Morgunblaðið - 07.09.1982, Side 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1982
Ásgeir var maðurinn á bak
við stórsigur Stuttgart
— skoraöi eitt mark og lagöi annað upp
fær mjög lofsamlega dóma fyrir leik sinn
ÁSGEIR Sigurvinsson var aöalmað-
urinn í liði sínu VFB Stuttgart er það
sigraði Werder Bremen, 4—I, á
heimavelli sinum um helgina. Ásgeir
skoraði eitt mark, lagði upp annað
og sýndi snilldarleik. Ásgeir fékk
mjög lofsamlega dóma í fréttaskeyt-
um AP af leiknum. Six skoraði
fyrsta mark Stuttgart eftir aðeins
fjórar mínútur eftir góðan undirbún-
ing Ásgeirs. Ásgeir skoraði svo sjálf-
ur eftir sendingu frá Six á 31. mín-
útu. Á 53. mínútu skoraði Six aftur
en Reidérs minnkaði muninn niður \
3—I úr vítaspyrnu á 74. minútu. Á
lokamínútunni skoraði svo Ohlicher
fyrir Stuttgart og stórsigur, 4—1, var
í höfn. Lið Stuttgart er nú i efsta
sæti í „Bundesligunni“ með sjö stig
eftir fjóra leiki og glæsilega marka-
tölu, 12 mörk skoruð, en liðið hefur
aðeins fengið á sig 3 mörk. Ásgeir
hefur skorað þrjú mörk í síðustu
tveimur leikjum liðsins og hreinlega
farið á kostum í leik sínum.
Herta Berlin vann yfirburðasig-
ur, 5—1, á FC Níirnberg, Ein-
tracht Frankfurt tapaði, 0—1,
fyrir Brunswick. V-þýsku meistar-
arnir Hamburger SV sigruðu
Karlsruhe, 4—0. Mörk Hamburger
skoruðu Milewski, Bastrup, Hier-
onymus og Heesen. Bestu menn
HSV í leiknum þóttu vera þeir
Magaht og Kaltz. Bayern Munch-
en sigraði Leverkusen, 5—0, á
heimavelli sínum og þóttu leik-
menn Bayern sýna mikil tilþrif.
Mörk liðsins skoruðu: Rummen-
igge það fyrsta, síðan bætti Hön-
ess tveimur við og Horsemann og
Gelsdorf skoruðu sitt hvort. Bestu
leikmenn Bayern voru Rummen-
igge og Del Haye.
Borussia Mönchengladbach
sigraði Fortuna Dusseldorf, 5—0.
Borussia Dortmund vann góðan
sigur á útivelli er liðið sigraði
Kaiserslautern, 2—0. Rúmeninn
Raducanu var besti maðurinn í
liði B. Dortmund og skoraði eitt
mark. Huber skoraði síðara mark-
ið.
BESTI leikmaður Kaiserslautern
var Briegel. FC Köln sigraði
Schalke 04 á heimavelli sínum
2—1. Mörk Köln skoruðu Engels
og Hoenerbach. Vfl Bochum og
Bielefeld gerðu svo jafntefli 1—1.
Staðan í 1. deildinni er nú þessi:
Stuttgart
Dortmund
Bielefeld
Múnchen
Bremen
Hamburg
Mönchengl.b.
Karlsruhe
Köln
Brunswick
Berlin
Núrnberg
Dússeldorf
Frankfurt
Schalke 04
Leverkusen
Kaiserslautern
Bochum
4 3 10 12-3 7
4 3 1 0 8-2 7
4 3 1 0 6-2 7
4 3 0 1 10-1 6
4 2 11 5-5 5
3 1 2 0 7-3 4
4 2 0 2 10-6 4
4 2 0 2 2-8 4
3 111 4-5 3
3 111 3-4 3
4 112 8-8 3
4 112 5-13 3
3 1 0 2 2-6 2
4 1 0 3 6-4 2
4 1 0 3 6-8 2
4 10 3 1-11 2
2011 2-41
4 0 13 1-5 1
• Rummenigge átti mjög góðan leik með liði sinu, Bayern Miinchen, og
skoraði fyrsta mark liðsins í stórum sigrí.
Fram lék eins
og lið sem misst
hefur alla von
— ÍBÍ gekk á lagið og vann stórsigur
ÍBÍ fór langt með að bjarga sér frá falli á laugardaginn, er liðið náði vel
saman og burstaði þjáningarbræður sína í fallbaráttunni, Fram, með fjórum
mörkum gegn engu. Þar með er staða Fram fremur vonlitil, þó ekki með öllu
vonlaus, en vissulega má þetta fyrrum stórveldi muna sinn fífil fegri. Fyrir
aðeins örfáum árum og allt til síðasta árs, var Fram stórveldi í islenskri
knattspyrnu, en uppstokkunin á liðinu síðan, endurnýjunin, hefur verið of ör.
Hinir ungu leikmenn liðsins eru efnilegir, en það vantar reynsluna, það sást
best á þvi hvernig liðið hrundi gersamlega saman þegar á móti tók að blása
gegn ÍBÍ. Lokatölurnar urðu sem fyrr segir 4—0, en öll komu mörkin í síðari
hálfleik. Fyrri háifleikurinn var fremur daufur, en ÍBÍ hefði hæglega getað
skorað enn fleiri mörk í síðari hálfleik.
Fyrri hálfleikur var daufur,
stundum þokkaleg knattspyrna
úti á vellinum og hafði Fram þar
aðeins vinninginn, en Isfirð-
ingarnir voru hins vegar grimm-
ari, börðust betur. Þeir áttu ekki
lakari færi í fyrri hálfleiknum,
þannig „skoraði" örnólfur
Oddsson á 8. mínútu, en dómarinn
blés í fiautuna og taldi annan ís-
firðing hafa stjakað við Guðmundi
markverði. Þá áttu Vestfirð-
ingarnir besta færi hálfleiksins, er
Örnólfur renndi knettinum inn á
Gunnar Pétursson á 39. mínútu og
var aðalmarkaskorari þeirra ís-
firðinga þar á auðum sjó. Hann
hafði tíma aflögu til að vanda sig,
en nýtti hann ekki frekar en færið,
hugðist spyrna viðstöðulaust með
þeim afleiðingum að hann hitti
knöttinn varla og hann rúllaði
meinleysislega fram hjá markinu.
Þrátt fyrir að Framarar væru
meira með knöttinn gekk ekkert
betur að skapa færi. Halldór
Arason átti góða tilraun á 12. mín-
útu, kastaði sér aftur á bak og
„klippti" knöttinn að markinu eft-
ir hornspyrnu, en Hreiðar mark-
vörður varði naumlega. Skömmu
síðar sendi Valdemar Stefánsson
fyrir mark ÍBÍ og Guðmundur
Torfason skallaði naumlega fram
hjá. Fleiri færi fengu Framarar
ekki sem talandi er um, en þó átti
liðið nokkur efnileg skot undir lok
hálfleiksins. Fram varð fyrir
áfalli eftir rúman hálftíma, Ha-
lldór Arason varð þá fyrir nægi-
lega slæmum meiðslum til þess að
hann gat ekki leikið áfram.
Byrjun Framara í síðari hálf-
leik gaf sannarlega ekki til kynna
hvað í vændum var, en á fyrstu
mínútunum náði liðið laglegum
sóknarlotum, einkum á vinstri
kantinum, og skapaðist hætta við
mark ÍBÍ. En ísfirðingarnir bældu
uppreisnina niður með harðri
hendi strax á 9. mínútu hálfleiks-
ins, eða á 54. mínútu leiksins. Jón
Oddsson tók þá eitt af sínum
löngu innköstum og þeytti knett-
inum langt inn í vítateig. Varn-
armanni Fram tókst að hreinsa
frá, spyrnti knettinum til Jóns á
ný. Hann sendi þá fyrir markið og
var slangur af Isfirðingum þar á
auðum sjó, en hluti Fram-varnar-
innar komin langt fram á völl,
væntanlega í rangstöðugildruleik.
Sá dýrabogi smellur þó ekki á háls
fórnarlambsins nema að vörnin sé
samhent og það var vörn Fram
ekki í fjarveru Sverris Einarsson-
ar, sem verið hefur besti maður
hennar í sumar. Einar Jónsson,
hægri bakvörður ÍBÍ, var einn
þeirra ÍBÍ-manna sem hafði frest-
að því að færa sig aftar á völlinn
er Framarar spyrntu knettinum
fram og hann uppskar fyrir það,
Gunnar Pétursson skallaði fyrir-
gjöf Jóns til hans og Einar skoraði
með þrumuskoti.
• Eitt af fáum marktækifærum Fram í leiknum gegn ÍBÍ. Halldór Arason í færi, en Hreiðar Sigtryggsson bjargaði.
Ljósm.: Kristján Einnrason
Þetta mark gerbreytti leiknum
og ekki með þeim hætti er margan
hefði grunað. í stað þess að Fram-
arar vöknuðu við martröð, hrundi
liðið gersamlega og hið mikla
stemmingslið IBÍ gerði það sem
það iysti og lék hinn fallna risa
sundur og saman. Þremur mínút-
um síðar björguðu varnarmenn
Fram á línu skoti Einars bakvarð-
ar. Á 63. mínútu bjargaði Guð-
mundur Baldursson naumlega
með úthlaupi eftir að Jón Oddsson
var kominn einn í gegn um vörn
Fram. Þetta var þó aðeins gálga-
frestur, því aðeins 2 mínútum síð-
ar skoraði Jón laglegt mark með
þrællúmskum hætti. Hann lék upp
hægri vænginn, plataði varnar-
mann og spyrnti frekar laust að
markinu frá vítateigshorninu.
Knötturinn stefndi á markið og
vafalaust hefði Guðmundur góm-
að knöttinn ef Gunnar Pétursson
hefði ekki hlaupið yfir boltann og
platað hann. Guðmundur virtist
reikna með að Gunnar léti að sér
kveða, en er hann snerti ekki
knöttinn var allt um seinan, hann
smaug fram hjá markverðinum,
small í stönginni og þaut í netið,
2—0. Laglegt mark, en afar neyð-
arlegt frá sjónarhóli Fram.
Og nú stóð ekki steinn yfir
steini hjá Fram, ÍBÍ fékk auka-
Fram:
IBi
spyrnu rétt utan vítateigs Fram
fjórum mínútum síðar, á 69. mín-
útu og spyrnti Jón Oddsson miklu
þrumuskoti í gegn um varnarvegg
Fram. Guðmundur varði skotið,
hélt hins vegar ekki knettinum og
Gústaf Baldvinsson kom aðvífandi
og spyrnti í netið af öllum kröft-
um. Enn liðu þrjár mínútur og enn
var vörn Fram opnuð eins og
niðursuðudós, en Guðmundur
varði snilldarlega þrumuskot
Rúnars Guðmundssonar. Þar kom
síðan, að Framarar komust að
vítateigi ÍBÍ á 74. mínútu og
björguðu ísfirðingarnir þá af línu
skoti Marteins Geirssonar og
Valdemar Stefánsson átti gott
skot naumlega fram hjá í sömu
sóknarlotu. Marteinn var nú kom-
inn fram í sóknina ef ske kynni að
takast mætti að bjarga einhveriu.
Nokkrum mínútum síðar dró hann
sig þó aftur í vörn, því enn rigndi
mörkum niður. ÍBI bætti fjórða
markinu við á 77. mínútu. Gunnar
Pétursson fékk þá langa sendingu
fram völlinn og virtist rangstæð-
ur. Grétar línuvörður var þó í
bestu aðstöðunni til að segja til
um það og sá ekkert athugavert.
Gunnar óð því áfram, inn í víta-
teig Fram og skoraði með þrumu-
fleyg. 7. mark hans í 1. deild í
sumar.
Fleiri urðu mörkin ekki. Lið ÍBÍ
small skemmtilega saman að
þessu sinni. Liðið skorar mikið af
mörkum og þó að knattspyrnan
sem það sýnir sé á köflum stór-
karlaleg, væri sjónarsviptir af
þéssu skemmtilega baráttuliði úr
1. deild. Þessi sigur tryggði hugs-
anlega sætið, hver veit? Liðið var
geysilega jafnt, sigur liðsheildar-
innar og kannski ekki sanngjarnt
að tína einn út öðrum fremur.
Ekki skal heldur tína neinn út
öðrum fremur hjá Fram; en af allt
öðrum sökum en hjá ÍBI, liðið var
afar lélegt, spilaði eins og lið sem
er búið að gefa frá sér vonina.
- gg-
I Knatlspyrna)