Morgunblaðið - 05.08.1982, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1982
Minning:
Karl Þ. Þorvalds-
son trésmiöur
Fæddur 18. ágúst 1895
Dáinn 25. júlí 1982
Nú þegar afi minn, Karl Þor-
valdsson, er kvaddur hinstu kveð-
ju streyma minningarnar fram í
hugann frá bernskuárum mínum,
um afa og ömmu á „Bestó", eins og
við barnabörnin kölluðum þau. Á
„Bcstó" er ég fædd og þaðan á ég
mínar fallegustu og bestu minn-
ingar, amma hlý, prúð og glað-
lynd, syngjandi eins og spörfugl
allan daginn og kenndi hún mér
mörg Ijóð, lög og bænir en afi var
álvörugefinn, eilítið þungur en
mikil barnagæla. Er mér minn-
isstætt að afi sat með okkur tvö
elstu barnabörnin á hnjánum og
mataðist, því bæði vildum við hjá
honum vera og ekki var gert upp á
milli okkar, svo það varð að sam-
komulagi að ég ætti sæti í hægri
armi hans og Ásgeir þeím vinstri.
Oft snigluðumst við í kringum
afa úti á verkstæði og prýddi hann
hár mitt með hefilspónum og
sagðist vera að gefa mér slöngu-
lokka.
Afi og amma voru einstaklega
samhent og gjafmild, hún saum-
aði, heklaði og prjónaði bæði á
okkur og ekki síst hafði hún gam-
an af að útbúa á dúkkurnar og
hann að smíða ieikföng sem ég á
ennþá og skattholið góða sem er
kjörgripur.
Amma, Sigurveig Magnúsdóttir,
lést 11. mars 1969, þá orðin átt-
ræð. Síðasta árið sem hún lifði
ákváðu afi og amma að gefa okkur
öllu kvenfólkinu í fjölskyldunni
ellefu talsins upphlut og sýnir það
rausn þeirra og gjafmildi.
Ég og fjölskylda mín höfum ver-
ið búsett í Danmörku frá því
haustið 1969 og kom afi tvisvar í
heimsókn en hann hafði mjög
gaman af að ferðast og fræðast.
Ég þakka afa mínum samfylgd-
ina og óska honum allrar Guðs
blessunar.
Ásdís Karlsdóttir
I dag verður gerð frá Dómkirkj-
unni útför tengdaföður míns,
Karls Þ. Þorvaldssonar
húsasmíðameistara, Bergstaða-
stræti 61, Rvík, er lést að kveldi
sunnudagsins 25. júlí sl.
Karl fæddist í Garðhúsum í
Hraunshverfi á Eyrarbakka 18.
ágúst 1895. Foreldrar hans voru
hjónin Ragnhildur Sveinsdóttir og
Þorvaldur Magnússon.
Karl lærði trésmíðaiðn og varð
síðar húsasmíðameistari.
Karl kvæntist 7. júní 1919 Sig-
urveigu Magnúsdóttur ættaðri frá
Eyrarbakka. Þau hjón reistu sér
hús á Bergstaðastræti 61 og
bjuggu allan sinn búskap þar. Þau
eignuðust átta börn og eru þrjú
þeirra látin, Óskar, Ásdís og Guð-
laug, eftirlifandi börn þeirra eru:
Þórhildur Ragna, gift Þorsteini
Sigurðssyni skólastjóra; Karlotta,
gift Einari Ásgeirssyni forstjóra;
Magnea Gróa sem gift var Sigur-
birni Guðjónssyni húsasm.m., en
hann lést af slysförum 23. mars sl.
ásamt elsta syni þeirra, Sigur-
karli; Þorvaldur Óskar húsasm.m.
giftur undirritaðri; Magnús húsa-
sm.m., giftur Báru Guðmanns-
dóttur deildarstjóra.
Hjónaband þeirra Karls og Sig-
urveigar var farsælt og hamingju-
samt. Sigurveig var frábærlega
umhyggjusöm fyrir heimili sínu,
maka og börnum og síðar barna-
börnum og tengdabörnum. I allri
framkomu sinni var hún látlaus
og mild.
Karl vann við byggingar alla
sína starfsævi og var hann bæði
eftirsóttur og virtur trésmiður,
enda bar hann iðngrein sína mjög
fyrir brjósti. Eins og gefur að
skilja á Karl mörg handtök í bygg-
ingum víða um landið og ævinlega
munu honum hafa verið falin hin
vandasamari verk í þeim.
Karl tók talsverðan þátt í fé-
lagsstarfi og átti m.a. þátt í
endurreisn Trésmíðafélags
Reykjavíkur á sínum tíma. Karl
var nokkur ár varaformaður
Trésmíðafélags Reykjavíkur með
lýðræðissinnuðum félögum sínum,
enda sjálfstæðismaður alla tíð og
tók mikinn þátt í störfum Sjálf-
stæðisflokksins, einkum fyrr á ár-
um.
Karl var mikill hæfileikamaður
og sívinnandi. í frístundum sínum
vann hann flestum stundum á
heimaverkstæði sínu.
Þótt Karl væri lærður húsa-
smiður var hann ekki síður
húsgagnasmiður, enda mörg hús-
gögnin, sem hann smíðaði fyrir
heimili sitt og aðra, með slíku
snilldarbragði að af bar.
Karl var einstaklega barngóður
og hændust barnabörnin og önnur
börn mjög að honum. Hann lét
þau einnig njóta handa sinna með
smíði á fögrum munum og leik-
föngum, sem ekki eiga sinn líka.
Minningarnar eru svo margar
og góðar og við munum varðveita
þær með þakklátum huga. Blessuð
sé minning hans.
Erla Jónsdóttir
Karl Þ. Þorvaldsson, trésmiður,
Bergstaðastræti 61, Reykjavík,
andaðist á vistheimilinu Hrafn-
istu sunnudaginn 25. júlí sl. nær
87 ára að aldri og saddur lífdaga.
Karl var fæddur 18. ágúst árið
1895 í Garðhúsum í Hraunshverfi
á Eyrarbakka. Foreldrar hans
voru hjónin Ragnhildur Sveins-
dóttir og Þorvaldur Magnússon
sem þar bjuggu og var Ragnhildur
ættuð undan Eyjafjöllum en Þor-
valdur úr Fljótshlíð.
Karl ólst upp við hin venjulegu
kjör alþýðu í sjávarþorpi um alda-
mótin, fór snemma að vinna allt
sem til féll, sótti m.a. róðra úr
Þorlákshöfn á opnu skipi, og
minntist hann oft harðræðisins
frá þessum æskuárum.
Barnaskólanám stundaði Karl
hjá Pétri Guðmundssyni á Eyr-
arbakka og kunni margt frá þess-
um merka kennara að segja.
Snemma kom það í ljós að Karl
var iagvirkur og hneigður til sköp-
unarstarfa. Hann lærði smíðar
hjá svila sínum, Sigurði Isleifs-
syni, þeim mæta manni.
Eftir Heimsstyrjöldina fyrri
varð ljóst að Eyrarbakki fékk ekki
haldið sínu hlutverki sem höfuð-
staður Sunnlendinga og þyngdar-
punkturinn myndi færast til
Reykjavíkur. Karl valdi því þann
kost að flytjast til Reykjavíkur og
vinna þar sitt ævistarf.
I Reykjavík reisti hann því
heimili sitt í bókstaflegri
merkingu að Bergstaðastræti 61
árið 1922 og bjó þar ætíð síðan.
Jafnvel þótt Karl bæri alla tíð
ákaflega hlýjar tilfinningar til
fæðingarstaðar síns og sýndi hon-
um mikla ræktarsemi, varð hann
samt ekta Reykvíkingur, enda átti
hann drjúgan hlut að uppbygg-
ingu þessa bæjar. Af stórhýsum
sem hann vann að má nefna
Gamla bíó, Háskólann og Heilsu-
verndarstöðina. Þá var hann með í
smíði virkjananna við Sog.
Karl var framúrskarandi hag-
virkur og fjölhæfur smiður, enda
voru honum hvarvetna falin þau
verkin sem vandamest þóttu. Á
siðari hluta sinnar löngu starfs-
ævi vann Karl mest á eigin verk-
stæði í húsi sem hann reisti á
kreppuárunum. Hann var ekki
ánægður nema hafa fullkomnustu
áhöld og vélar að vinna með. Hann
fylgdist því vel með tækninýjung-
um á sínu sviði — og lét sig ekki
muna um að smíða sín eigin verk-
færi ef því var að skipta. Margir
fágætir smíðisgripir og af ýmsu
tagi prýða heimili barna hans,
sem bæði vitna um frumlega sköp-
unargáfu og vandvirkni.
Karl var hár maður og alla tíð
grannvaxinn, ekki andlitsfríður en
bauð af sér góðan þokka. Hann
var skapfastur maður, reyndi
jafnan að kryfja málin til mergjar
sjálfur og lét ekki auðveldlega
hlut sinn fyrir neinum. Stundum
þótti hann hrjúfur í lund, en rík
tilfinning var jafnan á bak við, og
barngóður var hann með afbrigð-
um.
Þann 7. júní 1919 kvæntist Karl
æskuvinkonu sinni, Sigurveigu
Magnúsdóttur, dóttur hjónanna
Gróu Jónsdóttur og Magnúsar
Ormssonar lóðs á Skúmstöðum á
Eyrarbakka.
Það má með sanni segja að þar
fóru samhent hjón. Svo mikið
ástríki var alla tíð með þeim að
haft var að orðtaki meðal kunn-
ugra að þau lifðu í stöðugu til-
hugalífi, enda varð hjónabandið
einmuna farsælt.
Karl og Sigurveig eignuðust
átta börn. Elstu dóttur sína, Ás-
dísi, misstu þau tvítuga að aldri og
dreng að nafni Óskar í bernsku.
Enn eitt barna þeirra, Guðlaug,
andaðist fimmtug að aldri. Hin
eru Þórhildur, Karlotta, Magnea
Gróa, Þorvaldur Óskar og Magn-
ús. Barnabörn Karls eru 18 talsins
og barnabarnabörnin 21.
Karl lét sér mjög annt um börn
sín og fjölskyldur þeirra. Hann
fylgdist með þeim vökulum augum
og veitti þeim óspart af auði
hjarta síns og snilld handa sinna.
Sigurveigu konu sína missti
Karl 11. mars árið 1969. Þá var
mikill harmur að Karli kveðinn og
átti hann örðugt með að sætta sig
við lífið eftir það. En nú hefur
Karl kvatt þennan heim og fylgja
honum héðan hlýjar kveðjur og
þakkir. Fjölskyldufaðirinn aldni
naut óskiptrar virðingar alls síns
fjölmenna skylduliðs.
Blessuð sé minning hans.
Þorsteinn Sigurðsson.
+
Hjartkær móöir okkar og tengdamóðir,
GUÐRÚN PÁLSDÓTTIR,
Háaleitisbraut 121, Reykjavík,
andaöist á Landspítalanum 3. ágúst.
Sigríöur Guömundsdóttir,
Einar Guömundsson,
Bjarney Guðmundsdóttir,
Magnea S. Hallmundsdóttir,
Jón Ólafsson.
Systir okkar,
GUORÚN JÓNSDÓTTTIR HORROX,
Sussex, Englandi,
andaöist föstudaginn 23. júlí.
Elín Jónsdóttir,
Softta Jónsdóttir,
Jakob Jónsson,
Sigrióur Jónsdóttir.
+
Maöurinn minn,
ÞORVALDUR B. GRÖNDAL,
rafvirki,
Espigeröi 20,
andaöist aðfaranótt 3. ágúst.
Fyrir mina hönd og barna minna.
Jórunn S. Gröndal.
+
Mágkona mín,
FILIPPÍA GUDJÓNSDÓTTIR,
Laugavegi 99,
veröur jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík, fimmtudaginn 5.
ágúst kl. 3 síödegis.
Margrét Árnadóttir.
+
Eiginkona min, móöir okkar og dóttir,
DRÖFN MARKÚSDÓTTIR,
lést í Bandaríkjunum 31. júli sl.
Halldór V. Guönason og börn,
Guóbjörg Eiríksdóttir, Markús isleifsson.
+
Konan mín og móöir okkar,
ÓLÖF ÓLAFSDÓTTIR,
Laugarholti,
veröur jarösett frá Bæjarkirkju, laugardaginn 7. ágúst kl. 14.00.
Sveinbjörn Blöndal og synir.
+
HERTA KJARTANSSON
andaöist á Vífilsstööum þriöjudaginn 3. ágúst.
Fyrir hönd vandamanna,
Áslaug H. Kjarts
+
ÓLAFUR BJARNASON
frá Brimilsvöllum,
Hólmgarói 33, Reykjavík,
andaöist á öldrunardeild Landspítalans 3. ágúst.
Kveöjuathöfn fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 6. ágúst kl.
10.30.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Hlíf Oiafsdóttir,
Bjarni Ólafsson,
Björg Ólafsdóttir,
Rögnvaldur Ólafsson,
Sigurður Ólafsson,
Magnús Hallgrímsson,
Marta Kristjánsdóttir,
Sigurjón Sigurðsson,
Jóna Ágústsdóttir,
Þorbjörg Jónsdóttir.
+
Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
JÓHANNA UNA EIRÍKSDÓTTIR,
Meistaravöllum 11,
verður jarösungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 6. ágúst kl. 1.30.
Bergljót Eiríksdóttir,
Eiríkur Eiríksson,
Auöur Jóhannesdóttir,
Kristín Eiríksdóttir,
Sturla Eiríksson,
og barnabarnabörn.
Jakobína Siguröardóttir,
Sigríöur Aöalsteinsdóttir,
Þorsteinn Jóhannsson,
Sigþór Sigþórsson,
+
Þökkum auösýnda samúö viö andlát og jarðarför sonar míns,
unnusta og fööur,
HÁKONAR SÆVARS ANTONSSONAR.
Halldóra Halldórsdóttir,
Bergdís Harpa Bergsdóttir, og synir.