Morgunblaðið - 15.02.1983, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 15.02.1983, Blaðsíða 38
46 Akureyri: MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1983 ALLTI MÚRVERKIÐ B.B. BYGGINGAVÖRUR HF SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331. Stofnuð landssam- tök um jafnrétti milli landshluta Akureyri, 14. fcbrúar. STOFNUÐ voru í gær á Hótel KEA hér í bæ landssamtök um jafnrétti milli landshluta. Boóaóir voru til þessa fundar áhugamenn af öllu norö- anverðu landinu. Ekki voru þó mættir menn lengra að en frá Hvammstanga. Komið var á fót undirbúnings- nefnd að stofnun félaga í öllum kjördæmum. Þegar hefur verið unnið að stofnun slíkra félaga, og verið haft samband við all marga einstaklinga víðs vegar um landið. Er þess vænst að félög þessi verði stofnuð á næstunni. Kosin var bráðabirgðastjórn. Formaður er Pétur Valdimarsson Akureyri, varaformaður Bjarni Guðleifsson Möðruvöllum, og ritari Árni Steinar Jóhannesson frá Dal- Húsavík: Gæfta- og aflaleysi llúsavík. 14. febrúar. GÆFTA og aflaleysi til sjávarins hefur verið hér síðan um áramót, svo útlit er fyrir að bátar sem héðan ætl- uðu að stunda róðra fari til Suður- eða Suðvesturlands. Rauðmagaveiði er hafin, en lítið stunduð ennþá, svo um veiðihorfur er ekki unnt að spá. — Fréttaritari. vík. Aðrir í stjórn voru kosnir Ingv- ar Ingvarsson, Þórarinn Lárusson, Víkingur Guðmundsson, Þorgerður Hauksdóttir, Kristbjörg Gestsdótt- ir, Halldór Bachmann, Sigurður Jó- hannesson, Ármann Rögnvaldsson. Landssamtökin berjast fyrir jafn- rétti milli fólks, óháð því hvar það býr á landinu. Aðalbaráttumálið nú er að berjast gegn fyrirhugaðri breytingu á atkvæðavægi, meðan ekki er talað um leiðréttingu á öðru misrétti. Samtökin hvetja þing- menn til að standa gegn því sam- komulagi, sem flokksstjórnirnar virðast vera að ná samkomulagi um. Á stofnfundinum var samþykkt eftirfarandi ályktun: „Fundurinn lýsir yfir óánægju með það hve seint stjórnarskrár- nefnd skilaði skýrslu um endur- skoðun stjórnarskrárinnar og þá fljótfærnislegu afgreiðslu, sem þessu stórmáli er ætluð, og að mestu án almennrar umræðu. Þá átelur fundurinn þau vinnubrögð, að telja meira vægi atkvæða á landsbyggðinni eina misréttið, sem þörf sé á að leiðrétta. Fundurinn bendir á að höfuðborgarsvæðið nýt- ur umfram aðra landshluta marg- víslegra forréttinda, sem einnig þarfnast leiðréttingar. Enn fremur telur fundurinn að fjölmiðlar hafi fjallað einhliöa og jafnvel villandi um málið, þar sem sjónarmið ann- arra landshluta en höfuðborgar- svæðisins hafi lítið komið fram. Þá álítur fundurinn svokallaða skoð- anakönnun, sem nú fer fram á höf- uðborgarsvæðinu, ólýðræðislega og hreina misnotkun á því hugtaki." - V.G. ASÍ skorar á Alþingi að samþykkja lög um málefni fatlaðra MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning frá Alþýðusambandi íslands varðandi málefni fatlaðra: í tengslum við lausn kjara- deilunnar á liðnu sumri gaf rík- isstjórnin út yfirlýsingu varð- andi málefni fatlaðra. Þar heitir ríkisstjórnin því m.a. að lagt verði fram á Alþingi frumvarp um málefni aldraðra og frum- varp um málefni fatlaðra og að beita sér fyrir því að bæði þessi frumvörp verði gerð að lögum nú á yfirstandandi þingi. í framhaldi af þessu sam- þykkti miðstjórn Alþýðusam- bands íslands eftirfarandi ályktun samhljóða á fundi sín- um 10. þessa mánaðar: „Miðstjórn ASf fagnar því að sett hafa verið lög um málefni aldraðra. Jafnframt fagnar mið- stjórnin því að frumvarp um málefni fatlaðra hefur verið lagt á ný fram á Alþingi og skorar á alþingismenn að tryggja fram- gang málsins á yfirstandandi þingi með því að samþykkja frumvarpið og koma þannig þessu mikilvæga hagsmunamáli í höfn.“ Vistheimiliö í Gunnarsholti. Átökin urðu á hlaðinu við enda hússins lengst til hægri. i.jósmynd Mbi. kök Vistheimilið f Gunnarsholti: Þrír ölóðir vistmenn voru til vandræða — otuðu hnífum að starfsmönnum og einn særðist í átökum BlENDr. L'< *«SIN) LOfT9LfNÍ*f PKÍK af vislmönnum á vistheimilinu í (lunnarsholti urðu til vandræöa þar sl. laugardagskvöld í ölæði, en þeir höfðu á einhvern hátt komist yfir áfenga drykki. Otuðu þeir m.a. hnífum að gæzlumanni um nóttina og í átökum sem urðu á hlaði Gunnarshoits um nóttina stakkst vasa- hnífur í læri lögregluþjóns sem var gestkomandi á staðnum, en kom til hjálpar. Einnig brákaðist rifbein í að- stoðarforstöðumanninum. Mbl. heim- sótti Gunnarsholt til þess að ræða við forstöðumenn og sagðist Porsteinn Sig- fússon, forstöðumaður, hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum, því hann hefði gert sér góðar vonir um þessa þrjá pilta, þeir hefðu allir verið á seinna fallinu á vist- hcimilinu og einn hefði ætlaö til fram- haldsmeðferðar, en hér var um að ræða þrjá menn um tvítugt sem komu í endur- hæfingu vegna áfengisvandamáls. Hörð- ur Valdimarsson, aðstoðarforstöðumað- ur, lenti fyrstur í ryskingum við mennina þrjá og við ræddum við hann um atvikið. „Ég var látinn vita um kl. 1 um nóttina að menn í einu herberginu á staðnum væru undir áhrifum. Eg fór strax á vettvang og hitti fyrir tvo menn í einu herberginu og sá strax hvers kyns var og þeir viðurkenndu strax að þeir hefðu drukkið rakspíra. Þeir voru þó rólegir og prúðir og ég sagði þeim að þeir skyldu ganga til náða og við létum nóttina líða áður en við ræddum málið nánar. Jafnframt hvatti ég þá til þess að mæta á AA- fund daginn eftir og gæta þess að vera búnir að gera sig klára fyrir þann fund. Frammi á gangi hitti ég þriðja manninn undir áhrifum og vissi einn- ig af þeim fjórða, sem var þá sofnaður í sfnu herbergi. Aðrir komu ekki við sögu. Klukkan fjögur um nóttina var ég sofnaður, en þá var hringt til mín og vaktmaður tilkynnti um drykkju og læti hjá fyrrgreindum mönnum. Ég fór þegar á staðinn og gætti að. Voru þeir þrír þá allmikið undir áhrifum og hafði ég engin orðaskipti við þá en tók lykilinn úr hurðinni að herberginu, fór niður og kallaði á lögreglu. Ég fór síðan upp aftur og inn til þeirra en þá réðust þeir að mér, tveir þeirra með vasahnífa sem þeir otuðu og hörfaði ég út úr herberginu og eftir ganginum. Eg kallaði á vaktmann og bað um að láta ná í forstöðumanninn. Um stund gat ég haldið aftur hurð svo þeir kæm- ust ekki ýt. en skömmu síðar kom Þorsteinn forstöðumaður á vettvang og með honum Hrafn Marinósson, lögreglumaður, sem var gestkomandi. Mennirnir þrír komust út úr húsinu, en við reyndum að sefa þá og róa og spyrja þá hvað þeir vildu um leið og við bentum þeim á þau mistök sem þeir væru að gera. Þetta tókst ekki og þegar einn þeirra, sem var með vín- flösku reyndi að brjóta hana á harð- fenninu, missti hann flöskuna og við náðum þá að yfirbuga hann. Hrafn tókst á við annan þeirra sem var með hníf, en sá þriðji hvarf út í myrkrið. í átökunum stakkst vasahnífurinn í læri Hrafns, en skömmu síðar var einnig búið að yfirbuga þann mann. Lögreglan sótti síðan mennina, sem höfðu brotið af sér, en líklega hafa þeir kveikt eld í herberginu um leið og þeir fóru þar út, því eldur var laus í rúmfötum og dýnu. Aðrir vistmenn urðu varir við það og náðu að slökkva eldinn áður en stórskaði hlaust af. Þetta atvik er einsdæmi f starfinu hér á staðnum, hér er yfirleitt sér- staklega friðsælt og rólegt, menn prúðir og sáttir við að vera hér og hugsa sitt ráð, en hér gilda ákveðnar heimilisreglur sem menn gangast undir af fúsum og frjálsum vilja. Með- ferð áfengis er bönnuð og ofnotkun lyfja, en vistmenn eru hér yfirleitt í 2—3 mánuði. Það sorglegasta við þennan atburð er það, að allir þessir strákar áttu mjög erfitt þegar þeir komu hingað, en voru búnir að ná svo miklum árangri að athygli vakti, þeir voru rólegir og yfirvegaðir og þess vegna varð þetta mikið áfall fyrir okkur starfsmennina."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.