Morgunblaðið - 06.11.1982, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 06.11.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1982 Ljóðaþýðingar eftir Poul P.M. Pedersen: Strejftog i Islands poesi gennem vort sekel Morgunhlaðinu hcfur borizt bókin Strcjftog i Islands pocsi gcnnem vort sekel, Ijóóaþýðingar eftir danska rithöfundinn Poul P. M. Pedcrsen, en hann hefur unnið ötullega að því árum saman að kynna islcnzka samtímaljóðagerð og hefur sent frá sér allmargar bækur. Bókin er gefin út á Forlagi Poul Kristensens. í kynningu útgefenda segir að Poul P. M. Pedersen hafi með þýðingum sínum kynnt helztu ljóðahöf- unda samtímans dönskum les- endum, enda hafi hann yfir- gripsmikla þekkingu á íslenzkri ljóðagerð. Bókin er 312 bls. að stærð og birtast í henni ljóð eft- ir eftirtalda höfunda: Davíð Stefánsson, Jón Helgason, Jó- hannessen, Hannes Pétursson, Ingimar Erl. Sigurðsson, Þuríði Guðmundsdóttur, Nínu Björk Árnadóttur, Vilmund Gylfason, Þóru Jónsdóttur og Elísabet Þorgeirsdóttur. Á kápu er grafíkmynd frá Þingvöllum eftir Hjorth Niel- sen, prófessor. Þýðandi tileinkar bókina Sigurði Bjarnasyni, fyrrverandi sendiherra í Dan- mörku, og konu hans, Ólöfu Pálsdóttur, myndhöggvara. Sýnir og sálfarir bók Guðmundar Jörundssonar komin út Guðmundur Jörundsson Skuggsjá hefur gefið út bókina „Guðmundur Jörundsson, Sýnir og sálfarir", þar sem Guðmundur, far- sæll skipstjóri og landsfrægur út- gerðarmaður, segir frá sérstæðum þætti ævi sinnar og hvernig draum- maður hans lciddi hann á fcngsæl mið og til bjargar mönnum i sjávar- háska. Bókin er 152 blaðsíður. Á bókarkápu segir m.a. um Guðmund Jörundsson: „Guðmundur er alinn upp í Hrísey, þar sem Jörundur hákarlaformaður, afi hans, stund- aði sjóinn og síðar Jörundur faðir Seltjarnarnes: „Alheimsskjáru BBC næst innan þriggja ára Poul P. M. Pedersen hannes úr Kötlum, Einar Ól. Sveinsson, Tómas Guðmunds- son, Kristmann Guðmundsson, Þórodd Guðmundsson, Guð- mund Böðvarsson, Þorgeir Sveinbjarnarson, Snorra Hjart- arson, Stein Steinarr, Grétu Sigfúsdóttur, Jón úr Vör, Ólaf Jóhann Sigurðsson, Stefán Hörð Grímsson, Unni Eiríksdóttur, Hannes Sigfússon, Helga Sæm- undsson, Sigurð A. Magnússon, Sigfús Daðason, Matthías Jo- „INNAN þriggja ára munu íbúar Seltjarnarness og raunar aðrir á höfuðborgarsvæðinu eiga þess kost að virða fyrir sér úrval sjón- varpsefnis frá brezku sjón- varpsstöðvunum BBC 1, BBC 2 og jafnvel ITV. Og efnið, sem boðið verður upp á, verður ekki af verri endanum. BBC mun bjóða upp á úrvalsefni víðsvegar að úr veröld- inni. — Window on the World — Alheimsskjárinn — mun þessi dagskrá verða kölluð, sem öllum gefst kostur á að skoða, hafi þeir fullnægjandi móttökubúnað fyrir þessa beinu sjónvarpsútsendingu BBC, sem fara mun um gerfi- hnött,“ segir meðal annars í blað- inu Seltirningi fyrir skömmu. I blaðinu segir meðal annars ennfremur: Eins og kunnugt er af fréttum hefur nefnd á vegum bæjarstjórnar Seltjarnarness kannað þessi mál að undan- förnu og hefur henni nú borizt bréf frá verkfræðingum BBC. Þar kemur fram, að móttaka sjónvarpsefnis frá BBC hér á landi er mun auðveldari en bú- izt hafði verið við og að 3,7 metra skermur nægir til mót- tökunnar og að kostnaður við hann nemi aðeins tugum þús- unda. Auk áðurnefndrar dagskrár verður mönnum einnig kleift að gerast áskrifendur að sérstakri kvikmyndarás, þar sem einnig verða sýndir hljómleikar, óper- ur, leikrit, íþróttir og fleira. hans, sem einnig var kunnur sjó- maður og útgerðarmaður. Guð- mundi kippir því í kynið, sjórinn varð einnig hans starfsvettvang- ur. Hann var athafnasamur og farsæll skipstjóri og í forustusveit islenzkra útvegsmanna um nýja tækni og framfarir í sjávarútvegi. Flestar frásagnir Guðmundaur í þessari bók tengjast sjónum og störfum hans þar. Frá móður- ömmu sinni, Kristínu Antonsdótt- ur, hlaut hann í arf dulargáfur, sem markað hafa líf hans og mót- að á margan hátt. Hann átti sér draumamann, sem vitjaði hans fyrst 17 ára gamals og hefur fylgt honum æ síðan. Þessi drauma- maður hans hefur um margt haft áhrif á líf hans, vísað honum á fengsæl mið og skip í sjávarháska, veitt honum þá lífsfyllingu og fögnuð, sem því er samfara að bjarga lífi nauðstaddra sjómanna. Allar frásagnir, sem birtast í bókinni, skrásetti Guðmundur meðan þær voru ferskar í minni hans og eru þær því nákvæmlega tímasettar. Með bók þessari vill hann gefa lesandanum hlutdeild í dularfullum og raunar óskiljan- legum atburðum ævi sinnar. Og við draumamann sinn á hann án efa eftir að ræða mikið í góðu tómi á frívaktinni á næsta tilverustigi." Átök og einstaklingar -ný skáldsaga eftir Stefán Júlíusson Komin er út ný skáldsaga eftir Stefán Júlíusson. Nefnist hún Átök og einstaklingar en undirtitill er Skáldsaga úr bænum. Fyrir tveimur árum kom út eftir Stefán skáldsagan Stríðandi öfl. í Átök og cinstakl- ingar er sagt frá sömu persónum og i Stríðandi öflum en þó er þetta sjálfstæð saga. Á bókarkápu segir um bókina: „Þetta er í raun saga þriggja fjölskyldna og um leið saga tveggja eða þriggja kynslóða. Sögumaðurinn rifjar upp atburði frá kreppuárunum og styrjaldar- árunum en jafnframt litur hann til átta á líðandi stund. Hann rek- ur átök og árekstra í bænum sem tengjast landsviðburðum, pólitísk- um vendingum og ástandi í þjóð- félaginu. Burðarás sögunnar er þó lífshlaup aðalpersónanna, viðhorf þeirra til vandamála, ástir þeirra, gleði og sorgir. Þótt sagan gerist að mestu leyti í bænum víkur henni þó vítt og breitt í einstökum atriðum, til Reykjavíkur, Kaup- mannahafnar og vestur um haf.“ Átök og einstaklingar er 208 blaðsíður, unnin í Prentsmiðju Hafnarfjarðar. Útgefandi er Bókaútgáfan Björk. Stefán Júlíusson HtBMUPACUH Jt, SEFTEMBER 19*2 i w_y jnun meðalverð þeirra um 33 krónur Neytendasamtökin gera könnun a gæöum hamborgara: SVARTA PANNAN MEÐ I BESTU HAMBORGARANA Ij — Allt upp í 90% munur á verði (meðalverð á 100 grömmum af kjöti því kröna). Meðalsamsetning reyndist ••tn, 28% hvfta, 14% fita og r "m 1,5% matarsalt. JBfl *ðku kvarðann á það hvað neytendur fá fyrir ýmsum ástæðum og þá ekki eingöngu ! peningana. Hsesta verð var 86 kr. fyrir vegna þess að hráefni vsert mismunandi. 100 gr. af kjöti en lægsta verð 45 kr. fyrir Saltinnihaldið var heldur ekki rei* 1' 100 grömmin, sem er um W' munur, sem fyrr segir. Sör n> —.„„r 4 - ••inlriinniim Þaö gleöur okkur aö fólk er ánægt með ham borgarana okkar, en allir vita aö KJÚKLINGAR eru sérgrein okkar, nammi, namm. Verið velkomin — Við reynum betur! Hraðrétta veitingastaður í hjarta borgarinnar áhomi Tryggvagötu og Pósthússtrætis Sími 16480

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.