Morgunblaðið - 27.06.1982, Blaðsíða 48
Sími á ritstjórn og skrifstotu:
10100
ircggatilrifaftifr
Síminn á afgreiðslunni er
83033
JHt»rj5itnI)Int»tí>
SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ 1982
>■ jp-
Breki og lóuunginn
Um þessar mundir eru ungar mófuglanna að „taka fyrstu sporin" úr hreiðrum
sínum og ástæða til að biðja fólk að fara varlega á bílum um mólönd, þvi það
ber ekki mikið á hnoðrunum sem trítla oft ófleygir eftir vegunum. Drengurinn
á myndinni, Breki, var á ferð um Skerjafjörðinn og rakst á lítinn lóuunga sem
var i vandræðum. Sá litli hljóp ungann uppi og flutti hann í hóp systkina sinna,
en strauk honum aðeins við kinn áður, í kveðjuskyni.
I.jósmynd Mbl. Kagnar Axekwon
Stjórnvöld gegn hækk-
unum í Verðlagsráði
VEKÐLAGSRÁÐ heimilaði hækkanir
á öli og gosdrykkjum, smjörlíki,
brauðum og flugfarmiðum innan-
lands frá og með deginum í gær, eins
og skýrt var frá í Mbl., en þá höfðu
hækkunarbeiðnir frá nokkrum þess-
ara aðila legið fyrir ráðinu í margar
vikur án afgreiðslu.
Sem dæmi um það má nefna, að
hækkunarbeiðni vegna öls og gos-
drykkja kom upp á borð ráðsins
fyrir 6 vikum, en beiðnin hafði þá
legið hjá Verðlagsstofnun um
nokkra hríð. Þessi dráttur hefur
komið sér mjög illa fyrir mörg
fyrirtæki, en þess eru dæmi, að
fyrirtæki hafi ekki fengið úrlausn
mála sinna fyrr en eftir 2—3 mán-
uði.
Samkvæmt upplýsingum Mbl.
hafa stjórnvöld lagt mjög hart að
Verðlagsráði að halda öllum hækk-
unum í skefjum, a.m.k. fram yfir
lausn yfirstandandi kjaradeilu ASÍ
og VSÍ. Bæði hafa beiðnir legið
lengi inni eins og áður sagði og
hækkunarprósentunni hefur enn-
fremur verið haldið niðri eins og
kostur hefur verið hverju sinni.
Góður humarafli
og ýsuhrota í trollið
„ÞAÐ hefur verið skrambi gott
fiskirí hjá trollbátunum hérna að
undanfornu og við erum alveg
ánægðir með okkar hlut i hurnar-
veiðinni. Þetta er svona rjátl, góð
hundrað kíló í hali, en hjá trollbát-
unum er þetta mest ýsa,“ sagði
Lýður Ægisson, skipstjóri á Ófeigi
III frá Vestmannaeyjum, í tal-
stöðvarsamtali við Morgunblaðið í
gær þar sem hann var á leið út frá
Hornafírði, en þangað sóttu þeir ís.
„Við höfum verið á Breiðamerk-
urdýpinu og við Tvískerið og það
er fallegur humarinn hérna, alveg
ágætur," sagði Lýður, „aflinn hjá
trollbátunum hefur hins vegar
verið slikur að tveir humarbátar
lögðu inn leyfin sín og fóru á fiski-
troll og annar þeirra fékk 10 tonna
hal í gær, þannig að það er líf og
fjör í þessu og skemmtilegt að það
skuli vera góðar fréttir frá okkur
núna, því þetta mátti vissulega
lagast. Annars er slegist um fleira
en fiskinn, því það er mikill hörg-
ull á ís á Hornafirði og einir 10
eða 12 bátar gátu ekki fengið ís-
mola þar í gær. Veðrið er með slík-
um ágætum hér að það minnir
helst á Reykjavíkurtjörn og er það
nú eitthvað annað en við áttum að
venjast í vetur.
Morgunblaðið reyndi að ná
talstöðvarsambandi við togarana
á Vestfjarðamiðum, en þeir svör-
uðu ekki loftskeytastöðinni og
sögðu loftskeytamenn að það væri
gleggsta merkið um að þeir væru
að fiska, enda höfðum við frétt af
dágóðum afla togara á Vestfjarða-
miðum.
Miklar deilur innan Alþýðubandalagsfélags Reykjavíkur:
Borgarmálaráð virðir að vettugi sam-
þykkt aðalfundarins um hafnarstjórn
MIKII. ólga ríkir nú innan Alþýðu-
bandalagsfélags Keykjavíkur vegna
kosningar Guðmundar Þ. Jónssonar í
hafnarstjórn Keykjavíkur. Telja félag-
ar í Alþýðubandalagsfélaginu að með
því hafi verið sniðgengin samþykkt að-
alfundar félagsins um að Dagsbrúnar-
maður skuli sitja i hafnarstjórn.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var það upphaflega sam-
þykkt innan borgarmálaráðs Al-
þýðubandalagsins með 9 atkvæðum
gegn 4, að Guðmundur Þ. Jónsson
skyldi eiga sæti í hafnarstjórn. Að-
alfundur Alþýðubandalagsfélags
Reykjavíkur setti þá ofan í við borg-
armálaráð og samþykkti með 70 at-
kvæðum gegn 1 að dagsbrúnarmað-
ur skyldi sitja í hafnarstjórn, en 5
eða 7 sátu hjá. Hafði aðalfundinum
þá borizt áskorun þess efnis frá um
30 félögum innan Dagsbrúnar.
Borgarmálaráð tók málið síðan upp
að nýju og virti þá samþykkt aðal-
fundarins að vettugi með því að
samþykkja með 10 atkvæðum gegn
7, en tveir sátu hjá, að 'þrátt fyrir
allt skyldi Guðmundur Þ. Jónsson
sitja í hafnarstjórn eins og raunin
varð.
Vegna þessa máls hefur Guð-
mundur J. Guðmundsson, sem sæti
hefur átt í hafnarstjórn um árabil,
ritað grein, sem birtist í Morgun-
blaðinu síðastliðinn föstudag og seg-
ir hann þar meðal annars: „Þennan
leik hugðist ég nú endurtaka. „Int-
ellígensían" í flokknum (Alþýðu-
bandalaginu, innskot Mbl.) hugðist
nú leggja mig á nýju bragði. Þeir
þorðu ekki að senda mann úr sínum
hópi til höfuðs mér, heldur völdu til
þess ungan mann, uppalinn norður á
Ströndum, sem hefur um nokkurt
árabil búið í Reykjavík og lengst af
unnið við framleiðslu á pillunum
„Hóstið ekki“ (ég áskil mér rétt til
að hósta þegar mér sýnist). Þessi
ungi maður hefur, að makleikum,
hafist til áhrifa í sínu stéttarfélagi,
auk þess að þykja efnilegur í flokkn-
um. Svo efnilegur raunar, að segja
mætti mér að hann yrði þar efni-
legur til sjötugs. Þetta er vænn pilt-
ur og vammlaus, og þótt hann rati
ekki um höfnina, þá hefur hann
næga greind til að þræða sig eftir
því skýra korti, sem er í síma-
skránni. Nú; ef allt um þrýtur eru
hafnarverkamenn það hjartagóðir
að þeir segja þeim skýrlega til vegar
sem villur gengur þar um bakka."
„Svartsýnt fólk flytur suður á bóginn“
— segir Alfreð Jónsson sem setið hefur 24 ár í hreppsnefnd Grimseyjar
„SVAKID er nú eiginlega bæði já og
nei. Auðvitað er það alltaf eitthvað
sem maður saknar, en það er líka
gott að vera sloppinn og reyna eitt-
hvað nýtt,“ sagði Alfreð Jónsson frá-
farandi oddviti í Grimsey, þegar
Mbl. hafði samband við hann, en
hann lætur nú af setu i hreppsnefnd
eftir 24 ár. „Það er um að gera að
veita yngri og duglegri mönnum tæk-
ifæri til að spreyta sig.“ Aðspurður
hvort yngri menn þyrftu nauðsynlega
að vera lífmeiri, sagði hann að þeir
ættu aii« ver* lífmeiri, ef allt
væri með felldu.
I Grímsey er kosning óhlutbund-
in. „Hér eru allir í kjöri og enginn
veit fyrr en seinni partinn á morg-
un, hverjir koma til með að sitja í
hreppsnefnd. Annars erum við
yfirleitt með þeim fyrstu að koma
með úrslit, oft búnir um hádegi.
Þetta gengur fljótt fyrir sig, þegar
fólk er samtaka.
Það hefur verið mjög gott sam-
starf hér í hreppsnefndinni, enda
er það lífsspursmál fyrir svona lít-
ið sveitarfélag, og sem betur fer
eru engar horfur á að það breytist.
Tíðarfar hefur verið afleitt. Þótt
það hafi veriu ~CÍI vedur nokk.ra
undanfarna daga, þá er lofthiu
sáralítill, og þó það sé-afskaplega
fallegt veður þegar horft er út um
gluggann, þá breytist það fljótt
þegar út er komið," sagði hann
þegar hann var spurður um veður-
farið.
„Gæftir hafa verið sæmilegar,
en aflinn heldur rýr. Menn eru nú
að þrífa báta sína og búa þá á
handfæri, eftir að hafa verið á net-
um í vetur."
Þegar Alfreð var spurður hvern-
ig hljóðið væri í fólki, sagði hann:
„Hér þrífst ekki nema bjartsýnt
fólk. Svartsýnt fólk flytur suður á
bóginn, svo hér eru menn bjartsýn-
ir.“
Valdimar Örnólfsson
Morgunleikfimin
25 ára í gær:
„Yngri
menn fái
tækifæri aö
spreyta sig“
„ÉG HEF verið með morgun-
leikfímina í 25 ár; það má segja
að silfurbrúðkaupið hafi verið
haldið í gær. í tilefni afmælisins
höfum við Magnús Pétursson
ákveðið að draga okkur í hlé og
gefa yngri mönnum tækifæri til
þess að spreyta sig,“ sagði Valdi-
mar Örnólfsson, í samtali við
Mbl. en hann var þá staddur í
skíðaskálanum í Hveradölum.
Þar voru um 140 manns, þar af
80 á námskeiðum og um 30
manns komu um helgina til að
renna sér á skíðum i blíðskap-
arveðri.
„Það er löngu tímabært að
ég hætti; ég hef kvalið lands-
menn í aldarfjórðung. Hins
vegar er ég þess fullviss, að
fólk mun sakna Magnúsar,
hann er ómissandi," sagði
Valdimar.
Fyrsta kaup-
skipið skráð í
Vík 1 Mýrdal
KAUPSKIPIÐ Keflavík var í
gær skráö í Vík í Mýrdal og
verður Vík heimahöfn þess.
Eigandi Keflavíkur er skipa-
félagið Víkur í Reykjavík og
mun þetta fyrsta kaupskipið,
sem skráð hefur verið í Vík í
Mýrdal.
Að sögn Einars Oddssonar,
sýslumanns í Vík, en skipið var
skráð á skrifstofu hans, mun það
öruggt að þetta sé fyrsta skipið,
sem skráð hefur verið með
heimahöfn í Vík. Sagði hann að
heimamönnum þætti þetta góður
fyrirboði um að loksins fengist
gerð höfn í Vík. Sömuleiðis væri
það ánægjulegt að tilkoma þessa
nýja skips væri sönnúfi þéSS, sð
líf væri í flutningum til og frá
landinu, en það væri nauðsynleg-
ur þáttur sjálfstæðisbaráttunn-
ar.