Morgunblaðið - 18.05.1982, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ1982
7
Plasteinangrun
ARMAPLAST
Glerull — Steinull
Armúla 16 sími 38640
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
Utankjörstaðakosning
Utankjörstaðaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins,
Valhöll, Háaleitisbraut 1,
símar 86735 — 86847 — 86747.
Upplýsingar um kjörskrá o.fl.
Sjálfstæóisfólk! Vinsamlegast látiö skrifstofuna vita
um alla kjósendur, sem ekki veröa heima á kjördegi.
Utankjörstaöakosning fer fram aö Fríkirkjuvegi 11
alla virka daga kl. 10—12, 14—18 og 20—22
Sunnudaga kl. 14—18.________________
2eldhús
r'Hur
MAGNUS L.
GUORÚN
SIGURDUR E.
ÞÓRARINN
„Stefnufesta í stað hringls“
í síöasta Helgar-Þjóövilja er fjallaó um Neskaupstaó og ágæti þess
aö hafa langvinnan eins flokks meirihluta og bæjarstjóra, sem
jafnframt er bæjarfulltrúi — og hefur pólitískt vægi.
Kristinn V. Jóhannsson, forseti bæjarstjórnar, segir: „Langvinn-
ur meirihluti hefur stórkosti. Hann tryggir stefnufestu í staö hringls
og samheldni í staö árekstra.“ Logi Kristjánsson, bæjarstjóri, talar
um gildi þess aö vera hvort tveggja: „bæjarfulltrúi og bæjarstjóri".
Hann víkur hvergi aö ágæti þess aö bæjarstjóri sé ópólitískur
áhrifalaus embættismaöur í staö þess aó veita leiöandi forystu.
Reykvíkingar geta vissulega lagt saman tvo og tvo í þessum
rökstuöningi og fengið útkomu, sem fellur inn í þeirra reynslu-
ramma. Framboðin fjögur, sem hafa sama höfuöið, áframhaldandi
borgarstjórnarforystu kommúnista, eru hringl — og árekstrameg-
in á vogarskálinni, ekki stefnufestunnar og samheldninnar!
„16 flokks-
bundnar hjá
Alþýðubanda-
laginu“
Kfsti maður á lista AL
þýðuflokksins, Sigurður K.
(■uðmundsson, segir í
grein í Alþýðublaðinu 15.
maí sl.: „Kvennaframboðið
er fyrst og fremst sprengi-
framboð til höfuðs Alþýðu-
bandalaginu. Um það er
engum blöðum að fletta.
I>egar 16 konur á lista
Kvennaframboðsins hafa
verið eða eru flokksbundn-
ir Alþýðubandalagsmenn
og 30 af listanum hafa kos-
ið Alþýðubandalagið, þá
sér hver maður, hvar upp-
runinn liggur. I»að fer ekki
á milli mála að þetta er
klofningsframboð frá A>-
þýðubandalaginu og ber að
Ííta á það sem slíkt. Al-
þýðubandalagið býður
þannig fram í tveimur hlut-
um í þessum kosningum."
„Hroki“ Sig-
urðar E. Guð-
mundssonar
Bjarni l’. Magnússon, 3ji
maður á kratalistanum.
segir í sama blaði svo um
afstöðu oddamanns síns:
„Við eigum að bjóðast til
að starfa með þeim
(Kvennaframboðskonum).
Allt tal um kommafram-
boð, tízkuframboð, kerl-
ingaframboð og aðrar
nafngiftir, sýna ekkert
annað en hroka(!) gagnvart
lýðræðinu ...“ Þetta minn-
ir á það að Sjöfn Ktlar að
lækka fasteignaskatta en
Guðríður (fjórða á listan-
um) að halda þeim óbreytt-
um!
Guðrún Helga-
dóttir hefur
orðið
Guðrún Helgadóttir,
borgarfulltrúi og alþingis-
maður m.m., skrifar „hóg-
væra“ grein og af „hjarta
litilláta" í Helgar-Þjóðvilja.
Hún talar svo til lýðsins:
„()g þá verður ekki gengið
fram hjá Kvennafram-
boðsflokknum. Hann sýn-
ist síður en svo vera á móti
kommum, heldur fyrst og
fremst á móti konum." Að
þessari „djúphugsuðu
speki“ sagðri hnykkir hún
enn á: „Framboð þetta er
með öllu óskiljanlegt ein-
mitt nú ...“ Út úr þessum
línum má lesa: Vita þessar
konur ekki að ÉG, Guðrún
Helgadóttir, vermi bekki
bæði í borgarstjórn og á Al-
þingi? Og enn segir sú lít-
illála: „En þarna kemur
reynsluleysi þessara
kvenna í stjórnmálum svo
átakanlega fram!“
„Miklir menn erum við
Hrólfur minn,“ segir mál-
tækið.
„Launamála-
stefna“ Al-
þýðubanda-
lagsins
Magnús L. Sveinsson,
formaður VR, sagði m.a. í
l.-maíræðu í Valhöll: „Ef
litið er yflr sl. 4 ár og staða
kjaramálanna metin, blasir
sú kalda staðrevnd við
okkur, að umsamdir kjara-
samningar hafa verið
skertir (með lögum) um
30,5% sl. 3 ár, og kaup-
máttur launa er nú miklu
lægri en fyrir 4 árum, þeg-
ar efnt var til útflutnings-
banns og verkfalls, til að
krefjast samninga í gildi".
Magnús sagði hluta laun-
þega hafa fengið þessa
skerðingu bætta með yflr-
borgunum. Hún hafi hins-
vogar „bitnað fyrst og
fremst á lægst launaða
fólkinu".
Nú lifa fáir dagar eftir
valdatíma Alþýðubanda-
lagsins í Keykjavík, sem
ráðið hefur launaþróun hjá
borg og ríki. Það á vissu-
lega skilið umtalsverða að-
vörun í kjörklefunum á
laugardaginn kemur.
Ef Reykjavík
er undan-
skilin!
I»órarinn Isírarinsson.
sá launfvndni og mein-
hæðni ritstjóri, hittir á
stundum naglann á höfuð-
ið — aldeilis óviljandi. Um
helgina skrifar hann um
„menn og málefni" í Ttm-
ann og segir: „Frá Fram-
sóknarmönnum utan höf-
uðborgarinnar (svo!) berast
yfirleitt þær fréttir, að þeir
geri sér góðar vonir um
aukið fylgi.“ Fjarlægðin
gerir fjöllin blá.
Hvað hrúgast
upp hjá ríkis-
stjórninni?
I»órarinn hefur og þetta
að segja um ríkisstjómina,
en nokkrir ráðherrar munu
„veðurtepptir" um stund-
arsakir heima á Fróni:
„Hitt getur valdið stjórn-
arsamstarflnu vandkvteð-
um, að ný og ný vandamál
hrúgast nú upp... Það get-
ur því orðið erflðara að
stjórna." Vandamálasmíð-
in virðist í blóma. hvað svo
sem öðrum atvinnugrein-
um líður.
Mörg innbrot og íkveikja um helgina
ALLMÖRG innbrot voru framin í
Reykjavík og nágrenni um helgina,
flest þeirra smávægileg, litlu einu
stolið en nokkrar skemmdir víða unn-
ar, að sögn Rannsóknarlögreglu rikis-
ins. í gærmorgun var tilkynnt um tvö
innbrot i nótabátinn Guðrúnu, björg-
unarbátur hafði verið eyðilagður og
brotist inn í vinnuskúr við Astún í
Kópavogi þaðan sem stolið var nagla-
skotum, sem geta reynst hættuleg i
meðfórum óvita, að sögn lögreglunn-
ar.
Þá var útvarpstæki stolið úr íbúð
við Vesturgötu, útvarpstæki stolið
úr bíl, skartgripum stolið úr mann-
lausri íbúð við Ránargötu, skemmd-
ir unnar á póstkössum við Flyðru-
granda 4 og pósti stolið, skemmdir
unnar í húsnæði Kennaraháskóla
íslands, brotist inn í verslunina
Vatnsvirkjann og messuvíni stolið
úr kirkju óháða safnaðarins. Einnig
var brotist inn hjá Kópaseli og
Torfunni, engu stolið en leitað þar
og skemmt. Þá var gerð tilraun til
að kveikja í við Lindargötu 9 og
urðu þar skemmdir á rúðum og
gluggakarmi.
-------------------------------^
FYRIRFERÐALÍTIL EN FULLKOMIN
Leitið nánari upplýsinga.
Olympia SGE 45 rafritvélin hefur kosti stórrar skrifstofuvélar
þótt hún sé bæði minni og ódýrari. Fram og
aftur dálkaval, 44 lyklaborð, 8 endurtekn -
ingalyklar, hálft stafabil til
leiðréttinga o.m.fl.
Rétt vél fyrir þann sem
hefur lítiö pláss
en mikil verkefni.
o Olympia
[M]Æ\©[My^ KJARAINI HF
ÁRMULI 22 - REYKJAVlK - SÍMI 83022