Morgunblaðið - 28.02.1982, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 28.02.1982, Blaðsíða 6
54 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1982 SVONA NJÓTA ÍSLENSKIR NEYTENDUR GÓDS AF UMSVIFUM OKKAR Á EVRÓPUMARKAÐI. NESCO Manufacturing HF er alíslenskt félag og systur- fyrirtæki NESCO HF rekið hér að Laugavegi 10. Það er nú meðal stærri seljenda myndbandstækja, útvarps- og hljómtækja og sjón- varpstækja á Norðurlöndum. NESCO Manufacturing hefur með höndum markaðs- setningu fyrir japanska stórfyrirtækið ORION í norður- og austur Evrópu. NESCO Manufacturing hefur nýverið gengið frá grunn- samningum við skandinavísk verslunarfyrirtæki um kaup á 15.000 ORION myndbandstækjum og 75.000 myndböndum, til afgreiðslu í ár. Þetta magn jafngildir væntanlegum heildarinnflutningi á myndbandstækjum og myndböndum til íslands næstu 5-10 árin. Við erum því fyrst íslenskra fyrirtækja til að rjúfa þann verðmúr, sem íslenskir kaupsýslumenn og verslunarmenn annara smáþjóða standa andspænis, og bjóðum íslenskum neytendum lág- marksverðlag. í nóvember s.l. kynntum við, í krafti þessa, 10 tommu ORION litsjónvarpstæki sem kostaði aðeins um 2/3 hluta af því sem önnur sambærileg littæki á markaðnum kostuðu. Nú höldum við áfram á þessari braut og bjóðum vandað og fullkomið ORION VHS myndbandstæki á lægra verði en hér er á öðrum VHS myndbandstækjum, jafnvel þeim einföldustu. Eftir því sem NESCO Manufacturing gerir nýja meiri- háttar viðskiptasamninga um tæki sem hentug eru fýrir okkar að- stæður, munum við auka framboð okkar af ORION tækjum á lág- marksverði, íslenskum neytendum til hagsbóta. Innan fárra mánaða munum við t.a.m. kynna glæsilegt 20 tommu ORION littæki sem, miðað við núverandi gengi, myndi kosta um kr. 8.500 en verð sambærilegra tækja er 10-14.000 kr. Með vinsemd,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.