Morgunblaðið - 20.07.1982, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ1982
19
• Reykjavíkurleikarnir í frjálsum íþróttum fóru fram um síöustu helgi. Jafnframt fór fram Norðurlandabik-
arkeppni kvenna í frjálsum íþróttum. Margir frægir íþróttamenn og konur tóku þátt í mótinu. Á myndinni
hér að ofan má sjá hina frægu hlaupadrottningu Norðmanna, Grete Waitz, í forystu í 1500 m hlaupinu. En í
þeirri grein sigraði hún auðveldlega. Ragnheiður Ólafsdóttir er í fjórða sæti. Á bls. 23, 24 og 25 má finna
frásagnir af mótinu. Ljósm. köge.
Dómstóll KSÍ dæmdi Albert
ólöglegan og staðfesti þar
meo úrskuro dómstóls KRR
„JÁ, ÞAÐ er rétt. Vid staðfestum
dóm héraðsdómstóls KRR varðandi
kæru ísfirðinga á Valsmenn, og
dæmdum Albert Guðmur.dsson
ólöglegan með Val,“ sagði Helgi V.
Jónsson, sem sæti á í dómstól KSÍ,
er Morgunblaðið hafði samband við
hann í gær. Er þetta lokaniðurstaða
málsins að sögn Helga og hafa Vals-
arar því misst stigin tvö sem þeir
fengu út úr viðureigninni við IBÍ.
Kæra Knattspyrnufélags Akureyrar
varðandi Albert, sem nokkrum sinn-
um hefur verið frestað, verður tekin
fyrir á Akureyri á morgun, og má
búast við því að Valur tapi þeirri
kæru einnig.
Dagblaðið og Vísir skýrði frá
því í gær að leikmannanefnd
FIFA hefði ekki séð neitt athuga-
vert við félagaskipti Alberts til
Vals. Helgi sagði um þetta, að af-
rit af telexi til FIFA, og svar frá
þeim, hefði verið lagt fram í
dómnum, „en þeirra mat byggist á
öðru en hjá okkur. Þeir kanna
bara skjöl milli viðkomandi
knattspyrnusamtaka," sagði
Helgi.
Helgi sagði að i reglugerð KSÍ
segði, að stjórn sambandsins verði
að samþykkja félagaskipti leik-
manna, „og það liggur alveg ljóst
fyrir að stjórnin var ekki búin að
samþykkja félagaskipti Alberts
þegar leikirnir tveir fóru fram.
Bandaríska knattspyrnusam-
bandið setti þau skilyrði, að Al-
bert yrði kominn aftur til Banda-
ríkjanna fyrir einhvern vissan
tíma, og ég held að KSÍ hafi ekki
viljað samþykkja félagaskiptin
vegna þessa," sagði Helgi.
- SH.
Heimsmet í
10 km kvenna
BANDARÍSKA hlaupastimið Mary
Decker-Tabb, sem sett hefur hvert
metið af öðru i sumar, setti nýtt
heimsmet í 10 km hlaupi kvenna í
Eugene í Oregon-riki á laugardag.
Hún hljóp á 31:35,3 mínútum og
bætti heimsmetið um rúmar 40 sek-
úndur, það var 32:17,19 og í eigu
sovézku stúlkunnar Yelenu Sipat-
ovu, sett í fyrra.
Reyndar hljóp íslenzka stúlkan
Lóa Ólafsson, sem búsett hefur
verið alla sína tíð í Danmörku, á
31:45,04 mínútum 1978, en það met
hlaut aldrei viðurkenningu, þar
sem Lóa keppti móti körium.
Decker-Tabb setti heimsmetið
aðeins klukkustundum eftir að
hún kom til sinna heima eftir
keppnisferðalag í Evrópu, þar sem
hún setti heimsmet í 3.000 metra
hlaupi og míluhlaupi. Áður en hún
hélt til Evrópu setti hún met í 5
km hlaupi í Eugene, sama vellin-
um og hún setti 10 km metið á,
Hayward-vellinum fræga.
• Mary Decker-Tabb, sem sett hefur fjögur heimsmet í millivega-
lengdum og langhlaupi í sumar.
Janus hættir hjá F.Köln
Janus Guðlaugsson sagði í spjalli
við Morgunblaðið um helgina, að
sýnt væri að hann léki ekki með
Fortuna Köln í Þýskalandi næsta
vetur. Janus sagði ekki komið á
hrcint með hvaða liði hann kæmi til
með að leika, en þau mál skýrðust á
næstunni. Hann dvaldist i Köln í
síðustu viku, ræddi við forráöamenn
félagsins og æfði með liðinu.
Fyrst byrjað er að segja frá
knattspyrnumönnum okkar í
Þýskalandi má geta þess, að Pétur
Ormslev og Atli Eðvaldsson eru
nú farnir utan að nýju eftir
sumarleyfi, og byrjaðir að æfa af
fullum krafti með félagi sínu, For-
tuna Dusseldorf.
Urðu þeir félagar fyrir því óláni
að mæta of seint á fyrstu æfing-
una, og voru sektaðir um 100 mörk
hvor fyrir vikið. I Þýskalandi er
greinilega dýrt að koma of seint í
vinnuna!
• Tom Watson, hinn snjalli golf-
leikari frá Bandaríkjunum, sem
hér horfir á eftir hvíta boltanum,
tryggöi sér um helgina sigur í
opna breska meistaramótinu. Er
þaö annað stórmótiö sem hann
vinnur á rúmum mánuöi.
Watson hefur sigrað bæði á breska og
bandaríska meistaramótinu í golfi í ár
Sá fimmti í sögunni sem tekst að vinna það afrek
BANDARÍK JAMADURINN Tom Watson sigraði á opna breska
meistaramótinu í golfi sem lauk um helgina. Var þetta í fjórða sinn
sem hann sigrar á mótinu, og við sigurinn varð hann fimmti golfleikar-
inn í sögunni, sem vinnur bæði breska og bandaríska opna meistara-
mótiö á sama árinu. Aðeins er um
Bandaríska.
Bobby Clampett frá Bandaríkj-
unum haföi forystu á mótinu lengi
vel og lék mjög vel tvo fyrstu hring-
ina, á 67 og 66 höggum. Þriðja
hring fór hann síðan á 78 höggum
og missti forystu sína niöur í 1
högg fyrir síðasta hringinn. Annar
fyrir lokaátökin var Nick Price frá
Suður-Afríku, en Tom Watson,
sem í lokin stóð sem sigurvegari,
var fimmti, tveimur höggum á eftir
Price.
En eftir 72 holur hafði Watson
notaö 284 högg, Nick Price og
Peter Ossterhuis, Bretlandi, báöir
285. Price hafði forystu undir lokin
en klúöraöi mikilvægum púttum á
síðustu holunum og geröi fleiri
„gloríur". Er hann átti fimm holur
eftir hafði hann tveggja högga for-
mánuður síðan hann sigraði á því
skot á Watson. Watson kláraöi á
70. og munaði aðeins 1 höggi eftir
holurnar 72 eins og áður kemur
fram.
Efstu menn í mótinu urðu þessir.
Skor á hverjum hring er gefið upp
og síðan samanlagður höggafjöldi.
Tom Watson, Bandaríkjunum
69—71—74—70:284
Peter Oosterhuis, Bretlandi
74—67—74—70:285^
Nick Price, Suður-Afr]ku
69—69—74—73:285
Tom Purtzer, Bandaríkjunum
76—66—75—69:286
Nick Faldo, Bretlandi
73—73—71—69:286
Masahiro Koramoto, Japan
71—73—71—71:286
Des Smyth, írlandi
70—69—74—73:286
Fuzzi Zoeller, Bandaríkjunum
73— 71—73—70:287
Sandy Lyle, Bretlandi
74— 66—73—74:287
Jack Nicklaus, Bandaríkjunum
77—70—72—69:288
Bobby Clampett, Bandaríkj.
67—66—78—77:288
„Ég vorkenni Nick Price og
Bobby Clampett,“ sagði Watson
eftir keppnina. „Ég hef lent í þessu
sama og þeir, og veit því hvernig
þeim líður.“
Watson sagði eftir keppnina að
hann hefði ekki unnið meö sama
glæsibrag nú og á bandaríska
mótinu fyrir mánuöi síðan. Þaö var
mikiö rétt hjá honum. Þá sigraði
hann með einu glæsilegasta skoti í
sögu golfsins, frábæru afreki á 71.
holu, sem nægöi til að sigra Nickl-
aus. Nú færöi Price honum sigur-
inn á silfurfati; „nú sigraöi hann
með boltann í vasanum,“ eins og
það var orðað, því hann haföi lokið
keppni er Price klúðraði tækifæri
sínu.
„Ég bjóst ekki við að vinna,“
sagði Watson. „Ég hef aldrei sigr-
að svona áður, að mér hafi bók-
staflega verið réttur sigurinn. Ég
hef grátið eftir keppni, þegar fór
fyrir mér eins og Price og Clampett
nú, og vel gæti ég trúiö að eins sé
ástatt með þá nú. En þetta er
nokkuð sem menn verða aö ganga
í gegn um. Þetta gerði mig að
miklu ákveðnari spilara, því ég gat
ekki hugsað mér þessa líðan
oftar.“