Morgunblaðið - 27.03.1982, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. MARZ 1982
iLiOínu-
r
iPA
HRÚTURINN
21. MARZ-19.APRÍL
Afsk iplasamt fólk eyðilejjfcur
áform þín í dag. (^g .sam.starfí*-
mcnn eru mjog háværir, spurul-
ir og þri ylandi. Best er ad brosa
aA dllu saman en alls ekki
mLssa stjórn á þér.
m
NAUTIf)
20. APRlL-20. MAl
l*ér jjengur best að vinna einn á
bak við tjöldin og biddu ekki
um ráð frá öðrum nema það sé
algjörlega nauðsynlegt. Vertu
heima hjá fjölskyldunni í kvöld.
TVÍBURARNIR
21. MAÍ—20. JÍJNl
Vertu viljasterkur og haltu þig
við áform þín. Ileimilislífið er
ánæjrjulegt. I»eir giftu munu
finna til mikillar löngunar til að
prófa eitthvað nýtt með maka
KRABBINN
21. JÚNl—22. JÚLl
Vinnan gengur fyrir öllu hjá þér
í dag og þú ert ekki vinsæll
heima hjá þér. I»ú lendir í þeirri
aðstöðu að þurfa að hugsa um
persónu sem getur ekki hugsað
um sig sjálf.
IJÓNIÐ
m
23. JÚLÍ-22. ÁGÚST
Kf þú hefur átt í vandræðum
sambandinu við makann, er ef
til vill gott að fá ráð hjá þriðja
aðila. («óður dagur fyrir þá ein
hleypu sem eru áslfangnir.
MÆRIN
23. ÁGÚST-22. SF.I’T
l»ú ert sífellt að hugsa um gam
alt vandamál og ert mjög til-
finningalega viðkvæmur í dag
Fjölskyldumeðlimir eru mjög
hjálplegir og koma með góð ráð.
VOGIN
23. SEPT —22. PKT.
l'afir eru líklegar í dag þar sem
þú átt erfítt með að fá sam-
slarfsmenn til að samþykkja til-
lögur þínar. Snúðu þér að ein-
hverju sem þú getur unnið einn
að. Ástarmálin eru ána-gjuleg í
kvöld. _________________
DREKINN
23. OKT.-21.NÓV.
Iní ert eitthvað slappari en und-
anfarið, gættu þess að ofreyna
þig ekki. í frítímanum hefur þú
gott af að vera úti við. I*ú ættir
að vera meira með yngri kyn-
lóðinni.
11
BOGMAÐURINN
22. NÓV.-21. DES.
Snúðu þér að verkefnum þar
sem þú getur látið sköpunargáf-
una njota sín. Nú er tími til að
taka upp gamalt áhugamál sem
hefur þurft að bíða lengi vegna
ákafa þíns að græða peninga.
Wí
STEINGEITIN
_______22. DES.-19. JAN.
|»u verður að vera heima i dag
til þess að leysa vandamál sem
skapast hefur i tengslum við
óþolinmóðan fjölskvldumeðlim.
Kómantíkin setur bjartan svip á
þennan dag en þó getur verið að
þú verðir að bíða þangað til í
kvöld. ■■ '■ ..
ff!$ VATNSBERINN
20. JAN.-18. FEB.
Kkki byrgja tilfinningarnar inn-
ra með þér, leitaðu til náins ætt-
ingja með vanda þinn. láklega
ru það ástamálin sem eru að
angra þig.
^ FISKARNIR
Q 19. FEB.-20. MARZ
Ástamálin eru efst á baugi,
leynilegt ástarsamband er þér
mjög mikilvægt, þú getur verið
öruggari með persónu sem hef-
ur ekki látið sjá sig lengi. Fjár-
málin eru á viðkvæmu stigi.
DÝRAGLENS
LJÓSKA
TOMMI OG JENNI
FERDINAND
DRATTHAGI BLYANTURINN
SMÁFÓLK
I KNOW HOUJ YOU
FEEL...IT'S NO FUN TO
LOSE ALL THE TIME
Knn eitl tapiO, stóri bróðir?
Ég veit hvernig þér líður. I'að
er ekkert gaman að vera allt-
af að tapa.
Ég vildi að ég gæti hresst þig
dálítið ...
í guðs bænum — ekki syngja
jólalög!
BRIDGE
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Mörg spil gefa tilefni til
hinna svívirðilegustu lymsku-
bragða. Sjáðu t.d. hvernig
lúmski seiðskrattinn í suður
galdraði heim 4 spaða í þessu
spili:
Vestur Norður s KD7 h G52 t 9843 1 D72 Austur
s 1064 s 53
h D8643 h 109
t K75 t ÁG6
196 1 ÁG10853
Suður s ÁG982 h ÁK7 t D102 1 K4
Austur hafði ströglað á
laufi og vestur spilaði út
laufníunni. Sagnhafi fékk að
eiga fyrsta slaginn á laufk-
ónginn og spilaði strax litlum
spaða á borðið. Vestur lét lítið
— nema hvað?! — en þá var
sjöan í blindum látin duga!!
Þvílík svívirða! En samn-
ingurinn var ekki í höfn enn-
þá. Næst kom tígull á tíuna
og kónginn. Vörnin spilaði þá
tvisvar laufi, en sagnhafi
stakk frá og fór inn á blindan
til að spila á tíguldrottning-
una. Og nú var spilið unnið.
Austur fór upp með tígulás-
inn og reyndi hjarta. En það
var drepið á ásinn, tígul-
drottning tekin og blindum
spilað inn á tromp. Þrettándi
tígullinn var svo tíundi slagur
sagnhafa.
Vörnin gat tvisvar hnekkt
spilinu. Vestur hefði eyðilagt
mikilvæga innkomu á borðið
með því að stinga upp
tromptíunni þegar trompinu
var fyrst spilað. En honum er
vægast sagt vorkunn.
Austur átti kannski betri
möguleika. Hann gat rokið
upp með tígulásinn þegar
sagnhafi spiláði fyrst tígli úr
blindum. Þá gæti vestur síðar
þegar hann kæmist inn á tíg-
ulkónginn stíflað tígullitinn
með því að spila trompi.
Farðu yfir það.
En sennilega er austri tals-
verð vorkunn líka, því það
væri ekki gott að fara upp
með ásinn ef suður ætti KDx í
tígli.
SKÁK
Umsjón: Margeir Pétursson
Á Skákþingi Búlgaríu 1981,
sem fram fór rétt fyrir ára-
mótin, kom þessi staða upp í
skák stórmeistarans Tringov,
sem hafði hvítt og átti leik,
gegn Trifonov.
24. Hxg7! - Kxg7, 25. exf6+
- exf6, 26. I)g5+ - Kh8, 27.
Rxf6 — Dc7+, 28. Kg2 og
svartur gafst upp, því að
kóngur hans er gersamlega
varnarlaus í horninu. Trin-
gov sigraði á mótinu, hlaut
11 ‘Á! v. af 17 mögulegum.
Næstur varð Donchev með 11
v. og síðan komu þeir Inkiov,
Papov og Kirov með 10 v.