Morgunblaðið - 26.10.1982, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1982
19
Armando Valladares á fréttamannafundi í París í g*r ásamt Mörtu konu sinni. AP-símamynd.
Var sveltur, er hann
hafnaði pólitískri
„endurhæfíngu“
l'arís, 25. október. AP.
EFTIR að mér var sleppt úr ein-
angrunarklefa, var mér leyft að
lesa, en arteins visst efni, þaö er
blöö kúbanskra stjórnvalda og
nokkrar „leyföar** bækur. Aðeins
örsjaldan tókst mér að komast yfir
erlent tímarit, sem þá var smyglað
til mín meö þvi aö fela þau inn á
milli kommúnistablaöanna, sem
mér voru ætluð. Þannig komst
kúbanska Ijóðskáldið Armando
Valladares m.a. að orði í dag við
franskt blað, er hann lýsti fangels-
isdvöl sinni í heimalandi sínu.
Valladares, sem er 44 ára
gamall, var fangelsaður á Kúbu
1960 og hefur æ síðan dvalizt þar
í fangelsi eða í 22 ár. Það var
ekki fyrr en í síðustu viku, sem
hann var látinn laus og þá fyrir
atbeina Francois Mitterrands
Frakklandsforseta. í fangelsinu
orti Valladares ljóðabók, sem
honum tókst að smygla út með
leynd. Bar hún nafnið „Úr hjóla-
stólnum", en vegna illrar með-
ferðar í fangelsinu lamaðist
hann á fótum um skeið.
í viðtali við blaðið Le Monde í
dag skýrði skáldið frá því,
hvernig fætur hans hefðu lam-
azt, eftir að hann og aðrir fangar
í fangelsinu neituðu að taka póli-
tískri „endurhæfingu", því að þá
var honum og öðrum neitað um
mat. Stóð svo í 66 daga, að hann
fékk ekki mat nema af mjög
skornum skammti og svo fór að
lokum, að hann lamaðist á fót-
um. Eftir það var farið með
hann á sjúkrahús í Havana til
læknismeðferðar. En skömmu
síðar voru fyrstu ljóð hans birt
og þá allri læknismeðferð hætt.
Læknismeðferð var hins vegar
tekin upp að nýju í ágúst 1980,
en þá hófust ýmis alþjóðleg sam-
tök, eins og Amnesty Inter-
national, handa um að fá hann
lausan úr fangelsi.
— Það var trú mín, sem gaf
mér styrk til þess að þola 22 ára
fangelsisvist, sagði Valladares
ennfremur. — Ég óttaðist aldrei
dauðann, vegna þess að ég var
með hreina samvizku og ég vissi,
að guð var með mér. Hann neit-
aði því sem alröngu, að hann
hefði hafnað boði kúbanskra
stjórnvalda 1979 um að láta
hann lausan og leyfa honum að
flytjast til Bandaríkjanna. í við-
tali við blaðið Le Matin í París í
dag sagði hann, að það væri sín
fyrsta ósk nú, að fram fari
hjónavígsla þeirra Mörtu. — Ég
hef alltaf reynt að lifa í sam-
ræmi við kristna trú, enda þótt
ég hafi ekki séð prest í 22 ár. Þá
kvaðst hann óska þess að fá að
lifa rólegu og eðlilegu lífi í fram-
tíðinni. — Líf mitt í framtíðinni
verður ekki notað til þess að
hagnast á þeim árum, sem ég var
í fangelsi.
í París dvelst Valladares
ásamt konu sinni á heimili
spánska leikritaskáldsins Fern-
ando Arrabal. Við komuna til
Parísar sl. föstudag var Valla-
dares fyrst fluttur á hersjúkra-
hús, þar sem hann gekkst undir
læknisskoðun. Var haft eftir
Arrabal í dag, að Valladares
væri haldinn nokkrum heyrnar-
og talerfiðleikum eftir fangelsis-
dvölina á Kúbu, en allar vonir
stæðu þó til þess, að Valladares
tækist að ná sér með réttri lækn-
ismeðferð.
Vaxandi óvissa um
framtíð Hong Kong
Hong Kong 25. október. AP.
ÍBÚAR bresku nýlendunnar Hong Kong hafa af þvi vaxandi áhyggjur að
Kína hafí hug á að sölsa nýlenduna undir sig. Bretar eru með Hong Kong „á
leigu“ til ársins 1997 og alllengi hefur ríkt óvissa og uggur mcöal ibúa Hong
Kong um hvað taka muni við eftir það.
Eftir heimsókn Margrétar
Thatcher til Peking í september og
viðræður hennar við kínverska
ráðamenn jókst uggur margra
Hong kong-búa, margir óttast
jafnvel að til kínverskrar yfirtöku
komi fljótlega. Eru margir fúsir
að pakka saman og flytjast á brott
ef þeir geta selt eigur sínar, en
undir þessum kringumstæðum er
ekki hlaupið að því.
Áður en Thatcher ræddi við
Kínverjana var almennt álitið í
Kína, að eftir 1997 myndi Hong
Kong áfram lúta brezkri vernd, en
með talsverðum breytingum þó.
Eftir fund Thatchers í Peking var
hins vegar frekar um það spurt
hvort Kínverjar myndu hreppa
Hong Kong fyrir 1997 eða eftir
þann tíma. Þá hefur einnig komið
fram sú tillaga að Kínverjar
hreppi Hong Kong, en stjórni eyj-
unni áfram með „kapítalískum"
hætti.
Til þess að róa Hong Kong-búa
gáfu Thatcher og kínversku ráða-
mennirnir út þá yfirlýsingu eftir
fundarhöldin, að það væri einlæg-
ur vilji beggja að Hong Kong fengi
að dafna eins og verið hefur. Vart
höfðu Hong Kong-búar tekið gleði
sína á ný við þessar yfirlýsingar
er ónefndur embættismaður í
Kína lýsti því yfir að Kínverjar
hefðu mikinn hug á að sölsa Hong
Kong undir sig og breytingar yrðu
þá miklar og stórar á daglegu lífi
þar.
Flestir þeirra Kínverja, sem búa
í Hong Kong, hafa engan áhuga á
því að flytjast til Kína og þar með
hafa þeir ekki áhuga á því að búa
áfram í Hong Kong ef Kínverjar
taka þar völdin. Vandamálið er í
því fólgið að þeir geta fátt farið,
því að flest vestræn ríki eiga við
verðbólgu og atvinnuleysi að
stríða og hafa þar af leiðandi hert
reglur um innflytjendur. Þeir eru
ekki margir Hong Kong-Kínverj-
arnir sem uppfylla þær kröfur er
lönd eins og Kanada, Bandaríkin
og Ástralía setja sem skilyrði.
Efnamenn geta fengið dvalarleyfi
og síðar ríkisborgararétt í löndum
eins og Dóminíkanska lýðveldinu,
efnamenn með hreint sakavottorð
eru velkomnir þangað, en Hong
Kong-búar eru sagðir lítt hrifnir
af Suður-Ameríku. Thailendingar
eru sagðir reiðubúnir að hafa á
móti hinum auðugu, en spurning
er hvað þeir verða lengi auðugir,
því óvissan um framtíðina hefur
haft í för með sér talsvert verðfall
á verðbréfamarkaðnum. Það gæti
aukist áður en langt um líður.
Þess vegna eru margir af auðkýf-
ingum Hong Kong nú þegar að
ráðgera landflótta.
Thatcher enn í
miklum
London, 25. október. AP.
ÍHALDSFLOKKUR Margaret
Thatcher forsætisráðherra hefur
10% meira fylgi en andstöðuflokkar
ríkisstjórnarinnar. þótt venjulega
séu ríkisstjórnir óvinsælar í Bret-
landi þegar líða tekur á kjörtímabil
þeirra.
Samkvæmt skoðanakönnun
Marplan í blaðinu The Guardian
styðja 44,5% kjósenda íhalds-
flokkinn, 34% Verkamannaflokk-
inn og 19% bandalag sósíaldemó-
krata og frjálslyndra. Samkvæmt
skoðanakönnun, sem The Observ-
er skýrði frá í gær, styðja 45%
íhaldsflokkinn, sem þar með hefur
13% meira fylgi en Verkamanna-
flokkurinn og 24% meira fylgi en
sósíaldemókratar og frjálslyndir.
Þegar meðbyr bandalags sósíal-
demókrata og frjálslyndra var
mestur í fyrravetur, naut það
stuðnings 44% kjósenda og það
hefði gert þeim kleift að mynda
ríkisstjórn. Almennt er búizt við
að frú Thatcher efni til þingkosn-
inga næsta haust. Fylgi hennar
var mest eftir Falklandseyjastríð-
ið í júní, þegar flokkur hennar
hafði 20% meira fylgi en Verka-
mannaflokkurinn.
Fimmtíu af hundraði telja frú
Thatcher „góðan" eða „mjög góð-
an“ forsætisráðherra og 66% telja
hana góðan flokksleiðtoga. Staða
Michael Foot er sem fyrr verri en
nokkurs annars leiðtoga Verka-
mannaflokksins eftir heimsstyrj-
öldina: aðeins 15% telja að hann
yrði góður forsætisráðherra og
helmingurinn telur að hann yrði
„slæmur" eða „mjög slæmur."
Skoðanakannanirnar spilla
stöðu stjórnarandstöðuflokkanna
fyrir tvennar aukakosningar, sem
Veður
víða um heim
Akureyri 0 léttskýjað
Amsterdam 13 heiðskirt
Aþena 24 heiðskírt
BrUssel 13 skýjað
Chicago 14 heiðskíil
Oyflinni 16 sólskin
Feneyjar 18 skýjað
Frankfurt 12 heiðskírt
Genf 10 rigning
Helsinki 11 skýjað
Hong Kong 24 skýjað
Jerúsalem 23 heiðskírt
Jóhannesarborg 25 heiðskírt
Kaupmannahöfn 11 skýjað
Las Palmas 23 téttskýjað
Lissabon 20 heiðskirt
London 15 skýjað
Los Angeles 27 heiðskirt
Madrid 17 heiðskirt
Malaga 20 heiðskirt
Matlorca 21 skýjað
Mexíkóborg 21 heiðskírt
Miami 24 skýjað
Moskva 7 skýjað
Nýja Delhí 33 heiðskírt
New York 11 skýjað
Osló 8 skýjaö
Paris 15 rigning
Perfh 17 heiðakírt
Rio de Janeiro 39 skýjað
Reykjavík 1 él
Rómaborg 19 rigning
San Francisco 18 rigning
Stokkhólmur 11 skýjað
Sydney 20 heiðskirt
Tel Aviv 26 heiðskfrt
Tókýó 17 heiðskirt
Vancouver 13 rigning
Vinarborg 17 heiðskírt
Þórshöfn 8 skýjað
meðbyr
fara fram á fimmtudaginn. Til
þess að öðlast aftur trú kjósenda
verða sósíaldemókratar að standa
sig vel í öruggu Verkamanna-
flokkskjördæmi, Peckham, í Suð-
ur-Lundúnum. Verkamannaflokk-
urinn vonast til að sigra íhalds-
flokkinn í Birmingham-kjördæm-
inu Northfield, þar sem frambjóð-
andi ihaldsmanna sigraði með litl-
um mun árið 1979.
Tugir
tróðust
undir
Moskvu, 25. október. AP.
TIJTTIJGU manns fórust og
margir slösuðust meira og
minna i miklum þrengslum sem
urðu á knattspyrnuleikvangi í
Moskvu. Sovézka knattspyrnu-
félagið Spartak Moskva lék
gegn hollcnzku liði og átti atvik-
ið sér stað er heimaliðið skoraði
mark á síðustu sekúndum leiks-
ins.
Fjöldi áhorfenda var á leið
út af leikvanginum er markið
var skorað og reyndu þá marg-
ir að hlaupa til baka til þess að
taka þátt í fagnaðarlátunum.
Mikil hálka var á pöllunum,
snjór og sex stiga frost, þannig
að áhorfendaskarinn bókstaf-
lega rann af stað og tróðust þá
margir undir.
Hollenzkir knattspyrnu-
ráðsmenn gagnrýndu vallar-
stjórnina á leikvanginum,
sögðu aðeins hafa verið selda
miða í eina áhorfendaálmu á
100.000 manna vellinum.
Áhorfendur voru um 15.000 og
var þeim öllum troðið á lítið
afmarkað svæði.
Sættir
kommún-
istaflokka
Peking, 25. október. AP.
KÍNVERSKU og frönsku kommúnista-
flokkarnir hafa nú sæst heilum sáttum
á ný, en þeir slitu sambandi árið 1965
er deilur Kína og Sovétríkjanna komu
upp á yfirborðið og franski Dokkurinn
Tylgdi Sovétmönnum að málum. 17.
þessa mánaðar hófu flokkarnir for-
mlega samband á ný með heimsókn
franska kommúnistaforingjans Georg-
es Marchais til flokksforingjans í l*ekj
ing, Deng Xiaoping.
Þeir áttu vinsamlegan fund og að
honum loknum höfðu fréttamenn
eftir Marchais: „Skoðanaskipti eiga
alls ekki að koma í veg fyrir góða
samvinnu á öðrum sviðum, við erum
bræður eftir sem áður.“ Deng gaf út
yfirlýsingar i sama dúr og bætti auk
þess við: „Við víkjum nú fyrri skoð-
anaágreining til hliðar, kommúnist-
ar allra landa ættu að gera það og
horfa fram á veginn." Þess má geta,
að skoðanaágreiningurinn er fólginn
í viðhorfum til Sovétríkjanna, Afg-
anistan og Viet nam.
Mörg kerti brunnu
Klsinorp, Dnnmörku, 25. október. AP.
ÞAÐ logaði bókstaflega á mörgum
kertum er ASP og Homhlad kerta-
gerðin danska varð alelda í gær og
brann til kaldra kola. Fjölmennt
slökkvilið glímdi við eldinn I sex
klukkustundir og tókst ekki að
slökkva hann fyrr en flest var brunnið
sem brunnið gat.
Hafði þá einn slökkviliðsmaður
látist við slökkvistörf. Varð hann
undir húsvegg er hrundi við spreng-
ingu. All margar slikar sprengingar
kváðu við meðan eldurinn logaði og
voru þær svo öflugar að rúður brotn-
uðu í íbúðarhverfum allt í kring.