Morgunblaðið - 20.07.1982, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1982
47
Reglur um utanferðir opínberra starfsmanna:
Vonum að þessu
fylgi sparnaður
— segir Höskuldur Jónsson ráðuneytisstjóri
RÍKISSTJÓRNIN samþvkkti á
fundi sínum í apríl sl. aö fela ráðu-
neytisstjórum að auka eftirlit með
utanlandsferðum opinberra starfs-
manna. Framvegis mun þvi þriggja
manna nefnd ráðuneytisstjóra fara
yfir umsóknir áður en utanferðir eru
samþykktar. Að sögn Höskuldar
Jónssonar, ráðuneytisstjóra í fjár-
málaráðuneyti, er hér um innan-
hússstarfsreglur að ræða, ekki
stjórnartíðindareglur.
Áður en þessar reglur tóku
gildi, 30. apríl sl., voru utanferðir
þessar alfarið í höndum viðkom-
andi ráðuneytis. Höskuldur Jóns-
son sagði að hinar nýju reglur
væru settar til að tryggja að sömu
meginlínur giltu í afstöðu til utan-
ferða manna. Þá sagði Höskuldur
að von manna væri sú að sparnað-
ur fylgdi í kjölfar þessarar nýju
tiihögunar. Nauðsynlegt þætti að
fá nákvæmari vitneskju um það
hverjir færu utan og af hverju.
Auglýsing Steina hf.:
Tilefnið er al-
menn lögbrot
— í myndbandamálum, segir Jónatan Garðarsson
„TILEFNI þessarar auglýsingar er
einfaldlega þau almennu lögbrot,
sem framin hafa verið í myndbanda-
málum að undanförnu,“ sagði Jóna-
tan Garðarsson, starfsmaöur Steina
hf., er Mbl. spurði hann um tildrög
þeirrar auglýsingar sem Mbl. birti
frá fyrirtækinu sl. sunnudag. { aug-
lýsingunni segir að af gefnu tilefni
skuli tekið fram að myndbönd
merkt fyrirtækinu Steinum, séu ein-
göngu til heimilis- og einkanota, auk
þess sé fjöiróldun á efni þeirra
óheimil meö öllu. Ennfremur er þess
getið að brot á framangreindu varði
lögsókn fyrir almennum dómsstól-
um.
Jónatan Garðarsson kvaðst
vona að til lögsókna þyrfti ekki að
koma. Auglýsingunni væri einmitt
ætlað að afstýra slíku. „Við von-
um,“ sagði Jónatan, „að það takist
að opna augu fólks og gera því
fulla grein fyrir því hve alvarleg
lögbrot af þessi tagi eru. Ólöglegar
sýningar og fjölföldun mynd-
bandaefnis eru stórmál sem lista-
menn og aðrir víða um heim eru
að vakna til vitundar um. Erlendis
er talsverð hreyfing í þá átt að
taka mun harðar á höfundarétt-
arbrotum en verið hefur."
Varnarliðsmenn:
Aukin ásókn í
leiguhúsnæði
Á fundi bæjarstjórnar Keflavík-
ur nýlega, kom fram fullyrðing
þess efnis, að aukin ásókn varnar-
liðsmanna væri í leiguíbúöir í
Keflavík. í framhaldi af þessum
umræðum samþykkti bæjarstjórn-
in, að fundur yrði með utanríkis-
ráðherra til að ræða þessa útleigu
til varnarliðsmanna.
Að sögn Steinþórs Júlíussonar
bæjarstjóra í Keflavík, eru ekki
til neinar tölfræðilegar upplýs-
ingar um það, hversu margir
varnarliðsmenn eru í leiguhús-
næði í Keflavíkurbæ. Um tíma-
bundna þörf gæti verið að ræða,
þar sem verið væri að taka í gegn
blokkir uppi á Velli. Undanfarið
hefðu þeir verið sjálfum sér nóg-
ir um húsnæði. En í framhaldi af
þessum umræðum, yrði haldinn
fundur með utanríkisráðherra,
og hefði það verið samþykkt
mótatkvæðalaust í bæjarstjórn.
Bæjarstjórnin hefði ekki áhuga á
að fá leigjendur, sem væru ekki
skattborgarar. En varnarliðs-
menn hefðu aldrei borgað skatt
til bæjarins.
n
ISUZU
PICKUP4WD
Isuzu verksmiðjurnar eru heimsfrægar fyrir framleiðslu
sína á pick-up bílum og þær njóta alþjóðlegrar viður-
kenningar fyrir vinnuvéla- og vörubílagerð.
Isuzu pick-up með drifi á öllum hjólum uppfyllir óskir hinna
kröfuhörðustu og gerir enn betur.
Isuzu pick-up hentar jafn vel sem flutningatæki og
ferðabíll.
Isuzu pick-up er laglegur, lipur og leggur lýgilega vel á.
Isuzu pick-up hefuróhemju burðarþol og 4-hjóladrifiðgerir
honum alla vegi færa.
Isuzu pick-up vönduð vinnubifreið með aksturseiginleika,
útlit og þægindi fólksbifreiðar.
Komið og kynnið ykkur hvers vegna Isuzu pick-up nýtur
heimsfrægðar.
$ VÉLADEILD
Ármiila3 f 38900
Komdu í IKEA eldhúsdeildina.
Þar sýnum við þér nokkur dæmi
um hvernig þitt eldhús gæti litið
út.
IIKEA eldhúsdeildinni fullvissar
þú þig um að góðar og glæsilega
hannaðar eldhúsinnréttingar
kosta ekki lengur stórfé!
IKEA
HAGKAUP
Skeifunm15