Morgunblaðið - 05.01.1982, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1982
47
Afurðalán í íslenzkum
kr. með 29% vöxtum
ÁKVEÐIÐ hefur verið að vextir á af-
urðalánum verði 29% frá áramótuni og
verða öll endurseljanleg lán í íslenzk-
um krónum frá þessum tíma. Morgun-
blaðinu barst í gær eftirfarandi frétta-
tilkvnning frá Seðlabanka íslands:
„Frá upphafi árs 1979 hafa endur-
kaupanleg afurða- og rekstrarlán
vegna útflutningsframleiðslunnar
verið í erlendum gjaldeyri, aðallega
Bandaríkjadollurum. Var með þessu
fyrirkomulagi komið til móts við
óskir fiskvinnslunnar.
Mjog óstöðug gengisþróun á
gjaldeyrismörkuðum, einkum á ný-
liðnu ári, leiddi m.a. í ljós annmarka
á þessu fyrirkomulagi og óskir komu
þá fram af hálfu fiskvinnslunnar að
bre.vta afurðalánum aftur yfir í
fyrra horf.
I rauninni hefur þetta verið svo í
framkvæmd frá 10. nóvember sl., en
við þá gengisbreytingu, sem þá var
framkvæmd, var ekki gerð gengis-
uppfærsla á útistandandi afurða- og
rekstrarlánum og hefur uppgjörs-
gengi á þessum lánum verið hið
sama og var síðast fyrir þá geng-
isbreytingu.
Bankastjórn Seðlabankans hefur
nú, að höfðu samráði við bankaráð
og með samþykki ríkisstjórnarinn-
ar, ákveðið að frá og með 1. janúar
1982 verði öll endurseljanleg lán í
íslenzkum krónum og með þeim
kjörum, sem gildandi eru á slíkum
lánum samkvæmt vaxtatilkynningu
Seðlabankans frá 29. maí 1981, þ.e.
grunnvextir 3,5% á ári, verðbóta-
þáttur 25,5% á ári og vextir alls á
ári 29%.“
Um 250 norrænir jarð-
vísindamenn þinga hér
á landi um þessar mundir
FIMMTÁNDA vetrarmót
Norrænna jarðfræðinga hefst í
Súlnasal Hótel Sögu, klukkan
09.00, en að sögn Kjartans Thors,
formanns Jarðfræðifélagsins, er
mótið helgað Sigurði Þórarinssyni,
jarðfræðingi, sem verður 70 ára 8.
janúar nk.
— Mótið sækja liðlega 250
jarðvísindamenn af öllum Norð-
urlöndunum, þar af um helm-
ingur þeirra íslenzkir. Flutt
verða yfir 100 erindi um hin
margvíslegu jarðfræðiverkefni,
sem unnið er að á Norðurlönd-
unum.
Sveinn Jakobsson, jarðfræð-
ingur, er ráðstefnustjóri, en
ráðstefnan mun standa yfir í
fjóra daga.
Hjálparsveitarmönnum afhentur hinn nýi bfll, f.v. Holger Ilansen, Sigur
björn Bjarnason og sölumaður Veltis hf. I.jósmvnd Mbl.
Hjálparsveit skáta í Hveragerði
eignast nýjan björgunarbfl:
Mikil lyftistöng
fyrir sveitina
- segir Sigurbjörn Bjarnason, sveitarforingi
Góður vilji er hjá
báðum aðilum málsins
- segir Agnar Koefod-Hansen, flugmálastjóri, um viðræður
hans og fulltrúa Arnarflugs og Flugleiða
„ÉG ER hvorki bjartsýnn né svart-
sýnn, en við munum halda þessum
viðræðum áfram,“ sagði Agnar
Koefod-Hansen, flugmálastjóri, í
samtali við Mbl., er hann var inntur
eftir gangi mála í viðræðum þeim,
sem hann hefur beitt sér fyrir milli
fulltrúa Arnarflugs annars vegar og
Flugleiða hins vegar, um hugsanlega
NÚ ERI' uppi hugmyndir meðal Rann-
sóknarráðs ríkisins og fleiri aðilja að
kanna möguleika á notkun rafeinda-
tækni við tínslu hringorms úr flski.
Þessar hugmvndir eru enn á frumstigi
og beinast að því að kanna áhuga ým-
issa aðila á því að samstarf verði við að
kanna þessar hugmyndir.
Að sögn Vilhjálms Lúðvíkssonar,
framkvæmdastjóra Rannsóknarráðs
ríkisins, standa frumviðræður nú á
milli vinnuhóps um rafiðnað á veg-
um iðnaðarráðuneytisins, hring-
ormanefndar og rannsóknarráðs.
Vonast er til að samvinna verði
einnig við Raunvísindastofnun Há-
skólans og fyrirtæki innan fisk-
iðnaðarins og jafnvel að njóta
reynslu erlendra aðilja. Að sögn
Vilhjálms eru enn ekki til aðferðir
til þess að nota rafeindabúnað til
þess að tína hringorm úr fiski, en
í gæzluvarðhald
vegna bruna
MAÐUR var á sunnudag úrskurðað-
ur í gæzluvarðhald til 13. janúar
vegna bruna í llppsetningabúðinni,
Hverfisgötu 74, þann 20. desember
síðastliðinn. Miklar skemmdir urðu
í líppsetningabúðinni, sem er í fjög-
urra hæða húsi, en búið er á þremur
efstu hæðunum.
Talsverður eldur logaði þegar
slökkviliðið kom á vettvang og
lagði frá honum mikinn reyk.
Reykkafarar fóru inn og fundu
þeir eld á þremur stöðum í verzl-
uninni. Um klukkustund tók að
ráða niðurlögum eldsins, og vakn-
aði grunur um, að um íkveikju
hafi verið að ræða. Jakki og veski
fundust í búðinni og leiddi það til
handtöku mannsins á laugardag.
samvinnu og samkomulag aðila.
— Að mínu mati er alveg bráð-
nauðsynlegt, að finna einhverja
lausn á þessum málum. Grunnur-
inn er ekki það sterkur, að hann
þoli einhver átök, sagði Agnar
ennfremur.
— Það liggur hins vegar fyrir,
að góður vilji er hjá báðum aðil-
vegna aukinnar tækni í rafeinda-
fræði þykir líklegt -að svo geti orðið
og því er nú verið að kanna þessa
möguleika.
um, að finna lausn á þessum mál-
um. Spurningin er bara hvað hægt
er að gera,“ sagði Agnar Koefod-
Hansen, flugmálastjóri.
Eins og fram hefur komið í
fréttum hafa flugmálayfirvöld,
bæði í Vestur-Þýzkalandi og Sviss,
samþykkt fyrir sitt leyti, að Arn-
arflug hefji reglubundið áætlun-
arflug til landanna. Arnarflug
sótti um leyfi til flugs til Frank-
furt og Hamborgar í Vestur-
Þýzkalandi, en Flugleiðir hafa
hins vegar verið með flug til
Frankfurt á sumrin, og snúast við-
ræður aðila því aðallega um hugs-
anlega lausn á þeim vanda, sem
þar skapast.
HJÁLPARSVEIT skáta í Hveragerði
fékk nýverið aflientan nýjan sjúkra- og
fólk.sflutningabfl af Volvogerð og er
það fvrsti nýi bfllinn, sem sveitin eign-
ast, að sogn Sigurbjörns Bjarnasonar,
sveitarforingja, sem tók við bflnum
ásamt Holger Hansen, gjaldkera sveit-
arinnar.
— Við áttum fyrir gamlan fram-
byggðan rússajeppa, sem við seldum,
auk þess sem Gísli á Grund gaf
okkur Wagoneerjeppa, sem við seld-
um einnig upp í kaupverð nýja bíls-
ins, sem var iiðlega 90 þúsund krón-
ur. Ég vil sérstaklega geta um góðan
hug Gísla til okkar og þessi gjöf
hans gerði okkur raunverulega kleift
að fara út í þessi bílakaup.
Það hefur háð okkur í gegnum tíð-
ina, að vera á gömlum, lélegum bíl-
um og tilkoma þessa nýja bíls verður
því mikil lyftistöng fyrir sveitina,
sagði Sigurbjörn ennfremur.
Sigurbjörn gát þess, að bíllinn
yrði innréttaður þannig, að koma
mætti siúkrabörum fyrir með góðu
móti, auk þess að flytja mannskap.
Þá kom það fram hjá Sigurbirni, að
næsta stórverkefni Hjálparsveitar
skáta í Hveragerði er að koma sér
upp fullkomnum fjarskiptabúnaði.
ÞESSI GULLFALLEGI
KOPARSANSERAÐI X ■ ■ A ■
AUO1100 5s
ÁRG. 1979 — SKRÁÐUR 1980
EKINN AOEINS 27000 KM
ERTIL
SÖLU
UPPLÝSINGAR
q I SÍMA 51880
N Ýt MNSStCÓmi
Dans
Getum bætt viö okkur fáeinum nemendum í Reykjavík
og Hafnarfiröi núna í næsta kennslutímabil, sem hefst í
janúar.
Takmörkum nemendafjölda í
hvern tíma
Innritun þessa viku kl. 12—18 í síma
Kennum
barnadansa — gömlu dansana — samkvæmisdansa —
rokk- og diskódansa.
o, *
Til forráöamanna grunnskola — héraösskóla og annarra sem hug hafa á aö fá danskennslu
í sitt byggöarlag. Viö tökum aö okkur danskennslu — námskeiö eftir samkomulagi. Leitiö
nánari upplýsinga.
Kanna möguleika á tínslu hring-
orms úr fiski með rafeindabúnaði