Morgunblaðið - 07.09.1982, Qupperneq 48
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1982
28
Bakvörðurinn sá um markvörsluna
og varamaðurinn um sigurmarkið
. l' _
— og Man. City skaust í efsta sæti 1. deildarinnar
MANCHESTER City náði forystunni í 1. deild á laugardaginn er liðið sigraði
Watford 1—0 á heimavelli sínum. City lék mjög vel, betur heldur en lokatöl-
ur leiksins gefa til kynna. Yfirburðirnir umtalsverðir, en það var þó ekki fyrr
en seint í leiknum að sigurmarkið skaut upp kollinum. Hetjur City voru
bakvörðurinn Bobby MeDonaid sem varð að fara i markið þegar Joe Corrig-
an meiddist straz á 3. mínútu, og gamla kempan Denis Tueart Hann kom
inn á sem varamaður og skoraði sigurmark City með skalla af stuttu fcri á
76. mínútu. Tueart meiddist illa á hásin á siðasta keppnistímabili, lék ekki
meira það tímabil og lengst af var það mál manna að hann myndi aldrei leika
knattspyrnu framar, svo slæm voru meiðslin. Ósigur Watford var sá fyrsti
hjá liðinu sem 1. deildar lið, en félagið hafði unnið tvo fyrstu leiki sína með
miklum glæsibrag, 2—0 gegn Everton og 4—1 gegn Southampton. Lítum á
úrslit leikja í 1. deild áður en lengra er haldið:
Arsenal — Liverpool 0—2
Birmingham — Stoke 1—4
Everton — Tottenham 3—1
Ipswich — Coventry 1—1
Luton — N. County 5—3
Man. City — Watford 1—0
N. Forest — Brighton 4—0
Southampton — Aston Villa 1—0
Sunderland — West Ham 1—0
Swansea — Norwich 4—0
WBA - Man. Utd. 3-1
David Hodgeson, nýi miðherj-
inn hjá Liverpool, þykir hafa verið
furðu fljótur að hasla sér völl hjá
félaginu, framlag hans í sigrinum
gegn Arsenal var stórt. Hann
skoraði sjálfur fyrra markið
skömmu fyrir leikhlé og lagði síð-
an upp annað markið sem Phil
Neal skoraði sjö mínútum fyrir
leikslok. Þetta var einn af þessum
dögum hjá Arsenal sem bókstaf-
lega ekkert gengur upp, liðið sótti
nær stanslaust allan leikinn og
góð færi buðust nokkrum sinnum.
En færin tókst ekki að nýta, auk
þess sem vörn Liverpool tókst
hvað eftir annað að komast með
tærnar inn í bráðefnilegar sókn-
arlotur þeirra Arsenal-manna og
var Mark Lawrenson þar einkum
sérlega atkvæðamikill.
Manchester Utd. tapaði fremur
óvænt gegn WBA eftir sérstaklega
sterka frammistöðu í tveimur
fyrstu umferðunum. United var
miklu betra liðið í fyrri hálfleik og
náði þá forystu með marki Bryan
Robsons. í síðari hálfleik snerist
dæmið gersamlega við, heimaliðið
náði góðum tökum á leiknum og
vann góðan sigur. Strax á fyrstu
mínútu síðari hálfleiks jafnaði
miðvörðurinn Martyn Bennett
með góðum skalla eftir horn-
spyrnu og Peter Eastoe náði síðan
forystunni fyrir WBA á 60. mín-
útu með viðstöðulausu skoti af 15
metra færi. Ally Robertson bætti
þriðja markinu við á 73. mínútu og
þar við sat.
Annars var víða mikið skorað,
en hvergi þó meira en í Luton, þar
sem heimaliðið sigraði Notts
County 5—3 í sprellfjörugum leik.
Paul Walsh braut ísinn á 15. mín-
útu, skoraði þá eftir undirbúning
Ricky Hill. County svaraði með
tveimur mörkum á 24. og 33. mín-
útu. Brian Kilcline og John Chie-
dozie skoruðu mörkin. Fjórum
mínútum fyrir leikhléið tókst
Ricky Hill að jafna. David Moss
skoraði þriðja mark Luton á 50.
mínútu og síðan kom æðisgengin
kafli þar sem þrjú mörk voru
skoruð á 4 mínútna kafla, Walsh
skoraði tvívegis fyrir Luton á 65.
og 67. mínútu, en Mark Goodwin
svaraði fyrir County á 68. mínútu.
Staðan var þar með orðin 5—3 og
fleiri urðu mörkin ekki.
En það voru fleiri en Paul
Walsh sem skoruðu þrennu á laug-
ardaginn, gamla kempan Bob
Latchford sýndi að hann hefur
engu gleymt er hann sendi lið
Norwich öfugt heim frá Swansea
með 0-4 tap á bakinu. Yfirburðir
Swansea voru einkum miklir í
fyrri hálfleik og þá skoraði
Latchford á 13. og 31. mínútunum.
Robby James bætti þriðja mark-
inu við á 42. mínútu. Norwich sótti
sig mjög í síðari hálfleik og sótti
nokkuð án árangurs framan af.
Liðið gaf sig svo smám saman er
ekkert gekk og Latchford náði að
pota inn þriðja marki sínu og
fjórða marki Swansea áður en yfir
lauk.
Stoke vann merkilegan stórsig-
ur á útivelli gegn Birmingham, og
var það einkum stórgóðum fyrri
hálfleik að þakka. BBC og AP voru
ekki sammála um hverjir skoruðu
mörk Stoke að þessu sinni. Voru
reyndar sammála um að Phil
lan Wallace átti góðan leik meó Nottingham Forest, skoraði tvívegis gegn
Brighton.
Leikmenn Liverpool unnu góðan sigur gegn Araenal og verða eflaust drjúgir við stigaöfhin í vetur.
Enska
1 knatt-
spyrnan
Hawker hafi skorað sjálfsmark og
fært Stoke forystu og að Peter
Griffiths hafi skorað fjórða mark-
ið rétt fyrir leikhlé. Hins vegar
sagði BBC að Mark Chamberlain
hafi skorað tvívegis inn á milli,
AP sagði einhvern Hodgeson hafa
skorað umrædd mörk. Leikmenn
Stoke létu heimaliðið um að puða í
seinni hálfleik. Birmingham sótti
þá talsvert, en með hálfum hug,
enda forysta Stoke risavaxin. Þó
tókst Alan Curbishley að minnka
muninn skömmu fyrir leikslok.
Everton afgreiddi Tottenham
þegar í fyrri hálfleik með stórgóð-
um sóknarleik. Kevin Sheedy
skoraði strax á 7. mínútu og Billy
Wright skallaði í netið hjá Tott-
enham á 19. mínútu. Steve Mc-
Mahon bætti þriðja markinu við á
34. mínútu og engu breytti um
gang leiksins þó Steve Archibald
minnkaði muninn aðeins mínútu
síðar. í síðari hálfleik leystist leik-
urinn upp í vitleysu, John Lacey
var þá rekinn af leikvelli fyrir að
brjóta viðbjóðslega á Graeme
Sharpe og Ian Bailey hjá Everton
fékk einnig að fara snemma í bað
fyrir svipað brot á Tony Galvin.
Ipswich sótti án afláts gegn
Coventry og hafði öll ráð í hendi
sér. Paul Mariner skoraði fyrir
Ipswich á 72. mínútu eftir fyrir-
gjöf George Burley, en leikmenn
Ipswich áttu eftir að líða fyrir að
sóa mörgum góðum marktækifær-
um. Danny Thomas, bakvörðurinn
snaggaralegi hjá Coventry, fór
nefnilega fram í sóknina fimm
mínútum fyrir leikslok og tókst að
jafna með stórglæsilegu skoti af
25 metra færi.
Nottingham Forest var ekki í
vandræðum með slakt lið Brigh-
ton og þykir ýmsum vera snemma
kominn fallstimpill á sunnan-
mennina. Ian Wallace skoraði
fyrir Forest strax á 13. mínútu og
John Robertson bætti marki við úr
tvítekinni vítaspyrnu þremur
mínútum fyrir leikhlé. Wallace
skoraði annað mark sitt í síðari
hálfleik og þá skoraði einnig hinn
bráðefnilegi Colin Walsh fjórða
mark Forest.
Justin Fashanu byrjaði vel hjá
Southampton, en Forest hefur
lánað hann þangað um tíma. Strax
á 3. mínútu leiksins skoraði sá
svarti glæsilegt mark eftir fyrir-
gjöf Steve Williams. Þar við sat í
annars daufum leik. Peter Withe
„skoraði" að því er virtist bara
gott mark fyrir Villa í seinni hálf-
leik, en dómarinn neitaði að dæma
markið gilt.
Sunderland hélt sínu striki, en
þetta lið, sem slapp mjög naum-
lega við fall á síðasta tímabili,
hefur enn ekki tapað leik í haust.
Tveir sigrar og eitt jafntefli. West
Ham byrjaði betur á Roker Park
og á fyrstu tíu mínútunum var lið-
ið oftar en einu sinni nærri því að
skora. Það var því gegn gangi
leiksins er Sunderland skoraði á
14. mínútu. Stan Cummins lék þá
á tvo varnarmenn West Ham og
skaut á markið. Phil Parks,
markvörður West Ham, varði, en
hélt ekki knettinum sem hrökk til
Garry Rowell og hann afgreiddi
málið snyrtilega, renndi knettin-
um í tómt markið. Eftir það var
Sunderland sterkari aðilinn, en
bæði liðin fengu þó tækifæri til að
bæta fleiri mörkum við.
Leikmenn Swansea höfðu ærna ástæðu til að fagna á laugardaginn, liðið
sigraði Norwich 4-0 á heimavelli stnum.
Jílorjjuntilnbií*