Morgunblaðið - 08.05.1982, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGtlR 8. MAÍ1982
Þar sem Sjálfstæðisflokkur
stjórnar einn er vel stjórnað
Kafli úr eldhús-
dagsræðu Salome
Þorkelsdóttur
Hér fer á eftir kafli úr raeðu Sal-
óme Þorkelsdóttur við eldhúsumræð-
ur á Alþingi í síðustu viku:
Miklar umræður hafa orðið á Al-
þingi um húsnæðismálin að undan-
förnu og nú síðast í tengslum við
frumvarp ríkisstjórnarinnar um
6% nýjan skyldusparnað sem lagt
var fram fyrir skömmu. Þessu
skyldusparnaðarfrumvarpi var
ætlað að bjarga Byggingarsjóði
ríkisins sem er nú tómur. Það var
látið heita svo, að nú ættu þeir sem
hæstar tekjur hafa, hátekjumenn-
irnir í þjóðfélaginu, þeir menn sem
leggja nótt við dag til þess að afla
sér tekna, að koma ríkissjóði til
hjálpar og lána sparifé sitt, til þess
að hækka lán til þeirra sem eru að
eignast íbúð í fyrsta sinn.
Þarna var um að ræða áætlaðar
tekjur upp á 35 millj. kr. Það upp-
lýstist hins vegar, að hér var um
algera blekkingu fjármálaráðherra
að ræða. Byggingarsjóður er með
yfirdráttarskuld hjá Seðlabanka
sem nemur 40 millj. kr., og fjár-
magnið færi í að greiða þá skuld.
Þetta skyldusparnaðarfrumvarp
hefur ekki fengið þær undirtektir á
Alþingi sem fjármálaráðherra
hafði búist við. Göfugmennska
hans í garð ungu húsbyggjendanna
hvarf eins og dögg fyrir sólu og
árangurinn varð einungis sá, að
það upplýstist hvernig ástandið er í
húsnæðismálum undir forystu al-
þýðubandalagsráðherra.
Það hefði vissulega verið tilefni
til í þessum umræðum að gera hús-
næðismálum ítarleg skil eins og
þau hafa þróast, en á þeim stutta
tíma sem ég hef hér til umráða, er
þess ekki kostur. Ég vil þó minna á
þá staðreynd, að undir forustu Al-
þýðubandalagsins hefur þróunin
orðið sú, að öll áhersla er lögð á að
byggja félagslegar íbúðir, verka-
mannabústaði og sú lánafyrir-
greiðsla sem er 90% lán, er á
kostnað þeirra sem viija byggja á
eigin vegum, en þeirra lánahlutfall
er aðeins 17,4% af kostnaðarverði
staðalíbúðar.
Nú má enginn skilja orð mín svo
að ég sé á móti því að byggðar séu
íbúðir á félagslegum grunni eða
verkamannabústaðir, síður en svo,
það á að sjálfsögðu að aðstoða þá
sem þess þurfa með, og gera það
vel. En það á ekki að gerast á
kostnað þeirra sem geta og vilja
byggja á eigin vegum eins og nú er
gert, það á ekki að draga úr
sjálfsbjargarhvöt einstaklinganna,
heldur þvert á móti á að koma til
móts við þá með því að veita þeim
hagkvæm lán til langs tíma. Lán til
þeirra einstaklinga sem byggja í
fyrsta sinn þarf að hækka í 80% af
kostnaðarverði íbúðar, gera þarf
raunhæft átak í húsnæðismálum
aldraðra og fatlaðra og veita fé til
frjálsra samtaka húsbyggjenda og
einstaklinga sem hyggjast reisa
íbúðir þar sem sérstakt tillit er
tekið til þarfa aldraðra og hreyfi-
hamlaðra. Það þarf að gæta þess í
skipulagi við úthlutun lóða, að gefa
eldri og yngri kynslóðum tækifæri
til sambýlis og njóta þannig stuðn-
ings hvor af annarri.
Á sl. vetri fóru fram útvarps-
umræður héðan frá Alþingi. í loka-
orðum sínum vék Svavar Gestsson
að sveitarstjórnarkosningunum.
Hann sagði að meginátökin yrðu á
milli Sjálfstæðisflokksins og Al-
þýðubandalagsins. Kosningaúrslit-
in fælu ekki aðeins í sér dóm um
liðna tíð, heldur yrðu þau líka af-
gerandi um stjórn landsins og
sveitarfélaganna næstu árin. Hann
sagðist fagna því að Alþýðubanda-
lagið fengi tækifæri til að leggja
verk sín fyrir kjósendur. Ég er ekki
alveg viss um að ráðherra hafi ver-
ið eins glaður og hann lét yfir
33
væntanlegum kosningum til sveit-
arstjórna. Alþýðubandalagið lét
það boð út ganga til flokksmanna
sinna um svipað leyti, að nú skyldi
höfuðáhersla lögð á að fella meiri-
hluta sjálfstæðismanna í sveitar-
stjórnum hér í nágrannabyggðar-
lögum höfuðborgarinnar. Til þess
átti að beita öllum tiltækum ráðum
og m.a. að knýja fram sameiginleg
framboð vinstri flokkanna gegn
sjálfstæðismönnum, væri þess
nokkur kostur, enda tryggara að
sleppa skoðanakönnunum um fylgi
Alþýðubandalagsins með því að
þeir færu að bjóða fram einir sér
og standa undir nafni. Að vísu var
sáralítil! árangur af þessum til-
raunum til að sameina vinstrimenn
í eitt framboð, þó hefur Alþýðu-
bandalaginu tekist að fá til liðs við
sig nytsama sakleysingja á ein-
staka stöðum.
Góðir áheyrendur, mér finnst
full ástæða nú, þegar aðeins eru
rúmar þrjár vikur til sveitarstjórn-
arkosninganna, að ítreka orð Svav-
ars Gestssonar, félagsmálaráð-
herra, og minna kjósendur á að það
verður kosið milli þessara tveggja
flokka í sveitarstjórnarkosningun-
um 22. maí næstkomandi. Ég vil
minna landsmenn á að þar sem
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
stjórnað einn — verið einn til
ábyrgðar, hefur verið vel stjórnað.
Sjálfstæðismenn eru óhræddir að
takast á við málin og stuðla að
betra mannlífi þar sem einstakl-
ingarnir og frumkvæði þeirra fá að
njóta sín. Ég þakka þeim sem
hlýddu, góðar stundir.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Sérstætt antik
málverkasafn
30 stk. frá D.Kr. 3000—8000, frá
17,—18. öld. 300 málverk frá
1900—1930, frá D.Kr. 300. Simi
90 45 310064, eftir kl. 12.00.
V
Innahúsarkitekt
óskar eftir vinnu á teiknistofu
sem fyrst. Uppl. í sima 36424.
Herbergi óskast strax
24 ára maöur óskar eftir her-
bergi. Uppl. í sima 77628.
Ungt par
óskar eftir ibúó, helst í mióbæn-
um eóa nágrenni. Reglusemi og
skilvisum greiöslum heitiö. Uppl.
í sima 27563 t dag og næstu
daga.
Kvenfélag
Grensássóknar
veróur meó kaffisölu i safnaö-
arheimilinu, sunnudaginn 9. maí,
kl. 15.00. Félagsfundur veröur
mánudaginn 10. maí kl. 20.30 á
sama staó. Allar konur velkomn-
ar.
Stjórnln.
O ' GEÐVERND jTi
\
■GEÐVERNOARFÉLAG ISLANDSB
I Krossinn
Æskulýðssamkoma kl. 20.30 í
kvöld aö Auðbrekku 33, Kópa-
vogi. Allir hjartanlega velkomnir.
Elím Grettisgötu 62
Reykjavík
A morgun, sunnudag, veröur
sunnudagaskóli kl. 11.00 og al-
menn samkoma kl. 17.00. Veriö
velkomin.
FERÐAFÉLAC
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR 11796 og 19533.
Laugardaginn 8. maí
kl. 13 veröur gönguferó á Esju
(Kerhólakamb 836m), sú tyrsta
af níu feröum í tilefni 55 ára af-
mæli Feröafélagsins. Veriö meö
i Esjugöngu-happdrættinu.
Vinningar helgarferðir eftir eigin
vali. Fararstjórar: Guömundur
Pétursson, Guólaug Jónsdóttir,
Tómas Einarsson. Farið frá Um-
feröarmióstöölnni austanmegin.
Þátttakendur geta líka komiö á
eigin bilum og veriö meö. Verö
kr. 50. Frítt fyrir börn í fylgd meö
fullorönum.
Ferðafélag Islands.
ÚTIVISTARFERÐIR
Sunnudagur 9. maí
I. Kl. 10.30 — Undirhlíöar —
Gjáaarrétt — pylsuveisla. Verö
kr. 90.00. Fararstjóri: Þorleifur
Guðmundsson.
II. Kl. 13.00 — Búrfellsgjá —
Gjáarrétt — pylsuveisla. Verö
kr. 70.00. Börn Innan 12 ára
greióa kr. 20.00. Pylsuveislan er
innifalin í veróinu. Sjáumst.
Ath.: Þessi ferö er tilvalin fyrir
alla fjölskylduna. Fariö veröur i
leiki og spilaö og sungiö. Farió
frá Umferóamiöstööinni aö vest-
anverðu.
Frá Guðspeki-
fólaginu
Áskrittaraími
Ganglara ar
39573.
Laugardagur kl. 21.00
Lotusfundur. Erlndi.
Mánudagur kl. 21.00
Myndbandasýning meö Krishna-
murti.
Laugardagur 15. maí
Kl. 14.00. Aðalfundur.
S.K.R.R.
Öldungamót SKRR
Skiöamót fyrir alla sem vilja
reyna meö sór i skíöafimi veröur
haldiö i Bláfjöllum. á morgun,
sunnudaginn 9. m ai og hefst kl.
13.00. Keppt veröur í göngu og
svigi. i eftirtöldum aldursflokk-
um.
Ganga
Karlar Konur
35— 44 ára 30—39 ára
45—54 ára 40—49 ára
55 ára 50 ára
og eldri og eldri
Svig
Karlar
30—35 ára
36— 40 ára
41—45 ára
46 ára
og eldri
Konur
25—30 ára
31—35 ára
36—40 ára
41—45 ára
46 ára
og eldri
Skráning viö Blafjallaskala kl.
12.00 og verölaunaafhending
eftir mótiö.
Mætum vel skiðafolk
Skíóaráð Reykjavikur.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR1179H oo 19533.
Dagsferðir sunnu-
daginn 9. maí:
1. Kl. 10 Fuglaskoöunarferö
suöur meö sjó Fararstjóri:
Erling Ólafsson, líffræöingur.
Til aöstoöar: Gunnlaugur
Pétursson og Grétar Eiríks-
son. Verð kr. 150.
2. Kl. 13 Gengið frá Keflavík til
Leiru um Hólmsberg og
Helguvik. Fararstjóri: Baldur
Sveinsson. Verð kr. 100.
Fariö trá Umferöarmiðstööinni
austanmegin. Farmiöar viö bil.
Frítt fyrir börn i fylgd fulloröinna.
Feröafélag Islands.
Heimatrúboðiö
Öðinsgötu 6A
Almenn samkoma á morgun,
sunnudag, kl. 20.30. Allir vel-
komnir.
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raðauglýsingar
Akranes
Fundur veróur haldinn í Sjálfstæóishús-
inu aö Heiöargeröi 20, sunnudaginn 9.
maí kl. 14.30.
Fundarefni:
1. Geir Hallgrimsson og Friörik Soph-
usson ræöa um stjórnmálaviöhorflö í
þinglok
2. Almennar umræður.
Allir velkomnir.
Fulltrúarrad Sjálfstæöisfélaganna
á Akranesi.
Hvöt — kosningakaffi
Sunnudaginn 9. maí kl. 14.30—17.00
býöur Hvöt i kaffi i Valhölt. Dagskrá:
Ræöa Ölatur B. Thors. Söngur Elín Sig-
urvinsdóttir, píanóleikur Selma Kalda-
lóns. Vísur úr gömlum revíum Sigriður
Hannesdóttir Margrét Einarsdóttir
stjórnar. Sjónvarp veröur í gangi meöan
framboösfundur í sjónvarpssal stendur
yfir. Barnagæsla og videó á staönum.
Stjórnin.
Olatur
Kosningaskrifstofs:
Alltaf á könnunni í Eyjum
Kosningaskrifstofa Sjálfstæöisflokksins i Vestmannaeyjum er opin
alla daga frá kl. 15—19. Látiö vita af fólki sem ekki veröur heima á
kjördag, siminn er 2788 og 1648 — Það er alltaf á könnunni i
Eyjverjasalnum, litiö inn.
Frambjoóendur
Ungir Njardvíkingar
Nk. laugardag 8. mai kl. 14.00 heldur FUS i Njarövik felagsfund i
Sjálfstæöishúsinu. Inntaka nýrra félaga. Umræöur um bæjarmálefnin.
Gústaf Nielsson og Kjartan Rafnsson veröa gestir fundarins og munu
þeir fjalla um starf og hlutverk Sambands ungra Sjálfstæöismanna.
Stjórnin.