Morgunblaðið - 17.02.1983, Blaðsíða 1
56SIÐUR MEÐ MYNDASOGUBLAÐI
39. tbl. 70. árg.
FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1983
Prentsmiðja Morgunblaösins
Stjórn Reagans boð-
ar nýja stýriflaug
\Vashin((lon 16. febrúar. Al’.
RONALD Roagan liandaríkjaforseti og stjórn hans hafa í hyggju að hefja fram-
leióslu á nýrri tegund meðaldrægra stýrifíauga og á hún að leysa af þá tegund
stýriflaugar sem í notkun er. Hér er um endurnýjað vopn að ræða, fullkomnara en
hinar hefðbundnu flaugar, en framleiðsla þeirra myndi hætta.
I árlegri skýrslu sem lögð er fyrir
bandaríska þingið um útgjöld til
hermála og Weinberger varnarmála-
ráðherra tók saman að þessu sinni
ásamt aðstoðarmönnum sínum, er
ekki getið um að fyrirhuguð sé fram-
leiðsla á þessum flaugum eftir yfir-
standandi fjárlagaár. Skýrsla síð-
asta árs gerði hins vegar ráð fyrir
440 stýriflaugum af þessu tagi á
yfirstandandi fjárlagaári. Nú er hins
vegar talað um 330 flaugar.
Talsmenn Hvíta hússins, sem ekki
vildu láta nafns getið, sögðu að þing-
ið hefði hvatt til þess að talan yrði
lækkuð til þess að auðveldara myndi
reynast að endurnýja stýriflauga-
flotann. Þá gátu þeir þess að þessar
flaugar væru ekki inni í dæminu sem
Bandaríkjamenn hafa reiknað ásamt
bandamönnum sínum á Vesturlönd-
um, að koma fyrir 484 meðaldrægum
flaugum á föstu landi í Vestur-
Evrópu og fjölda annarra á kafbát-
um á sömu slóðum.
Þessar nýju stýriflaugar, sem
kallaðar eru „Stealth“-flaugar, eru
að því leyti helst frábrugðnar fyrir-
rennurum sínum, að þær bæði
endurkasta radarbylgjum og soga
þær í sig. Er hugmyndin að þær
komist á leiðarenda án þess að óvin-
urinn verði þeirra var.
Kunni ekki ensku:
Var lokuð inni
á hæli í 48 ár
l’hiladdphia, IVnnsylvania, 16. Tebrúar. Al*.
ÚKKAÍNSKUR innflytjandi til Banda-
ríkjanna, Cathrine Yasinchuk, lést á
hjúkrunarheimili í Fennsylvaníu í gær,
86 ára að aldri. Saga hennar í Banda-
ríkjunum var heldur nöturleg.
giftist þar manni og átti með honum
barn. Er lögreglan kom að henni,
hafði hún rétt í því misst bæði mann
sinn og barn voveiflega.
Haddad í Sídon
llppreisnarofurstinn í líbanska hernum, Saad Haddad, greinir frétta-
mönnum frá í gær, að hann hafi innlimað borgina Sídon inn í ríki sitt
„Frjálsa Líbanon." Blaðamannafundur þessi fór fram á götu úti í Sídon
skömmu eftir að sveitir Haddads komu til borgarinnar. Markmið sitt
segir Haddad vera að frelsa Líbanon. Símamynd AP.
Alþjóðabank-
inn lánar til
fiskiræktar
Washington 16. febrúar. AP.
STJORN Alþjóðabankans tilkynnti í
gær, að bankinn ætlaði að verja 540
milljónum dollara í lán til fátækra
þróunarlanda í því skyni að þau efli
fiskirækt og fiskveiðar. Peningunum
verður deilt út til 20 aðila fyrir árið
1986, en á árunum 1964 til 1981 lán-
aði bankinn aðeins 259 milljónir
dollara til sams konar styrkja.
Umræddir peningar renna m.a.
til rannsóknastofnana um fiskeldi,
til fiskiræktar á hrísgrjónaökrum,
til krabbaræktar i fenjum og til
fiskiræktar í sameiginlegum fiski-
tjörnum bæjar- eða sveitarfélaga.
Graham Donaldson, yfirhagfræð-
ingur bankans, sagði frétta-
mönnum að góð viðleitni væri ekki
nóg til að fiskurinn félli neytend-
um í geð. Hann gat þess til dæmis,
að karlmenn í þjóðflokki nokkrum
í Kenya myndu fyrr svelta en að
snæða gómsætan fisk. Þeir óttast
að fiskát geri þá ófrjóa.
Donaldson sagði þó aðalvanda-
málið vera annað. Hann sagði að
samkvæmt könnun sem bankinn
hefði staðið fyrir færu 10 milljón
tonn af veiddum fiski í súginn ár-
lega vegna illrar meðferðar og
vinnslu. Umrædd tíu milljón tonn
eru hluti af 70 milljóna tonna
meðalheildarafla. Bankinn hefur
ekki gefið upp hvaða þjóðir hreppi
umrædd 20 lán.
Það var árið 1921, að lögreglu-
menn fundu hana á götu. Var hún
móðursjúk og í lögregluskýrslum
stóð auk þess að hún hafi talað tóma
vitleysu. Ekki náðist samband við
hana, en skýringin var sú, að hún
kunni einfaldlega ekki ensku. Hún
var því lögð inn á geðsjúkrahús
Philadelphiu-borgar, þá 23 ára, og
þar dvaldi hún eigi færri en 48 ár.
Fyrstu sex árin „bullaði" hún, að
sögn starfsfólks geðsjúkrahússins,
en síðan hætti hún því, ráfaði aðeins
um og horfði á veggina. Árið 1969
var gerð tilraun til að ná sambandi
við hana og málamenn mæltu til
hennar á öllum mögulegum tungu-
málum. Það var ekki fyrr en að
starfskraftur stofnunarinnar reyndi
fyrir tilviljun úkraínsku, að frú Yas-
inchuk tók við sér. Kom þá sannleik-
urinn í ljós.
Hann var í því fólginn, að 15 ára
gömul kom hún til Bandaríkjanna,
Stjórn Begins stóð af
sér 3 vantrauststillögur
l<>ruval<>m IR fphni»r AP
Jerusalem, 16. febrúar. AI*.
MENACHEM Begin og stjórn
hans héldu velli í gær, er þrjár van-
trauststillögur voru bornar fram á
ísraelska þinginu. Það voru Komm-
únistaflokkurinn, Verkamanna-
flokkurinn og Shinui-flokkurinn
sem lögðu tillögurnar fram og at-
kvæðagreiðslurnar enduðu allar
64:56 stjórninni í hag.
Vafasamur leikur
bannaður í N-Mexíkó
Alamogordo, Mexíkó, 16. febrúar. Al*.
FR/EÐSLURÁÐ borgarinnar Alamogordo í Mexíkó hefur ákveðið að
banna ævintýraspilið „drekar og dýflissur", eða dungeons and dragons,
eins og það heitir á ensku. Spil þetta hefur átt geysilegum vinsældum að
fagna meðal skólabarna í Alamogordo og raunar miklu víðar.
Ráðið mælti með banni spils-
ins eftir að foreldrar höfðu látið
undirskriftalista ganga, en spilið
hefur verið kennt eftir skóla á
vegum skólans, einkum til að
gera félagslífið fjölbreyttara.
Spilið er nokkuð flókið og þurfa
börnin að nota talsvert hyggju-
vitið til að standa sig vel og var
það talinn aðalkostur gamans-
ins. Drekar og dýflissur gengur
út á að hver þátttakandi ræður
yfir ákveðinni persónu sem
reynir að komast klakklaust
gegn um völundarhús undir-
heima og dýflissa, þar sem allt
morar í ófreskjum, göldrum og
fyrirsátum hinna kynlegustu
vera.
En það var ekki að ástæðu-
lausu að foreldrarnir létu til sín
taka. í bréfi sem þeir rituðu til
fræðsluráðs borgarinnar voru
skýringarnar raktar. Þar stóð að
spilið gerði það eitt að kenna
börnunum djöflafræði, galdra,
særingar, morð, nauðganir, guð-
last, sjálfsmorð, aftökur, geð-
veiki, ónáttúru, kynvillu, vændi,
djöfladýrkun, fjárhættuspil og
kenningar sálfræðingsins um-
deilda, Jung!
Eftir afgreiðslu tillagnanna
ávarpaði Moshe Nissim dóms-
málaráðherra þingið og beindi
orðum sínum einkum til stjórn-
arandstöðunnar. Hann sagði m.
a., að stjórnin myndi, samkvæmt
beiðni nefndarinnar sem fjallaði
um Beirut-fjöldamorðin, lagfæra
þá vankanta sem sýnilegir væru.
Hann vísaði á bug hrópum
stjórnarandstöðumanna að
stjórnin öll segði af sér og sagði
að skýrsla nefndarinnar hefði
alls ekki gert stjórnina alla
ábyrga fyrir morðunum, aðeins
tiltekna einstaklinga og búið
væri að láta til skarar skríða
gegn þeim. Þar átti Nissim fyrst
og fremst við Ariel Sharon, sem
var sviptur embætti varnarmála-
ráðherra. Hann situr enn í
stjórninni, ráðherra án embætt-
is. Hann fékk að finna fyrir
veikri stöðu sinni í gær, er Begin
forsætisráðherra, Josef Burg
innanríkisráðherra og Yitzhak
Shamir sátu lokaðan fund um
stöðu Líbanonmálsins. Sharon
var ekki boðaður á fundinn.
Meðan að þingið afgreiddi van-
trauststillögurnar, greindu blöð í
Israel frá því að leynilegar um-
ræður væru í gangi milli leiðtoga
Likud-flokksins og Verkamanna-
flokksins. Verið væri að athuga
hvort möguleiki væri á stjórn-
arsamstarfi þessara tveggja
stærstu flokka landsins. Shimon
Peres, formaður Verkamanna-
flokksins myndi að öllum líkind-
um fá stöðu aðstoðarforsætis-
ráðherra ef úr yrði, og Yitzhak
Rabin valdamikið ráðherraemb-
ætti. Talið er að slík stjórn
myndi sameina þjóðina á nýjan
leik eftir það fjaðrafok sem varð
vegna fjöldamorðanna í Beirut.
Klofnar PLO í afstöðu
sinni til friðaráætlunar?
Aljífirsboríí Alsír, 16. febrúar. Al*.
SVO getur farið, að PLO, Frelsishreyfing Palestínumanna, klofni í afstöðu
sinni til friðaráætlunar Araba sem Bandaríkjamenn styðja.
Talsmaður þjóðarráðs Palest-
ínumanna sagði á fundi ráðsins að
friðaráætlunin yrði „eflaust sam-
þykkt" á fundinum þótt í henni
fæiist einhliða viðurkenning á
Ísraelsríki. Þessi orð urðu til þess
að Ahmed Jebril, leiðtogi Alþýðu-
fylkingarinnar til frelsunar Pal-
estínu (PFLP-GC), sem er vinveitt
Sovétríkjunum, tilkynnti að ef svo
færi myndi það draga dilk á eftir
sér. „Ef það gerist, getum við ekki
annað en sagt skilið við PLO og
þjóðarráðið,“ sagði Jebril og gagn-
rýndi einnig tengsl Arafats við
egypska ráðamenn.
Talsmenn meirihlutans undir
forystu Yasser Arafats gagnrýndu
Jebril og harðlínuarm hans á
móti, sögðu hann undir óæski-
legum æsingaráhrifum frá Sýr-
lendingum og Líbýumönnum.
Fundir voru fyrirhugaðir i nótt
með þeim átta hreyfingum sem
standa að PLO og ætlaði Arafat
að freista þess að koma á einingu
á nýjan leik.