Morgunblaðið - 10.08.1982, Side 23

Morgunblaðið - 10.08.1982, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJTJDAGUR 10. ÁGÚST 1982 31 Að loknum tónleikum í Leikhúsi þjóðanna sem stendur við Torg hins himneska friðar. Stjórnandi kórsins Egili Friðleifsson er fyrir miðri mynd. Honum i haegri hönd er varamennUmálariðherra Kína, L'Zhi Zian. Agli á vinstri hönd er forstöðumaður Listafélags Kína, Hou Dian. Þarna í Hong Kong héldum við fimm tónleika, auk þess sem við komum fram í sjónvarpi. Mesta at- hygli vöktu þau nútímaverk sem við vorum með á efnisskrá, enda eru þau fólki mjög framandi þarna í Austurlöndum fjær. Tónleikar hinna tíu barnakóra sem fram komu á kóramótinu í Hong Kong voru hljóðritaðar og koma vænt- anlega út á hljómplötu innan skamms. Sem fulltrúar íslands sungum við íslensk þjóðlög og samtíma- verk, þar af eitt glænýtt sem heitir „Dúfa á brún“ og er eftir Þorkel Sigurbjörnsson sem jafnframt var undirleikari kórsins þar eystra. Þetta verk Þorkels vakti mjög mikla athygli. Þeir tíu kórar sem tóku þátt í mótinu komu frá Evrópu, Asíu, Ástralíu og Ameríku. Til gamans Egill Friðleifsson útskýrir rithitt nútímaverka fyrir kínverskum starfsbræð- rum. Nútima tónverk eru, að sögn Egils, mjög frábrugðin því sem þeir hafa áður kynnst. má geta þess að mótið var sett og því slitið með sameiginlegum söng alira kóranna: „Let there be peace on earth.“ Þarna í Hong Kong voru síðan stofnuð alþjóðleg samtök túlkandi barna- og unglingalistar, og hefur mér verið boðið til Utah í Bandaríkjunum til að skipuleggja starfsemi samtakanna. Til Canton komum við síðan 25. júlí. Sent söngstjóra var mér og frú ntinni fengin stór svört bifreið til afnota. Með bifreiðinni fylgdi túlk- ur, bílstjóri og fulltrúi frá borgar- yfirvöldum. Hinum þrjátíu var ekið nteð rútu, og fór bifreiðin svarta jafnan á undan með okkur hjónin. Það var mjög einkennileg lífs- reynsla fyrir barnakennara úr Hafnarfirði að vera meðhöndlaður svona eins og þjóðhöfðingi. Það kom okkur nokkuð á óvart hve Kínverjar virðast vera kurteis- ari menn en við eigum að venjast hér á Vesturlöndum. Hvergi í öllu þessu mannhafi urðum við vör við drykkjuskap eða minnstu ókurteisi. Ég hygg að við gætum margt lært af þeim í þessum efnum. Alls staðar sem við komum var vel tekið á móti okkur, hvort heldur var á tónleikum eða gistihúsum. Maturinn sem við fengum var mjög frábrugðin matnum hér heima. Þarna var okkur boðið upp á froskalæri og ýmislegt fleira sem ekki er ástæða til að tíunda. Að sjálfsögðu borðuðum við allt með prjónum eins og lög gera ráð fyrir. Ferðinni lauk svo í Peking, þeirri ævafornu og fallegu menningar- borg. Þar fengum við einstakt tækifæri til að kynnast flestum þáttum kínverskrar listar. í skál- ræðum var Kínverjum tíðrætt um möguleikana á auknum samskipt- um við Islendinga á hinum ýmsu sviðum mannlífsins, og ætla ég að aukin samskipti þar væru eftir- sóknarverð fyrir okkur. Þetta var hreint ævintýri' fyrir okkur öll,“ sagði Egill Friðleifsson og augljóst var að ferðin hafði verið honum og kór hans mikils virði. Reynir við* Drangeyjar- sund í vikunni SE\ íslendingar hafa synt Ilrang- eyjarsund. Nú hyggst sá sjöundi reyna við það í vikunni. Er það ungur Akurnesingur Kristinn Ein- arsson. Fer hann á ntorgun norður í Skagafjörð og ætlar að bíða þar eftir hentugu veðri. Að sögn Kristins, þá er hann vanur að synda í sjó uppi á Skaga og þetta væri í þriðja sumarið í röð, sem hann gerði ntikið af þessu. Hann færi í sjó- inn á hverjum degi, sarna hvern- ig viðraði. „Ég syndi frá Drangey og yfir aö Reykjadisk á Reykjaströnd, sem er 8 knt langt sund. Hefur þaö tekið unt 3—5 tíma hjá hin- um að synda það að meðaltali, og fer það eftir aðstæðum hverju sinni. Bezt er að synda í logni, eða þá að hafa ölduna í bakið,“ sagði hann. Kristinn sagðist ætla að bera á sig feiti til þess að verjast kuldanum betur. 2 bátar verða nteð honunt í för frá Drangey til lands og sagðist Kristni lítast vel á þetta allt saman, ef ekki yrði ntikill öldugangur. Annars væri bara að bíða eftir skap- legra veðurlagi. Á laugardaginn var synti Kristinn út í Viðey. Sagðist hann hafa verið frekar illa upp- lagður þar sem hann hefði farið meö hraðbát ofan af Skaga, og orðið sjóveikur á leiðinni. Jafn- framt var öldugangur töluverð- ur á Viðeyjarsundinu, svo hann saup á leiðinni. En sagði, að sér hefði ekki orðið meint af þessu á neinn hátt. „Maður er orðinn vanur þessu,“ sagði hann að lok- um. • Herrajakkar. • Unglingapils. • Sokkar. • Sængurver og barnafatnaður. • Náttföt og margt, margt fleira. Sjón er sögu ríkari. STÓRÚTSÖLUMARKAÐURINN Kjörgarði, Laugavegi 59, kjallara, sími 28640. • Buxur á alla fjölskylduna. • Herraskór. • Skíðavesti. • Peysur á alla, konur og karla. • Bolir. STÓR- UTSÖLUMARKAÐURINN KJÖRGARÐI VERÐIÐ HJÁ OKKUR ER SKORIÐ NIÐUR o

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.