Morgunblaðið - 07.09.1982, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1982
18
Þing kínverskra kommúnista:
Varaformaðurinn hvetur til snar-
legrar yngingar innan flokksins
Pcking, 6. Heptember. AP.
VARAFORMAÐUR kínvcrska kommúnistaflokksins, Chen Yun, varaði í
dag við því að kynslóðabil myndaðist innan hans. Sagði hann, að ef ekki
yrði snarlega yngt upp í röðum seðstu ráðamanna flokksins gæti svo farið
að ráðamenn frá því í menningarbyltingunni hörmulegu gætu valdið
vandræðum. Sagði hann ennfremur að svo gæti farið að málstaður kín-
verskra kommúnista gæti beðið óbætanlegan hnekk ef ekkert yrði að
gert.
Þing flokksins samþykkti í
dag nýja stjórnarskrá, sem
gengur þvert á það alræði sem
einkenndi valdaferil Mao Tse-
Tung. Er í stjórnarskránni
ennfremur krafist meiri aga inn-
an flokksins.
Nýja stjórnarskráin, sem tek-
ur þegar gildi bannar alla per-
sónudýrkun, bannar öllum með-
limum flokksins að taka eigin
ákvarðanir og krefst lýðraeðis-
legra umræðna um þau málefni,
sem meginmáli skipta. Þá er
embætti formanns lagt af og
verður aðalritari flokksins fram-
vegis æðsti maður hans.
Er ennfremur lögð meiri
áhersla á valddreifingu en verið
hefur til þessa. Þá var upplýst,
að þeir sem taka sæti í miðstjórn
flokksins skuli hafa að baki
a.m.k. 40 ára veru í honum. Skuli
miðstjórnarmenn ennfremur
vera mikils metnir, jafnt innan
flokksins, sem utan hans og hafa
á sér gott orð. Komu þessar kröf-
ur fram eftir að upplýst var á
þinginu, að Mao formaður, sem
var æðsti maður flokksins í fjóra
áratugi, hafi verið orðinn hroka-
fullur og ekki skeytt um að hlýða
á góð ráð manna, sem vissu bet-
ur en hann.
Deng Xiaoping ávarpar tólfta þing
kinverska kommúnistaflokksins á
miðvikudag í síðustu viku.
Sagði ennfremur á þinginu, að
ein afleiðinga þessa veikleika
hans hafi verið stofnun fjór-
menningaklíkunnar, sem leitt
hefði þjóðina í svikavef og borg-
araleg átök um valdabaráttu. Er
þess krafist í stjórnarskránni að
allir meðlimir flokksins berjist
hatrammlega gegn hvers kyns
valdabaráttu einstaklinga í þjóð-
félaginu. Ekki er kveðið á um
lengd valdatímabils einstakra
ráðamanna, en tekið fram að
þeir eigi ekki að vera æviráðnir.
I stjórnarskránni er þess
ennfremur krafist að hinir 39
milljón meðlimir flokksins skuli
„verða þeir fyrstu til að þola
hörmungar og síðastir til að
njóta þæginda og óttist hvergi
harðræði og erfiðleika".
Haustæfingar Atlantshafsbandaiagsins að hefjast:
Umfangsmestu flutn-
ingar fallhlífarhermanna
BriisHel, 6. september. AP.
1.
Hleypt af
Skeyti af gerðinni Dragon, sem ætlað er til þess að granda skriðdrekum,
hleypt af á æfingasvæði bandariska sjóhersins í Kaliforníu. Skeyti þetta er
ekki þyngra en svo, að því er skotið af hermanni með þar til gerða byssu á
öxlunum. Má sjá hann sitja flötum beinum á jörðinni og myndin er tekin á
svo miklum hraða að sjá má skeytið lengst til hægri innan myndrammans.
Gasleiðsiudeilan:
Eru Bandaríkin í
sáttahugleiðingum ?
Toronto, Kanada, 6. septemb<*r. AP.
FJÁRMÁLARÁDHERRA Banda
dkjanna, Donald T. Regan, sagði í
iag að Bandaríkin myndu fagna
iverri þeirri tillögu Evrópuþjóðanna
•r gæti leitt til samkomulags i deil-
unni um gasleiðsluna.
Þessi tilkynning er fyrsta yfir-
lýsing þess eðlis að Bandaríkin
hafi hug á einhverri málamiðlun í
deilu þessari, en þeir hafa sett út-
flutningsbann á fyrirtæki í
Evrópu sem framleiða hluti í g^s-
leiðsluna milli Síberíu og Vestur-
Evrópu.
MEIKA en 250.000 hermenn frá 12
aðildarlöndum NATO munu eftir
viku hefja hinar árlegu haustæfingar
sínar í Evrópu. Verður þar m.a. her-
deild frá Bretum, sem tók þátt í
Falklandseyjastríðinu fyrr á þessu
ári. Lið 18.000 manna frá Bandaríkj-
unum slæst ennfremur i hópinn.
Taka hermenn þessir þátt í ímynd-
uðum bardögum og reyna ýmsar nýj-
ungar, sem fram hafa komið á hern-
aðarsviðinu.
„Eitt þeirra atriða, sem við
lærðum á Falklandseyjum, er hinn
mikli eyðileggingarmáttur varn-
arflauga. „Við lærðum þar að snör
handtök þarf til að vinna á þeim,“
segir einn bresku foringjanna,
sem var á Falklandseyjum.
Eitt meginverkefni haustæfing-
anna í ár er hvernig bregðast skuli
snarlega við hættuástandi. Fyrstu
æfingarnar hefjast þann 13. sept-
ernber með því að 1.800 fallhlíf-
arhermenn verða fluttir frá
Norður-Karólínu í Bandaríkjun-
um og stökkva þeir út rétt hjá
Wurzburg í V-Þýskalandi. Eru
þetta mestu viðstöðulausu flutn-
ingar fallhlífarhermanna, sem um
getur í veraldarsögunni. Eru hér á
ferð þrefalt fleiri hermenn en þeg-
ar slíkir flutningar voru fyrst
reyndir fyrir tveimur árum.
Annar liður, sem nefna má í æf-
ingunum, er að herdeild í Banda-
ríkjunum hefur verið nefnd „dul-
arfulla herdeildin". Síðar í þessum
mánuði fær hún skipun um að
gera sig ferðbúna til Evrópu með
48 stunda fyrirvara. Hefur ekkert
frekar verið látið uppi hvert hlut-
verk hennar verður.
Fram að þessu hafa æfingarnar
verið ímyndaðir bardagar og haf-
ist þegar herdeildirnar hafa náð
að koma sér fyrir. Að þessu sinni
verður lögð meiri áhersla á að
gera allt sem raunverulegast og
verður „ráðist á“ herdeildirnar
nær strax og þær koma til staða
eins og Antwerpen og Rotterdam.
Veður
víða um heim
Amsterdam 24 heióskirt
Aþena 32 heióskírt
Berlín 26 skýjaó
Brússel 18 skýjaó
Chicago 27 skýjaó
Dyflinni 16 skýjaó
Frankfurt 30 skýjaó
Genf 26 heióskirt
Helsinkí 14 skýjaó
Hong Kong 31 skýjaó
Jerúsalem 29 skýjaó
Jóhannesarborg 15 heióskirt
Kairó 37 heióskirt
Kaupmannahöfn 15 heióskírt
Lissabon 31 heióskírt
London 17 rigning
Los Angeles 35 heiðskirt
Madrid 30 heióakírt
Mexikóborg 24 heióskirt
Miami 31 skýjaó
Moskva 16 heióakfrt
Nýja Delhí 36 heióskírt
New York 26 skýjaó
Osló 15 heióskírt
París 29 skýjað
Perth 15 skýjaó
Rio de Janeiro 33 skýjað
Rómaborg 38 heióskírt
San Francisco 25 skýjaó
Stokkhólmur 15 heióskírt
Sydney 22 skýjaó
Tel Aviv 29 heióskfrt
Tókýó 23 rigning
Vancouver 21 skýjað
Vínarborg 20 heióskirt
íran — írak:
Asakanir á
báða bóga
Nirosia, Kýpur, 6. september. AP.
YFIRHERSHÖFÐINGI írana segir
að á sunnudag hafi herflokkar hans
ráðist á stöðvar íraka og drepið
a.m.k. 167 bardagamenn þegar bar-
ist var á 500 kilómetra svæði.
I hernaðarskýrslu er gefin var
út í Teheran í gær og dreift til
fréttastöðva segir að Iranir hafi
ráðist á stöðvar íraka nálægt
Ilam, sem er um 130 kílómetra
austur af Baghdad, og drepið þar
140 hermenn og sært 40.
Irakar hafa ekki svarað þessum
tilkynningum írana, en í tilkynn-
ingu frá þeim segir að írakar hafi
skotið á „óvinastöðvar og drepið
11 óvini“ austur af borginni Bas-
rah. Þar er einnig kvartað yfir því
að íranir haldi áfram að skjóta á
almenna borgara og heimili þeirra
í Basrah og valdi þar „nokkrum
skemmdum".
31 synjað
um leyfi til
A-Þýskalands
Miinchen, V Þýskalandi, 6. september. AP.
ÞRJÁTÍU og einum vestur-þýsk-
um ríkisborgara sem höfðu í huga að
sækja kaupstefnuna í Leipzig í
A-Þýskalandi var snúið til baka af
austur-þýskum landamæravörðum
nú yfir helgina, segir í tilkynningu
frá yfirvöldum í Vestur-Þýskalandi í
dag.
Landamæraverðir í vestur-
þýska bænum Bavaria sögðu að
landamæraverðirnir handan við
landamærin hafi ekki gefið neina
skýringu á synjununni, en flestir
þeirra sem snúið var frá munu
vera fyrrum austur-þýskir ríkis-
borgarar.
Ítalía:
Hershöfðinginn myrtur vegna
rannsóknar á fjármálum Mafíunnar
Palermo, Sikiley, 6. «eptemb<*r. Al*.
L()GREGLAN tilkynnti í gær að Alberto Carlo Dalla Chiesa hershöfð-
ingji, einn helsti baráttumaður á Ítalíu gegn Mafiunni, hefði verið drep-
inn vegna þess að hann var að rannsaka tengsl milli Mafiunnar og
viðskipta í Palermo.
„Það liggur ljóst fyrir að hann
var kominn á snoðir um hluti er
snerta hagsmuni Mafíunnar,"
sagði lögregluforingi sá er kann-
að hefur morðið i Palermo, Pell-
egrino að nafni. Og hann bætti
við: „Það sama gerðist með La
Torre (þingmann kommúnista er
myrtur vár í Palermo í apríl síð-
astliðnum). Hann lagði til að
sett yrðu lög sem heimiluðu
stjórnvöldum að taka eignar-
námi allt fé sem ætti eitthvað
vafasaman uppruna."
I Róm hefur verið skipaður
eftirmaður hans, Emaniele de
Francesco, en jarðarför Dalla
Chiesa og eiginkonu hans fór
fram frá Mílanó á laugardag.
Á fimmtudag, daginn áður en
Dalla Chiesa og hin 32 ára gamla
eiginkona hans voru myrt og
lífvörður þeirra alvarlega særð-
ur, tilkynnti stjórnin ráðagerðir
sínar þess eðlis að hefja aðgerðir
gegn skattsvikum Mafíunnar og
viðskiptajöfra sem eru tengdir
henni.
Skattalögreglan birti í tengsl-
um við það lista með nöfnum
3200 manna sem eru grunaðir
um að vera viðriðnir Mafíuna, en
Dalla Chiesa starfaði í nánum
tengslum við skattalögregluna
og var til að mynda með lista
þennan í handtösku sinni er
hann var skotinn til bana.
Ríkissaksóknari, Giovanni
Carlo Alberto Dalla Chiesa hers-
höfðingi er skotinn var til bana á
föstudag ásamt eiginkonu sinni.
Falcone, telur að ágóði vegna
heróínsölu þeirrar er hefur farið
í gegnum hendur Mafíunnar á
Sikiley til Bandaríkjanna á und-
anförnum fimm árum nemi um 5
milljörðum dollara, en yfirvöld í
Bandarikjunum telja að Sikiley
sé aðalbirgðastöð fyrir heróín
það er til Bandaríkjanna kemur.
Lögreglan segist hafa yfir-
heyrt þrjátiu manns er voru
nærri er hershöfðinginn og frú
hans voru skotin til bana á
föstudag, en enginn virðist hafa
hugmynd um hvernig morðingj-
arnir litu út. „Undarlegt en satt,
jafnvel fólk er stóð við glugga
sína virðist hafa snúið við þessu
baki,“ sagði lögregluforinginn
Pellegrino.
Morð þau er talið er að Mafían
hafi framið eru nú orðin 103 á
þessu ári í Palermo, og 468 frá
því árið 1975.