Morgunblaðið - 07.09.1982, Qupperneq 26
34
MÖRGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1982
+
Litla dóttir okkar og barnabarn,
MARTA,
lést i Landakotsspítala 6. september.
María Guðmundsdóttir,
Halla Magnúsdóttir,
Auóur Guómundsdóttir,
Magnús Randrup,
Guórún Axelsdóttír.
Móöir mín,
GUDRfÐUR SÆMUNDSDÓTTIR,
Mjóuhlíó 14,
andaöist aö heimili mínu, Hellulandi 8, föstudaginn 3. september.
Sigríóur Theódóra Guómundsdóttir.
+
Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
MARGRÉT KRISTJANA STEINSDÓTTIR,
Langholtsvegi 3,
veröur jarösungin frá Dómklrkjunni miövikudaginn 8. september
kl. 13.30.
Ingibjörg Ingimarsdóttir,
Óskar Ingimarsson, Áslaug Jónsdóttir,
Magnús Ingimarsson, Ingibjörg Björnsdóttir
og barnabörn.
Eiginmaöur minn,
SIGURÐUR ÁRNASON,
Hofteigi 16,
áöur búsettur í Vestmannaeyjum,
an<faöist 1. september. veröur jarösettur 8. september frá
Laugarneskirkju kl. 1.30.
Sigríóur Guómundsdóttir.
Snœbjörn Jónsson
Stað — Minning
Kæddur 8. nóvember 1909
Dáinn 21. ágúst 1982
Sé hverju mannsbarni líkt við
ljósker, þá vitum við að þau eru
misjafnrar gerðar. Sum eru
skrautleg en önnur traust og
sterkbyggð og gefa frá sér jafna
og fagra birtu sem lýsir skært á
meðan eldsneyti eigi þrýtur.
Snæbjörn Jónsson er fæddur að
Stað í Reykhólasveit 8. nóvember
1909. Hann var sonur hjónanna
frú Ólínu Snæbjarnardóttur frá
Hergilsey og séra Jóns Þorvalds-
sonar á Stað.
Snæbjörn ólst upp við gott at-
læti á stóru menningarheimili í
hópi systkina sinna og uppeldis-
systkina.
Systkini hans voru sem upp
komust: Kristján Jónsson borg-
ardómari í Reykjavík, sem er lát-
inn fyrir nokkrum árum. Kona
hans var Þórunn Jónsdóttir.
Ragnheiður Jónsdóttir, stúdent,
gift Ólafi Siggeirssyni Reykjavík.
Uppeldissystkini voru: Séra Jón
Árni Sigurðsson, Grindavík,
kvæntur Jónu Sigurjónsdóttur, og
Ingibjörg Árnadóttir, gift Jóni
Daðasyni, Miðhúsum.
Kona Snæbjarnar er Unnur
Guðmundsdóttir frá Skjaldvarar-
fossi á Barðaströnd og synir
þeirra hjóna eru: Jón bóndi í Mýr-
artungu í Reykhólasveit, kvæntur
Aðalheiði Hallgrímsdóttur. Árni,
kennari, Hvanneyri, kvæntur Sig-
ríði Héðinsdóttur. Guðmundur
Friðgeir, verkstjóri í Reykjavík,
kvæntur Eddu Jónsdóttur, og Ei-
ríkur, bóndi á Stað, kvæntur Sig-
fríði Magnúsdóttur.
Sonur Unnar, Sigurvin Ólafss-
on, ólst upp á Stað og var hann
jafn kær Snæbirni sem hans eigin
synir og síðan elst sonur Sigur-
vins, Guðmundur, þar upp.
Þegar ég kom hingað vestur
heyrði ég mikið talað um Stað, því
að tengdamóðir mín unni sínu
bernskuheimili og kona mín hélt
mikið upp á Snæbjörn og átti
margar hlýjar minningar frá
bernskudögum sínum á Stað.
Fáum mönnum hér vestra hef
ég kynnst betur en Snæbirni og
eftir því sem kynni okkar urðu
meiri kunni ég betur að meta
trygglyndi hans, sérstæðan per-
sónuleika og áhuga hans fyrir ís-
lenskum landbúnaði.
Það var alltaf upplífgandi að
koma að Stað og þaðan fór maður
alltaf ríkari af lífsgleði, sem er
besta gjöf íslenskrar gestrisni.
Snæbjörn vildi öllum hjálpa og
það sem hægri höndin gerði vissi
sú vinstri ekki.
Eins og kunnugt er er Staðar-
heimilið þekkt fyrir gestrisni og
þau hjón voru samhent í því að
gera gestum sínum allt til ánægju,
en ánægjulegustu stundir mínar
voru með Snæbirni í fjárhúsum og
í fjósinu og kynnast því hve hús-
dýrunum þótti vænt um hann, en
hann hafði ánægju af því að miðla
og gleðja.
Við Snæbjörn töluðum margt
saman frá léttustu dægurflugum
til alvarlegustu lífsskoðana og
alltaf var hann sjálfum sér sam-
kvæmur, glettinn, en umfrarn allt
mannlegur, góðviljaður og
hreinskiptinn.
I þessum persónulegu minning-
um er ekki ætlunin að rekja stór-
hug hans og framkvæmdir allar á
Stað, því að í mínum huga er það
maðurinn sjálfur sem skiptir öllu
máli.
Við hér á Miðhúsum þökkum
fyrir samferðina og sendum konu
hans, Unni Guðmundsdóttur, og
öðrum aðstandendum
samúðark veðj ur.
Sveinn Guðmundsson
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fvrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. f
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
fundir — mannfagnaöir
Breiðfirðingar —
Breiðfirðingar
Hinn árlegi kaffidagur aldraöra Breiöfirðinga
veröur í safnaöarheimili Langholtssóknar,
sunnudaginn 12. september og hefst meö
hugvekju kl. 14. Veriö velkomin.
Stjórnin.
Hjúkrunarfélag
íslands
heldur félasfund í fundarsal BSRB, Grettis-
götu 89, 4. hæö miövikudaginn 8. sept. kl.
20.30.
Fundarefni: Kynntir kjarasamningar.
Hjúkrunarfélag íslands.
JC Reykjavík
1. félagsfundur starfsársins veröur í kvöld 7.
september aö Hótel Loftleiöum, Kristalsal og
hefst kl. 19.30.
Gestur fundarins veröur Sig-
hvatur Björgvinsson, alþing-
ismaöur. Hann ræöir m.a. um
efnahagsráðstafanir, kosn-
ingar og stjórnmálamenn.
Hefjum starfsárið á kröftug-
um fundi.
Stjórnin.
Ford Pickup (F 150 Ranger xLt.)
diesel meö húsi árgerö ’79 til sölu. Drif á
öllum hjólum, veltistýri, breiö dekk (10x15).
Rauöbrúnn og gulur.
Upplýsingar í síma 66097.
Sendibíll
til sölu, Ford Econoline 250 týpa lengri gerö-
in, árg. 1979, buröargeta 1700 kg. Uppl. í s.
53466.
nauöungaruppboö
Nauðungaruppboð
annaö og síðasta á fasteigninni númer 6 viö
Merkigeröi (efri hæö) á Akranesi, þinglesin
eign Guðmundar Guðbjartssonar, fer fram
samkvæmt kröfu Jóns Magnússonar hdl. og
fl., á eigninni sjálfri, föstudaginn 10. sept.
1982, kl. 14.30.
Bæjarfógetinn á Akranesi,
6. sept. 1982,
Björgvin Bjarnason.
Haustferð Óðins
Mðlfundalélagið Óöinn efnir til ferðar laugardaginn 11. eeptember
nk. Ekið verður um Borgarnes upp Noröurárdal og yfir Grjótháls i
Þverárhliö. Hestháls og Geldingadraga til Reykjavíkur. Fariö veröur
frá Valhöll, Háaleitisbraut 1, kl. 09, áætlaöur komutími kl. 19.
Hádegisveröur veröur snæddur i Hreöarvatnsskála.
Farseölar eru seldir í Valhöll. Háaleitlsbraut 1, til föstudagskvölds á
skrifstofutíma Upplýsingasími í Valhöll: 82900.
Verö kr.: 200 (innifalinn hádegisveröur í Hreöarvatnsskála og lelö-
sögn. MálfundafélagiO Úóinn.
Landsmálafélagiö Vörður:
Efnahagsráðstafanir
ríkisstjórnarinnar og
stjórnmálaviðhorfið
Landsmálafélagiö Vöröur boöar til fund-
ar um efnahagsráöstafanir ríkisstjórnar-
innar og stjórnmálaviöhorfiö.
Framsögumaöur: Geir Hallgrímsson,
formaöur Sjálfstæöisflokksins.
Fundurinn veröur haldinn miövikudaginn
8. september kl. 20.30 í Valhöll. Háaleit-
isbrau' 1' Vöróur
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélganna í Reykjavík:
Kosning kjörnefndar
Fulltrúaráösmeölimir eru minntlr á kjörnefndarkosningu Fulltrúaráös-
ins vegna skipunar á framboöslista Sjálfstæöisflokksins viö næstu
alþingiskosningar.
Kosningu lýkur kl. 19.00 fimmtudaginn 9. september og skulu full-
trúar skila atkvæöaseöli sínum persónulega (samkvæmt ákvæöi i
reglugerö um kjörnefndarkosningu) i innsiglaöan kjörkassa á skrlfstofu
Fulltrúaráösins i Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Skrifstofa Fulltrúaráöslns er opin á venjulegum skrlfstofutíma.
Opiö veröur til kl. 19.00 fimmtudaginn 19. september.
Hamli veikindi fulltrúaráösmanni aö skila atkvæöaseöli sínum, per-
sónulega. er trúnaöarmanni kosningastjórnar helmilt aö sjá um aö
seöillinn veröi sóttur til viðkomandi Ber fulltrúum í slíku tilvlki aö hafa
samband vlö skrlfstofu Fulltrúaráöslns í Valhöll, Háaleitisbraut 1, síml
82963 og 32900. Stjórn Fulltróaráóslns.