Morgunblaðið - 18.05.1982, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1982
23
ÍBK fékk sai inkalla ða
eldskírn við endur -
inntöku sína i í 1. dc sild
BIKARMEISTARAR ÍBV fóru vel af
stad þegar flautað var til leiks i 1.
deildinni anno 1982. Þeir fóru i
móti Keflvíkingum i grasvellinum
vió Hástein, en Keflvíkingar leika
nú aftur í 1. deild eftir stutt stans I 2.
deild. Keflvíkingar fengu sannkall-
aða eldskírn við endurinntökuvígsl-
una og máttu þola tap, 2—0. Raunar
geta Keflvíkingar talið sig hafa
sloppið allvel frá þessum leik, því
Eyjamenn höfðu töluverða yfirburði
í leiknum og sigur þeirra var örugg-
ur. Staðan í hálfleik var 1—0.
Það er enn of snemmt að ætla sér
að Ijalla faglega um getu þessara
liða og spá fram í tímann hvers við
megi búast af þeim. Það verður ekki
fyrr en eftir þrjár eða fjórar fyrstu
umferðirnar að marktskur saman-
burður fsst á liðunum, sem í sumar
munu keppa að hinum eftirsótta ís-
landsmeistaratitli. Þess leikur gefur
þó ýmislegt til kynna, m.a. að Kefl-
víkingar verða að gera sér grein fyrir
þvi að veran í 1. deild nú verður
enginn dans á rósum, heldur þarf til
að koma strit og streð, í þessum
bransa er enginn annars bróðir I
leik. Um Eyjamenn má segja, að þeir
virðast nú koma sterkari og betur
undirbúnir til leiks en mörg undan-
farin ár, en það hefur löngum þótt
loða við ÍBV að byrja mót slaklega
og hefur það oft og tíðum orðið lið-
inu dýrkeypt.
Sem fyrr er getið hafði ÍBV
undirtökin í leiknum og geta
Keflvíkingar fyrst og fremst
þakkað hinum frábæra markverði
sínum, Þorsteini Bjarnasyni, að
útreiðin varð ekki verri. Það hefur
lengi verið vitað að Þorsteinn er
snjall markvörður og að þessu
sinni varði hann betur en ég minn-
ist áður að hafa séð til hans í leik.
Hvað eftir annað í leiknum varð
hann að fara út á móti hinum
mikla markaskorara ÍBV, Sigur-
lási Þorleifssyni, sem hafði komist
einn framhjá varnarmönnum ÍBK
og brunaði að marki. Þetta skeði
a.m.k. sex sinnum í leiknum.
Fimm sinnum bjargaði Þorsteinn
snilldarlega, í sjötta skiptið kom
Sigurlás boltanum framhjá Þor-
steini, en hann kom boltanum líka
framhjá markinu. Þetta var ekki
dagurinn hans Lása, en áfram hélt
hann allan leikinn að vinna og
skapa sér færi þó ekki tækist bet-
ur.
Keflvíkingar féllu í þá gamal-
kunnu gryfju að ætla sér um of í
sóknarleiknum, þegar þeir höfðu
vindinn í bakið. Þá var ekki annað
gert en sparkað sem lengst og
ÍBV-ÍBK
• Markvörður ÍBK, Þorsleinn
Bjarnason, átti mjög góðan leik
hlaupið á eftir boltanum í stað
þess að spila saman og halda bolt-
anum niðri. Með þessu spiluðu
Keflvíkingar leikinn uppí hend-
urnar, eða réttara sagt fæturnar á
hinum geysisterku varnar-
mönnum ÍBV. Eyjamenn notuðu
mun betur breidd vallarins, fóru
upp kantana og léku stuttan sam-
leik á köflum, enda varð árangur-
inn eftir því.
Eyjamenn skoruðu fyrra mark
sitt á 22. mín. leiksins. Sigurlás
var enn að kljást við Þorstein ut-
arlega í vítateignum og boltinn
hrökk fyrir markið af Þorsteini.
Þar var fyrir Jóhann Georgsson
sem afgreiddi boltann í netið af
aðdáunarverðu öryggi.
Þetta var sem sagt í fyrri hálf-
leik eg yfirburðir Eyjamanna um-
talsverðir. Aðeins tvívegis tókst
Keflvíkingum að skjóta Eyja-
mönnum skelk í bringu. Ingvar
Guðmundsson, nýkominn inná
sem varamaður, komst í upplagt
færi, en Valþór bjargaði málum á
allra síðustu stundu, og gömlu
kempunni Ólafi Júlíussyni brást
illilega skotfimin í upplögðu færi.
Keflvíkingar komu ákveðnir til
leiks í síðari hálfleik og voru að-
gangsharðir fyrsta stundarfjórð-
unginn. Ólafur Júl. hafði nærri
skorað beint úr hornspyrnu, en
Hreggviður Ágústsson gómaði
boltann undir þverslánni. Lang-
spyrnur Keflvíkinga og sparkaðu-
hlauptu-fótbolti þeirra ógnuðu
Eyjamönnum ekki verulega eftir
þetta og þeir komu aftur meira
inn í leikinn. Og síðara mark
þeirra kom svo á 64. mín. í mikl-
um darraðardansi í vítateig Kefl-
víkinga brá einhver á það óráð að
skella Kára Þorleifssyni flötum og
hinn mjög svo röggsami og ágæti
dómari, Eysteinn Guðmundsson,
dæmdi umsvifalaust vítaspyrnu.
Þar stóðu þeir augliti til auglitis,
Ómar Jóhannsson og Þorsteinn
Bjarnason, og Ómar skoraði ör-
ugglega þrátt fyrir góða tilburði
Þorsteins til varnar.
Hér má segja að Eyjamenn hafi
innsiglað sigur sinn, en þó átti
ýmislegt sér stað úti á vellinum og
uppi við mörkin. Framhaldssagan
„Sigurlás í gegn, en Þorsteinn ver“
hélt áfram. Eftir all skuggaleg
varnarmistök hjá ÍBV varð
Hreggviður Ágústsson að fórna
sér fyrir fætur tveggja Kelfvík-
inga, sem voru með boltann á
markteig og Hreggviður varði
frábærlega vel gott skot frá Sig-
urði Björgvinssyni úr aukaspyrnu.
En sem sagt, 2—0 sigur Eyja-
manna og þeir áttu þrjú tækifæri
á móti hverju einu hjá IBK til þess
að breyta þessari markatölu.
Hinn þokkalegasti leikur og góð
skemmtun fyrir áhorfendur. Hjá
Eyjamönnum áttu þeir allir góðan
leik, Ómar, Sveinn, Örn og Valþór.
Sigurlás var alltaf á ferðinni og
skapaði sér færi, en óheppnin elti
hann á röndum. Af Keflvíkingum
bar af Þorsteinn Bjarnason og
hann bjargaði liði sínu frá verri
útreið. Gísli var mjög sterkur í
vörninni og ungur piltur, Ingvar
Guðmundsson, vakti mikla at-
hygli.
í STUTTU MÁLI:
Hásteinsvöllur 15. maí.
ÍBV - ÍBK 2-0 (1-0).
MÖRK ÍBV: Jóhann Georgsson 22.
mín. Ómar Jóhannsson 64. mín.
ÁMINNINGAR: Jóhann Georgs-
son gult spjald.
DÓMARI: Eysteinn Guðmunds-
son. — hkj.
Einar, Oskar og Oddur
standa sig vel í Texas
ÍSLENZKU frjálsíþróttamenn-
irnir í háskólanum í Austin i
Texas stóðu sig svo sannarlega
vel á meistaramóti háskóla-
svæðisins er haldið var í Austin
um belgina. Þeir þremenn-
ingarnir, Óskar Jakobsson ÍR,
Oddur Sigurðsson KR og Einar
Vilhjálmsson UMSB, höluðu
inn 30 stig af 86 stigum skól-
ans, sem varð í þriðja sæti í
keppninni. Alls eru 28 keppn-
ismenn í liðinu, svo að framlag
fslendinganna er þvi sérstak-
lega athyglisvert, enda mikil
ánægja með þá í Austin.
Einar Vilhjálmsson sigraði
í spjótkastinu með 78,34
metra kasti, sem er hans
næstbezti árangur. Fyrsta
kast Einars var hárfínt ógilt,
en það var um 83 metrar.
Árangur Einars er athyglis-
verður þar sem hann hafði
ekki kastað spjóti frá því í
aprílbyrjun sökum meiðsla.
Óskar Jakobsson sigraði í
kúluvarpi, varpaði 19,79
metra, en hann tók einnig
þátt í spjótkastinu og varð
fjórði með 69,70 metra. Það
háði Óskari í keppninni, að
hann var nýstaðinn upp úr
slæmri veiki, sem dró úr hon-
um kraft.
Oddur Sigurðsson varð
fimmti í 400 metra hlaupinu
á 47,02 sekúndum, en hlaupið
vannst á 46,0 sek. Sigraði
Oddur öðru sinni sænska
spretthlauparann Erik Jösjö,
sem hljóp á 45,64 sek. í fyrra.
Jösjö, sem þykir einn efni-
iegasti 400 metra hlaupari í
Evrópu, hefur aðeins hlaupið
á 46,92 í ár. Oddur hljóp einn-
ig þriðja sprett í 4x400 metra
boðhlaupi, en sveitin varð í
öðru sæti á 3:06,1 mín.
IEI
• Markakóngurinn Sigurlás Þorleifsson átti mörg góð marktækifæri en
tókst ekki að nýta sér þau að þessu sinni.
Steve Fleet:
„Hlakka til sumarsins
því ég er bjartsýnn á
góðan árangur hjá ÍBV“
STEVE Fleet þjálfari ÍBV var harla
ánægður þegar Mbl.maður ræddi
stuttlega við hann eftir leikinn.
„Fyrstu tveir þrír leikirnir eru ávallt
erfiðir, við höfum æft á möl og leikið
fáa æfingaleiki þannig að ég vissi
ekki nógu vel hvar við stæðum. Það
er gott að Ijúka fyrsta leiknum með
sigri og strákarnir léku vel á köflum,
við spilum sóknarknattspyrnu og
ætlum okkur að skora mikið af
mörkum í sumar. Sjáðu hann Sigur-
lás, honum gekk allt í móti í þessum
leik, en samt hélt hann ótrauður
áfram að skapa sér færi eftir færi.
Meðan leikur okkar skapar svona
mörg góð færi, þá kvíði ég því ekki
að við munum skora mörg mörk og
með mörkum vinnum við leikina. Ég
hlakka til sumarsins og er bjartsýnn
á góðan árangur okkar í IBV. Við
munum halda áfram að bæta leik
okkar.“
Karl Hermannsson:
„Eyjamenn voru ekki
sannfærandi í
KARL Hermannsson stýrði Kefla-
víkurliðinu í sínum fyrsta leik í 1.
deildinni og varð að sætta sig við
tap. „Sigur Eyjamanna var sann-
gjarn, en ég er óánægður með leik
minna manna. Þetta gekk ekki upp
hjá okkur, vantaði alla stemmingu
og hálfgert slen yfir mönnum. Mér
fannst þetta vera slakur leikur og
Eyjamenn alls ekki sannfærandi.
þessum leik“
Um mótið get ég lítið sagt núna,
þetta skýrist ekki fyrr en eftir fjórar
umferðir. Það háir okkur nú í byrjun
að við höfum æft á möl, þetta er
fyrsti leikur okkar á grasi og mér
fannst strákarnir ekki almennilega
finna sig á grasinu. Við munum taka
okkur á og mætum tviefldir í næsta
leik og er ekki sagt að fall sé farar-
heill?“
I Isiandsmðllð i. flellfl
V-. ..... ... ..~....
tll t ■ r a •« i.t ti n ti • «^r »•
Ifi