Morgunblaðið - 07.09.1982, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1982
27
Sighvatur Dýri íslands-
meistari í maraþonhlaupi
KARL Þórðarson skoraði laglegt
mark, er Laval sigraði Tours 3—0 í
frönsku dcildarkeppninni i knatt-
spyrnu á fostudagskvöldið, kom
Karl inn á sem varamaöur og var
það annað mark liðsins sem hann
skoraði. Teitur Þórðarson lék hins
vegar ekki með Lens sem gerði jafn-
tefli við Lille. Teitur á við meiðsli að
stríða og óvíst hvenær hann verður
til í slaginn á nýjan leik. Úrslit leikja
i 1. deildinni urðu sem hér segir:
Lille — Lens 1—1
Strassbourg — Auxerre 0—2
Bordeaux — Mulhousc 2—0
Bastia — Nancy 3-2
l’aris St. Germain — Nantes 2—1
Brest — Monaco 1 — 1
Lyon — St. Etienne 2—1
Laval — Tours 3—0
Toulouse — Rouen 2-1
Lens er í efsta sæti deildarinnar
að fimm umferðum loknum, hefur
liðið 8 stig. Toulouse hefur einnig 8
stig, en lakari markatölu. Nantes og
Laval hafa 7 stig hvort félag, en síð-
an koma Nancy, Lyon, St. Germain,
Brest og Bastia með 6 stig hvert.
þessu sinni í umsjá frjálsíþrótta-
deildar FH. Allir sem lögðu af
stað fengu skjöl til minningar um
þátttökuna að hlaupi loknu.
Fyrstu þrír menn voru leystir út
með verðlaunapeningum og bikar
og stuttermabolum. Öll verðlaun
gaf Austurbakki hf., Nike-
umboðið, hér á landi.
Úrslitin í hlaupinu urðu annars
sem hér segir:
Sighvatur D. Guðmundss. HVÍ 2:44,36
Jóhann H. Jóhannsson ÍR 2:45,08
Guðmundur Gíslason Á 2:50,19
Sigurjón Andrésson ÍR 3:01,41
Stefán Friðgeirsson ÍR 3:08,25
Leiknir Jónsson Á 3:18,40
Þórólfur Þórlindsson UÍA 3:23,49
Ingvar Garðarsson HSK 3:27,25
Ásgeir Theodórsson ÍR 3:42,05
„Æ, æ. Þetta var erfitt,“ sagði
Sighvatur Dýri Guðmundsson HVÍ
þegar hann kom í mark sem fs-
landsmeistari í maraþonhlaupi í
Hafnarfirði á sunnudag. Sighvatur
lauk þessari erfiðu keppnisgrein á
2:44,36 stundum, en þetta var hans
fyrsta maraþonhlaup. Jafnframt
vann hann þarna sinn fyrsta ís-
landsmeistaratitil í frjálsíþróttum.
Hvorki fleiri né færri en 19 hlaupar-
ar lögðu af stað í maraþonhlaupið,
og hefur engin ein grein á íslands-
meistaramótinu í frjálsiþróttum á
þessu ári verið fjölmennari, ef víða-
vangshlaupið er undanskilið. Að vísu
heltist helmingurinn úr lestinni, þar
sem menn komu misjafnlega vel
undirbúnir til leiks, en alls luku níu
hlauparar hlaupinu, sem er rúmir 42
kílómetrar.
MARK ^
í öðru sæti í maraþonhlaupinu
varð Jóhann Heiðar Jóhannsson
ÍR á 2:45,08 stundum. Bætti Jó-
hann árangur sinn um rúmar
fimm mínútur. Hljóp hann mjög
vel, og dró verulega á Sighvat síð-
ustu átta kílómetrana.
Guðmundur Gíslason fyrrum
sundkappi varð þriðji í hlaupinu,
einnig á sínum langbezta tíma,
2:50,19 stundum. Það á við um þá
Jóhann og Guðmund, að báðir eru
duglegir við að skokka sér til
heilsubótar. Þrek þeirra hefur
aukist með árunum, miðað við
árangur þeirra í langhlaupunum,
sem þeir taka þátt í sér til ánægju
og tilbreytingar, en hið sama á við
um fjölmarga aðra.
Maraþonhlaupið fór fram í
Hafnarfirði og á Álftanesinu að
• Karl Þórðarson fyrir miðju skoraði um helgina fyrir Laval.
Karl skoraði
fyrir Laval
Teitur enn meiddur og ekki með Lens
Maraþonhlaupararnir leggja af stað í Hafnarfirði. Nitján hlanparar bófu keppni, en níu luku keppni.
IJtein. Hafdteinn Ósknranon.
Þátttakendurnir í götuhlaupinu (f.v.) Ingibjörg Arnardóttir, Fríða Bjarnadótt-
ir, Björg Kristjánsdóttir, Sigurbjörg Helgadóttir, Hrönn Guðmundsdóttir,
Ragnheiður Ólafsdóttir, Rannveig Helgadóttir og Guðbjörg Haraldsdóttir.
Fyrstu þrír menn í maraþonhlaupinu ásamt Árna Árnasyni frá Nike-umboð-
inu, sem gaf öll verðlaun til hlaupsins. Á myadinni eni (f.v.) Jóhann Heiðar
Jóhannsson, Sighvatur Dýri Guðmundsson, Guðmundur Gíslason og Árni
Árnason.
Ragnheiður Olafsdóttir FH í forystu
í 10 km götuhlaupi kvenna, en
Hrönn Guömundsdóttir UBK fylgir
fast eftir.
Rannveig Helgadóttir ÍR 46:39
Björg Kristjánsdóttir ÍR 46:58
Sigurbjörg Helgadóttir ÍR 50:46
Ingibjörg Arnardóttir ÍR 58:11
Ragnheiður
meistari í
götuhlaupi
RAGNHEIÐUR Ólafsdóttir FH varð
íslandsmeistari i 10 kilómetra götu-
hlaupi kvenna, en þessi keppnis-
grein er ný af nálinni hér á landi.
Betri þátttaka var í hlaupinu en bú-
ist hafði verið við. Átta galvaskar
konur mættu til leiks og luku allar
hlaupinu með glæsibrag. Það er Ijóst
að langhlaup kvenna eiga fyllilega
rétt á sér hér á landi, og er vonandi
að tekið verði með festu á málefnum
kvennanna.
Götuhlaupið fór fram í Hafnar-
firði samhliða maraþonhlaupinu.
Tókst það vel í alla staði, og að
hlaupi loknu voru konurnar allar
leystar út með eigulegu verðlauna-
skjali, en fyrstu þrjár voru einnig
verðlaunaðar í bak og fyrir,
Ragnheiður með veglegum bikar,
en Hrönn Guðmundsdóttir og
Guðbjörg Haraldsdóttir með verð-
launapeningum. Einnig fengu
þessar þrjár stuttermaboli að gjöf,
en verðlaun öll gaf Austurbakki
hf., Nike-umboðið, hér á landi.
Urslitin í hlaupinu urðu annars
sem hér segir:
Ragnheiður Ólafsdóttir FH 39:59
Hrönn Guðmundsd. UBK 42:49
Guðbjörg Haraldsdóttir ÍR 45:37
Fríða Bjarnadóttir ÍR 46:16
Armann sigraði
í 4. deild
LIÐ Ármanns varð sigurvegari í
fjórðu deild íslandsmótsins í
knattspyrnu. Ármenningar sigruðu
lið Vals frá Reyðarfirði 2—1, eftir
framlengdan leik er liðin léku til úr-
slita í deildinni á Kaplakrikavellin-
um á laugardag.
Reyðfirðingar skoruðu fyrsta
mark leiksins og höfðu yfir 1—0 í
hálfleik. Ármenningar jöfnuðu
metin úr vítaspyrnu sem Sveinn
Guðnason tók. Það þurfti síðan
framlengingu til að fá úrslit. í
henni skoruðu Ármenningar og
sigruðu. Það var Jóhannes Tómas-
son sem færði Ármann sigurinn
með góðu marki.