Morgunblaðið - 17.02.1983, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1983
Hin kvenlega hugs-
un í stjórnmálum
— eftir Asgeir R.
Helgason
Er grundvallarmunur á hugsun-
arhætti karla og kvenna? Er til
einhver réttlæting fyrir því að
flokka hugsun annarsvegar í fem-
inin (þ.e. kvenlega) og hinsvegar
maskulin (þ.e. karlmannlega)? Er
réttlætanlegt að stofnað sé til
pólitískra framboða, sem ein-
göngu eru skipuð konum?
Þessar spurningar verða megin-
inntak þessarar greinar.
Hvað á ég við með maskulin og
feminin hugsunarhætti? Maskulin
hugsunarháttur einkennist af
blindri rökhugsun, þ.e. rökhugsun,
sem tekin er úr samhengi sínu við
tilfinningavíddina í manninum.
Rökhugsun er í raun aðeins tæki
til að framfylgja tilfinningalegum
ákvörðunum. Það er t.a.m. tilfinn-
ingaleg ákvörðun að vilja jafnrétti
fremur en ójafnrétti. Það að mega
ekki útrýma öllu lífi á jörðunni í
kjarnorkubáli, er líka tilfinninga-
leg ákvörðun, enda ekkert sem
segir okkur að slíkt sé í rauninni
rangt, nema þá trúarbrögð ýmis-
konar, en þau eru tilfinningalegs
eðlis. Það er hins vegar rökræn
afleiðsla, þegar tekin er ákvörðun
um aðferðir til þess að ná mark-
miðum. T.d. því, að koma í veg
fyrir kjarnorkustyrjöld eða stuðla
að sem mestu jafnrétti. Síðan geta
tveir menn, sem báðir hafa tekið
þá tilfinningalegu ákvörðun að
vilja jafnrétti, rifist um það alla
sína daga, hvort sé vænlegra til
árangurs, leið Byltingasinnaðra
kommúnista, leið sosialdemokrat-
ans eða leið Frjálshyggjunnar.
Eins er þessu farið með kjarn-
orkuhættuna. Meirihluti mann-
kyns hefur trúlega tekið afstöðu
gegn gjöreyðingu, en menn greinir
á um leiðir. Margir telja það væn-
legustu leiðina að framleiða sem
mest af kjarnorkuvopnum og trúa
því, að ógunin bægi frá hættunni á
raunverulegu stríði, en aðrir telja
enga leið vænlega til árangurs
aðra en þá, að eyðileggja öll kjarn-
orkuvopn og álíta margir jafn-
framt, að jafnrétti og efnahags-
legur jöfnuður sé eina leiðin til
þess að bægja frá allri styrjald-
arhættu. Þannig eru þessi hugtök
samofin.
Samuel Cohen, maðurinn sem
kallaður er faðir Nevtrónu-
sprengjunnar, er dæmigerður full-
trúi hinnar blindu rökhugsunar.
Hann er stoltur af uppfinningum
sínum. „Nevtrónusprengjan er
ekki vond í sjálfri sér, heldur
mennirnir sem henni beita," segir
hann og heldur ótrauður áfram
sínu striki.
Aðspurður segist Cohen trúa
því, að stríð sé óumflýjanlegt og í
þessu stríði verði nevtrónu-
sprengjan notuð. Hann segist trúa
á friðinn, vera friðarsinni, en trúir
því jafnframt að maðurinn sé í
eðli sínu vondur og því sé stríð
óumflýjanlegt. Cohen vinnur að
því að framleiða gjöreyðingar-
vopn, sem hann er viss um að
verði notuð. Hann er ekki fulltrúi
þeirra, sem trúa því að fullkomn-
ari vopn skapi meira öryggi, en
hann trúir á friðinn og er að eigin
sögn friðarsinni. Hvernig geta
slíkar þversagnir rúmast í einum
og sama manninum og hann samt
verið heilbrigður a.m.k. miðað við
viðurkenndar skilgreiningar geð-
læknisfræðinnar. Svarið liggur í
því, að rökhugsunin er slitin úr
sambandi við tilfinningarnar, for-
senda rökhugsunarinnar er ekki
lengur fyrir hendi. Spurningunni
um tilganginn, þ.e. hvers'vegna
geri ég þetta, er ýtt til hliðar. Slík-
ur einstaklingur er að hálfu leyti
vél og að hálfu leyti maður. Ann-
arsvegar fjölskyldumaðurinn, sem
elskar og hinsvegar hinn kaldi,
rökræni vísindamaður, sem upp-
hugsar nýjar leiðir til þess að
klekkja á andstæðingnum og
vinna sjálfum sér frama á sviði
sinnar vísindagreinar. Hugsun-
arháttur Cohens er ekki eins
dæmi. Hann er mjög algengur í
nútíma samfélagi og fyrirfinnst í
öllum greinum samfélagsins, en
hættulegastur er hann á sviði
stjórnmála og vísinda.
Eins og að framan greinir, er
það mín skoðun að slíkur hugsun-
arháttur einkenni fyrst og fremst
karla, þ.e. sé maskulin hugsun.
Sumir fræðimenn hafa kallað
þessa tegund hugsunar línulega
hugsun og er hún að mínu viti
slæm, a.m.k. með tilliti til fram-
tíðar mannsins á jörðunni.
Konan er í mun betri tengslum
við hina tilfinningalegu vídd, en
feminin hugsun, svokölluð hring-
hugsun, er ekki gjaldgeng í valda-
kerfi karlmannsins. Kannski er
ástæðunnar fyrir því, að að konan
er ekki eins tilfinningalega firrt,
fyrst og fremst að leita í því, að
hún gengur með börnin og er því í
mjög nánu sambandi við sjálfan
uppruna mannlegs lífs. Það skal
Ásgeir R. Helgason
„Konan stendur illa að
vígi, þegar hún hyggst
ryðja sér braut innan hins
hefðbundna valdakerfis
karlasamfélagsins. Hún
er næsta vonlítil um að
komast til áhrifa, nema
hún tileinki sér hugsun-
arhátt og hegðunarmunst-
ur karlmannsins.“
latið ósagt, en eftir stendur að
feminin hugsun er mun heil-
steyptari og mannlegri en maskul-
in hugsun.
Ég tel að rekja megi uppruna
maskulin hugsunar til samkeppn-
innar fyrst og fremst. Við getnað
er það ákveðið hvort maðurinn
verður karl eða kona. Maðurinn
hefur möguleika á því að vera
hvort sem er, en erfðalega ákvarð-
að hormónaferli ákvarðar hið end-
anlega kyn, með því að örfa vöxt
annars kynfræðakerfisins en
draga úr vexti hins. Þannig hafa
allir einstaklingar ófullkomin
innri kynfæri síns gagnstæða
kyns (þ.e. leifar svokallaðra Wulv-
erian eða Múllerian ganga). Þetta
hormónaferli er mjög viðkvæmt
og fari það úr skorðum, geta kom-
ið fram allskyns afbrigði einstakl-
inga, sem hvorki er hægt að flokka
sem karla eða konur fljótt á litið. í
öllum slíkum tilfellum er um að
ræða ófullkomna tilraun til að
skapa karlmann, því að konan er í
vissum skilningi frumkynið. Það
er því strax á fósturstigi, sem
karlmaðurinn þarf að berjast
fyrir tilveru sinni og raunar fyrr,
því sæðisfrumurnar berjast um
réttinn til að sæða eggið, en sæðis-
fruman geymir litninginn sem
ræður því, hvort lífveran verður
karl- eða kvenkyns. Karlmaðurinn
er alinn upp í samkeppni. Leikir
drengja eru ímynd samkeppninn-
ar. Keppni í íþróttum og stríðs-
leikjum, þar sem markmiðið er að
beygja eða drepa andstæðinginn.
Karlmaðurinn er stöðugt að
keppa. Dæmigerðar samræður
karlmanna eru smá skærur, þar
sem markmiðið er að sigra and-
stæðinginn, bera hærri hlut í sam-
ræðunum.
Ekki skal ég dæma um það, að
hve miklu leyti hinn hegðunarlegi
kynjamunur er til kominn vega
uppeldishátta annarsvegar, en
genatiskra þátta hinsvegar. Ljóst
er, að nokkur munur er á lífeðlis-
legri formgerð og starfsemi karla
og kvenna. Vera kann að hegðun-
armunurinn sé því að vissu marki
lífeðlislega ákvarðaður, en það
breytir því ekki, að fjöldi karl-
manna, sem sýna mörg einkenni
hinnar feminisku hugsunar, hefur
aukist til mikilla muna á síðustu
árum. Eins hafa fleiri konur en
nokkru sinni fyrr tileinkað sér
maskulin hegðunarmunstur. Þetta
hefur þó aldrei verið athugað með
tilliti til mannfjölda milli ára,
énda slíkt næsta ómögulegt sökum
ófullnægjandi upplýsinga og fljót-
andi skilgreiningar á hugtökunum
maskulin og feminin. Eftir stend-
ur þó, að maskulin hugsun og at-
ferli er ekki eingöngu bundið við
karlmenn, né er feminin hugsun
eingöngu bundin við konur.
Hversu mikla áherslu menn
vilja leggja á áhrif lífeðlislegra
þátta versus umhverfis, er mjög
breytilegt, en næsta víst má telja,
að áhrif umhverfis, þ.e. uppeldi,
fjölmiðlar, skóli og fleira, ráði hér
miklu.
Eftir sem áður er það stað-
reynd, að feminin hugsun ein-
kennir konuna sem hóp, en mask-
ulin hugsun karlmanninn.
Konan stendur illa að vígi, þeg-
ar hún hyggst ryðja sér braut inn-
an hins hefðbundna valdakerfis
karlsamfélagsins. Hún er næsta
vonlítil um að komast til áhrifa,
nema hún tileinki sér hugsunar-
hátt og hegðunarmunstur karl-
mannsins. Þetta á ekki síst við um
hina pólitísku flokka, og skiptir þá
engu máli hvaða stjórnmálastefnu
menn aðhyilast. Ef konan tekur
ekki upp maskulin hegðunar-
munstur og tekur þátt í bardaga-
leikjum karlmannsins, eru henni
allir vegir lokaðir. Þess vegna eru
jafn fáar konur og raun ber vitni
framarlega í hinum pólitísku
flokkum eða á Alþingi í dag. Þær
fáu sem þar eru, hafa annað hvort
komist að vegna hræðslu hinna
pólitísku afla við hópa á borð við
Kvennaframboð, eða hafa tileink-
að sér stríðsleiki karlmannsins,
þar sem hugsunin um að sigra
andstæðinginn, klekkja á mótaðil-
anum í stjórnarandstöðu, vinna
kappræðuna og tryggja eigin
frama, situr í fyrirrúmi.
Alþýðuflokkurinn í stjórnar-
andstöðu getur prinsippsins vegna
ekki samþykkt tillögur frá Fram-
sókn eða öðrum stjórnarliðum og
Sjálfstæðisflokkurinn hlýtur að
vera á móti öllu því, sem stjórnin
segir og gerir, þó þeir sjálfir beri
upp samskonar tillögur þegar þeir
eru í stjórn. Það sama má segja
um stjórnarflokkana. Allir vilja
eigna sér rósina í hnappagatinu,
en vitrænar umræður vilja oft
gleymast í stríðsæsingunni.
Slík eru einkenni maskulin
hugsunar, samkeppni og tor-
tryggni. I þessum höndum hvílir
sú ákvörðun, hvort stríð verði háð
og friðarsinnar á borð við Samuel
Cohen trúa á hið vonda í mannin-
um, framleiða kjarnorkuvopn og
trúa því að þau verði notuð. A
meðan situr helmingur mann-
kynsins, fulltrúar hinnar tilfinn-
ingalegu víddar í manninum,
lokaður inni á heimilum yfir pott-
um og uppvaski. Þær fáu sem
reyna að brjóta sér leið upp á
toppinn, koma þangað meira og
minna skemmdar og mótaðar af
samkeppnismóral karlaveldisins,
ef þær þá komast þangað á annað
borð.
Tilfinningarnar verða að kom-
ast inn í valdakerfið og stjórnmál-
in, konan þarf að hasla sér völl, án
þess að glata að meira eða minna
leyti sínum kvenlegu eiginleikum.
Því miður held ég að rödd konunn-
ar komist aldrei ómenguð upp í
gegnum hina hefðbundnu leið
flokkakerfisins, ekki eins og
stendur a.m.k.
Það er því að mínu áliti full þörf
á sérframboði kvenna til Alþingis.
Inni á Alþingi og í kosningabar-
áttunni sjálfri, þurfa þær að vísu
að standa frammi fyir stríðsleikj-
um karlmannsins, en þær geta þá
a.m.k. staðið saman sem hópur og
ég hef trú á því, að þær verði ný og
fersk rödd í hugmyndakreppuhús-
inu við Austurvöll.
VAIMET
Þrautreyndar finnskar bátavélar 3—4 og 6 strokka
45-192 hestöfl og Ijósavélar 24-112 KW. Verö
þann 15. febrúar: 2 cyl. 50 hö/2300 sn. meö gír-
og skrúfubúnaði 114.800. 4 cyl. 80 hö/2200 sn.
meö gír- og skrúfubúnaði 125.800. Ljósavélar 53
KVA 42 KW 237.700.
Afgreiöslufrestur frá verksmiðju 6 vikur.
ímifltf ff.F. VAIMET
Reykjanesbraut 10. Sími 20720. 5CANIA
I HÚSBYGGJENDUR«ATVINNUREKENDUR l
TÆKNIMENN
Danska fyrirtækið SUPERFOS GLASULD A/S og
O JOHNSON & KAABER H/F efna til kynningarfundar
í Byggingaþjónustunni, Hallveigarstíg 1, Reykjavík,
fimmtudaginn 17. febrúar og föstudaginn 18. febrúar
n.k. kl. 17.00 báða dagana.
Kynnt verður eftirfarandi:
1. Efni til endureinangrunar eldri húsa.
2. Efni til hljóðeinangrunar.
Superfos Glasuld A/S O. Johnson & Kaaber h.f.
[3f3f3fc3fElf3fc]f3f3f3í3fclf3f3fc]f3f3f3f3íclf3fcl|clf3|cJ|cifclf3r3f3fcÍ
Þú svalar lestrarþörf dagsins
á^síöum Moggans|__