Morgunblaðið - 26.10.1982, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1982
Hann er hættur eftir 18 ár
f valdastóli
ÞAÐ þóttu mikil tíöindi er Franz „keisari“ Beckenbauer
ákvað að snúa aftur til heimalands síns, Vestur-Þýska-
lands, til að leika knattspyrnu eftir að hafa leikið með
New York Cosmos um skeiö. Allflestir þeirra knatt-
spyrnumanna sem til Bandaríkjanna fara enda feril sinn
þar og lifa síðan huggulegu lífi á dollurunum sem þeir
báru þar úr býtum. En Franz vildi ekki enda sinn feril
þannig.
„Fólk heldur kannski að ég sé orðinn vitlaus,“ sagöi
Beckenbauer áður en hann hélt til liðs við Hamburger
SV, „en ég geri þetta vegna þess að ég verð að fá
eitthvaö nýtt að keppa að. Peningar skipta mig alls engu
máli — mér finnst ég veröa að sjá hvers ég er megnugur
nú.“
Hann lék í tvö ár meö Hamburg-
er og varö Þýskalandsmeistari
með þeim. En 1. júní á þessu ári
sagöi Beckenbauer bless og lauk
ferli sínum með leik gegn þýska
landsliöinu sem hann haföi unniö
svo marga glæsilega sigra meö í
gegnum árin.
Þýskur blaöamaöur sagöi viö
Beckenbauer áður en hann yfirgaf
Cosmos: „Ef ég væri í þínum spor-
um tæki ég ekki áhættuna á því að
ieika aftur i Þýskalandi. Ég léki eitt
ár enn i Bandaríkjunum og síöan
gæti ég lifaö góöu lífi á dollurunum
sem ég hefði þar upp úr krafsinu."
• Karl-H«inz Rummanigge, fyrir-
liöi landaliöaina, (aarir Becken-
bauer hér blómvönd fyrir kveöju-
leik „Keiaarans“, en sá leikur var
einmitt meö HSV gegn landsliö-
inu.
En eftir aö Beckenbauer lauk
ferli sínum meö HSV, sagöi þessi
sami blaöamaöur aö ekki færi á
milli mála aö Franz heföi gert rétt
aö snúa aftur til Þýskalands. Hann
segir: „Þaö geröi okkur kleift aö
fylgjast með list knattspyrnunnar
„á la Beckenbauer" í tvö ár í viö-
bót. Já, ég meina list vegna þess
aö í 18 ár hefur Franz spillt okkur
með sínum glæsilega knattspyrnu-
stíl. Hann virtist alltaf geta gert
réttan hlut á réttum tíma. Var þaö
eðlishvötin, ósjálfráö viöbrögö
hans eöa einfaldlega snilli sem
réöu þessu eöa kannski sambland
alls þessa? Viö
blaöamennirnir kölluöum
hann „keisara" vegna
þess aö stundum
fannst okkur hann
vera eins og
einvaldur í
knattspyrnunni sem engin
leiö var aö velta úr stóli.
Einn kollega minna skrifaöi einu
sinni um hann: „Stundum þegar
harka færist-í leikinn viröist hann
alls ekki eiga heima innan um hina
leikmennina, hann er eins og
herramaöur sem óvart hefur lent
slagsmálum á krá."
Alltaf eins
og herramaður
Já, hann haföi þann eiginleika
aö vera alltaf eins og herramaöur.
Ekki fór á milli mála aö kvenþjóö-
inni líkaöi þaö vel þar sem leikstíll
Beckenbauers laöaöi margar úr
þeirra rööum á völlinn. i rauninni
var þaö þetta sem aöskildi hann
frá öörum knattspyrnumönnum.
Hann veit aö sjálfsögöu aö hæfi-
leika sína hefur hann frá náttúr-
unnar hendi og segist hann geysi-
lega þakklátur fyrir þaö. „Ef ég
heföi fæöst nokkrum árum áöur
heföi ég kannski oröiö jafn vinsæll
^aöur't'*'
;Keoto®ue'
• Þessi mynd var tekin af Beckenbauer í HM-keppninni 1966 ( Enp-
landi. Þýska liöiö varó þá í öðru s»ti, tapaöi úrslitaleiknum fyrir
heimamönnum. Beckenbauer skoraöi 4 mörk í keppninni.
og ég er. Eg þakka Guöi innilega
fyrir þessa hæfileika."
A enga „vini“
Franz segist ekki eiga neina vini
í bókstaflegri merkingu þess orös.
Hann talar aöeins um „þægilega
kunningja" sem honum finnst gott
aö vera með. Fólk sem hann getur
reitt sig á og treyst.
Meðal þessara „þægilegu kunn-
ingja" eru kaupsýslumenn, læknar
og aö sjálfsögöu Robert Schwan,
sem veriö hefur framkvæmdastjóri
hans til fjölda ára, auk Alf Bente,
eins meölima Adidas-fjölskyldunn-
ar.
Þá hefur hann mjög gott og náiö
samband við syni sína þrjá og for-
eldra sína.
Svo tímabil Franz Beckenbau-
ers sem leikmanns er liöið. Viö
munum ekki sjá hann aftur á
knattspyrnuvellinum nema í sýn-
ingar- og góögeröarleikjum. En
þaö fer ekki á milli mála aö hann
mun halda nánum tengslum við
íþróttina. j sinu nýja starfi sem full-
trúi hjá Adidas mun hann ekki veröa
í miklum erfiöleikum meö þaö og
hann mun eflaust miöla sinni gíf-
urlegu reynslu og hæfileikum til
annarra. Máske á hann eftir aö
finna nýjan Beckenbauer á leiöinni
— þaö yröi næstum því of gott til
aö vera satt...
BECKENBAUER hefur leikiö
fleiri knattspyrnulandsleiki
fyrir hönd Vestur-Þýskalands
en nokkur annar, 103 talsins.
Sem landsliösmaöur varö
hann heimsmeistari (1974) og
einnig varö hann í ööru sæti í
HM (1966). Vestur-Þjóöverjar
uröu Evrópumeistarar er
hann lék í landsliöinu 1972,
og síðan í ööru sæti í sömu
keppni 1976.
Meö Bayern Múnchen varö
hann einu sinni heimsmeistari
félagsliöa, þrisvar sigraöi liöiö
í Evrópukeppni meistaraliöa,
einu sinni í Evrópukeppni bik-
arhafa, fjórum sinnum uröu
þeir Þýskalandsmeistarar og
tvisvar unnu þeir Þýska bikar-
inn.
Beckenbauer var tvisvar
kjörinn Knattspyrnumaöur
Evrópu og fjórum sinnum
hlaut hann sæmdarheitiö
Knattspyrnumaöur ársins í
Þýskalandi.
Er hann lék meö New York
Cosmos, varð hann þrlsvar
bandarískur meistarl og er
hann sneri aftur heim, varö
hann enn á ný Þýskalands-
meistari, aö þessu sinni meö
Hamburger Sportverein.