Morgunblaðið - 18.05.1982, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ1982
25
i við markteig UBK en Guðmundur Ásgeirsson markvörður sá við skoti hans og varði
nanns, og sjá má hiuta af fjöldanum á myndinni. Ljósm. Mbi. kök.
iblik tók bæði
í baráttuleik
fyrir markið. Sigþór náði boltan-
um, tók hann á brjóstið og síðan
niður, og skaut þá viðstöðulausu
skoti og skoraði örugglega af frek-
ar stuttu færi.
Mínútu síðar munaði litlu að ÍA
næði tveggja marka forskoti. Guð-
björn komst í gegn um vörn UBK
og náði að skjóta góðu skoti frá
markteigshorni, en lánið lék ekki
við hann og boltinn fór í stöngina,
og aftur fyrir endamörk.
Á 13. mínútu eru Blikarnir í
sókn. Hár bolti kemur fyrir mark-
ið og í því að Sigurður Grétarsson
býr sig undir að hoppa upp hrindir
Guðjón Þórðarson honum. Guðjón
ýtti mjög greinilega á bakið á Sig-
urði sem féll við, og dómarinn
dæmdi réttilega vítaspyrnu. Sig-
urður tók vítið sjálfur og var ekki
í vandræðum með að skora.
Tveimur mínútum síðan, á 15.
mínútu, kom svo sigurmark leiks-
ins. Trausti Ómarsson, lipur ieik-
maður í liði UBK, var einn og
óvaldaður um 30 metra frá marki
þegar hann reyndi markskot. Og
viti menn, frekar laust skot hans
skoppaði undir Bjarna markvörð
sem kastaði sér á eftir boltanum.
Klaufaleg mistök hjá góðum
markverði.
Reyndist þetta vera sigurmark
léiksins. Fyrri hálfleikur var líf-
legur og oft vel leikinn. Lið UBK
var öllu nettara í samleik sínum
og náði betur saman, en lið ÍA fór
meira á seiglunni og kraftinum.
Síðari hálfleikur var þófkennd-
ari en sá fyrri. Mikil barátta var í
leiknum. Breiðabliksmenn lögðu
kapp á að verjast, en leikmenn í A
sóttu mun meira. Nokkur ágæt
marktækifæri sköpuðust, en ekki
tókst að nýta þau.
UBK
— ÍA
vogsvöllur: UBK — ÍA 2—1 (2—1).
Mörk UBK: Sigurður Grétarsson
úr víti á 13. mínútu og Trausti
Ómarsson á 15. mínútu.
Mark í A: Sigþór Ómarsson á 10.
mínútu.
Gul spjöld: Ómar Rafnsson
UBK og Jón Aifreðsson ÍA.
Áhorfendur: 1553. Metaðsókn í
Kópavogi á heimaleik UBK. Dóm-
aratríó leiksins: Kjartan Tómas-
son dæmdi leikinn vel ásamt línu-
vörðum sínum, þeim Hreiðari
Jónssyni og Guðmundi Sigur-
björnssyni.
- ÞR.
Claus Peter:
„Fyrri hálfleikur
var mjög gódur“
Liöin:
Ólafur Björnsson var besti mað-
ur UBK, og sá skásti á vellinum.
Ávallt vel staðsettur og jafnframt
kröftugur leikmaður sem gerir fá
mistök. I liði IA átti Árni Sveins-
son einna skástan leik ásamt Sig-
þóri og Sveinbirni.
I stuttu máli:
íslandsmótið 1. deild Kópa-
„Fyrri hálfleikur var gódur hjá lið-
unum. Við sáum góða knattapyrnu
og falleg mörk. Lið KA lék betur og
var sterkara en ég átti von á. Þetta
var jafn leikur og í honum var mikil
barátta. Ég er ánægður með þetta
eina stig sem við fengum ) ó svo að
betra hefði verið að hafa þau tvö.
Mótið verður jafnt í sumar að mín-
um dómi.“
— ÞR.
Valur og KA skiptu
með sér stigunum
LIÐ Vals og KA gerðu jafntefli 2—2
í fyrsta leik sinum í íslandsmótinu í
knattspyrnu í ár. Leikur liðanna var
ailgóður i fyrri hálfleik og um leið
líflegur en er liða tók á síðari hálf-
leikinn fór að verða fátt um fína
drætti hjá leikmönnum beggja liða,
og meira var um kapp en forsjá. En
miðað við að þetta var fyrsti stórleik-
ur liðanna í sumar og við það bætist
að leikmenn hafa lítið sem ekkert
verið á grasi má leikurinn teljast
þokkalegur.
Fjögur mörk í
fyrri hálfleik
Fyrri hálfleikur var mjög lífleg-
ur og oft brá fyrir góðri knatt-
spymu hjá leikmönnum Vals og
KÁ. Samleikur lipur og nokkur
hraði var í leiknum. Jafnræði var
með liðunum lengst af í fyrri hálf-
leiknum, þó svo að Valsmenn ættu
máske öllu hættulegri marktæki-
færi.
Á 16. mínútu leiksins kom
fyrsta góða skotið á mark. Úlfar
Másson átti þá fast og gott skot
sem markvörður KA, Aðalsteinn
Jóhannsson, varði mjög vel. Á 30.
mín. munaði litlu að Gunnar
Gíslason kæmist inn í sendingu til
markvarðar við mark Vals en
Brynjar varð fyrri til að ná bolt-
anum.
Fysta mark leiksins kom á 24.
mínútu. Ásbjörn Björnsson lék þá
upp völlinn og rétt utan vítateigs
lét hann þrumuskot ríða af og
skoraði glæsilegt mark. Boltinn
small innan á miðri markstöng-
inni og þaðan í netið. Ásbjörn
skaut af um 18 metra færi. Rétt
mínútu síðar var Ásbjörn aftur í
góðu færi en mistókst að skora.
Valsmenn jöfnuðu leikinn á 32.
mínútu. Þá brunaði Hilmar Sig-
hvatsson upp kantinn og gaf vel
fyrir á Njál Eiðsson sem skallaði
inn af stuttu færi. Vel gert.
Aðeins tveimur mínútum síðar
náðu KA-menn aftur forystunni í
leiknum. Ormar Örlygsson skaut í
hönd Sigurðar Sveinbjörnssonar
og dómarinn dæmdi umsvifalaust
víti. Það var svo Ásbjörn sem
framkvæmdi vítaspyrnuna og
skoraði mjög örugglega 2—1.
Valsmenn gerðu nú harða hríð
að marki KA og uppskáru mark 17
Aðalsteinn Jóhannsson markmaður
KA var kjörinn maður leiksins af
dómnefnd frá liðum Vals og KA. Að-
alsteinn átti góðan leik og varði
mark KA oft mjög vel.
sekúndum áður en dómarinn
flautaði til háfleiks.
Enn var það Hilmar sem átti
upptökin að markinu. Eftir lagleg-
an samleik fékk Hilmar boltann
út á kantinn og lék alveg upp að
endamörkum, gaf háan bolta fyrir
markið og Valur Valsson var vel
staðsettur og náði að skalla kröft-
uglega í netið. Staðan því jöfn í
hálfleik 2—2.
Þófkenndur síöari
hálfleikur
Allur síðari hálfleikur ein-
kenndist af mikilli baráttu hjá
leikmönnum beggja liða. Mikið
var um hlaup og spörk og er líða
tók á leikinn fór að draga af leik-
mönnum sem fóru að virka þungir.
Lítið var um samleik og mark-
tækifæri voru ekki mörg. Vals-
menn voru öllu aðgangsharðari en
KA-menn í síðari hálfleiknum, en
vantaði samt sem áður herslu-
muninn til þess að tryggjá sér sig-
ur.
Liöin
Það er ekki gott að dæma liðin
eftir þessum fyrsta leik. Valsmenn
voru með mikið af ungum óreynd-
um leikmönnum. Liðið á án efa
eftir að gera mun betur en það
gerði í þessum leik. Grímur Sæ-
mundsen var bestur Valsmanna,
lék vel og sýndi góða baráttu.
Varnarleikur Vals á miðjunni
virkaði nokkuð óöruggur. Þá var
framlínan ekki nægilega sannfær-
andi.
Lið KA barðist vel. Það verður
að hafa hugfast að leikmenn hafa
ekkert getað æft á grasi og það eru
viðbrigði að fara af möl á gras. Og
sjálfsagt enn meiri viðbrigði að
þurfa að leika næst á möl eins og
þeir þurfa að gera fyrir norðan
gegn IA í næsta leik sínum. Bestur
í liði KA var markvörðurinn, Að-
alsteinn Jóhannsson, sem greip oft
vel inn í leikinn jafnframt því sem
hann varði nokkur góð skot mjög
vel. Ásbjörn Björnsson átti góðan
leik og Guðjón Guðjónsson bak-
vörður sem aldrei gefur sinn hlut.
í heildina kom lið KA áhorfendum
svo og leikmönnum Vals örugg-
lega nokkuð á óvart með góðri
frammistöðu sinni í fyrsta leik
sínum. Og víst er að lið KA verður
ekki neinu liði auðveld bráð í
sumar.
í stuttu máli
íslandsmótið 1. deild. Laugar-
dalsvöllur: Valur-KA 2—2 (2—2)
Mörk Vals: 32. mínúta Njáll
Eiðsson, 45. mínúta Valur Vals-
son.
Mörk KA: Ásbjörn Björnsson á
24. mínútu og aftur á 34. mínútu,
þá úr vítaspyrnu.
Gult spjald: Valur Valsson Val.
Áhorfendur voru 922. Dómari
var Guðmundur Haraldsson og
stóð hann sig mjög vel. Línuverðir
voru þeir Oli Olsen og Baldur
Scheving. Veður var milt meðan á
leiknum stóð en mikil rigning var
í fyrri hálfleik og völlurinn því
nokkuð háll.
—ÞR.
Elmar Geirsson:
„Ágæt
byrjun“
„Ég er að mörgu leyti ánægður
með leikinn. Það er gott að fá eitt
stig á útivelli gegn Val. Við höfum
ekkert getað æft eða leikið á grasi í
allt vor og það háir okkur. Liðið
vantar enn meiri og betri leikæf-
ingu, en vonandi kemur þetta allt
fljótlega. Að mínum dómi er þetta
góð byrjun hjá okkur.“
- ÞR.
Willoughby:
1. deildin verður
mjög jöfn í sumar
„Ég er alveg sæmilega ánægður
með mína menn í þessum fyrsta
leik. Þetta var jafn baráttuleikur.
Það háir okkur að geta ekkert æft á
grasi áður en keppnistímabilið hefst.
Að mínum dómi verður 1. deildin í
sumar mjög jöfn. Það geta allir unn-
ið alla. V’ið í KA sýndum það í fyrra
að við getum komið á óvart. Og það
ætlum við okkur líka að gera í
sumar." __ þr.
Grímur Sæmundsen:
„Áttum að
I vinna leikinn“
„Ég er alls ekki ánægður með
jafnteflið. Við áttum mun hættulegri
marktækifæri og áttum að vinna
leikinn. Reyndar áttum við að gera
út um hann í fyrri hálfleik. Það var
mikil keyrsla < leiknum og að mínum
dómi kom hún niður á leikmönnum í
síðari hálfleiknum en þá var meira
um hnoð. Ba'ði lið vantar meiri leik-
æringu."
ÞR.