Morgunblaðið - 18.05.1982, Side 11
FASTEIGNA
HSguiH
FASTEIGNAVIÐSKIPTI
MIÐBÆR-HÁALEmSBRAUT 58-60
SÍMAR -35300& 35301
í smíöum
Suöurgata, Hafn.
Til sölu tvær glæsilegar 160 fm
sér hæðir ásamt bílskúrum í
Hafnarfiröi. Hæöirnar skilast
fokheldar aö innan, en fullfrá-
gengnar aö utan, meö gleri i úti-
huröum og bílskúrshuröum. Af-
hendist í ágúst nk. Atv. fast
verð.
Hagaland — einbýlishús
Vorum aö fá í sölu glæsilegt
einbýlishús á einni hæö í Mos-
fellssveit. Húsiö er tilbúiö undir
tréverk aö innan, bílskúrssökkl-
ar. Glæsilegt útsýnl.
Skerjarfjöröur —
tvíbýlishús
Vorum aö fá í sölu tvíbýlishús í
Skerjarfiröi. Húsiö skilast fok-
helt og meö járni á þaki í águst
nk. Efri hæöin og risiö eru sam-
tals um 200 fm og fylgir þvi
bílskúr. Niöri er 2ja herb. íbúö.
Sumarbústaöir
Höfum til sölu ýmsar stæröir og
geröir af hinum þekktu Jeppe-
sen sumarbústööum. Mjög gott
verö. Getum einnig útvegaö
sumarbústaöalönd fyrir 6 bú-
staöi á einum fallegasta staö í
Grímsnesi. Nánari upplýsingar
á skrifstofunni.
FMtMgnaviAskipi
Agnar ÓlafMon, Arnar Siguröaaon,
Hafþór Ingi Jónaaon hdl.
29555
Krummahólar
2ja herb. íbuð á annarri hæö. Verö 580
þús.
Einarsnes
3ja herb. íbúö 65 fm lítiö niöurgrafin.
Verö 570 þús.
Grettisgata
3ja herb. íbúö 75 fm jaröhæö. Verö 700
þús.
Kleppsvegur
3ja herb. íbúö á 7. haBÖ. Gott útsýni.
Verö 900 þús.
Meistaravellir
4ra herb. íbúö 117 fm. Skipti á rúmgóö-
ri 2ja herb. íbúö.
Engihjalli
4ra herb. íbúö á 1. hæö. Furu innrétt-
ingar. Parket á gólfum. Falleg eign.
Verö 970 þús.
Hraunbær
4ra til 5 herb. íbúö 110 fm á 2. hæö.
Glæsileg eign. Verö 1,1 millj.
Flúðasel
2x75 fm raöhus. Bilskýlisréttur. Glæsil-
eg eign. Verö 1,6 millj.
Hðfum kaupendur aö 2ja og 3ja og 4ra
herb. íbúöum. Raöhúa og 4ra harb.
íbúð i vesturbsanum. Vantar einbýlia-
húa i Árbaa meö 4 avafnherb. Mögu-
leiki é akíptum á raöhúsi i Stórahjalla.
Eignanaust
Skipholti 5.
Sími 29555 og 29558.
Þorvaldur Lúðvíksson hrl.
Vantar þig?
Húsgögn á allt
heimilið fást hjá
KM-
húsgögn,
Langholtsvegi 111,
símar
37010—37144
Collonil
vernd fyrir skóna,
leðriö, fæturna.
Hjá fagmanninum.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ1982
11
7AVB
ASSOCIATED PRESS
Fridarhreyfingunni vex
ásmegin í Austur-Evrópu
AndstKðingar kjarnorkuvopna
og friðarsinnar á Vesturlöndum fá
hvergi lofsamiegri dóma en hjá
ríkisstjórnum kommúnistaríkj-
anna í Austur-Evrópu. Ríkisfjöl-
miðlarnir austantjalds láta ekkert
tækifæri ónotað til að segja frá
mótmælagöngunum fyrir vestan
en þegar kemur að veikburða til-
raunum þeirra eigin þegna til að
mótmæla vopnakapphlaupinu kem-
ur annað hljóð í strokkinn. Þá er
talað um „friðarhjal" og tilraunir
heimsvaldasinna til að grafa und-
an varnarmætti hinna sósíölsku
ríkja.
Vesturlandamenn, sem fylgj-
ast vel með gangi mála í Aust-
ur-Evrópu, sjá þess ýmis merki,
að friðarhreyfingum sé að vaxa
fiskur um hrygg í löndum eins
og t.d. Austur-Þýskalandi,
Ungverjalandi og Tékkóslóvakíu.
í Ungverjalandi eru það einkum
ýmsir hópar innan kaþólsku
kirkjunnar, sem mest ber á, og
bendir margt til, að stjórnvöld
séu farin að hafa verulegar
áhyggjur af þróuninni. Ung-
verskir kommúnistar hafa að
vísu á sér orð fyrir meira frjáls-
lyndi en skoðanabræður þeirra í
öðrum ríkjum Austur-Evrópu en
þrátt fyrir það dæmdu þeir tvo
menn í síðasta mánuði í tveggja
og hálfs árs og fimm ára fangelsi
fyrir að neita að gegna herþjón-
ustu.
í Austur-Þýskalandi hafa 4000
manns, einkum ungt fólk, ritað
nöfn sín undir áskorun til yfir-
valda þar sem þeir biðja um að
fá að þjóna landi sínu í félags-
legu hjálparstarfi í stað her-
þjónustunnar og hafa þessar
kröfur fengið mikinn hljóm-
grunn innan mótmælendakirkj-
unnar þar í landi. Viðbrögð yfir-
valdanna eru þau að ofsækja
fólk, sem grunað er um „friðar-
tilhneigingar", og Heinz Hoff-
man, varnarmálaráðherra, flyt-
ur um það langar tölur, að „her
alþýðunnar" sé besta tryggingin
fyrir friði.
I Sovétríkjunum má víða sjá
gríðarmikil spjöld og borða þar
sem nifteindasprengjan og áætl-
anir NATO um að endurnýja
kjarnorkuflaugar í Vestur-
Evrópu eru harðlega fordæmdar
og í blöðunum er varað við
„árásaráætlunum" Nato og
Bandaríkjanna. Þegar sjö menn
komu saman 19. april sl. á Rauða
torginu í Moskvu til að mótmæla
rússneskum kjarnorkuvopnum
var þeim hins vegar snarlega
stungið í steininn. í bæklingi,
sem sovésk stjórnvöld gáfu út á
þessu ári, ber fyrsti aðstoðar-
varnarmálaráðherra Sovétríkj-
anna, Nikolai Ogarkov, sig illa
undan þeim friðartilhneigingum,
sem hann segir, að farið sé að
gæta hjá ungu kynslóðinni.
í Sovétríkjunum og öðrum
kommúnistaríkjum er aldrei
sagt frá mótmælum vestrænna
friðarhreyfinga gegn rússnesk-
um kjarnorkuvopnum, aðeins
bandarískum, en almenningi
austur þar berast fréttirnar eftir
öðrum leiðum. Útvarps- og sjón-
varpssendingar frá Vesturlönd-
um nást víða í Austur-Evrópu
þótt reynt sé að trufla þær og
ferðamannastraumurinn hefur
líka sitt að segja. í Austur-
Þýskalandi ná t.d. 80% lands-
manna sjónvarpssendingum frá
Vesturhluta landsins og Tékkar
og Ungverjar eiga í engum erfið-
leikum með að hlusta á vestur-
þýskar og austurrískar út-
varpsstöðvar.
„Ungt fólk hér hefur fulla
vitneskju um friðarhreyfingarn-
ar, bæði úr vestur-þýskum fjöl-
miðlum og þeirra eigin," sagði
vestrænn sendiráðsmaður í
Austur-Berlín. „Stjórnvöld hér
hafa alltaf verið að tala um hvað
það væri gott að vinna fyrir frið-
inn svo að nú hefur unga fólkið
ákveðið að gera einmitt það. Að
vísu ekki eftir þeim leiðum, sem
ráðamennirnir áttu við.“
TOYOTA
UMBOÐIÐ
NYBYLAVEGI8
__ ___ _ KÓPAVOGI
P. SAMÚELSSON & CO. HF. SIMI 44144
Nokkrir Dísilbílar á
AÐEINSkr. 312.000.-
(Næsta veró kr. 326.000.-)
Landcruiser Station er einn
glæsilegasti 4 hjóladrifsbíll
sem komið hefur á markað.
Toyota Landcruiser Station sameinar
kosti lúxusfólksbifreiðar og
jeppabifreiðar, sterkbyggður, með
heila grind í undirvagni, mjúkur og
lipur í akstri, enda búinn vökvastýri,
og veltistýri.
Landcruiser Station er með rúllubelti, höfuðpúðum,
útvarpi, klæddur í hólf og gólf.
Landcruiser Station hefur sýnt hve vel hann hentar
fyrir íslenskar aðstæður og svo sannarlega
hrifið þá sem kynnst hafa.