Morgunblaðið - 20.07.1982, Page 46

Morgunblaðið - 20.07.1982, Page 46
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ1982 Fólk o g fréttir í máli og myr idum • Já, nú fer að styttast í það að enska knattspyrnan hefjist á nýjan leik. En sá galli er nú á gjöf Njarðar, að það eru oft svo helv... mikil Iseti á vellinum. Alls kyns drasli er kastað og oft er bókstaflega stórhættulegt að mseta á áhorfendapallana. Hvað á maður til bragðs að taka? Jú, hann var ekki í vandræðum þessi höfðingi. Hann heldur með Cardiff City og þeir áttu að leika gegn Man. United. Og þeirra áhangendur eru alltaf með ólæti. Hann brá sér inn i gamla klæöaskápinn og fann hjálminn sinn frá heimsstyrjöldinni síðari. Og með hann á höfðinu brá hann sér á völlinn. Ekki fylgdi það sögunni, hvort hann hefði sloppið ómeiddur, en við skulum nú vona það. • l»essi glæsilegi hópur fimleikafólks, hélt utan fyrir skömmu og tekur hann þátt í alþjóðlegu fimleikamóti í Sviss. • 'Mikið fjaðrafok varð á Spáni útaf slagsmálum sem áttu sér stað milli enskra knattspyrnuáhugamanna og spánskra lögregluþjóna. A myndinni hér til hliðar má sjá löggurnar lumbra á Englendingunum stuttu fyrir leik Englands og Spánar í milliriðli HM. Kannst mönnum lögreglan hafa tekið alltof strangt á „Tjöllunum" og voru þeir ávítaðir fyrir, af lögreglustjóra landsins. • Nei, það eru hvorki slöngur né kviksyndi undir fótum þessara kappa. Þetta er landslið Nýja-Sjá- lands í rugby og hér eru þeir aö framkvæma þeirra fræga heróp, „Haka“, fyrir landsleik við Frakka á Parc des Princes í París. Ekki fylgir sögunni hvernig leikurinn fór, þann- ig að við vitum ekki hvort herópið virkaði að þessu sinni. • Hann segist vera endanlega hættur að keppa i knattspyrnu. Kappann þarf varla að kynna. Franz Beckenbauer starfaði sem íþróttafréttamaður á HM-keppninni og lýsti meðal annars leikjum fyrir útvarp og sjónvarp í V-Þýskalandi. Beckenbauer fékk him- inháar greiðslur fyrir vikið. Enda er allt gert, sé aöeins nógu mikill aur i boði. Keisarinn hefur nú undirritað samning við Warner Brothers í Bandaríkjunum, en fyrir þá mun hann starfa næstu fimm árin. Koma fram í auglýsingum, reka knattspyrnuskóla að hluta til á sumrin og fleira í þeim dúr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.