Morgunblaðið - 17.02.1983, Síða 46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1983
Stjörnukvöld HSÍ í Laugardalshöllinni í kvöld:
Tekst Pressuliðinu að
sigra landsliðið?
í KVÖLD klukkan 20.00 gengst
Handknattleikssamband Isiands
fyrir stjörnukvöldi í Laugardals-
höllinni. Margt veröur á dagskrá
en hæst ber viðureign landsliös-
ins viö pressuliðið. Eins og skýrt
hefur veriö frá er því mikill kostn-
aöur samfara að taka þátt i
B-keppninni í Hollandi og því hef-
ur stjórn HSÍ ráöist í að halda
stjörnukvöld í von um að hand-
knattleiksaðdáendur styrki sam-
bandið með því aö mæta í höllina
í kvöld.
Dagskráin í kvöld hefst á leik
úrvalsliöa í 3. flokki karla. Því næst
skemmta hinir landsþekktu Magn-
ús Ólafsson og Þorgeir Ástvalds-
son. Síðan leika tvö þekkt knatt-
spyrnulið sem eiga þaö sameigin-
legt aö hafa aldrei tapaö leik. Er
þaö hiö heimsfræga stjörnulið
Ómars Ragnarssonar, sem sagt er
að sé í óvenju góðri æfingu um
þessar mundir, og liö harösnúinna
íþróttafréttamanna.
Þá er komiö aö hápunkti kvölds-
ins leik pressunnar gegn landsliö-
inu. Þetta verður síöasti stórleikur
landsliösins hér á landi áöur en liö-
iö heldur utan til Hollands. Þess
má geta aö síðast er pressulið og
landsliö léku saman sigraöi press-
an örugglega. En vonandi lætur
landsliöiö þaö ekki endurtaka sig
heldur sýnir fram á aö þaö er í
góöri æfingu og vel undir
B-keppnina búiö. Enda væri það
nú saga til næsta bæjar aö liö sem
búiö er að æfa saman í fleiri vikur
og leika fjölmarga landsleiki færi
aö tapa fyrir liði sem aldrei hefur
leikiö saman.
íþróttafréttamenn hafa valiö
þressuliöiö.
Liðið verður þannig skipaö:
Markverðir:
Jens Einarsson, KR
Ólafur Benediktsson, Þrótti
Aðrir leikmenn:
Anders Dahl-Nielsen, KR
Gunnar Gíslason, KR
Hilmar Sigurgíslason, Víkingi
Ingimar Haraldsson, Haukum
Ólafur H. Jónsson, Þrótti
Páll Björgvinsson, Víkingi
Sigurður Gunnarsson, Víkingi
Steinar Birgisson, Víkingi
Viggó Sigurðsson, Víkingi
Guðmundur Albertsson, KR
í pressuliðinu leika tveir mjög
leikreyndir landsliösmenn þeir
Ólafur H. Jónsson sem leikiö hefur
flesta landsleiki fyrir ísland, alls
138, og skoraö í þeim 312 mörk.
Og fyrrum fyrirliöi danska lands-
liösins Anders Dahl-Nielsen KR.
Auk þess hafa allir leikmenn í
pressuliöinu leikiö landsleik í
handknattleik. Þaö má því án efa
búast viö hörkuviöureign á milli
þessara tveggja liöa.
— ÞR.
• Þannig kemur nýbygging ÍSÍ til með að líta út.
íþróttahópar fá gistiaðstöðu
í hinni nýju byggingu ÍSÍ
í NÝÚTKOMNU fréttabréfi ÍSÍ má
lesa eftirfarandi frétt um bygg-
ingu ÍSÍ í Laugardalnum.
Sl. haust hófust framkvæmdir
við nýbyggingu ÍSÍ í Laugardal.
Hér er um að ræða þriggja hæða
hús og er grunnflötur þess 490
m2, en rúmmál 4.180 m3. Bygg-
íngarmeistari að húsinu er Magn-
ús Jensson. Er áætlað, að 1.
áfanga, sem miðast við að steypa
húsiö upp og gera það fokhelt,
verði lokið fyrir næstu áramót.
Enginn vafi er á þvi, aö hiö nýja
húsnæöi á eftir aö gerbreyta allri
aöstööu ÍSÍ til hins betra. Á 1. hæö
verður upplýsingaþjónusta, auk
gistiaöstööu, sem ætluö er íþrótta-
hóþum utan af landsbyggðinni og
erlendis frá. Veröur þar um að
ræða 12 tveggja manna herbergi
meö baði. Á 2. hæð verður m.a.
kennslustofa, fyrirlestrarsalur,
morgunveröarsalur, eldhús,
geymslur og aöstaöa fyrir kennara
og fræðslufulltrúa (Sí. Á 3. hæð
veröur skrifstofa ÍSÍ meö tilheyr-
andi aöstööu fyrir starfsmenn,
fundarsalur ÍSÍ og annar fyrir
Ólympíunefnd. Þessa tvo sali er
síöan hægt aö sameina í einn, ef
um stóra fundi er aö ræða. Þá er
gert ráö fyrir, að á þessari hæö
veröi komiö á fót íþróttaminja-
safni. Lyfta er í húsinu. Gert er ráö
fyrir, að hreyfihamlaðir eigi greiðan
aögang um allt húsiö.
I byggingarnefnd eru Gisli Hall-
dórsson, Sveinn Björnsson og
Þóröur Þorkelsson. Þess má geta,
aö félagsheimilasjóöur hefur sam-
þykkt að styrkja byggingu hússins.
í þessu sama fréttabréfi er
greint frá því, aö samið hefur veriö
viö Gils Guðmundsson rithöfund
aö undirbúa útgáfu afmælisrits
vegna 75 ára afmælis ÍSÍ, árið
1987. Siðasta afmælisrit ÍSÍ kom
út áriö 1962.
Þá er sagt frá tveimur athyglis-
verðum fréttum, sem lesa má hér á
eftir.
Á tólfta hundrað nýttu sér
flugsamning á sl. ári
Sem kunnugt er, geröu ÍSÍ og
Flugleiðir samning um afslátt á
ferðalögum íþróttafólks i milli-
landaflugi. Tók samningurinn gildi
um áramótin 1981—82. Nú liggja
fyrir tölur um það hversu margt
íþróttafólk nýtti sér þennan samn-
ing, en samtals voru þaö 1.109.
Þessi nýting verður að teljast góö,
þegar það er haft í huga, aö tvö
stærstu sérsamböndin innan ÍSÍ,
þ.e. KSÍ og HSÍ, stóöu utan við
samninginn.
Fulltrúar flokkanna
Sl. haust skrifaöi framkvæmda-
stjórn ÍSÍ þingflokkum stjórnmála-
flokkanna bréf og óskaöi eftir því,
aö þeir tilnefndu fulltrúa af sinni
hálfu til að vera tengiliöir viö ÍSÍ
vegna samskipta ÍSI viö Alþingi.
Þingflokkarnir brugöust skjótt viö
þessari beiðni ÍSÍ og tilnefndu
strax fulltrúa. Alþýöubandalagiö
tilnefndi Skúla Alexandersson, Al-
þýðuflokkurinn tilnefndi Eiö
Guönason, Framsóknarflokkurinn
tilnefndi Jóhann Einvarösson og
Sjálfstæöisflokkurinn Matthías Á.
Mathiesen.
Gamlar myndir
í eigu og vörzlu ÍSÍ eru ýmsar
fágætar Ijósmyndir frá íþróttamót-
um fyrri ára. Er nú fyrirhugað aö
koma betra skipulagi á þetta safn.
Vitað er, aö víða um land eiga
menn í fórum sínum gamlar Ijós-
myndir, sem tengjast íþróttum
meö einum eöa öörum hætti. Áríð-
andi er, að þessar myndir glatist
ekki, því að þær geta haft sögulegt
gildi. Þaö eru því tilmæli ÍSi til
þeirra, sem kynnu aö hafa slíkar
myndir undir höndum, aö hafa
samband viö Hermann Guð-
mundsson, framkvæmdastjóra ÍSÍ,
í síma 83377. Áríöandi er aö öllum
tiltækum upplýsingum varöandi
þessar myndir sé haldið til haga.
• Anders Dahl Niefsen leikur með pressulióinu í kvöld gegn landslið-
inu. Það er ekki í fyrsta sinn sem hann mætir íslenska landsliðinu.
Spurningin er veröur hann enn einu sinni í sigurliði gegn íslensku
landsliði?
• Eyjólfur Bragason, handknattleiksmaður úr Stjörnunni, með viður-
kenninguna sem hann hlaut með nafnbótinni „Iþróttamaður Garða-
bæjar“.
Eyjólfur Bragason kjörinn
íþróttamaður Garðabæjar
NÝLEGA fór fram kjör íþróttamanns Garöabæjar 1982. Sérstakt kjör-
ráð skipað fimmtán mönnum frá ýmsum félagasamtökum í Garðabæ
og fulltrúum bæjarstjórnar velur íþróttamann ársins hverju sinni. Kjör-
ið fer fram á vegum Bræörafélags Garöakirkju, sem veitir veglegan
bikar og aðrar viðurkenningar í sambandi við val íþróttamannsins.
Að þessu sinni urðu úrslit þau, aö Eyjólfur Bragason handknattleiks-
maður var kjörinn íþróttamaður Garðabæjar 1982. Eyjólfur hefur veriö
leikmaöur meö Stjörnunni um árabil og náö góöum árangri meö liöi sínu,
en liö Stjörnunnar hefur náö mjög góöum árangri undanfariö. Eyjólfur
varö næsthæstur markaskorari á íslandsmótinu á þessum vetri og er aö
ööru leyti vel aö sigri þessum kominn. Annar í rööinni varö hinn kunni
markvöröur Brynjar Kvaran og i þriöja sæti Jóhann H. Ragnarsson,
skákmaöur.
Bræðrafélag Garöakirkju veitti einnig tvær viöurkenningar. Kristín
Gísladóttir, fimleikakona, fékk sérstaka viöurkenningu fyrir prýöilegan
árangur í íþrótt sinni og Sigurjón Vilhjálmsson, skátaforingi, fékk viöur-
kenningu í þakkarskyni fyrir langt og farsælt forustustarf aö málefnum
skáta í Garöabæ.
Úrslit og afhending verðlauna fór fram í samkvæmi, sem efnt var til í
Kirkjuhvoli í Garðabæ. Formaöur kjörráös, Guðmundur Einarsson, stýrði
samkvæminu og afhenti viðurkenningar ásamt formanni Bræörafélags-
ins, Paul Jóhannssyni. Viö þetta tækifæri voru flutt ávörp og tóku m.a. til
máls Jón Gauti Jónsson bæjarstjóri, Helgi Hjálmsson formaöur sóknar-
nefndar og Halldór Ólafsson bankastjóri, en Búnaöarbankinn í Garðabæ
hefur margvíslega stutt íþróttastarfiö í bænum.