Morgunblaðið - 18.05.1982, Síða 23

Morgunblaðið - 18.05.1982, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ1982 31 Friðrik Ólafsson Florencio Uampomanes Viktor Korchnoi Kann að kosta Friðrik forsetaembættið í FIDE Fréttastofufregnir AP-fréttastofunnar: - ef kona og sonur Korchnoi fá ekki að fara frá Sovétríkjunum fyrir þing FIDE FRIÐKIK Ólafsson forseti FIDE segir í viðtali við fréttamann AP-fréttastofunnar, sem staddur er í Reykjavík, að hann vonist til þess að eiginkona og sonur Viktor Korchnois fái að flytja frá Sovét- ríkjunum svo að skákheimurinn losni við það vandamál, að því er segir í skeyti frá AP-fréttastofunni. „Frá mínum bæjardyrum séð er þetta fyrst og fremst vanda- mál skákheimsins. Við erum ekki Amnesty International," sagði Friðrik í viðtalinu við AP. í skeytinu er sagt að Friðrik Ólafsson hafi lagt heiður sinn að veði — og margir segja forseta- stólinn — til þess að knýja fram lausn Korchnoi-málsins. Rifjuð er upp sú ákvörðun Friðriks að fresta einvíginu í Meranó af þeim sökum. Skákin hafi ekki hafizt fyrr en hann hefði fengið full- vissu fyrir því að sovézk yfirvöld myndu taka mál eiginkonu og sonar Korchnoi fyrir þegar Igor yrði laus úr fangelsi, en hann var látinn laus í síðustu viku. „Það varð að samkomulagi að sovézk yfirvöld tækju til athug- unar að leyfa fjölskyldunni að flytjast úr landi eftir að Igor væri laus. Ég yrði mjög vonsvikinn ef ekkert gerðist nú, í ljósi allra fyrirheitanna. Á þessari stundu er ég bjartsýnn, (en)... það kem- ur í ljós hverjar efndirnar verða." Þegar Friðrik var spurður að því hvenær hann teldi að mæðginin kynnu að fá brottfar- arleyfi, sagði hann erfitt að segja fyrir um það. Það færi eftir því hversu hratt hjólin snerust. Ef til vill nokkrar vikur. Þá segir í skeytinu, að háttsett- ir aðilar innan FIDE hafi sagt að mál Korchnois kynni að eiga eftir að kosta Friðrik forsetaembættið ef fjölskyldan yrði ekki sameinuð fyrir þing sambandsins í Lucerne í nóvember. Þessir aðilar segja, að austantjaldslöndin gætu átt það til að leggjast gegn Friðrik á þeirri forsendu að þau teldu hann hafa gengið of langt í tilraunum sinum til að leysa mál Korchnois. Myndu austantjaldslöndin þá styðja Florencio Campomanes frá Filippseyjum, en með þeim Korchnoi hófst mikill fjandskap- ur meðan á einvígi Karpovs og Korchnoi í Baguio stóð. Campom- anes var aðalskipuleggjandi ein- vigisins og sakaði Korchnoi hann um hlutdrægni Karpov í vil. Fengju Bella og Igor Korchnoi hins vegar brottfararleyfi frá Sovétríkjunum fyrir þingið, segja sömu aðilar það myndu tryggja Friðrik verulega í sessi. Frá hjólreiðakeppninni við Austurbæjarskóla. Undanúrslit hjólreiða- keppni grunnskólanna ÁRLEG spurningakeppni 12 ára nem- enda fór fram i mars-mánuði með þátttöku tæplega 4000 nemenda um allt land. Þeir sem náðu bestum ár- angri tóku þátt í hjólreiðakeppni sem haldin var i Reykjavík sunnudaginn 2. maí. Að venju er keppt í tveimur riðlum, í Reykjavík 2. maí og á Akureyri, en fresta varð keppninni á Akureyri vegna veðurs til 7. maí sl. Alls msttu 83 nem- endur frá 46 skólum í báðum riðlum. í tólf efstu sætum Reykjavíkurriðils urðu: Brynjólfur Gunnarsson, Hóla- brekkuskóla, 296 stig; í'lfur Ingi Jóns- son, Kársnesskóla, 296 stig; Óskar Jónsson, Breiðholtsskóla, 292 stig; Torfi Sigurjónsson, Árbæjarskóla, 292 stig, Arnar Freyr Jónsson, Flataskóla, 290 stig; Jón P. Erlingsson, Breið- holtsskóla, 289 stig; Einar B. Sigurðs- son, Fellaskóla, 288 stig; Hilmar E. Sveinbjörnsson, Stóru-Vogaskóla, 288 stig; Sveinn Æ. Árnason, Hvolsskóla, 286 stig; Halldór Snorrason, Fella- skóla, 285 stig; Jóhannes G. Vilbergs- son, Grunnsk. Grindavíkur, 283 stig, og Jón Auðunn Sigurjónsson, Kópa- vogsskóla, 276 stig. Efstir í Akureyrarriðlinum urðu: Kári Kllertsson, Barnask. Akureyrar, 294 stig; Gunnar Viðar Gunnarsson, Oddeyrarskóla, 291 stig; Hildigerður Gunnarsdóttir, Barnask. Akureyrar, 288 stig. Jakob Sigurjónsson, Húna- vallaskóla, 283 stig, og Birgir Val- garðsson, Barnask. Sauðárkróks, 282 stig. Þessir 12 nemendur og 4 fremstu úr Akureyrarriðlinum taka þátt í úrslita- keppni sem haldin verður i október nk. I>eir sem þar verða í tveimur efstu sæt- unum, öðlast rétt til þátttöku í alþjóð- legri keppni á reiðhjólum. Hún verður haldin í maímánuði á næsta ári á veg- um PRI ~ alþjóðasamtaka umferðar- ráða, og fer væntanlega fram í Sviss. Kvennaframboðið í Reykjavík; Engir full- trúar í kjör- deildunum KVENNAFRAMBOÐIÐ í Reykjavík hefur ákveðið að „fylgjast ekki með kjósendum á kjördag" og verður því ekki með fulltrúa í kjördeildum, að þvi er segir í frétt frá Kvennaframboðinu. Fulltrúar frá Kvennaframboðinu verða þó á hverjum kjörstað, ef á einhverri aðstoð þeirra þyrfti að halda. Á kjördag verður Kvenna- framboðið með opið hús í Hótel Vík. í frétt frá framkvæmdanefnd Kvennaframboðsins í Reykjavík er lýst yfir eindregnum stuðningi við „réttlátar launakröfur" hjúkrunar- fræðinga og „þær aðgerðir sem hjúkrunarfræðingar hafa nú neyðst til að grípa til“. Fatlaðir með heimabingó ÍÞRÓTTASAMBAND fatlaðra og Sjálfsbjörg, félag fatlaðra í Reykjavík og nágrenni, hafa sameinast um fjár- öflunarleið, sem þau nefna „heima- bingó“. Dreifing bingóseðla hefst 17. maí og þann 21. júní birtast fyrstu töl- urnar svo í Dagblaðinu & Vísi, þar sem 3—4 tölur verða birtar daglega til 17. júní. Heildarverðmæti vinninga er 360.000 krónur segir í frétt frá fé- iögunum. BENIDORM BEINT LEIGUFLUG GÓDIR GISTISTAIXR BROTTFARARDAGAR: 2/6, 23/6,14/7, 4/8, 25/8,15/9. ATH.: OKKAR VERÐ FERDASKRIFSTOFAN NÓATÚNI 17. SÍMAR 29830 og 29930. Nú hefur þú efni ó aö eignast CO2 raf- suöuvélina sem þig hefur lengi Gæði kosta peninga, allireru sammála um það. Þess vegna hafa ESAB rafsuöuvélarnar verið dálítið dýrari en aðrar rafsuðuvélar. Nú hefur ESAB tekist að lækka verðið þrátt fyrir sömu gæði, með því að stórauka framleiðsluna. Talið við okkur um verð á útbúnaðinum sem þig hefur lengi langað í. Þeir sem reynslu hafa af rafsuðu, velja ESAB = HÉÐINN = SELJAVEGI 2, REYKJAVÍK.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.