Morgunblaðið - 10.08.1982, Side 39

Morgunblaðið - 10.08.1982, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1982 47 Frelsi og framtak — eftir Milton Friedman komin út á vegum Almenna bókafélagsins og Félags frjálshyggjumanna Út er komin á vegum Almenna bókafélagsins og Félags frjáls- hvggjum.anna bókin Frelsi og fram- tak eftir Miiton Friedman í þýöingu Hannesar H. Gissurarsonar. Bókin heitir á frummálinu Capitalism and Freedom, kom fyrst út áriö 1962, og hefur orðið mjög fræg á Vesturlönd- um. Bókin skiptist í 13 kafla auk inngangs og eru heiti þeirra þessi: Atvinnufrelsi og lýðræði, Hlut- verk ríkisins í frjálsræðisskipu- lagi, Stjórn peningamála, Al- þjóðaviðskipti, Fjármál ríkisins, Hlutverk ríkisins í skólamálum, Markaðsskipulag og mismunun, Einokun og siðferðileg ábyrgð fyrirtækja og verkalýðsfélaga, Út- hlutun starfsleyfa, Tekjuskipting, Samhjálp, Fátækrahjálp, Nokkrar niðurstöður. í kápukynningu bókarinnar seg- ir á þessa leið: „Milton-Friedman er sennilega kunnasti hagfræðingur nútímans, frjálshyggjuhugsuður, rithöfund- ur og sjónvarpsstjarna. Hann fæddist í New York 31. júlí 1912, lauk doktorsprófi i hagfræði, var prófessor í Chicago-háskóla til 1977, en hefur síðan verið rann- sóknarfélagi í Hoover-stofnuninni í Kaliforníu. Hann fékk nóbels- verðlaunin í hagfræði 1976. í þess- ari bók, sem hann skrifaði ásamt konu sinni, Rose, leiðir hann rök að því, að markaðskerfið sé skil- yrði fyrir almennum mannrétt- indum, og kemur orðum að kenn- ingu frjálshyggjumanna um hlut- verk ríkisins, en mikill fengur er einnig að ýmsum hugvitsamlegum tillögum hans um breytingar á hagskipulaginu, en þær eiga ekki síður við á Islandi en í Bandaríkj- unum. Það spillir ekki heldur fyrir, að bókin er skrifuð á ein- földu og auðskiljanlegu máli.“ Frelsi og framtak er 219 bls. að stærð, gefin út sem pappírskilja. Bókin er unnin í Prentsmiðju Hafnarfjarðar. Fagna árangri í orlofsmálum Mbl. hefur borizt eftirfarandi ályktun frá verkalýðs- og sjó- mannafélagi Bolungarvíkur: Fundur haldinn í stjórn og trúnaðarmannaráði í verkalýðs- og sjómannafélagi Bolungarvík- ur 23. júlí 1982 fagnar þeim mikla árangri, sem náðst hefur með því samkomulagi sem und- irritað hefur verið hér á Vest- fjörðum um breytt fyrirkomulag á innborgun og ávöxtun orlofs- fjár launafólks. Samkvæmt samkomulagi þessu, sem lagður var grunnur að í Vestfjarðasamningunum í febrúar sl. verður orlof launa- fólks á Vestfjörðum greitt inn í peningastofnanir hér heima í héraði og ávaxtað þar á mun betri kjörum en verið hafa hjá orlofsdeild Póstgíróstofunnar. Hér er um mikinn og raunhæfan árangur að ræða í réttindabar- áttu, ekki bara launafólks á Vestfjörðum, heldur Vestfirð- inga allra, sem fundurinn fagn- ar sérstaklega og hvetur til áframhaldandi baráttu í sama anda á fleiri sviðum. Fundurinn vísar á bug öllum þeim fullyrðingum, sem fram hafa verið settar til að gera lítið úr þeim árangri, sem vestfirska verkalýðshreyfingin náði með samkomulaginu frá 15. febrúar sl. og bendir á, að samkomulagið um innborgun og ávöxtun orlofsfjárins hér heima er eitt sér með stærri og raunhæfari skrefum, sem stigin hafa verið hin síðari ár í réttinda- og kjarabaráttu á vettvangi verka- lýðshreyfingarinnar til handa launafólki dreifbýlisins og íbúum þess öllum. Með þessu samkomulagi hefur vestfirsk verkalýðshreyfing enn einu sinni sýnt, að hún er þess megnug að vísa veginn og ná raunhæfum árangri í barátt- unni fyrir bættum kjörum um- bjóðendum sínum til handa. Nær væri þeim aðilum, sem innan verkalýðssamtakanna starfa og hafa annaðhvort upp- hátt eða með þögninni viljað gera lítið úr eða þegja í hel þann árangur, sem Vestfirðingar hafa náð með því að fara eigin leiðir og líta raunsætt á málin, að nýta sér frumkvæði Vestfirð- inga og viðurkenna það, með því að koma í kjölfarið. MILTON FRIEDMAN ---Nóbelffverölaunahafi i hagfimði_ 5.000 krónum stolið frá öldruðum hjónum FIMM þúsund krónum var stolið frá öldruöum hjónum um miðjan dag á sunnudag, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá rannsóknarlög- reglunni í gær. Atvik voru með þeim hætti að hjónin, sem búa við Jökulgrunn, lögðu sig um miðjan daginn og fór þá maður inn í íbúð þeirra. Tók sá fimm þúsund krónur. Þjófurinn er ekki fundinn, en málið er í rann- sókn. Svipaður atburður átti sér stað fyrir nokkru, þegar 3.500 krónum var stolið frá öldruðum manni sem býr í íbúðum aldraðra við Dalbraut. INNLENT allra farþega í orlofi aldraðra í tileíni aí ári aldraðra býður Samvinnuíerðir- Landsýn öllum þátttakend- um í orloísíerðum sínum til dagslerðar um ísland. Fararstjórar í Portoroz, Rimini og Grikklandi verða með í íörinni og þeir sem íara utan í vorferðirnar hittast þama á nýjan leik en hinir sem fara í haust- íerðimar fá þama tœkiíceri til þess að kynnast vœntan- legum íerðaíélögum. Miövikudagur 18. ágúst: Á söguslóðum suöurlands Lagt af stað frá Austur- velli kl. 8.45 að morgni og ekið um Mosfellsheiði að Þingvöllum þarsemvið rií jum upp kynni okkar við þennan forna Alþingisstað. Ekið er um Lyngdalsheiði að Laugarvatni þar sem við borðum hádegisverð. Þaðan er haldið að Skál- holti, hinu foma biskups- setri, og Skálholtskirkja skoðuð. Við ökum um Skeið niður að Gunnarsholti, höfuðbóli Landgrœðslu Rflásins. Þar skoðum við hvemig landið hefur verið rœktað upp á œvintýra- legan hátt, heykögglaverk- smiðju og holdanautaraekt. Áíram er haldið að Keldum og þar getur enn að líta fornar minjar frá Söguöld. Við höldum inn eítir Fljótshlíð að Hlíðar- enda þar sem Gunnar og Hallgerður Langbrók áttu ból. Til baka er ekið með Suðurströndinni um grösuga Rangárvelli til Hveragerðis og síðan yfir Hellisheiði til Reykjavflcur 2,017 08 28899 Næstu feröir: PORTOROZ 2.-23. sept. biölisti GRIKKLAN0 23. sept. 14. okt laus sæti Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 LABOKAUTS 'AÚTSf. LABO AÚTS BÓKAÚTSAL Bém UTSAL BÓKA L BOKAUTSALA BOKAUTSAL Dagana 10.-14. ágúst veitum við 20% afslátt af öllum erlendum bókum og blöðum. Eitthvað við allra hæfi. BÓKAVERSLUN SNÆBJARNAR Hafnarstræti 4 og 9

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.