Morgunblaðið - 26.10.1982, Side 37

Morgunblaðið - 26.10.1982, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1982 45 Frá fyrsla fundi nýkjörinnar stjórnar INSÍ. Deilur í Iðnnemasambandi íslands: Hín hliðin á málinu SigríAur Helgadéttir, Kópavogi, skrifar 20. október: „Velvakandi. I Mbl. 20.10. sl. birtist viðtal við Gunnar Tryggvason vara- formann INSÍ. Mér finnst hann ekki segja rétt frá málum og langar til að fram komi eftirfar- andi atriði: Hann segir að þarna sé um að ræða hóp ungs fólks með það að markmiði að endurreisa iðn- nemahreyfinguna. Ég veit ekki betur, og sat ég þó alla fundi sambandsstjórnar INSÍ í vetur, en hún hafi starfað af fullum krafti og sambandsstjórnarmeð- limir unnið fullir áhuga að mál- um iðnnema. Ekki varð ég vör við að pólitík kæmi þar neitt við sögu, enda hefðu margir í sam- bandsstjórninni ekki sætt sig við það. Ég er hissa á að þessi maður skuli láta svona nokkuð frá sér fara. Hann er greinilega eitt- hvað ruglaður í tíma þegar hann fer að tala um það sem gerðist fyrir tveimur árum. Ástæðan fyrir því að stjórnarmenn drógu sig til baka var að þeir treystu sér ekki til að vinna með Haraldi Kristjánssyni sem formanni og kallar hann það ábyrgðarleysi. Er það ekki ábyrgðarleysi af Haraldi Kristjánssyni að rjúka upp og segja af sér eftir að úrslit lágu fyrir og þingið fór í upp- lausn? Tryggvi segir ennfremur að það hafi verið „vinsamleg til- mæli“ að sambandsstjórn yfir- gæfi húsnæðið fyrir kl. 12.00 á hádegi næsta dag. Ég veit ekki betur en stjórninni hafi verið settur sá eini kostur að vera komin út kl. 12.00 og taka starfs- manninn með sér, en hafa verra af ella. Ég er hissa á þessum mönnum að haga sér eins og þeir gera. Það er engu líkara en að þetta sé þeirra einkamál, en ekki sameig- inlegur hagur iðnnema. Það er ekki búið að slíta þingi og málin eins og þau eru í dag, óljós. Með því að haga sér svona koma þeir í veg fyrir að þing geti fram haldið því það fæst engin lausn á málum með þessu áframhaldi. Það mætti halda að þeir væru hræddir við að stuðningsmenn þeirra hefðu snúið við þeim baki. Og þessi firra að ætla að leita réttar síns fyrir dómstólum finnst mér alveg út í hött, því það er ekki búið að kjósa fulla stjórn; það er verk þingsins. Þessir menn ættu að sýna sóma sinn í að stuðla að því að þingið geti haldið áfram störfum og ef þeir fá sín mál á hreint eiga þeir þessi sæti með fullum rétti. Ég segi þetta því ég kalla það ekki að vera með sín mál á hreinu að skilja við þingið í upplausn. Það var greinilegt að fólk var farið að skoða hug sinn upp á nýtt enda kaus það að láta fresta þingi. Ég segi fyrir mig að ég treysti ekki svona mönnum fyrir mínum málum. Þeim væri nær að vinna að lausn sem allir sætta sig við fremur en að haga sér eins og píslarvottar. í þessu máli er um hag allra iðnnema að tefla og það er nauð- synlegt að við stöndum saman. Ég vona að þessar línur verði birtar, því að þetta er hin hliðin á málinu." Rjúpnaskyttur: Stelist ekki til að drepa fuglana mína Guðrún Kristín Magnúsdóttir skrifar: „Velvakandi. Hvað veiddirðu? Eina rjúpu og tvo bændur. Þessi brandari er ekkert fynd- inn. Það er ekki gott að þurfa að skríða um á jörð sinni á rjúpna- veiðitímanum til þess að vera ekki skotinn i misgripum fyrir jóla- steik. Það er ekki fallegt að horfa á óðar rjúpnaskyttur murka lífið úr fuglunum rétt fyrir utan húsið sitt, en þetta er því miður til. Rjúpnaskyttur athugið: í lögum um fuglaveiðar og fuglavernd nr. 33/1966 er skotveiði aðeins heimil á afréttum utan landareigna lög- býla og á löndum lögbýla með leyfi landeigenda. Virðið þetta og stel- ist ekki til að drepa fuglana mína. Ég vil láta þá lifa." GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Hann sagði að horfur séu góðar. Oftast færi betur: Hann sagði að horfur væru góðar. Hins vegar: Hann segir að horfur séu góðar. nyy ILJI Bláskógar ÁRMÚLI 8 SÍMi: 86080 Forstofukommóöur meö speglum Viöartegundir: eik, mahóný og fura. yfk 20 geröir. Kommóöur úr furu Litir: fura, brúnbæsaö. Ýmsar stæröir. Eldhúsgögn úr birki Litir: brúnbæsaö og ólitaö G()óan daginn!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.