Morgunblaðið - 19.03.1983, Page 18

Morgunblaðið - 19.03.1983, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1983 Hvers vegna kjós- um við konur? — andsvar við erindi Bryndísar Schram — eftir Einar Braga Þ6 að þátturinn „Um daginn og veginn" sé tekinn töluvert að blikna í seinni tíð, þá legg ég við hlustir þegar jafngóður drengur og Bryndís Schram kveður sér þar hljóðs. I mörgu mæltist henni vel á mánudaginn var (14. mars), en í öðru verr en mig hefði getað grun- að. Hún notaði þennan ræðustól þjóðarinnar til að ráðast gegn kynsystrum sínum, sem í nauð- vörn eru að undirbúa sérstaka kvennalista við næstu alþingis- kosningar, taldi það tímaskekkju: þær ættu greiða leið til áhrifa inn- an flokkanna. Það þarf ótrúlegan barnaskap — eða meiri ósvifni en Bryndísi Schram er ætlandi — til að halda þvílíku og öðru eins fram einmitt þessa dagana, þegar fram- boðslistar flokkanna eru að birt- ast hver af öðrum og sýna svart á hvítu, að hlutur kvenna er eins hraklega lítilsvirtur og ávallt áð- ur: 5% þingsæta er þessum helm- ingi þjóðarinnar ætluð, 95% hremma karlgammarnir. Það var líka eins og Bryndísi hvarflaði í hug, að röksemdir hennar væru ekki alls kostar sannfærandi, því hún spurði líkt og til að sætta konur við orðinn hlut: „Hvað er svona merkilegt við það að vera þingmaður?" Mætti ekki eins spyrja: Til hvers voru konur að berjast fyrir kjörgengi til alþingis? Gátu þær ekki látið sér nægja atkvæðisréttinn? Hann hefur hvort eð er reynst lítið ann- að en réttur til að kjósa karlmenn á þing. Að mér læddist sú hugsun, að ef til vill hefði Bryndís verið búin að varpa þessari spurningu fram inn- an veggja heimilisins eða reyna ótilkvödd að svara henni sjálf á fjölskylduhátíð á Broadway án viðhlítandi niðurstöðu og því borið hana upp við þjóðina. Það er síður en svo ámælisvert, og ég vil fyrir mitt leyti reyna að svara því, sem um er spurt. Raunar er Aiþing íslendinga ein hin merkilegasta stofnun, sem um getur, og ætti því ekki að þurfa að spyrja þannig. Samt er því ekki að neita, að áliti þingsins er svo kom- ið í augum margra landsmanna, að spurningin kemur ekki á óvart, þegar um karlmenn er að ræða. Um konur gegnir allt öðru máli. í margar aldir var alsiða, að konur riðu til þings og stundum býsna fjölmennar. Þær áttu þang- að einkum tvö erindi: 1. að þola dóm og vera drekkt i Drekk- ingarhyl (oftast fyrir að hafa eignast börn, jafnvel með þing- mönnum), 2. að vera til sýnis álit- legum ungum mönnum og síðan seldar eins og hross, ef góður kaupandi bauðst. Ef það gerðist nú eftir meira en þúsund ára feril þessarar merku stofnunar, að konur tækju að mæta til þings jafn fjölmennar og karlar — sem alþingismenn, réttkjörnar til að ráða málum þjóðarinnar, þá væru það þátta- sídl i íslandssögunni samanlagðri. Einar Bragi „Kæra Bryndís! Þér hafa orðið á mikil mis- tök, en ekki óbætanleg. Engum dylst, að konur eru hin kúgaða stétt í íslensku þjóðfélagi. Þær eru farnar að hrista klafann, og það er vel. Þið ættuð allar að snúa bökum saman næstu vikur og fylkja ykkur um kvennalistana, því nú er Iag.“ Svo merkilegt getur það verið að vera þingmaður. En maður kýs ekki konu á þing bara af því að hún er kona, segir margur og þykist þar með hafa fundið snjalla afsökun fyrir að una misréttinu. En eins og málin horfa við í raun og veru, er það flótti frá veruleikanum. Þetta sést óðar, ef menn spyrja sjálfan sig og svara af hreinskilni: hvers vegna eru kcr.ur béiitar jafn yfirgengilegri rangsleitni og raun ber vitni? Treystir einhver sér til að færa að því rök, að þær hafi minni gáfur eða verra hjartalag en karlmenn og sé þess vegna verr trúandi en körlum fyrir stjórn þjóðmála? Því svara áreiðanlega allir neitandi — flestir af sann- færingu, sumir máski af heiguls- hætti eða yfirdrepsskap, af því að þeir þora ekki eða telja óhyggilegt að halda slíkri fjarstæðu fram. Hvort sem menn velta málinu fyrir sér lengur eða skemur, fæst ekki nema eitt svar: réttur kvenna er fyrir borð borinn, af því að þær eru konur. Þeir sem ferðinni ráða hafa stillt málum þannig upp, og fram hjá því verður ekki komist. Það er ekki æskileg vígstaða að láta andstæðinginn hasla sér völl. En það er vesæl afsökun fyrir að flýja af hólmi. Þeir sem eru jafn- réttissinnar í raun og sannleika, þeir sem styðja mannréttindabar- áttu kvenna sem annarra eiga I þetta sinn að kjósa kvennalistana — og einmitt af því að það eru konur sem að þeim standa. Fram- undan eru tvennar kosningar áður langt um líður. Ef konur risu upp úr vonlausu háðungarsætunum á flokkslistunum og kvennalistarnir ynnu stórsigur í fyrri kosningun- um, yrðu öll framboð flokkanna með allt öðrum og gæfulegri brag í þeim síðari. Að öðrum kosti mun allt sitja við hið sama og verið hefur. Ömurlegast var að hlýða á mæta konu tyggja upp þessa eld- gömlu fordóma, sem lengi hefur verið klifað á konum til óþurftar: „Konur eru konum verstar." Kannski finnst einhverjum, að hún hafi með málflutningi sínum fært manni heim sanninn um það. En þetta eru ósannindi. Ég gæti afsannað það með óteljandi dæm- um, en nefni aðeins fá og gríp fyrst til þeirra sem eru hendi næst. Ég hef að undanförnu verið að huga að sögu eins af verka- kvennafélögum landsins. Þetta var alltaf fámennt félag og fátækt mjög. En það gerðist aldrei í ára- tugasögu þess, að það brygðist traustinu, ef íconur leituðu eftir liðveislu þess. Ber þá fyrst að nefna, að félagið var gagngert stofnað og starfaði alla tíð með það meginmarkmið fyrir augum að bæta kjör kvenna, og gerði það svo um munaði. En fleira má telja: „Formaður félagsins ... skýrði frá, að frú Bríet Bjarnhéðinsdóttir og Aðalbjörg Sigurðardóttir hefðu * hyggju að stofna kvennablað, og var samþykkt, að félagið legði til 25 kr. úr félagssjóði," segir í einni fundargerðanna. Þetta var stór hluti af sjóði félagsins. í fundar- gerð 19. desember 1920 stendur: „Var þar framlögð skilagrein fyrir innkomnu fé frá böggiauppboðinu, sem haldið var 18. desember og peningarnir taldir, ágóðinn nam alls kr. 573,35. Var þá samþykkt að verja þessari peningaupphæð til styrktar og læknishjálpar veiku konunni NN...“ Þannig gæti ég haldið áfram að rekja úr þessari einu bók hvert dæmið af öðru um, að konur eru konum bestar í raun. Og hvað þá ef farið væri í gegnum bækur allra verkakvennafélaga, kvenfélaga eða kvenréttindafélaga á íslandi? Mun ekki mála sannast, að allt hið markverðasta sem áunnist hefur í mannréttindamálum kvenna hef- ur náðst fram einmitt vegna þess, að konur voru hver annarri góðar: stóðu hlið við hlið í baráttunni fyrir sjálfsögðum rétti sínum? Síst af öllu vil ég gleyma þeim góðverkum sem hvergi eru skráð, þó unnin hafi verið um víða veröld frá upphafi vega og aldrei muni þverra. Um þau hefur Jón úr Vör ort snilldarkvæði: Konur, sem bera mjólkurkönnu undir svuntu sinni í hús nágrannans, þegar börn eru veik, konur, sem lauma í rökkrinu nýskotnum fugli eða fisk- spyrðu inn um eldhúsgætt grannkvenna sinna, ef farið hefur verið á fjörð, konur, sem senda börn sín til að segja: Ekki vænti ég; að {)Ú búir svo vel að geta lánað henni mömmu hálf- an bolla af brenndu kaffi, konur, sem rífast síðan næsta dag út af hænsnunum eða börnum sínum og sættast á morgun, góðar konur. Kæra Bryndís! Þér hafa orðið á mikil mistök, en ekki óbætanleg. Engum dylst, að konur eru hin kúgaða stétt í íslensku þjóðfélagi. Þær eru farnar að hrista klafann, og það er vel. Þið ættuð allar að snúa bökum saman næstu vikur og fylkja ykkur um kvennalistana, því nú er lag. Við karlmennina vildi ég að endingu segja: Allir erum við af konu fæddir og blessum þær fyrir að hafa alið heiminum þvílíka höf- uðsnillinga. Flestir höfum við átt langömmur eða ömmur sem fengu ekki að læra að skrifa nafnið sitt, hve vel sem þær voru af guði gerð- ar. Margir höfum við nælt okkur í kostakonur og erum að vonum drjúgir af, því hver maður fær þá konu sem hann á skilið. Stoltir er- um við af dætrum okkar göfgum og gáfuðum, því hvert ætli þeim bregði nema beint til hans pabba síns? Sumir eigum við systur prúðar, og síst má gleyma sonar- eða dótturdætrunum, sem við dáum og eiga að erfa jafnréttis- ríkið. Allar þessar góðu konur eiga það inni hjá okkur, að við leggj- umst nú einu sinni á sveif með þeim, þegar mikið liggur við. Og þegar allt kemur til alls er engum tamara en okkur að kjósa konur, af því að þær eru konur. Eða hvað? Fróöleikur og skemmtun fyrirháa sem lága! A SKÍDUM 1983___________1, JANUAR — 30. APRIL Skráningarspjald Allt sem gera þarf er að fara fimm sinnum á skíði á tímabilinu, eina klukkustund í senn. Hver einstaklingur er talinn með í keppn- inni. Allar tegundir skíða gilda. Einn fer á svigskíði, annar á gönguskíði eða hvoru tveggja. Nafn Heimilisfang Héraö Hve oft Skilið skráningarspjaldinu til skíðafélags, á skíðastað eða til annarra aðilja sem verða auglýstir síðar. SENDA MÁ SPJALDIÐ MERKT SKÍDASAMBANDI ÍSLANDS, ÍÞRÓTTAMIÐSTÖDINNI, LAUGARDAL, 104 REYKJAVÍK. NORRÆN FJÖLSKYLDULANDS- KEPPNI Á SKÍÐUM 1983

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.