Morgunblaðið - 06.11.1982, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1982
__________________________________X______
Ellert B. Schram:
Hef ekki tekið
ákvörðun enn
„í:U ■ IKF ekki tekiö ákvöróun um
þaö ennþá,“ sagði Kllert B. Schram,
ritstjnri I)V og fyrrum alþingismaður
í samtali vió Morgunblaóió, en hann
var spuróur hvort hann myndi taka
þátt í prófkjöri Sjálfstæöisflokksins
fyrir na'stu alþingiskosningar, en
prófkjörió fer fram í lok þessa mán-
-------------V-----------------------
aóar.
„Ég tel mit; þurfa að líta á ýmsa
hluti áður en svona stór ákvörðun
verður tekin. Ék hef meðal annars
talið mig þurfa að sannfærast um
það hvort ég hafi einhvern stuðn-
intí í þetta framboð. Þess vegna er
éu í biðstöðu," saf<ði Ellert.
Fréttastofa Ríkisútvarpsins:
Telur ekki þörf
á ráðningu þriðja
fréttamannsins!
KRÉTTASTOFA Rikisútvarpsins
hefur tilkynnt útvarpsráói, aó vió
könnun á mannaflaþörf á fréttastof-
unni, hafi komió í Ijós aó ekki sc
talin þörf á fleira fólki til starfa en
þar er nú. Kyrir skömmu var Gunnar
K. Kvaran ráöinn í fasta stöðu frétta-
manns við útvarpió, og voru þá laus-
ar þrjár stöóur lausráðinna frétta-
manna. Allmargar umsóknir bárust,
og mælti fréttastofan meö þvi aö
ráóin yróu þau Kinar Sigurðsson,
Katrín l’álsdóttir og Stefán Jóh.
Stefánsson. útvarpsráð mælti á hinn
bóginn með því aó ráóin yrðu þau
Kinar Sigurösson, Katrín l’álsdóttir
og Atli Steinarsson. Kékk Kinar 7
atkvæói í útvarpsráói, Katrín einnig
7, Atli 4 atkvæói, en Stefán Jóh. 3.
Skömmu síðar var gengið frá
lausráðninKU þeirra Katrínar og
Einars, og hóf Katrín störf, en
Einar hélt áfram vinnu sinni á
fréttastofunni, þar sem hann
hafði unnið í sumar. Ekkert frétt-
ist á hinn bóginn af þriðju stöð-
unni, uns fyrirspurn um hana var
löjíð fram í útvarpsráði. Kom þá í
Ijós, sem áður sagði, að fréttastof-
an teldi ekki þörf á að ráðið yrði í
þá stöðu. — Fjármálastjóri út-
varpsins sagði einnig á útvarps-
ráðsfundi, að hann vissi ekki betur
en Stefán Jóh. Stefánsson myndi
hætta 1. desember næstkomandi,
er ráöningartímr hans rynni út.
Mál þetta varð tilefni allnokk-
urra umræðna á útvarpsráðs-
fundi. Kom fram í máli sumra út-
varpsráðsmanna, að furðu gegndi
að fréttastofan skyldi gefa yfirlýs-
injíp sem þessa, þar sem hún hefði
árum saman barist fyrir fjölgun
fréttamanna við Ríkisútvarpið. —
Nú síðast hefði það verið áréttað
við breytta tilhögun á kvöldfrétta-
tímanum. Ræddu nokkrir út-
varpsráðsmanna um, að óþolandi
væri að fréttastofan eða stjórn
hennar, neitaði skyndilega að ráða
til starfa það fólk er útvarpsráð
hefði mælt með, eingöngu vegna
þess að ekki hefði verið ráðið það
fólk sem í uppáhaldi væri á frétta-
stofunni.
Flokksþing Alþýðuflokksins:
Forystumenn flokks-
ins verða kosnir í dag
Nemendur úr Menntaskólanum í Reykjavík lögóu i gær upp í sólarhrings róóur á Tjörninni í Reykjavík, en
tilgangurinn meö þessu uppátæki er að vekja athygli á happdrætti ólympíuncfndar. Auk þess láta mennt-
skælingar inntekt af áhcitum, sem safnað var í sambandi viö róðurinn, renna í sjóó til styrktar væntanlegum
þátttakendum Islands í ólympíuleikjunum 1984. MorcunhlaðiA óiafur k. Magnússon
Róiö fyrir ólympíunefndina
Er leyniákvæði í frum-
varpi um lengingu orlofs?
---vnrpiö uinjéngingu orlofs lagt fram:_
Nauðsynleg leiðrétting
i Almennt verkafólk hefur tú þessa haft styttra orlof
en aðrir, sagði Guðmundur J
Fyrirsögn á forsíöufrétt Þjóðviljans 4. nóvember. í frumvarpinu um lengingu
orlofs felst ekki „nauðsynleg leiörétting“ vegna styttra orlofs almenns
verkafólks.
í UMRÆÐIJM á Alþingi miöviku-
daginn 3. nóvember um frumvarp
ríkisstjórnarinnar um lengingu
orlofs, kom það fram í ræðu Guó-
mundar J. Guömundssonar, þing-
manns Alþýðubandalagsins og for-
manns Verkamannasambands Is-
lands og Dagsbrúnar, aö meö frum-
varpinu væri verið aó samræma
icngd orlofs hjá almennu verkafólki
og öðrum er njóta lengra orlofs en
þaó. Slær Þjóóviljinn þcssu upp á
forsiðu á fimmtudag.
í bréfi, sem Vinnuveitendasam-
band íslands afhenti Svavari
Gestssyni félagsmálaráðherra 20.
október segir meðal annars, þegar
rætt er um efnisatriði orlofs-
frumvarpsins, sem ráðherrann
flutti á Alþingi:
„Athygli vekur, að áform
stjórnvalda beinast ekki að því, að
jafna orlofsrétt launþega, því
samkvæmt yfirlýsingu ríkis-
stjórnarinnar mun hún stefna að
fjögurra til fimm daga orlofsleng-
ingu til handa öllum. Gildir þar
einu hvort orlofsrétturinn er 24
eða 30 dagar."
í greinargerð með frumvarpi fé-
lagsmálaráðherra er þess ekki
getið, að með því sé verið að sam-
ræma lengd orlofs. Þar segir
hinsvegar: „Meginbreytingin frá
gildandi lögum er sú, að í 1. gr.
frumvarpsins er kveðið á um að
laugardagar teljist ekki orlofsdag-
ar, fremur en sunnudagar og aðrir
helgidagar."
«
Raðsmíðaverkefnið:
Framleiðendum og kaupendum
heimilt að taka 20% vörukaupalán
41. KLOKKSÞING Alþýöunokksins
var sett í húsi íslenzku óperunnar í
gær. Þingió stendur yfir þar til ann-
aó kvöld. í dag fara fram kosningar
formanns, varaformanns og annarra
forystumanna flokksins. Kjörorö
þingsins er frelsi, friður, framtíð.
Við þingsetninguna í gær sem
hófst kl. 17 flutti Kjartan Jó-
hannsson ávarp, þá voru
.dagskráratriði í umsjón ungs
fólks. Þinginu var framhaldið á
Hótel Loftleiðum kl. 21 og fór þá
fram kosning embættismanna,
auk þess voru fluttar skýrslur.
gerð grein fyrir reikningum o.fl.
Forseti þingsins var kjörin Rann-
veig Guðmundsdóttir, Kópavogi,
varaforsetar: Stefán Matthíasson,
Akureyri, og Ragna Bergmann,
Reykjavík.
I dag verða almennar umræður
og starfshópar fja.Ha um afmörk-
uð málefni. Síðdegis fara fram
kosningar, en í þeim býður Vil-
mundur Gylfason alþingismaður
sig fram sem varaformann á móti
Magnúsi H. Magnússyni alþing-
ismanni, sem nú er núverandi
varaformaður.
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á
fundi sínum 4. nóvember sl. aö
heimila þeint aöilum, er smiöa og
kaupa skip samkvæmt raösmíöa-
verkefninu, aö taka erlent
vörukaupalán, sem nemur 20% af
smiöaverði hvers skips. Vörukaupa-
lánin til raðsmiði fiskiskipa eru tek-
in hjá Norska útflutningslánasjóðn-
um og eru með 8,75% vöxtum.
Ennfremur verður hægt að nota
þessi lán vegna fjármögnunar á
meiriháttar viðgerðum innan-
lands, að því tilskyldu að efni og
tæki séu keypt frá Noregi. Þá
samþykkti Seðlabankinn í lok ág-
úst sl., að innlendar skipasmíða-
stöðvar fengju framleiðslulán
vegna nýbygginga og meiri háttar
viðgerða.
Þessar ráðstafanir gera það að
verkum, að fjármagnskostnaður á
smíðatíma fiskiskipa lækkar tölu-
vert.
Á seinasta Alþingi voru sam-
þykkt lög er heimila ríkisábyrgð á
smíði fjögurra skipa hverju sinni
samkvæmt raðsmíðaáætluninni á
árunum 1982—1985, án kaupenda,
allt að 80% af smíðaverði skips.
Ríkisábyrgðarheimildin nær til
smíði tveggja skipa hverju sinni
hjá Slippstöðinni hf. á Akureyri,
eins hjá Þorgeir og Ellert hf. á
Akranesi og eins hjá Stálvík hf. í
Garðabæ.
Fjármögnun við nýsmíði rað-
smíðaðra fiskiskipa verður þá
þannig, að Fiskveiðasjóður mun
lána 60% af smíðaverði, lán
Norska útflutningslánasjóðsins
verður 20%, lán úr Byggðasjóði
væntanlega 5%, og eigið framlag
kaupenda 15%. Lán úr Byggða-
sjóði og Fiskveiðasjóði eru háð
samþykki viðkomandi sjóðstjórna.
Forkastanlegur þjóftiaður
— segir Karl Steinar Guðnason varafor-
maður Verkamannasambands íslands
um verðbótaskerðinguna 1. desember nk.
„ÁKVÖRÐUN ríkisstjórnarinnar
um að skerða vrðbætur um helm-
ing nú rétt fyrir jólin er auðvitað
forkastanlej. Þetta þýðir, að þeir
hnupla 9'í úr launaumslögum
verkafólks. Þessi aðgerð, þessi
þjófnaöur, kemur til framkvæmda
1. desember nastkomandi og þá
fer fólk að finna fyrir því hve mik-
ið er um að ræða. Ofan á þetta eru
allar vörur ha'kkaðar hrikalega,"
sagði Karl Steinar Guðnason, vara-
formaður V erkamannasambands
íslands, er Mbl. leitaði álits hans á
væntanlegri vísitöluskerðingu I.
desember nk.
Karl Steinar sagði einnig:
„Þetta er ekki eina skerðingin á
undanförnum árum. í samtals 14
skipti hefur þessi ríkisstjórn
skert verðbætur, bæði með
beinni skerðingu og svo Ólafs-
lögum, sem til dæmis Alþýðu-
bandalagið heldur fast í, enda
samþykktu þeir þau lög á sínum
tíma. í orði hafa þeir sagst vera
andvígir þeim. Þeir hafa haft
þrjú ár til að afnema þau, en
ekki viljað. Eina úrræðið sem
þessir herrar hafa er að ráðast á
lífskjör launafólks, ekkert hafa
þeir annað lagt til málanna.
Þeir tala nú um lengingu
orlofs samhliða þessi kjararáni
en undanfarin þrjú ár höfum við
Alþýðuflokksmenn flutt tillögu
um það mál á Alþingi. í öll skipt-
in hafa þessir herrar verið á
móti orlofslengingu. Launþegar
vilja ekki kaupa sjálfsagðar rétt-
arbætur með kjararáni."
Karl Steinar sagði í lokin:
„Annars hef ég þungar áhyggjur
af framtíðinni. Verkalýðshreyf-
ingin er niðurlægð af ríkisvald-
inu í hvert sinn eftir að samn-
ingar eru gerðir. Það sem samið
er um er hrifsað aftur og meira
til. Þetta er blekkingarleikur
sem verkalýðshreyfingin mun
ekki una lengur. Á sínum tíma
við sömu aðstæður var blásið til
útflutningsbanns. Við Suður-
nesjamenn neituðum að taka
þátt í því, við töldum það póli-
tíska aðgerð. Ég tel að hefði
verkalýðshreyfingin ekki oft á
tíðum hagað sér eins og pólitísk-
ur vindhani, væri staða hennar
til áhrifa og mótunar betri efna-
hagsstefnu sterkari í dag.“