Morgunblaðið - 05.08.1982, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1982
23
Frá slyssUðnum við Beaune, skammt frá Lyon.
Viðurlög hert vegna slyssins við Lyon
París, 4. ágúst AP.
FRANSKA stjórnin setti í dag strangari lög en
áður hafa gilt um akstur fólksflutningabíla á
hraðbrautum, í kjölfar slyssins sem varð um helg-
ina þegar 53 manns, þar af 44 börn létust í árekstri
þriggja fólksflutningabíla og sjö einkabíla. Eldur
kom upp í fólksflutningabílunum og börnin brunnu
til bana án þess að hægt væri að koma þeim til
bjargar. Talið er að of hraður akstur við afleitar
aðstæður hafi valdið slysinu og háværar raddir
kröfðust þess að settar yrðu strangari reglur varð-
andi hraðbrautaakstur, svo sem nú hefur verið
gert.
V-Þýskaland:
Mesta atvinnuleysi
í júií í áratugi
Niirnberg, 4. ágúst. AP.
ATVINNULEYSI í V-Þýskalandi
var í síðasta mánuði meira en það
hefur nokkru sinni verið í júlimán-
uði þar í landi. Alls voru 1.757
þúsund manns á atvinnuleysisskrá
og hafði fjölgað um 6% frá því í
júní.
Að sögn yfirmanns atvinnu-
leysisskrifstofunnar má rekja
þessa aukningu til veikari efna-
hags landsins en um langt skeið,
auk þess sem mikill fjöldi nema
sem nú væri laus úr skóla, fengi
enga atvinnu. Alls eru 7,2%
vinnufærra manna atvinnulaus-
ir í V-Þýskalandi.
Skráning atvinnuleysingja
hófst fyrir 32 árum í V-Þýska-
landi. Samsvarandi tala fyrir
júlí 1950 var 1.739 þúsund
vinnuleysingjar, sem þá var
10,2% atvinnufærra manna í
landinu. Fæstir hafa atvinnu-
leysingjar orðið 89 þúsund í júlí
1965.
V-Þjóðverjar vilja utan-
ríkisráðherrafund NATO
Bonn, 4. ágúst. AP.
HEIMILDIR innan vestur þýska
utanríkisráðuneytisins greindu
AP-fréttastofunni frá því í dag, að
Vestur-Þjóðverjar væru fúsir til að
haldinn yrði fundur utanríkisráð-
herra Atlantshafsbandalagsins,
þar sem reynt yrði að greiða úr
ýmsum ágreiningsmálum milli
Evrópuríkja annars vegar, og
Bandaríkjamanna hins vegar.
Óformlegur fundur þessarar
tegundar er fyrirhugaður í
Kanada í október, en Vestur-
Þjóðverjar munu vera á þeirri
skoðun, að nauðsynlegt sé að
utanríkisráðherrarnir hittist
fyrr, þar sem ágreiningurinn
magnist með hverri viku. Hans
Dietrich Genscher, utanríkis-
ráðherra, varpaði þessari hug-
mynd fram er hann var á ferð í
Washington og hitti George
Schultz, utanríkisráðherra, en
eftir því sem næst verður kom-
ist, var uppástungu hans heidur
kuldalega tekið.
Óeinkennisklædd
lögregla skotin
Downiwtrick, N-frlnndi, 4. írúsL AP.
LEYNISKYTTA skaut á og særði
ungan óeinkennisklæddan lög-
reglumann eftir að hann hafði
kysst unnustu sína að skilnaði.
Lögreglumaðurinn, sem var á frí-
vakt, fékk skotið í brjóstið seint á
þriðjudagskvöld.
Unnustan hrópaði á hjálp er
hún sá lögreglumanninn falla til
jarðar á leiðinni út í bíl og
hjúkrunarkonur, sem bjuggu í
nágrenninu, gerðu að sárum
hans þar til sjúkrabifreið kom á
vettvang.
Unga parið hafði í hyggju að
ganga í það heilaga í næsta
27 verkamenn
brunnu til bana
Dar es Salaam, Tanzaníu, 4. ágúst. AP.
TUTTUGU og sjö verkamenn
létust og 67 slösuðust þegar
gríðarleg sprenging varð í
vefnaðarverksmiðju sem þeir
voru við störf í. Eldur breidd-
ist út og margir þeirra sem
komust út úr verksmiðjunni
brenndust illa. Slysið varð í
bænum Arusha norðvestur af
Dar es Salaam.
98 fyrir rétti
í Istanbul
Istanbul, 4. ágúsL AP.
SAKSÓKNARI herdómstóls í
Istanbul krafðist í dag fangels-
isdóma frá 5—20 ár yfir 98
meintum félögum í kommún-
istaflokki landsins sem er bann-
aður. Eru þeir sakaðir um að
hafa reynt að koma upp bæki-
stöðvum hér og hvar um landið,
safna fé til að fjármagna undir-
róðurs- og hryðjuverkastarf-
semi og leyna félögum úr sam-
tökunum, sem lögreglan hefur
verið að leita að. Tyrknesk
stjórnvöld segja að með hand-
tökum þessara manna hafi nán-
ast tekizt að þurrka út kommún-
istaflokk landsins.
mánuði, en væntanlega verður
töf á því sakir þessarar fólsku-
legu árásar. Engin samtök hafa
enn lýst verkinu á hendur sér,
en lögreglumaðurinn ungi er
mótmælandi.
Veður
víða um heim
Akureyri 11 þokumóóa
Amsterdam 31 heiöskírt
Aþena 34 heiöskírt
Barcelona 27 léttskýjaö
Berlín 30 skýjaö
Briissel vantar
Chicago 35 skýjaö
Dyflinni 22 heióskírt
Feneyjar 28 léttskýjað
Frankfurt 27 skýjaö
Faareyjar vantar
Genl 22 skýjaö
Helsinki 26 heiðskírt
Hong Kong 31 heiöskírt
Jerúsalem 30 heiöskírt
Jóhannesarborg 17 heiöskírt
Kairó 35 heiöskírt
Kaupmannahöfn 28 heiöskírt
Las Palmas 25 léttskýjað
Lissabon 28 heiöskírt
London 27 heióskírt
Los Angeles 25 heióskírt
Madrid 29 heiöskfrt
Malaga 27 heiórfkt
Mallorca 28 léttskýjaö
Mexíkóborg vantar
Miami 32 skýjaó
Moskva 25 heiöskírt
Nýja Delhi 35 skýjað
New York 27 skýjaö
Osló 34 heiðskírt
Paris 25 skýjaó
Peking 31 skýjaö
Perth 17 heióskírt
Rio de Janeiro 30 rigning
Reykjavik 14 skýjaö
Rómaborg 30 skýjaó
San Francisco 16 skýjaö
Stokkhólmur 31 heiöskírt
Sydney 17 heióskirt
Tel Aviv 30 heióskirt
Tókýó 32 heiöskfrt
Toronto 20skýjaó
Vancouver 18 skýjaö
Vtnarborg 24 skýjaó
bórshöfn vantar
Sól og sumar
7 X ^ r\
L
N
Mjög atórt v-þýzkt hjólhýai á 2 öxlum.
Svefnpláss fyrir 6. Allur hugsanlegur
búnaöur. Upplagt fyrir atarfsmannafélög.
•KTttt
Traustir tjaidvagnar á mjög góöum undir-
vagni maö 13 dekkjum. Eldhús. Svefnpláss
fyrir 6—7 manns.
r ÆjI
Þessi v-þýzku KNAUS-hús komu í stasrö-
um 12'A—13’A og 15’A fet, vönduö og vel óinnráttaö álhús fyrir basöi japanska og
búin.
ameríska pallbíla.
Fullinnréttaö bílhús. Svefnpláss fyrir 4.
Fullkomiö eldhús. Klósett. Koma baaði fyrir
ameríska og japanska pallbíla.
Amerísk gróöurhús, basöi upp aö vegg og
frístandandi. Húsin eru úr bronsuðu áli,
plasti og gleri.
Fullinnréttaö íbúöarhús á basöi japanska PðlksDiiakerrur meö Ijósum, varadekki, en
og ameríska pallbíla. Húsin eru lág á án krossviös.
keyrslu, en vel mannhasö í notkun.
Gísli Jónsson & Co. HF.
Sundaborg 41. Sími 86644.