Morgunblaðið - 05.01.1982, Page 40

Morgunblaðið - 05.01.1982, Page 40
Sími á ritstjórn og skrifstofu: 10100 I>RIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1982 r Síminn á afgreiðslunni er 83033 Gjaldeyrisdeildir bankanna lokaðar f dag? 8—10% gengisfall og 3% gengissig á mánuði í aðsigi Fiskverð aðeins samþykkt til l.marz la--. .a—i Myndin var tekin ( Grindavíkurhöfn sl. laugardag, en þar liggur allur floti Grindvíkinga við festar, öndvert við það venjulega á þessum árstíma þegar hryggjurnar eru auðar nema rétt á meðan löndun stendur yfir. l.jósmvnd Mbl. Kristján. Hrikalegt ástand er í sjávarplássum landsins Dapurt hljóð í fólki vegna lömunar atvinnulífs (iKNGI íslenzku krónunnar verður væntanlega fellt um 8—10% í dag eða einhvern næstu daga. (íjaldeyr isdeildir bankanna verða því að öll- um líkindum lokaðar þar til banka- sljórn Seðlabanka Islands hefur gef- ið út tilkynningu um nýja gengis- skráningu. Bankaráð Seðlabankans var boðað til fundar í dag kl. 9.30 og ennfremur verður ríkisstjórnarfund- ur árdegis í dag. I>á hefur Mbl. feng- ið staðfcst, að auk þeirrar 8—10% gengisfellingar, sem nú er ákveðin, verði gengið látið „síga“ um sem svarar 3% á mánuði þar til 16—18% gengisfellingu er náð, en það er talin vera sú breyting sem gera þarf á genginu til að hægt sé að hækka almennt fiskverð um 14—18%, eins Kaldbakur og Haraldur afla- hæstir togara SK|íTT(K;AKINN Haraldur Böðv- arsson frá Akranesi varð aflahæstur minni togaranna á nýliðnu ári með 5.800 lestir. Skipstjóri á Haraldi Böðvarssyni er Kristján l’étursson. Af stærri skuttogurunum varð Kald- bakur, skip Útgerðarfélags Akureyr ar, aflahæstur með 6.004 lestir. Skip- stjóri á Kaldbak er l'orsteinn Vil- helmsson. Undanfarin ár hafa togarar Vestfirðinga verið aflahæstir minni togaranna en að þessu sinni skaust Haraldur Boðvarsson upp fyrir þá og sagði Haraldur Stur- laugsson, framkvæmdastjóri á Akranesi, að afli Haraldar Böðv- arssonar hefði verið ævintýralegur á árinu. Páll Pálsson frá Hnífsdal varð í öðru sæti minni skuttogar- anna með 5.711 lestir, skipstjóri er Guðjón A. Kristjánsson. Tölur um aflaverðmæti liggja ekki fyrir, en líklegt er að Páll Pálsson ÍS sé með mest aflaverðmæti minni togar- anna. og hugmyndir hafa verið um innan ríkisstjórnarinnar. Kkki hefur enn tekist samkomu- lag um nýtt fiskverð. Síðast var haldinn fundur í yfirnefnd verð- lagsráðs í gær. Stóð fundurinn í tæpar þrjár klukkustundir og hef- ur Mbl. heimildir fyrir því að ekk- ert þokaðist í samkomulagsátt á fundinum. Einn af viðmælendum blaðsins sagði í gær, að sjómenn og útgerðarmenn komi ekki til með að samþykkja að fiskverð verði látið gilda lengur en til 1. marz nk. þar sem þá gengur í gildi nýr vísitölu- útreikningur. Á síðasta ári var sá háttur hafður á, að fiskverð gilti til 1. marz. Var það þá ekki ákveðið fyrr en 14. febrúar og gilti frá ára- mótum. Þá var öllum kunnugt um hve háar launahækkanir yrðu 1. marz og því samið fyrirfram um 6% fiskverðshækkun frá þeim degi. Sami viðmæiandi blaðsins sagðist telja það „sorglegt, að aðilar skuli þurfa að setjast niður á ný upp úr miðjum næsta mánuði til að fjalla um fiskverð". Menn hafa ekki viljað tjá sig um hvaða áhrif áðurnefnd gengisfell- ing kemur til með að hafa á fisk- verðsákvörðun þar sem ríkisstjórn- in hafi ekki enn tilkynnt um frek- „l’að má búast við að I 6000—8000 manns missi vinnu sína á starfssvæði verkalýðsfélag- I ari efnahagsaðgerðir, sem ljóst er að þurfa til að koma. Samkvæmt því sem Mbl. kemst næst mun ágreiningur vera mikill innan rík- isstjórnarinnar um hverjar þær að- gérðir eiga að vera og því allsendis óljóst, hvenær ákvarðanir verða þar teknar. Einn af forvígismönnum sjó- manna sagði í samtali við Mbl. í gær, að samningamál sjómanna væru í algjörri biðstöðu. Ráðherrar hefðu á síðustu mánuðum lofað sjó- mönnum niðurfellingu olíugjalds en nú væri komið annað hljóð í strokkinn og ræddu ráðherrar um að lækka það um 2—2'/i% og jafn- vel að sett verði bráðabirgðalög þar að lútandi. Telja sjómenn að það yrði eingöngu til hins verra og samningar færu þá í enn meiri hnút. Telja þeir að fyrst verði að ræða og semja við útvegsmenn og ef olíugjald eigi að haldast áfram, þá verði það samningsatriði milli sjómanna og útgerðarmanna, ríkis- stjórnin eigi þar hvergi að koma nærri. Ekki var ljóst í gærkvöldi hvort tilkynnt yrði um hina nýju geng- isskráningu í dag eða næstu daga. Fundur í yfirnefnd verðlagsráðs verður haldinn síðdegis. anna í höfudborginni einni næstu daga, vegna stöðvunar flotans,“ sagði Eyjólfur Jónsson hjá Trygg- ingastofnun ríkisins í samtali við Morgunblaðið í gær þegar blaða- menn höfðu samband víða um land til þess að afla frétta af stöðu mála í hinum ýmsu byggðarlögum landsins. Öll hin sjávarplássin sem við höfðum samband við áttu það sammerkt að þar stefnir í mesta vandræðaástand og það var dapurlegt hljóð í fólki í upphafi vetrarvertíðar á nýju ári. Um það bil 900 fiskiskip landsmanna liggja nú bundin við bryggjur og fyrir utan það að sjómenn eru frá störfum, er búið að segja svo til öllu starfs- „ fólki í fiskvinnsluhúsum upp störfum, en að auki kemur stöðvun flotans við fjölmargar atvinnugreinar aðrar og má þar nefna vörubílastöðvar, neta- gerðarmenn, vélsmiði og fleiri iðnaðarmenn, því nær allar greinar atvinnulífsins tengjast útvegi og fiskvinnslu á einn eða annan hátt. Á miðsíðu blaðsins í dag og bls. 30 í dag eru viðtöl við talsmenn verkalýðsfélaga og fyrirtækja í nær 20 plássum á landinu þar sem það kemur fram að menn telja ástandið hrikalegt í upphafi vetrar- vertíðar þegar þúsundum verkamanna er sagt upp. Morgunblaðið heiðrar íþróttamenn Morgunblaðið heiðrar árlega afreks- fólk í íþróttum og fór afhending verðlaunagripa fram að Hótel Holti í gærdag. Á myndinni hér að ofan má sjá íþróttafólkið sem heiðrað var að þessu sinni. Aftari röð f.v.: Anton Órn Kærnested formaður Vfkings, sem tók við bikar fyrir hönd Lárusar Guðmundssonar knattspyrnumanns, Árni Kjartansson faðir Árna Þórs Árnasonar skíðamanns, Garðar Jó- hannsson körfuknattleiksmaður, Sigurður Sveinsson handknattleiks- maður, Sigurður Lárusson knatt- spyrnumaður, Sigurlás Þorleifsson knattspyrnumaður, Kíkharður Hrafnkelsson körfuknattleiksmað- ur. Sitjandi f.v.: Ingi Þór Jónsson sundmaður, Margrét Theodórsdóttir handknattleiksmaður, Haraldur Sveinsson framkvæmdastjóri Árvak- urs og Sigurður T. Sigurðsson frjáls- íþróttamaður. Sjá nánar á íþróttasíð- um blaðsins. Ljósm. Kmilía

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.