Morgunblaðið - 05.08.1982, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 05.08.1982, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1982 ntmmn / Kanr'/sag^i hún-,/Eg oii giPtast f>-kr , p^ringanna vegtnA" Og ui’<^ höfum buio áaimaia * Lukkuniaar ueistarvdi siöam '' Með morgunkaffinu Nei, ég er ekki að biðja um launa- hækkun heldur bara einn og einn lélagsmálapakka svona öðru hvoru? HÖGNI HREKKVÍSI „Ekkert verk Halldórs Laxness verður framar látið liggja milli hluta. Hvort sem sumum finnst ýmis þeirra grynnka við „pólitískan ofsa“ (Jakob F. Ásgeirsson) eða dýpka við „kristna þjáningardulhyggju platónsk-ágústínskrar guðfræði“ (sr. Gunnar Kristjánsson) — þá geta lesendur og áhorfendur verið vissir um að nóbelsskáldið okkar kristallar ævinlega einhverja mannlega sögu eða mannleg viðhorf á þann hátt, að sársaukinn, ef einhver verður, kemur til af góðu. Því skáldið er að sýna okkur mannkynið, sem það þekkir.“ Skáldið er að sýna okkur mannkynið, sem það þekkir Signý Pálsdóttir, leikhússtjóri hjá Leikfélagi Akureyrar, skrifar í Stykkishólmi 29. júlí: „Vinsæli Velvakandi. 11. júlí síðastliðinn birtist í Morgunblaðinu grein eftir röskan blaðamann, Jakob F. Ásgeirsson, undir fyrirsögninni „Atómstöðin og Keflavíkurmálið". Af orðum hans í inngangi má ráða, að kveikjan að samanburði þessum hafi meðal annars verið sú, að fyrir dyrum standi að kvikmynda skáldsöguna. Skrif hans hafa síð- an dregið svolítinn dilk á eftir sér í dálkum þínum, sem að líkum lætur, því að flest verk Halldórs Laxness hafa þann brodd eða þá dýpot, að menn sperra eyrun og endurmeta sitt af hverju, þegar þau eru „opnuð“ almenningi betur með upplýsandi umfjöllun og greiningu. Og mun það víst vera reyndin um verk skáldsnillinga fyrr og síðar. Leikfélag Akureyrar hefur ákveðið að hefja leikárið á hausti komanda með nýrri leikgerð „At- ómstöðvarinnar", sem víðkunnur leikhúsmaður vinnur nú að. Vand- að verður til sýningarinnar á allan hátt eins og vonlegt er á afmælis- ári. Nú kann svo að fara, að ýmsir muni aðeins sjá þar „Keflavíkur- samninginn 1946“ og jarðarför þjóðernishugsjónarinnar, — og kannski eins og Jakob virðist óttast, í falsaðri og skrumskældri mynd. Aðrir munu þó ef til vill fyrst og fremst sjá „leit söguhetj- unnar (Uglu) að frelsi og sjálf- stæðri tilveru“ (Hermann Páls- son). Og sumir munu örugglega fara annað og víðar, hugsa um „það stríð, sem háð er í hvers manns hug“ (Kristinn E. Andrés- son) eða hugleiða stöðu alþjóða- stjórnmála núna. Og enn aðrir munu hugsanlega finna í verkinu þá þræði sem eftir er að rekja og greina. Árið 1972 var frumsýnd eldri leikgerð Sveins Einarssonar og Þorsteins Gunnarssonar af „At- ómstöðinni“, sem síðan birtist á þú rÆGÐ ElTT SIMTAL." Þessir hringdu . . . Hildur Bjarnadótt- ir verði tilnefnd fréttamaður ársins Bergljót Ingólfsdóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mig langar að koma á framfæri þeirri tiilögu að Hildur Bjarnadóttir, fréttamaður útvarps, verði til- nefnd férttamaður ársins og þar með þakkað fyrir óvenjulega og bráðfyndna frásögn af frétta- mannafundi með sendinefndar- mönnum frá æðsta ráði Sovétríkj- anna í kvöldfréttum föstudaginn Hildur Bjarnadóttir 30. júlí sl. Það er ekki oft sem hægt er að skellihlæja að slíkum frásögnum og jafnvel fá vitneskju um það sem ósagt var látið, eins og gerðist í fyrrnefndum frétta- tíma. Þessi frásögn er vel þess virði, að hún verði endurtekin, helst í útvarpinu, svo að frásagn- armáti Hildar nyti stn, en að öðr- um kosti á prenti. Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lescndur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánudaga til fostudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þátt- arins, þó að höfundar óski nafn- leyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvKðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.