Morgunblaðið - 08.05.1982, Qupperneq 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
98. tbl. 69. árg. LAUGARDAGUR 8. MAÍ 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
I.josni. Mbl.: Lárus Karl.
Bretar auka enn hernaðar-
þrýsting á Argentínumenn
London, Buenos Aires og Washington, 7. mai. AP.
Staða dollars
sú veikasta
í tvo mánuði
London, 7. maí, AP.
STAÐA Bandaríkjadollars var í
dag veikari en hún hefur verid
sídan 8. mars. Er markaðir lok-
uðu í Lundúnum hafði staða hans
veikst enn frá því í gær. Hefur
dollarinn verið á niðurleið alla
þessa viku.
Á sama tíma styrktist
breska pundið og hefur ekki
staðið jafn vel síðan 8. mars.
Við lokun gjaldeyrismarkaðar-
ins í dag voru 1,82525 dollarar í
pundinu en voru 1,82 fyrir viku.
Á sama tíma var lítil breyt-
ing á verði gulls. Verð á úns-
unni lækkaði þó eilítið í dag í
samanburði við verð deginum
áður. Var únsan á 334,75 doll-
ara við lokun í dag en 336 í gær.
Verðlækkunin er þó mikil frá
því fyrir viku er únsan var á
361,50 dollara.
Von Biilow
dæmdur í 30
ára fangelsi
Newport, Khode Island, 7. maí. Al*.
DANSKI kaupsýslumaðurinn Klaus
Von Búlow var i kvöld dæmdur til 30
ára fangelsisvistar fyrir að hafa tví-
vegis reynt að myrða eiginkonu sína
með insúlíni.
Fær Von Bulow að leika lausum
hala í vikutíma gegn 500.000 doll-
ara tryggingu, en verður að líkind-
um sendur í fangelsi að þeim tíma
loknum. Samkvæmt lögum í
Rhode Island-fylki á hann ekki
möguleika á að losna úr fangelsi
fyrr en eftir 10 ár hið fyrsta.
Dómurinn hljóðaði upp á 10 ár
fyrir fyrri morðtilraunina en 20 ár
fyrir þá síðari. Lögfræðingar Von
Búlows segjast munu reyna að fá
frestinum fram að fyrirhugaðri
fangelsun framlengt.
ÍKANIR segjast hafa kórónað átta
daga linnulausa sókn sína í styrjöld-
inni gegn írökum með því að komast
að landamærum ríkjanna i fyrsta
skipti frá því stríðið braust út fyrir
19 mánuðum. írakar segjast hins
vegar hafa náð að stöðva framrás
íranska herliðsins.
Árásin var gerð, að því er segir í
útvarpsfregnum frá Teheran, til
að frelsa fjölda íranskra her-
manna, sem höfðu lokast inni og
biðu dauða síns. í árásinni segjast
íranir hafa skotið niður 6 íraskar
herþotur, auk þyrlu. Ennfremur
sagði Teheran-útvarpið, að þeir
hefðu náð 80 óskemmdum skrið-
drekum á sitt vald.
I árásinni náðu íranir aftur um
300 kílómetra breiðri landspildu í
suð-austurhluta landsins. Hvorug
þjóðin leyfir erlendum frétta-
mönnum að fylgjast með gangi
mála í styrjöldinni, en reynist
fregnir Teheran-útvarpsins réttar
þýðir það, að Iranir eru nú komnir
í skotfæri við helstu hafnarborg
BRETAR tilkvnntu í dag, að þeir
hefðu stækkað yfirráðasvæði sitt
við Falklandseyjar. Eiga nú öll
argentínsk skip og flugvélar,
sem voga sér út fyrir 12 mílna
landhelgina, á hættu að verða
fyrir árás af hálfu breska flot-
ans.
íraka við Persaflóa.
Fyrr í dag skýrðu írakar frá því
að fótgöngulið þeirra og skrið-
drekar væru að murka lífið úr síð-
ustu írönsku hermönnunum, sem
Þessi ákvörðun kom í kjölfar
þeirra fregna, að Bretar hygðust
senda 4 tundurspilla og 20 Harri-
er-þotur til viðbótar til Falklands-
eyja. Eru tundurspillarnir búnir
eldflaugum, sem geta varist eld-
flaugaárás Argentínumanna.
Verða skip breska flotans við eyj-
arnar þá 30 talsins. Þá skýrði
komnir voru í sjálfheldu. Sögðust
írakar að auki hafa náð að eyði-
leggja 43 skriðdreka og nokkra
flutningavagna, sem voru með
hermenn innanborðs.
breska varnarmálaráðuneytið frá
því, að ákveðið hfði verið að senda
Nimrod-þotur á vettvang. Eru þær
búnar ratsjártækjum og geta tekið
eldsneyti á flugi. Helsti veikleiki
Breta við Falklandseyjar hefur ein-
mitt verið talinn skortur á ratsjár-
flugvélum.
Hernaðarsérfræðingar telja nú
allt benda til þess, að Bretar hygg-
ist ráðast til uppgöngu á eyjunum
innan skamms. Er sagt að þetta
skref Breta sé framkvæmt til að
koma í veg fyrir allar tilraunir
Argentínumanna til að stöðva
fyrirhugaða árás.
Francis Pym, utanríkisráðherra
Breta, sagði í dag, að ekki yrði hik-
að við að gera frekari loftárásir á
flugvöllinn á Falklandseyjum ef
Argentínumenn reyndu að lagfæra
flugbrautirnar. Pym sagði einnig
að Bretar myndu gera allar nauð-
synlegar ráðstafanir til að verja
flota sinn kæmi til árásar af hálfu
Argentínumanna. Hann sagði
ennfremur að reynt yrði til þrautar
að ná samkomulagi eftir diplómat-
ískum leiðum.
Argentínumenn lýstu því yfir í
dag að þeir gerðu sér „ákveðnar
vonir" um að tillögur aðalritara
Sameinuðu þjóðanna, Javier Perez
de Cuellar, gætu leitt deiluna til
lykta. Aðstoðarutanríkisráðherra
Árgentínu, Enrique Ros, kom í dag
til New York til að eiga viðræður
við de Cuellar. Að sögn Costa
Mendez, utanríkisráðherra Argent-
ínu, eru tillögur de Cuellar „það
eina jákvæða, sem fram hefur kom-
ið í sáttatillögunum til þessa".
Skýrt hefur verið frá því í Buen-
os Aires, að 19 argentínskir her-
menn hafi látið lífið og 37 særst í
árásum Breta á Falklandseyjar til
þessa. Er talið víst að í þeirri tölu
séu 8 skipverjar, sem létu lífið er
gæsluskipið „Alfarez Sobral" sökk
eftir árás. Yfirvöld í Buenos Aires
halda því enn fram að aðeins 680
skipverjar af „General Belgrano"
hafi bjargast, en í fjölmiðlum er
talað um 800. Alls voru skipverjar
1042.
Yfirvöld í Buenos Aires skýrðu
frá því í dag að ríkið tapaði millj-
ónum doliara í viku hverri vegna
þeirra viðskiptahafta, sem Evrópu-
lönd hafa sett á Argentínu. Á árs-
grundvelli myndu Árgentínumenn
tapa um tveimur milljörðum
Bandaríkjadala vegna útflutn-
ingsmissis.
Sjá: Landganga reynd á Vest-
ur-Falklandi? bls. 22.
Vatikanið gefur
tvö leikrit páfa út
Vatikaninu, 7. maí. AP.
VATIKANIÐ hefur gefið út tvö
leikrit Jóhannesar Páls páfa II til
viðbótar þeim, sem áður hafa verið
gefin út. Bæði leikritin eru skrifuð
árið 1950, er hann gegndi prests-
störfum í heimalandi sínu, Pól-
landi.
Annað leikritanna fjallar um
líf 19. aldar málarans Adam
Chmielowski, sem hætti starfi
sínu til að vinna að útbreiðslu
evangelískrar trúar. Hitt er um
mann, sem finnur ástina og sjálf-
an sig í samtali við son sinn.
Bæði leikritin verða gefin út á
ítölsku, en þau eru þýdd úr
pólsku og komu fyrst út 1979.
Verður úrdráttum úr leikritun-
um útvarpað frá Vatikaninu á
sunnudag. Leikrit páfa um
hjónabandið, „Verslun skart-
gripasalans", var flutt af frægum
ítölskum leikurum í ríkisútvarp-
inu 1979.
Mesta atvinnuleysi í
Bandaríkjunum í 40 ár
Washington, 7. maí. AP.
ATVINNULEYSI var meira í
Bandaríkjunum í síðasta mánuði en
það hefur verið undanfarna fjóra
áratugi. Var atvinnuleysið i apríl
9,4% og hafði aukist um 0,4% frá
því í mars. Árið 1941 var atvinnu-
Íeysi í landinu 9,9% og hefur ekki
komist svo nærri þeirri tölu fyrr en
nú.
Atvinnuleysi hefur aukist um
2,2% frá því í júlí á síðasta ári.
Alls eru nú 10,3 milljónir Banda-
ríkjamanna án atvinnu. Þá var
frá því skýrt að síðustu viku apr-
ílmánaðar hefðu 561.000 manns
sótt um atvinnuleysisbætur. Þótt
sú tala sé 16.000 lægri en vikuna á
undan segir það ekki nema hálfa
söguna. Aldrei, frá því atvinnu-
leysisbætur voru fyrst greiddar,
hafa jafnmargir notið góðs af
þeim.
Þótt atvinnuleysið nú sé hið
mesta í Bandaríkjuhum frá því
tekið var að halda mánaðarlegar
skýrslur er langt í frá að það
nálgist ástandið eins og það var á
kreppuárunum. Árið 1933 var at-
vinnuleysið í landinu 24,9%.
íransher kominn að
landamærum Iraks
Beirút, 7. maí. AP.