Morgunblaðið - 14.01.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1982
5
Jósef Kinar Mallhían Olafur
Birgir ískifur Cíiali Halldór
Kjjólfur Hélur Jón
l'ríðrik
Leiðin til bættra lífskjara:
Fundað að Flateyri,
Höfn, Hvamms-
tanga, Grundarfirði, Ólafs-
firði, ísafirði og Búðardal
SÍKurlaux
Sjálfstæðisflokkurinn efnir
þessa dagana til fundaherferðar
um land allt undir kjörorðinu:
Leiðin til bættra lífskjara. í dag,
fimmtudaginn 14. janúar kl.
20.30, verða fundir í félagsheim-
ilinu á Hvammstanga og að Itót-
el llöfn í Hornafirði.
Á Hvammstanga verða
framsögumenn Matthías Á.
Mathiesen, alþingismaður, og
Jón Ásbergsson, fram-
kvæmdastjóri. I Höfn í Horna-
firði tala Friðrik Sophusson,
varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins og Sigurlaug Bjarna-
dóttir, menntaskólakennari.
Á morgun, föstudag kl.
20.30, verður fundur í sam-
komusal Hjálms hf. á Flateyri.
Framsögumenn Jósef H. l»or
geirsson, alþingismaður og Ein-
ar Kr. Guðfinnsson, stjórn-
málafræðingur.
Á laugardag verður fundað
á fjórum stöðum:
• 1. Grundarfirði: Fundað í
safnaðarheimilinu kl. 2 mið-
degis. Framsögumenn: Matthí-
as Bjarnason, fyrrv. sjávarút-
vegsráðherra og Ólafur G. Ein-
arsson, formaður þingflokks
sj álfstæðismanna.
• 2. Olafsfjörður: Fundar-
staður Tjarnarborg. Fundur
hefst kl. 2 miðdegis. Fram-
sögumenn: Birgir ísleifur Gunn-
arsson, alþingismaður, og Gísii
Jónsson, menntaskólakennari.
• 3. ísafjörður: Fundað í
Sjálfstæðishúsinu kl. 4 síðdeg-
is. Framsögumenn alþingis-
mennirnir Eyjólfur Konráð
Jónsson og Pétur Sigurðsson.
• 4. Búðardalyr: Fundur í
Dalabúð kl. 4 síðdegis. Fram-
sögumenn: Halldór Blöndal, al-
þingismaður og Óðinn Sig-
þórsson, bóndi.
I Mbl. á morgun verður
greint frá fundum Sjálfstæðis-
flokksins nk. sunnudag.
EF ÞAÐER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AK.LYSINíiA-
SÍMINN EK:
22480
Sinfóníuhljómsveit Islands:
Níundu áskriftartón-
leikarnir í kvöld
NÍIINDU áskriftartónleikar Sinfón-
íuhljómsveitar íslands þetta starfs-
árið verða í Háskólabíói í kvöld,
fimmtudag, kl. 20.30. Efnisskráin er
eftirfarandi:
Mo/art: Forleikur ad óperunni I)on (•iovanni.
MaJiler Kindertotenlieder. Schubert: Sinfónía
nr. 9 í C-dúr.
Hljómsveitarstjórinn Gilbert I.
Levine er fæddur árið 1948 í New
York. Hann lærði hjá Dennis
Russel Davies við Juillard-skólann
í New York 1967—’8, við Princet-
on-háskólann hjá Jacques Monod
1968—’71, hjá Nadiu Boulanger í
París á árinu 1971 og við Yale-
háskólann í Connecticut hjá
Gustav Mayer 1971—’2. Árið 1973
var hann sérlegur aðstoðarmaður
George Solti í London og París.
Hann varð framkvæmdastjóri og
hljómsveitarstjóri Norwalk
Symphony Orchestra 1974 og hef-
ur síðan stjórnað ýmsum hljóm-
sveitum í Evrópu og Ameríku.
Levine er eini Ameríkumaðurinn
sem hefur komist í úrslit í Kar-
ajan-keppninni.
Einsöngvarinn Edith Thallaug
kemur í veikindaforföllum Ortrun
Wenkel. Edith Thallug sem er
fædd i Osló, var fyrst leikkona við
norska þjóðleikhúsið, fór'síðan að
syngja og flutti til Svíþjóðar og
söng við óperuna í Gautaborg og
konunglegu óoperuna í Stokk-
hólmi 1964. Hún er nú konungleg-
ur hirðsöngvari. Frú Thallaug hef-
ur farið í tónleikaferðir, m.a. til
Þýskalands, Englands, Noregs,
Austurríkis, Póllands, Tékkóslóv-
akíu og ísraels.
i. *
:S
(Jg) <þnlinenlal
Viftureimar
FAC
Kúlu- og rúllulegur
mwMKEN
Keilulegur
HHH precision
s Hjöruliðir
Einnig eru tímareimar og tímakeöjur fáanlegar í flestar gerðir bifreiða og vinnuvéla.
Stærsta sérverzlun landsins með legur, ásþétti, hjöruliði og skildar vörur. Sendum
land allt.
FÁLKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Örfáum bílum á gamla
verðinu óráðstafað.
Verö um 105.000.-
STATION
HONDA Á ÍSLANDI, SUDURLANDSBRAUT 20. SÍMI38772