Morgunblaðið - 26.10.1982, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1982
*
Akæra vegna kaupa á
togaranum Einari Ben.
RÍKISSAKSÓKNARI hefur gefið út ákæru á hendur tveimur mönnum vegna
kaupa á togaranum Einari Benediktssyni frá Tálknafirði. I'eir eru sakaðir
um að hafa í blekkingarskyni veitt rangar upplýsingar um eignaraðild að
tveimur skipum til þess að fá innflutningsleyfi fyrir brezkum togara og með
því brotið í bága við 147. grein hegningarlaganna.
Tálknafjörður:
Einar Benedikts-
son dreginn til
hafnar með
úrbrædda vél
Tálknafirði, 25. október
TOGARINN Einar Benediktsson
var dreginn til hafnar hér á Tálkna-
firði sl. fimmtudag með úrbrædda
vél af hinum nýja togara Grundfirð-
inga, Sigurfara, en Einar Bene-
diktsson var að veiðum hér fyrir
utan.
Olíuleiðslurör í vélinni fór, án
þess að viðvörunarkerfi gæfi frá
sér merki, þannig að olíuþrýsting-
ur datt niður.
Ennþá er ekki ljóst hvort hægt
verður að gera við vélina, eða
hvort kaupa þarf nýja vél í skipið.
Sérfræðingar frá Vélsmiðju
Tálknafjarðar eru um þessar
mundir að skoða hana.
— Fréttaritari
í nóvember 1981 sóttu mennirn-
ir um innflutningsleyfi fyrir
brezka togaranum Boston Sea-
sprite, og jafnframt um leyfi til
erlendrar lántöku vegna kaup-
anna. Þeir fengu innflutningsleyfi
og var togarinn skírður Einar
Benediktsson. í umsókn sinni full-
yrtu þeir, að vélbáturinn Fálkinn,
sem fórst undan Látrabjargi í
september 1981, hefði að hálfu
verið þeirra eign og einnig kváðust
þeir eiga Sæhrímni IS 100.
Rannsókn leiddi í ljós, að þeir
náðu aldrei eignarhaldi á Fálkan-
um og að eignarhald á Sæhrímni
var í því fólgið, að annar þeirra
var skrifaður fyrir 45% hluta-
bréfa. Sá böggull fylgdi þó
skammrifi, að Sæhrímnir hafði
verið seldur á nauðungaruppboði
þegar þeir sóttu um innflutnings-
leyfið.
Málið er höfðað fyrir Sakadómi
Reykjavíkur. Þess má geta, að
Siglingamálastofnun rikisins hef-
ur lagt fram kæru á hendur útgerð
skipsins fyrir að gera togarann út
eftir að haffærniskírteini rann út
1. júlí síðastliðinn.
Olympíuskákmótið:
14 Islendingar utan
vegna mótsblaðsins
Ólympíuskákmótið hefst um helg-
ina og munu íslendingar koma þar
mikið við sögu. Friðrik Ólafsson
verður í endurkjöri til forseta Al-
þjóða skáksambandsins, FIDE, og
tvær islenzkar skáksveitir munu
keppa, karla- og kvennalandsliðin.
Þá mun Jóhann Þórir Jónsson rit-
stýra mótsblaði Ólympíumótsins.
Hann hélt utan um helgina ásamt
ritstjórn blaðsins og hjálparliði —
alls fjórtán manns.
Með Jóhanni Þóri fóru eftirtald-
ir: Guðmundur Arnlaugsson, sem
gjörla þekkir sögu skáklistarinnar
og sögu Ólympíuskákmótanna,
kona hans Alda Snæhólm, túlkur.
Bragi Halldórsson og Áskell Örn
Kárason munu hafa það hlutverk
með höndum að velja og skýra
skákir, Birgir Sigurðsson, stofn-
andi tímaritsins Skákar, Torfi
Ásgeirsson, Illugi Jökulsson,
blaðamaður, dr. Jörundur Hilm-
arsson, túlkur, Ragnar Aðal-
steinsson, lögfræðingur, Sigurður
Gizurarson, sýslumaður, sem mun
verða Jóhanni innan handar og
setjararnir Inga María Sverris-
dóttir, Anna Sigurðardóttir og
Þórunn Bjarnadóttir.
Slapp fyrir horn
HARÐIJR árekstur varð á gatnamótum Laugavegar og Kringlumýrar-
brautar laust fyrir klukkan eitt á laugardag. Þar rákust saman af miklu
afli Toyota—pallbifreið, sem var ekið norður Kringlumýrarbraut og
hugðist ökumaður aka vestur Laugaveg, og Austin Mini, sem ekið var
suður Kringlumýrarbraut.
Austin Mini—bifreiðin gjöreyðilagðist og má telja mildi að ökumað-
urinn skuli ekki hafa stórslasast. Hann hlaut höfuðhögg og var fluttur í
slysadeild, en meiðsli hans munu ekki alvarleg.
Mynd Mbl. Július.
Ók í veg fyrir steypubíl
HARÐUR árekstur varð á gatnamótum Skeiöarvogs og Suðurlands-
brautar laust fyrir klukkan tvö í gær. Ökumaður VW Golf— bifreiðar
sinnti ekki stöðvunarskyldu á Skeiðarvoginum og ók í veg fyrir steypu-
bifreið, sem ekið var vestur Suðurlandsbraut. Fólksbifreiðin er ónýt
eftir áreksturinn. Ökumaðurinn var fluttur í slysadeild en meiðsli hans
munu ekki talin alvarleg.
Flugvél mikið
skemmd eftir
árekstur á Akur-
eyrarflugvelli
Akureyri, 23. október.
ÁREKSTUR tveggja flugvéla varð á
stæðinu framan við flugstöðina á Ak-
ureyrarflugvelli í morgun og hlutust
af verulegar skemmdir á annarri
flugvélinni.
Fokker Friendship, áætiunar-
flugvél Flugleiða var að koma frá
Reykjavík um klukkan 08.45 í morg-
un og var að aka inn á flugvallar-
stæðið, þegar hraðamælisinntak á
bakborðsvæng (nokkurs konar rör,
sem gengur fram úr vængendanum)
rakst í stél á Mitsubishi skrúfuþotu
Flugfélags Norðurlands, en hún stóð
ferðbúin á stæðinu.
Við áreksturinn kom gat á hlið-
arstýri Mitsubishi vélarinnar og það
beyglaðist mikið. Hins vegar mun
Fokkervélin ekkert hafa skemmzt.
Henni var flogið nokkrum sinnum
yfir Akureyri áður en hún tók far-
þega til Reykjavíkur og ennfremur
var hún í skoðun í Reykjavík fram
eftir degi, en er nú komin í notkun
aftur. Nokkur röskun varð á Akur-
eyrarflugi Flugleiða vegna óhapps-
ins.
Flugvirkjar Flugfélags Norður-
lands hafa verið að athuga hliðar-
stýri Mitsubishi vélarinnar í dag, en
ekki verður ljóst fyrr en í fyrsta lagi
á morgun, hvort unnt er að gera við
það hér. Ef það tekst verður aðeins
um nokkurra daga frátöf að ræða
með flugvélina, en ef ekki, verður að
fá varahluti frá útlöndum og þá
verður hún ónothæf um óákveðinn
tíma.
Mikið tjón er af rekstrarstöðvun
vélarinnar, m.a. verður að fella
niður tvær ferðir til útlanda sem
ákveðnar voru á næstu dögum, áætl-
unarferð til Færeyja fyrir Flugleiðir
og leiguferð til Grænlands. Vegna
vélarbilunar í annarri vél Flugfé-
lags Norðurlands er nothæfur flug-
vélakostur félagsins til áætlunar-
flugs í lágmarki næstu daga og
svigrúm til leiguflugs næsta lítið.
Snjóföl var á stæðinu þegar
óhappið varð, en engin hálka og
bjart yfir. Engar aðrar flugvélar en
þessar tvær, voru staddar þar.
- Sv.P.
Sparnaður þjóðarbúsins ekki
minni síðustu þrjá áratugi
'O
Hlutfall sparnaðar þjóðarbúsins af þjóöarframleiöslu
verður um 19% í ár, en hefur verið um 25% sl. áratug
VERULEGUR samdráttur hefur orðið í heildarsparnaði þjóðarbúsins sem
hlutfalli af þjóðarframleiðslu á síöustu tveimur árum og síðustu áætlanir
benda nú til þess, að sparnaðarhlutfallið á yfirstandandi ári verði innan
við 19%, en svo lágt hefur það ekki verið í yfir þrjá áratugi. Þessar
upplýsingar komu fram í ræðu, sem Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri,
hélt á ráðstefnu Stjórnunarfélags íslands um fjárfestingarkosti á íslandi.
hins vegar mjög skjótur, og var
sparnaðarhlutfallið komið í svip-
að horf og áður þegar á árinu
1969.
Á sjöunda áratugnum hélzt
sparnaðarhlutfallið enn að með-
altali rúmlega 25%, en sveiflur
urðu verulegar, einkum vegna
efnahagserfiðleikanna árin
1974—1975. Síðan hefur orðið
verulegur samdráttur á sparnaði
sl. tvö ár eins og áður sai/ði
INNLENT
Það kom fram í ræðu Jóhann-
esar Nordals, að á árunum
1945—1952 hafi meðalsparnaður
þjóðarbúsins aðeins verið um
Almennir stjórnmálafund-
ir í V-Barðastrandasýslu
Sjálfstæðisfélögin í V-Barða-
strandasýslu efna til almennra
stjórnmálafunda á fimm stöðum
í sýslunni í þessari viku. Fyrsti
fundurinn verður í félagsheimil-
inu á Patreksfirði á morgun, mið-
vikudag 27. október og hefst kl.
21 síðdegis. Á fimmtudag verður
fundur í Dunhaga Tálknafirði kl.
21. Laugardaginn 30. október
verða tveir fundir: að Birkimel í
Barðastrandarhreppi, sem hefst
kl. 14 miðdegis, og í Fagra-
hvammi Rauðasandshreppi, sem
hefst kl. 21 síðdegis.
Framsögumenn á öllum fund-
unum verða þingmennirnir
Matthías Bjarnason og Þorvald-
MaUhíu Bjarnuon
Þorvaldar Garter
KrÍHtjánmon
ur Garðar Kristjánsson. Síðan
verða fyrirspurnir og frjálsar
umræður um stjórnmálahorfur
og héraðsmál.
Fundirnir eru opnir öllu
heimafólki.
14,8% af þjóðarframleiðslu. Hins
vegar fór fjárfestingarhlutfallið
upp í 26%, þegar nýsköpunin stóð
sem hæst, en síðan lækkaði það
ört vegna fjárhagslegra þreng-
inga. Hefði samdráttur fjárfest-
ingar orðið mun meiri, ef
Marshall-áætlunin hefði ekki
komið til og tryggt fé til ýmissa
mikilvægra framkvæmda.
Á árunum 1953 og 1954 urðu
þáttaskil í efnahagsþróuninni,
bæði vegna vaxandi útflutnings-
tekna og tekna af varnarliðs-
framkvæmdum. Leiddi þetta
fljótlega til hækkandi sparnað-
arhlutfalls, sem komst í 24% að
meðaltali á síðari helmingi sjötta
áratugarins.
Þessi aukning innlends sparn-
aðar átti þó eftir að festast enn
betur í sessi, þegar kom fram á
sjöunda áratuginn, en þá reyndist
sparnaðarhlutfallið 25,6% af
þjóðarframleiðslu að meðaltali.
Mjög skipti þó í tvö horn í þessu
efni. Á velgengnisárunum
1961—1966 nam sparnaðarhlut-
fallið um 27%, en lækkaði síðan
niður í 22% á erfiðleikaárunum
1967—1968. Afturbatinn varð
Davíð Qddsson borgarstjóri:
Nauðsynlegt að taka á
málum miðbæjarins í heild
Tilbúinn að standa að uppbyggingu Grjóta-
þorps með íbúum, segir Albert Guðmundsson
„EIGENDUR húsa í Grjótaþorpi
eiga ekki að fara á hausinn fyrir það
eitt að vera eigendur húsa þar,“
sagöi Albert Guðmundsson, forseti
borgarstjórnar, á borgarstjórnar-
fundi á fimmtudagskvöld, en þá
voru rædd málefni Grjótaþorps.
Albert sagðist vera tilbúinn til
þess að standa að uppbyggingu
hverfisins með eigendum þess, en
hins vegar gagnrýndi hann kröfur
leigjenda í hverfinu um fram-
kvæmdir sem þeir sjálfir vildu
ekki taka þátt í. Albert sagði að
Grjótaþorpið væri ekkert einka-
mál þeirra sem þar byggju og
sagði að það skipti alla borgarbúa
máli.
Davíð Oddsson borgarstjóri
sagði við umræðurnar, að niður-
staða athugunar á bílastæða-
vandamáli miðbæjarins væri
væntanleg á næstu dögum, en
hugsanlegt bílageymsluhús bar á
góma í þessum umræðum. Sagði
Daéið að hafnarstjóra og borgar-
verkfræðingi hefði verið falið að
athuga möguleika á byggingu
bílastæðahúss og sú athugun væri
á lokastigi.
Varðandi Grjótaþorpið og upp-
byggingu þess sagði Davíð, að
nauðsynlegt væri að taka á málum
miðbæjarins í heild og sagði hann
að það ætti að gera af myndar-
skap. Varðandi vanda eigenda
húsa í Grjótaþorpi sagði Davíð, að
borgarsjóður væri hægt og bítandi
að éta upp eignir þeirra sem þar
ættu hús, þeir gætu ekki nýtt hús-
in sem skyldi en þyrftu að borga
hæstu gjöld.