Morgunblaðið - 17.02.1983, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 17.02.1983, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1983 30 Forráðamenn sinfóníuhljómsveitarinnar kynna blaðamönnum síðara misseri starfsársins. Síðara misseri Sinfóníuhljómsveitar fslands: Stór hluti verka leik- in hér í fyrsta sinn Sinfóníuhljómsveitin á æfingu með Hamrahlíðarkórnum. Með tónleikum Sinfóníu- hljómsveitar íslands fimmtu- daginn 17. febrúar nk. hefst síðara misseri starfsárs hljómsveitarinnar, en alls verða átta tónleikar á þess- um síðara hluta og mun Jean-Pierre Jacquillat stjórna fimm þeirra. Á fyrstu tónleikunum verða Guð- ný Guðmundsdóttir, konsert- meistari og Nina G. Flyer selló- leikari frá ísrael einleikarar í konsert fyrir fiðlu og selló eftir Brahms og La Muse et le Poétée eftir Saint-Saens en auk þess verður leikin sinfónía nr. 25 eftir Mozart. Á öðrum tónleikunum verður flutt óperan Tosca eftir Puccini í konsertformi með Sieg- linde Kahmann, Kristján Jó- hannsson og Robert Becker í ein- söngshlutverkum og Söngsveitinni Fílharmóníu. Priðju tónleikunum mun Páll P. Pálsson stjórna en þar verða flutt verkin Snúningur eftir austurríska tónskáldið Werner Schulze, en verkið er til- einkað Sinfóníuhljómsveit ís- lands, sinfónía nr. 2 eftir Jean Sib- elius og trompetkonsert eftir Haydn. Einleikari á þeim tónleik- um verður Rolf Smedvig, ungur bandarískur trompetsnillingur af norsk/ íslenskum ættum sem læt- ur mikið að sér kveða í tónlistar- heiminum vestan hafs, Fjórðu tónleikarnir verða helgaðir enskri tónlist með enskan hljómsveitar- stjóra og enskan tenórsöngvara, Hljómsveitarstjóri verður Nicolas Braithwaite, en hann er sonur Warrwick Braithwaite sem kom hingað fyrir u.þ.b. 25 árum og stjórnaði konsertuppfærslu á II Trovatore eftir Verdi. tenórsöngv- arinn verður David Rendall og verkin sem flutt verða eru eftir Vaughan Williams, Edward Elgar og Benjamin Britten. Á fimmtu tónleikunum verður flutt sinfónía nr. 3 eftir Mendelssohn og Re- quiem eftir Gabriel Fauré með að- stöð Söngsveitarinnar Fílharm- oníu. Stjórnandi á þeim tónleikum verður Guðmundur Emilsson. Á sjöttu tónleikunum verður ungur íslenskur einkeikari, Sigríður Vilhjálmsdóttir og mun hún leika einleik í óbókonsert eftir Mozart. Þetta er í fyrsta skipti sem Sigríð- ur leikur einleik með hljómsveit- inni á áskriftartónleikum, en hún býr í Þýskalandi og starfar þar. Ennfremur verður flutt tónverkið Friðarkall eftir Sigurð Garðars- son og Pastoral-sinfónía Beethov- ens. A sjöundu tónleikunum fá ís- lenskir tónleikagestir að heyra tónverkið Choralis eftir Jón Nor- dal sem frumflutt var í Washing- ton í nóvember sl. og vakti mikla athygli. Gabriel Tacchino verður einleikari í píanókonsert eftir Saint-Saéns og tónleikunum lýkur með hinu sívinsæla Sheheresade eftir Rimsky-Korsakoff. Á síðustu áskriftartónleikunum verður flutt 9. sinfónía Beethovens með aðstoð Söngsveitarinnar Fílharmóníu en auglýst verður síðar hverjir munu fara með einsöngshlutverkin. Auk ofangreindra áskriftartón- leika mun hljómsveitin standa fyrir kammertónleikum, heim- sækja nágrannabyggðir og fara í tónleikaferð um Vesturland og Vestfirði svo eitthvað sé nefnt, en alls munu tónleikar hljómsveitar- innar á þessu starfs'ári verða u.þ.b. 70 talsins. Sala áskriftarskírteina fyrir síðara misseri stendur yfir þessa daga í skrifstofu hljómsveitarinn- ar að Hverfisgötu 50. Skoðanakönnun Sinfóníuhljómsveitar íslands: Tilgangurinn er að taka meira mið af óskum áheyrenda Sinfóníuhljómsveit fslands mun á nokkrum næstu tónleik- um sínum gangast fyrir skoðana- könnun. Ætlunin er að kanna viðhorf fastra áskrifenda til verkefnavals og gefa þeim kost á að koma sínum tillögum á fram- færi. Þá er vonast til að hægt verði að sjá hvernig hægt er að ná til breiðari hóps. Skoðanakönnun þessi, sem Jón Stefánsson og Páll Ás- mundsson úr verkefnavals- nefnd hafa unnið í samráði við Þorbjörn Broddason gæti haft áhrif á verkefnval þarnæsta ár. Háhyrningar ófarnir „Nei, þeir eru ekki farnir ennþá, en ég vonast til að brottfor þeirra sé alveg á næsta leiti,“ sagði Jón Kr. Gunnars- son forstöðumaður Sædýrasafnsins í samtali við Mbl. í gær. Jón sagðist eiga von á því að brottflutningur háhyrninganna fimm yrði alveg á næstunni. Þeir eiga að fara til Evrópu og vestur um haf. Háhyrningarnir fimm hafa ver- ið geymdir í laug í Sædýrasafninu frá því í október sl. Þrír sækja um prests- starfið í Kaupmannahöfn Umsóknarfrestur um starf prests íslendinga í Danmörku er runninn út. Þrír sóttu um embættið; séra Ágúst Sigurðsson á Mælifelli í Skagafirði og tveir prestar, sem óskuðu nafnleyndar. Þetta emb- ætti er eina prestsembættið, sem ekki er kosið til, heldur ræður biskup íslands í starfið að fengnu samþykki kirkjumálaráðherra. Jónas Gíslason gegndi þessu starfi fyrstur, síðan Hreinn Hjartarson og loks Jóhann Hlíðar, sem í vor lætur af starfi samkvæmt reglum um starfsaldur. Framboðslisti Framsóknar á Reykjanesi FRAMBOÐSLISTI Kramsóknarflokks- ins í Reykjaneskjördæmi fyrir Alþing- iskosningarnar hefur verið birtur, en hann skipa tíu menn. Eftirtaldir skipa listann: 1. Jó- hann Einvarðsson alþingismaður Keflavík. 2. Helgi H. Jónsson frétta- maður Kópavogi. 3. Arnþrúður Karlsdóttir útvarpsmaður Hafnar- firði. 4. Inga Þyrí Kjartansdóttir snyrtifræðingur Kópavogi. 5. Ólafur í. Hannesson aðalfulltrúi Njarðvík. 6. Þrúður Helgadóttir verkstjóri Mosfellssveit. 7. Arnþór Helgason kennari Seltjarnarnesi. 8. Guðmund- ur Karl Tómasson rafvirkjameistari Grindavík. 9. Magnús Sæmundsson bóndi Kjósahreppi. 10. Örnólfur Örnólfsson sölumaður Garðabæ. Sjötugur: Kjartan Ólafsson frá Strandseli í dag á sjötugsafmæli Kjartan Ólafsson, deildarstjóri í Sam- vinnubankanum Reykjavík. Af því tilefni vil ég segja frá honum með nokkrum orðum um leið og ég þakka honum langt og lærdóms- ríkt samstarf að sameiginlegum áhuga- og félagsmálum. Kjartan er fæddur 17. febrúar 1913 að Strandseli (Strandseljum) í Ögurhreppi. Foreldrar hans voru Ólafur Þórðarson bóndi þar og kona hans Guðríður Hafliðadóttir. Kjartan ólst þar upp í stórum systkinahópi við sveitastörf þeirra tíma. Kjartan fór á héraðsskólann á Laugarvatni og tók þar próf 1931. Síðan fór hann í Samvinnu- skólann og útskrifaðist þaðan eft- ir tveggja vetra nám vorið 1933. Þá lá leiðin aftur á heimaslóðir við Djúp. Þetta ár féll faðir hans frá og næstu árin nokkur er Kjartan þar heima með fjölskyldu sinni við búskap. Kjartan kvæntist 14. maí 1935 Kristjönu Guðrúnu Bjarnadóttur frá Ögurnesi. Kristjana er fædd 11. nóv. 1911, næstelst af tíu börn- um Bjarna Einars Einarssonar fiskmóttökumanns þar og Hall- dóru Sæmundsdóttur konu hans (Arnardalsætt). Tvö fyrstu börn þeirra Kjartans og Kristjönu fæddust í Strandseli, en síðan lá leiðin suður, í átt til fleiri tæki- færa og betri atvinnu er skóla- námið kynni að veita aðgang að. Kjartan hóf störf hjá Kaupfé- lagi Árnesinga, og síðan má segja að störf hans hafi verið á vegum Samvinnufélaganna. Hann vann að verzlunarstörfum og stjórn um tuttugu ára skeið hjá Kaupfélagi Árnesinga Selfossi og síðar hjá Kaupfélagi Hafnfirðinga Hafnar- firði. Þegar Samvinnubankinn var stofnaður gerðist hann starfsmað- ur þar og hefur unnið þar síðan. Hér er starfssaga sögð í stuttu máli og mætti þar mörgu við bæta af þeim er til þekkja, en ég sleppi því, enda eru kynni okkar Kjart- ans á öðru sviði. Það var 29. febr. 1948 að ég var staddur niðri í miðbæ Reykjavík- ur, framan við Góðtemplarahúsið. Ég stóð þar úti fyrir og beið manna er ég vænti þangað. Þá ber þar að mann, hvatan í spori og einarðlegan. Við heilsumst og kynnum okkur, en vissum þó óljós deili hvor á öðrum. Aðkomumaður spyr hvort hér sé ekki að hefjast samkoma? Jú, segi ég, hér á að fara að stofna stúku. — Þar lang- ar mig til að taka þátt í, segir Kjartan, en sá var maðurinn. Síð- an gengum við inn í húsið. — Þennan dag hófst samstarf okkar í stúkunni Andvara nr. 265 sem staðið hefur síðan óslitið til þessa dags, eða rétt hálfa ævi hans. Það er þetta samstarf sem mig langar til að þakka honum fyrir, nú á þessum degi. — Kjartan var eng- inn nýgræðingur þá í félagsskap templara. Hann hafði áður verið í stúku, en slitnað úr tengslum vegna flutninga. Ég var búinn að starfa í annarri súku um árabil en gekk nú að þessari stúkustofnun. Kjartan hefur innt af hendi margvísleg störf fyrir stúkuna okkar öll þessi ár, er hafa ein- kennst af fórnfýsi, traustum heið- arleika og þegnskap, — og fyrir félagsskap templara í heild sinni. Kjartan sat í framkvæmdanefnd Stórstúkunnar í sautján ár og þar af í fimmtán ár framkvæmd- astjóri Stórstúkunnar og stórrit- ari. Hann hefur verið fulltrúi Reglunnar á mótum og þingum erlendis, og um skeið var hann í stjórn Norræna bindindissam- bandsins. Hann hefur einnig um árabil verið í stjórn Musteris- riddarareglunnar. Kjartan Ólafsson er maður heil- brigðra lífshátta. Hann ann úti- vist og ferðalögum og hefur ferð- ast mikið um landið okkar. Hann kann skil á hverjum vogi og firði, mörgum dal og sveit, þekkir nöfn fjalla og áa og fjölda bæjarnafna. Hann hefur einnig ferðast mikið utanlands. Lengi mun ég minnast ferðar er ég fór með Kjartani eitt sinn í þrjátíu manna hópi suður um Evrópu, allt til Feneyja. Tók- um við bíl á leigu í Danmörku og fórum þaðan á eigin vegum og hafði Kjartan forsjón alla og far- arstjórn, þótt fleiri ágætir menn kæmu þar til skjala, og tókst það allt með ágætum, þó okkur virtist stundum hann hafa merkt dag- leiðirnar í lengra lagi. Kjartan er traustur maður og vandaður og drengur góður. Hann er þéttur fyrir ef gengið er á hlut þess sem honum er trúað fyrir, — fórnfús og ósínkur á tíma og fjár- muni til lausnar þeim málefnum er hann hefur tekið tryggð við. Þau hjón sáu gildi bindindismáls- ins og hafa þar innt af höndum mikið starf, og ljúft er að minnast góðrar samvinnu í áratugi, þar sem hvergi ber á skugga. Kjartan og Kristjana eiga fimm börn, vel mennt myndarfólk, er öll hafa stofnað heimili í Reykjavík og grennd, — og barnabörnin trúi ég að séu tólf. Þau hjón hafa átt heimili að Birkihvammi 8 í Kópa- vogi í aldarfjórðung eða svo og þar hefur Kjartan ræktað garðinn sinn. Öllum sumarstundum sínum, þeim er hann má við koma, unir hann þar við umhirðu trjáa og blóma. Nú þegar líður að verkalokum á hinum opinbera starfsvettvangi, óska ég Kjartani vini mínum þess, að hann megi eiga margar stundir með móður náttúru meðal grasa og blóma í garði sínum eða úti í náttúrunni fjarri ys og þys þar sem mosinn er mjúkur undir fæti og loftið heiðblátt og anganríkt. Þau hjónin eru að heiman í dag. Indriði Indriðason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.