í það, því að engum þykir vænna um þá en þeim. Berjahratið er lostæti í SUMAR vissi ég til, að fólk þurrkaði berjahratið, þegar saftið hafði verið síað frá, og nú er það eftirsóknarverður fuglamatur. Áður fyrr var siður í sveitum að kasta moði út á sjóinn, þar fundu fuglarnir margt ætilegt kornið. Sennilega er þessum hætti haldið enn. Af þessu má sjá, að ekki þarf neinu til að kosta til að seðja hungur smáfuglanna, aðeins að hugulsemin sé á réttum stað. Old boys Hressingarleikfimi fyrir karla á öllum aldri, hefst í íþrótta- húsinu Ásgaröi, Garðabæ, í dag 5. janúar. Uppl. og innritun í síma 52655 og 53066. Páll Ólafsson íþróttakennari. » ........... ................... i ....H1III.I■H Músíkleikfimi hefst mánudaginn 18. janúar. Stykjandi og liðkandi æfingar fyrir konur á öllum aldri. Byrjenda- og fram- haldstímar í húsi Jóns Þorsteinssonar, Lindargötu 7, kennari Gígja Hermannsdóttir. Uppl. og innritun í síma 13022. Söngskglinn í Reykjavik Söngskólinn í Reykjavík Getum bætt viö nokkrum söngnemendum. Umsókn- arfrestur til 8. janúar nk. Uppl. á skrifstofu skólans, Hverfisgötu 45, sími 21942 og 27366 daglega frá 1-5. Skólastjóri. Opiö laugardaga kl. 9—12 Verslið hjá fagmanninum Þú kemur meö filmurnar til okkar í dag og sækir myndirnar kl. 16 á morgun. 1UDO Ný byrjendanámskeiö hefjast 6. janúar. Innritun á byrjunarnámskeið virka daga kl. 13 til 22 í síma 83295. Judodeild Ármanns

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.