Morgunblaðið - 14.01.1982, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1982
VIÐSKIPTI
VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF
— umsjón: SIGHVATUR BLÖNDAHL
Gjöld útgerðarinnar 1978—1980:
Olíukostnaður báta úr
9% í 14% af tekjum
í DAGBOK Hampidjunnar fyrir árið 1982 er birt yfirlit yfir^jöld útgerðar
innar á árinu 1980 í samanburði við gjöldin árið 1978. I yfirlitinu yfir
skuttnj'ara kemur í Ijós, að hlutfall launa og aflahluts er hið sama bæði árin
eða 35% af gjöldum.
Hlutur oliu hefur hins vegar
hækkað um 5% milli þessara ára
eða úr 15% í 20%. Hlutfall veið-
arfæra hefur lækkað úr 7% í 6%,
en viðhald hefur hækkað úr 9% í
10%. Afskriftir og vextir hafa
lækkað úr 21% í 23%.
Sé þessi samanburður skoðaður
fyrir báta án loðnubáta, 21—220
brúttólestir, kemur í ljós, að hlut-
ur launa og aflahluta hefur lækk-
að úr 45% í 44%. Olíukostnaður
hefur hins vegar hækkað um 6%,
eða úr 9% í 14%. Hlutur veiðar-
færa hefur hækkað úr 11% í 13%
og hlutfall viðhalds hefur hækkað
úr 10% í 13%. Hlutur afskrifta og
vaxta hefur lækkað úr 15% í 20%.
Hjá bátaflotanum vekur helzt
athygli að olíukostaður fer úr 9%
í 14% af tekjum og það þrátt fyrir
að aflaaukning hefur orðið á
hvern bát. Er þetta hlutfallslega
meiri aukning á hlutdeild olíunnar
en hjá togaraflotanum, en skýring
á því kann að vera sú, að togarar
mæta hækkandi olíuverði með
skiptingu í svartolíu.
Fækkun báta og aukið aflaverð-
mæti hefur hins vegar valdið því,
að hlutur afskrifta og vaxta hefur
lækkað úr 20% í 15%. Veiðarfæri
auka sinn hlut eins og við mátti
búast fyrir áhrif blývæðingar, sem
hófst að marki 1979.
Húsgögn og innréttingar:
Innflutningsaukningin 84,7%
fyrstu níu mánuðina í fyrra
HÚSGÖGN og innréttingar voru
fiutt inn fyrir liðlega 90,4 milljónir
króna fyrstu níu mánuði sl. árs, sanr
anborið við tæplega 49 milljónir
króna á sama tímahili árið 1980.
Aukningin milli ára var því um
84,7%.
Aukningin í innréttingum var
öllu meiri ein sér, eða 124,7%. Inn
voru fluttar innréttingar fyrstu
níu mánuði sl. árs fyrir tæplega
10,8 milljónir króna, samanborið
við liðlega 4,8 milljónir króna á
árin 1980.
Húsgögn voru flutt inn fyrir lið-
lega 79,6 milljónir króna fyrstu
níu mánuði ársins 1981, saman-
borið við 44,1 milljón króna á
sama tímabili árið 1980. Aukning-
in milli ára er því lðlega 80,3%.
Á öllu árinu 1980 voru fluttar
inn innréttingar fyrir liðlega 7,54
milljónir króna og húsgögn fyrir
liðlega 66,74 milljónir króna.
Varðandi innflutninginn fyrstu
níu mánuði ársins 1981 og 1980 er
vert að geta þess, að hann er
miðaður við verðlag hvers tíma
um sig.
Dökkt útlit hjá flugfélögum víða um heim:
Spáð allt að 1000 milljón
dollara tapi IATA-félaga
ÚTLITID í flugrekstri í heiminum á
nýbyrjuðu ári virðist vera heldur
dökkt, þrátt fyrir, að umferð muni
sennilega aukast um 5—6% á árinu
samanborið við 3% á síðasta ári.
Knut Hammerskjöld, fram-
kvæmdastjóri IATA, Alþjóðasam-
taka flugfélaga, sagði nýlega, að
trúlega yrði tap aðildarflugfélaga
IATA á yfirstandi ári vegna áætl-
unarflugs á bilinu 900—1000 millj-
ónir Bandaríkjadollara, eða í
námunda við 7380—8200 milljarð-
ar íslenzkra Jtróna, fyrir gengis-
fellingu. Framkvæmdastjórinn
gat þess ennfremur, að líklega
myndi tap aðildarflugfélaga IATA
á árinu 1981 verða i kringum 2100
milljónir Bandaríkjadollara, eða
17.220 milljarðar íslenzkra króna
fyrir gengisfellingu, þegar dæmið
yrði gert endanlega upp.
— Það er þó ekki öll nótt út
ennþá. Félögin verða að taka sig
taki og endurskipuleggja rekstur
sinn enn frekar en gert hefur verið
á síðustu misserum. Þá hef ég trú
á, að þegar á árinu 1983 verði stað-
an orðin þolanleg, sagði Knut
Hamerskjöld, framkvæmdastjóri
IATA, ennfremur.
Framkvæmdastjórinn gat þess,
að flugumferð hefði dottið tölu-
vert niður í ákveðnum hlutum
heimsins, vegna þess mikla sam-
dráttar, sem verið hefur í almennu
efnahagslífi heimsins á síðustu
misserum. — Við þykjumst hins
vegar sjá bjartari tíð í þeim efn-
um, sagði Knut Hammerskjold
ennfremur.
Einar Þorsteinsson fyrir framan verzlun sína I Stokhólmi en þess mi geta, að vörumerkið „fslands", fékk sérstaka
viðurkenningu í samkeppni sænskra auglýsingastofa á síðasta ári.
Markaðurinn hefur verið í
stöðugum vexti síðustu ár
segir Einar Þorsteinsson, sem selur um 60% af íslenzkum ullarvör
um í Svíþjóð og Finnlandi
SALA á íslenzkum ullarfatnaði hefur farið stöðugt vaxandi á síðustu árum
víða um heim, þ.á m. í Svíþjóð. Mbl. ræddi fyrir stuttu við Kinar Þorsteins-
son, sem hefur söluumboð fyrir Álafoss í Svíþjóð og Finnlandi. Einar sagði
markaðinn hafa verið í stöðugum vexti síðustu ár, en hann hefði byrjað
heildsölu fyrir íslenzkan ullarvarning fyrir um fimm árum í Stokkhólmi.
— Eg byrjaði á því að stofna
heildsölu til sölu á handprjóna-
varningi frá fyrirtæki, sem ég
hafði áður stofnað á íslandi. Síðan
jókst þetta smám saman og ég tók
við söluuboði fyrir Álafoss, að
hluta til og loks alveg, bæði fyrir
Svíþjóð og Finnland, og í dag
dreifi ég Alafossvörum til yfir 350
verzlana á þessu markaðssvæði.
Auk þess stofnaði ég mína eigin
búð hér í Stokkhólmi fyrir nokkr-
um árum. Síðan kom önnur í
Karlsstad í hlutafélagi og sömu-
leiðis í Stokkhólmi. í bígerð er síð-
an að stofna nýtt hlutafélag í
Finnlandi og opna verzlun í Hels-
ingfors, en það er gert í samvinnu
við stúlku, sem unnið hefur í söl-
unni hjá okkur til Finnlands. Það
er í raun ekki gerlegt að sinna
Finnlandi á fullnægjandi hátt frá
Stokkhólmi, sagði Einar ennfrem-
ur.
Einar sagði aðspurður, að eftir
því sem hann kæmist næst, þá
hefði hann um 60% af markaðin-
um fyrir islenzkar ullarvörur, en
sú samkeppni færi stöðugt harðn-
andi, þar sem framleiðendurnir
heima á Islandi væru í auknum
mæli að opna sínar eigin verzlanir
í Svíþjóð.
Einar sagði, að íslenzka ullin
hefði fengið mjög góða umfjöllun í
sænskum fjölmiðlum síðan í sept-
ember sl., enda hefði hann kapp-
kostað að eiga, sem allra bezt
samstarf við fjölmiðla.
Varðandi framtíðina, sagði Ein-
ar, að það væri ótvirætt stefna sín,
að opna fleiri verzlanir. Það kæmi
mun betur út að vera með þennan
varning í sérverzlunum, heldur en
að fá litla bása í stórverzlunum.
— Eins og ég sagði áður, dreifi
ég ullarvörum í yfir 350 verzlanir í
Frá Verzlun Einars I Stokkhólmi.
Svíþjóð, en við það bætast svo 35
verzlanir í Finnlandi og loks eigin
verzlanir, sagði Einar ennfremur.
Um aðra kynningu sagði Einar,
að hann hefði lagt kapp á, að taka
þátt í vörusýningum og kynning-
um, eins og kostur hefði verið á. Á
síðasta ári tók fyrirtækið þátt í 10
vörusýningum, auk þess sem hann
hefði tekið þátt í kynningu í tilefni
heimsóknar forseta íslands, frú
Vigdísar Finnbogadóttur til Sví-
þjóðar á sínum tíma.
Að síðustu kom það fram hjá
Einari, að fyrirtækið væri í örum
vexti, en í dag starfa liðlega 10
starfsmenn hjá heildsölunni, auk
síðan starfsmanna verzlananna.
Efnt var til sérstakra íslandskynninga í mörgum verzlunum í tilefni komu forseU íslands, frú Vigdísar Finnbogadótt-
ur sl. haust. Mynd þessi var tekin í einni stórverzlun í Stokkhólmi.