Morgunblaðið - 20.07.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JULI 1982
35
Motor Cross VÍK:
Heimir Barðason fór létt
með andstæðinga sína
HEIMIR Bardasson sigraði
í Motor Cross keppni Vél-
hjólaíþróttaklúbbsins, sem
haldin var á sunnudaginn.
Ók hann Maico 490 vél-
hjóli. í öðru sæti varð I>or-
varður Björgúlfsson á
Honda 480 og því þriðja
náði borkell Agústsson á
Kawazaki 250.
Moto Cross er talið með
erfiðustu íþróttagreinum,
sem hægt er að stunda. Það
nægir ekki að vera sleipur
við stjórnun vélhjólanna, lík-
amleg æfing hefur mikið að
segja. Skal engan undra því
keppendur aka á þungfærri
moldarbraut, þar sem holur,
gryfjur og stökkpallar þreyta
ökumenn. Hljóta keppendur
ófáar byltur í hita leiksins.
Keppni hér á landi er jöfn og
tvísýn, sagði formaður VÍK,
Kristján Ari Einarsson.
Hann sagði að þeir sem væru
í toppbaráttunni æfðu sig
nær daglega í vélhjólakstri.
Sjálfur kvaðst hann lurkum
laminn eftir keppnina, en
hann lenti í einu af neðstu
sætunum! Keppendur þurfa
að aka í 30 mínútur eftir
brautinni og eru eknar tvær
umferðir. Sá er hlýtur flest
stig úr báðum umferðum
telst sigurvegari. Heimir
Barðason á Maico 490 var
fremstur í báðum umferðum
og sigraði örugglega. I seinni
umferðinni skildi hann ekki
aðeins keppinautana eftir
fyrir aftan, heldur var hann
farinn að draga þá flesta
uppi aftur. Þorvarður
Ágústsson stóð sig vel á
Honda 480 og lenti í öðru
sæti. Hefur hann lítið getað
æft sig vegna meiðsla. Með
því að ná þriðja sæti tók
Þorkell Ágústsson forystu í
Islandsmeistarakeppninni í
Motor Cross. Hefur Þorkell
72 stig, en jafnir í öðru sæti
eru Heimir Barðason og
Októ Einarsson með 60 stig
hvor.
Beygjurnar valda oft miklum erfiðleikum og ófáar byltur hljótast af þeim.
Heimir Barðason kátur eftir sigurinn. Fyrir framan hann má sjá hluta
búnaöar er notaður er til að verja ökumenn.
Það er betra að vera fótviss i kröppum beygjum.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Fasteignaþjónusta Suó
urnesja
Grindavík:
höfum fengiö í einkasölu viö-
lagasjóöshús viö Staöarvöl.
Keflavik:
glæsileg 140 fm garöhús meö
bílskúr viö Heiöargarö, einbýl-
ishús viö Háaleiti meö bílskúr,
einbýlishús viö Noröurfún 8, 3ja
herb. efri hæð á 3. hæö viö
Faxabraut, 2ja herb. ibúö á
neðri hæö aö Faxabraut 36.
Fasteignaþjónusta Suöurnesja,
Hafnargötu 37,
sími 3722, Keflavík.
Keflavík
til sölu glæsileg raöhús í smíöum
viö Noröurvelli, meö frágenginnl
lóö. Húsunum veröur skilaö
fokheldum en fullfrágengnum aö
utan. Húsunum veröur skilaö til
kaupenda i árslok. Teikningar til
sýnis á skrifstofunni. Húsgrunn-
ur undir einbýlishús, strærö 181
fm meö bilskúr. Góðlr greiöslu-
skilmálar. M.a. er möguleiki á aö
taka góöa bifreiö upp í greiöslu.
Teikningar til sýnis á skrifstof-
unnl.
Vogar
3ja herb. efri hæö viö Voga-
hverfi, ásamt góöum bílskúr.
Ibúöin er laus strax. Sér inn-
gangur. Söluverö 500 þús.
Njarðvík
2ja herb ibúð viö Fífumóa, til-
búin undir tróverk. Fast verö 400
þús.
Fasteignasalan, Hafnargötu,
Keflavík, sími 1420.
húsnæöi
óskast
Húsnæði óskast
Verkfræöingur óskar eftir
1—2ja herb. ibúö sem fyrst.
Uppl. í sima 84499 á skrifstofu-
tima.
Jónas Bjarnason.
Flýgill til sölu
Seren Jensen 1920—'30 falleg
mubla, stærö 1,60x1,40. Uppl. í
sima 39373 í dag og næstu
daga.
Til sölu
ca tveggja tonna togspil, meö
tveimur trommum. Tilvaliö fyrir
rækju- eöa snurvoöarbáta
Uppl. i síma 92-7682.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR 11796 og 19533.
Miðvikudaginn 21. júlí:
kl. 20.00 (kvöldferö). Hln árlega
Viöeyjarferö F.í. veröur farin frá
Sundahöfn næsta miövikudag.
Kvöld í Viöey er ánægjuauki fyrir
alla. Frítt fyrir börn í fylgd full-
oröinna. Kl. 08.00 er fariö í
Þórsmörk, farmiöar á Skrifstofu
Feröafélagsins, Öldugötu 3.
Feröafélag íslands
Fíladelfía
Almennur Biblíulestur kl. 20.30.
Ræöumaöur Einar J. Gíslason.
Hilmar Foss
lögg. skjalaþ. og dómt., Hafnar-
stræti 11, simi 14824.
Víxlar og skuldabréf
i umboössölu.
Fyrirgreiöslustofan, Vesturgötu
17, sími 16223, Þorleifur Guö-
mundsson, heima 12469.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Sumarleyfisferðir:
1. 21.7.—25.7. (6 dagar): Hvít-
árnes — Þverbrekknamúli —
Hveravelllr. Gönguferö meö út-
búnaö. Gist í húsum.
2. 23.7.-28.7. (6 dagar): Land-
mannalaugar — Þórsmörk.
Gönguferö meö útbúnaö. Gist i
húsum.
3. 28.7 — 6.8. (10 dagar): Nýidal-
ur — Heröubreiöarlindir — Mý-
vatn — Vopnafjörður — Egils-
staöir. Gist í húsum og tjöldum.
4. 6.8. —13.8. (8 dagar): Borg-
arfjöröur eystri — Loömundar-
fjöröur. Gist í húsi.
5. 6.8 —11.8. (6 dagar): Land-
mannalaugar — Þórsmörk.
Gönguferö: Gist í húsum.
6. 6.8. —11.8. (6 dagar): Akureyri
og nágrenni. Ekiö verður
Sprengisand og suöur Kjöl.
7. 7.8.—16.8. (10 dagar): Egils-
staöir — Snæfell — Kverkfjöll
— Jökulsárgljúfur — Sprengi-
sandur. Gist í húsum og tjöldum.
8 7.8.—14.8. (8 dagar): Hornvik
— Hornstrandir. Gist i tjöldum.
Sumarleyfi í islenzkum óbyggö-
um býöur upp á ógleymanlega
reynslu og ánægju hvernig sem
viðrar. Pantiö timanlega og leitiö
upplýsinga á skrifstofu Fj aö
Öldugötu 3.
Feröafélag (slands.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
|_________tilkynningar__________j
Lokaö
vegna sumarleyfa frá 26. júlí til 1. september.
Úðafoss, Vitastíg 13.
Verksmidjan lokuö
vegna sumarleyfa 19. júlí til 15. ágúst.
Skrifstofan opin kl. 10—12 daglega.
Gluggasmiðjan, Siðumúla 20.
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
I>1 AI GI.VSIR IM AI.LT LAND ÞEGAR
Þl AI GLYSIR I MORGl NBLADIM