Morgunblaðið - 15.02.1983, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1983
45
Ógnvekjandi
stjórnleysi
Magnús Guðmundsson, Pat-
reksfirði, skrifar:
„Velvakandi.
Aldrei í sögu íslendinga hefur
verið við eins mikinn og ógnvekj-
andi efnahagsvanda að glíma og
núna undir forystu núverandi
ríkisstjórnar.
í stað þess að vinna að þýð-
ingarmestu málefnum þjóðar-
innar til efnahagslegra úrbóta,
svo landið verði ekki boðið upp,
berjast nú forráðamenn okkar og
þingmenn við það að auka við
efnahagsvandann með því að
fjölga þingmönnum.
Það væri betra fyrir okkur ís-
lendinga að hafa 30 þingmenn,
sem hefðu vit og stjórnunarhæfi-
leika, heldur en 90 þingmenn sem
hefðu hvorugt til að bera.
Ég sé ekki betur en ef þessu
stjórnleysi linnir ekki, muni
þjóðin innan skamms glata
sjálfstæði sínu. Hún getur ekki
endalaust látið draga sig á asna-
eyrunum.
Til rökstuðnings ógnvekjandi
stjórnleysi forráðamanna okkar
vil ég benda á eftirfarandi: Er
nokkurt vit í því að íslendingar
láti olíufursta blómgast hér á
landi á kostnað aðalatvinnuvegs
landsmanna, sjávarútvegsins?
t Morgunblaðinu 20. janúar sl.
lýsir Ragnar Júlíusson, formaður
útgerðarráðs BÚR, því yfir að
halli á BÚR verði 100 milljónir
króna árin 1982 og 1983. Væri
ekki vitlegra að LIÚ flytti inn
sína eigin olíu fyrir fiskiskipa-
flotann, í stað þess að þjóðin
komi hér upp olíufurstum sem
hafa og eru að sliga sjávarútveg-
inn. Á sama tíma og olía lækkar
stöðugt í verði á heimsmarkaðin-
um, þá hækkar hún hjá íslensk-
um olíufurstum. Ég skora á LÍÚ
og alla sjómenn að leggja flotan-
um ef oíian verður ekki lækkuð
strax, eða útgerðarmenn panti
strax olíufarm frá Rotterdam,
enda afla sjómenn gjaldeyrisins.
Sú olía myndi ekki hækka
sjálfkrafa í tönkunum eftir að
hún er komin hingað, eins og ger-
ist hjá olíufurstum íslendinga.
I öðru lagi: Er nokkurt vit í því
eins og er í flestum sjávarþorp-
um, að þrír olíubílar dundi við
það að dæla olíu í fiskiskipin í
stað þess að þau leggist við olíu-
leiðslu frá olíutanki LÍÚ.
Allir hugsandi menn hljóta að
sjá hvers konar brjálæði hér er á
ferðinni og tími til kominn að
linni. Margt fleira er ógnvekj-
andi í stjórnleysinu ef að er gáð,
en ég læt hér staðar numið að
sinni."
Sveinn Einarsson veiðistjóri
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja: — Vegna fyrirspurnar sem
kom í Velvakanda laugardaginn 5.
febrúar sl. vil ég taka fram eftir-
farandi: L.S. segist vita til þess að
tófur hafi verið eltar uppi á
snjósleðum og skotnar, og spyr,
hvort þetta sé leyfilegt.
Rétt er, að refir hafa verið eltir
uppi á snjósleðum á nokkrum
stöðum á landinu, en er þó algeng-
ast á Norðausturlandi. Suma vet-
ur eru slíkar veiðar ekki fram-
Fækkun þing-
manna krafa
almennings
D.K. skrifar:
„Velvakandi.
Fækkun þingmanna er ósk og
krafa almennings í umræðum um
kjördæmamálið. Það eru bara
þingmenn, sem vilja fjölga í stétt-
inni; þeir reikna og reikna, hvern-
ig hægt sé að breyta kosningalög-
um til að þeirra flokkur vinni
þingsæti miðað við síðustu kosn-
ingar. Þeir hafa ekki hugmynd
um, hvað næstu kosningar með
klofningsframboðum í flestum
flokkum bera í skauti sér. Fækkun
þingmanna um einn í hverju kjör-
dæmi og fjölgun uppbótarþing-
manna um þrjá er líka leið til að
jafna atkvæðisrétt manna.
Einnig má minna á kröfuna um
valfrelsi á frambjóðendum á kjör-
stað. Burtu með prófkjör og leið-
indin, sem þeim fylgja.
Sjálfstæðismenn þurfa að
standa saman í næstu kosningum.
Það hlýtur að koma í þeirra hlut
sem stærsta stjórnmálaaflsins að
eiga þátt í næstu ríkisstjórn.
Hættum sundrungsstarfsemi og
horfum fram á við. Morgunblaðið,
aðalmálgagn okkar sjálfstæð-
ismanna, þarf að ganga á undan
og láta af skrifum eins og þeim, að
Friðjón Þórðarson hafi aðeins
fengið 54% greiddra atkv. í 1. sæti
í prófkjöri á Vesturlandi. Hvað
fékk Eggert Haukdal mörg at-
kvæði í 1. sæti og hljóp hann þó úr
röðum stuðningsmanna núv.
stjórnar? Hvað fékk formaður
flokksins mikinn stuðning? Frið-
jón hefur ekki unnið þjóðinni
minna gagn en þeir, sem nú eru í
andstöðu við stjórn Gunnars
Thoroddsens.
Gæti Morgunblaðið ekki birt í
heild tiliögur að breytingum á
stjórnarskránni, lesendum til
glöggvunar? Þættir dr. Gunnars
G. Schram eru ágætir, en ekki
tæmandi."
kvæmanlegar vegna snjóleysis, og
reyndar aldrei í fjalllendi og á
sumum hraunasvæðum.
Verðlaun fyrir unnin dýr greiðir
viðkomandi bæjar- og sveitarfé-
lag. Hafa verðlaun fyrir dýr unnin
frá snjósleðum aldrei mér vitan-
lega verið hærri en dýra unninna
við æti.
Mjög eru skiptar skoðanir
manna á þessum snjósleðaveiðum,
en enginn dómur verður lagður á
það hér frá minni hendi.
GÆTUM TUNGUNNAR
Einhver sagði: Þetta eru atriði, sem mönnum hljóta að hafa
yfirsést.
Rétt vaeri: Þetta eru atriði, sem mönnum hlýtur að hafa yfir
sést (eða sést yfir).
Skiptar skodanir á
snjósleðaveidum
Prófkjör Sjálfstæöisflokksins
í Reykjaneskjördæmi 26.—27. febrúar 1983
Stuðningsmenn
Ólafs G. Einarssonar
hafa opnað skrifstofu aö Skeiðarási 3,
Garðabæ (húsi Rafboða hf.).
Skrifstofan veröur opin kl. 17—22
virka daga og kl. 13—19 um helgar.
Sími54555
Viltu auka afl þitt!
í Jakabóli viö gömlu Þvottalaugarnar hefst byrjendanámskeið
fyrir þá sem vilja leggja fyrir sig hinar ýmsu greinar kraftíþrótta
og hefst það í kvöld kl. 20.00. Færustu kraftamenn okkar
annast leiöbeiningar. Staöurinn tryggir aö menn veröi aönjót-
andi bestu leiöbeininga til aö auka afl.
Uppl. í síma 81286. Gjald kr. 400.-
EINSTÖK GÆÐI
* Stór hitaplata meö
teflonhúö (ekki dúkur).
* Hitastillir.
* Hitahnífur (ekki vír).
HAGSTÆTT VERÐ
NmliM lif
i BÍLDSHÖFÐA 10 SÍMI 82655
Gódan dagitm!